Vísir - 22.03.1958, Síða 1
q
I
V.
45. árg.
Laugardaginn 22. marz 1958
66. tbl.
Húsnæðismál á þingi:
Stjórnin lofaði 84 millj.
kr. - borgaði 20 millj.
En Hannibal er harðánægður.
í gœr var til umrgeðu í Neðri
deild frumvarp stiómárinnar
um breytingar á Ipgum um hús-
nœðismálastpórn o. fl.
Er í frumvarpinu gert ráð
fyrir ýmsum breytingum á hús-
næðislöggjöfinni síðan í fyrra.
Nefndin, sem málið fór til, hafði
klofnað. Lagði meirihlutinn til,
að frumvarpið yrði samþykkt
óbreytt, en minnihlutinn bar
fram ýmsar breytingartill. Eru
tillögur minnihífitans efnislega
samhljóða frumvarpi, sem
Sjálfstæðismenn lögðu fram á
öndverðu þii^gi um breytingar
á löggjöfinni, en það frumvarp
hefur ekki einu sinni fengizt
afgreitt í nefndinni.
Gallar á
lögunum.
Kjartan J. Jóhannsson, fram-
sögumaður minnihlutans, talaði
fyrstur og kvað flesta nefndar-
menn hafa orðið sammála um,
að lögin og framkvæmd þeirra,
væri á ýmsan hátt gölluð. Þi
mundu stjórnarliðar ætla at
láta þar við sitja. Vék hann síð-
an að ýmsum hlutum breytinga
tillagnanna, er miða að því að
fella niður skyldusparnað, og
taka upp frjálsan sparnað, gera
umsóknareyðublöð húsnæðis-
málastjórnarinnar viðráðanleg
almenningi og loks eru í þeim
ráðstafanir um útr.ýmingu
heilsuspillandi húsnæðis, auk
ýmissa fleiri nýmæla.
Jóhann Hafstein talaði næst-
ur. Lét hann í ljósi óánægju yf-
ir því, hvernig afgreiðslu mála
væri háttað. Hefði húsnæðis-
lagafrumvarp þeirra Sjálfstæð-
ismanna, er fram kom á önd-
verðu þingi, verið látið bíða
óafgreitt, en frumvarp stjórn-
arinnar, sem væri í öllu ó-
merkilegra og seinna fram kom
ið, afgreitt. Ræddi hann síðan
um húsnæðislöggjöfina almennt
og þær nauðaómerkilegu breyt-
Frh. á 2. síðu.
Flugmenn þekktu eigi
Drott úr 250 skipum.
En fbgið verður aftur í dag.
I gær var hætt við að gera
tilraun til að nota þyrlu til að
bjarga hinum slasaða manni á
selveiðiskipinu Drott, sem er
langt inni í ísnum norður af
Vestfjörðum.
Var samband haft við norsk
vfirvöld heima í Noregi og
spurt um, hversu mikillar að-
stoðar væri óskað vegna slyss-
ins, og bárust þau boð frá
Noregi, að ekki væri þörf fyrir
annað en að norska eftirlits-
skipinu Draug væri veitt aðstoð
við að komast gegnum ísinn til
Brotts. _
Eins og Vísir sagði frá í gær,
var í fyrstu upp ráðagerð um
að reyna að koma manninum í
sjúkrahús hér með því að senda
þyrlu, sem væri látin lenda á
palli, er gerður yrði á brezka
eftirlitsskipinu Russell, sem
verið hefur hér við land. Síðan
fréttist, að Draug væri á hraðri
ferð að ísspönginni, þar sem
skipið hefur lækni um borð,
var víst, að það mundi geta
komizt fyrr á vettvang en
flugvél vegna tafsams undir-
búnings. Var þess vegna hætt
við þá fyrirætlun, en flugvél
björgunarsveitarinnar í Kefla-
vík falið að veita Draug aðstoð
til að komast sem skjótast
gegnum ísinn.
Þegar Vísir fór í pressuna í
gær, var ekki vitað, hvernær
Draug gæti verið komið á vett-
vang.
I síðustu fréttum í gærkvöldi
var frá því skýrt að flugvélin,
sem send var á vettvang frá
Keflavík hafi snúið aftur eftir
11 klukkustunda flug, þar af
4% stunda flugi yfir sjálfu
leitarsvæðinu. En flugvélin gat
ekki fundið Drott vegna þess að
250 skip voru á leitarsvæðinu
og ekkert beirra gaf merki um
að það þyrfti á aðstoð að halda.
Fyrir bragðið var ferð flugvél-
arinnar árangurslaus.
Þá var þess ennfremur getið
í fréttunum að á eftirlitsskip-
inu Russel hafi verið unnið áð
því að smíða páll fyrir þyrlu og
yrði hann prófaður í fyrra-
málið.
fararskjóta í síðasta sinn. Sjá fregn á 8. síðu.
Gamli Gullfaxi floginn á
fund nýrra húsbænda.
Hefur verið seldur til
S.-Afríku.
í gœr fór Gullfaxi eldri —
sú millilandaflugvél, sem lengst
hefur verið í eigu íslendinga —
héðan hinzta sinni undir ís-
lenzkri stjórn og skrásetning-
armerkjum og tekur nú við
nýju hlutverki á suðurhveli
jarðar.
Flugfélagið Africair í Jóhann
esarborg keypti flugvélina fyrir
nokkru og að undanförnu hef-
ur verið unnið að skoðun á
henni í Reykjavík.
Frá Fillipseyjum
til íslands.
Flugvélin kom fyrst fimmtu-
daginn 8. júlí 1948. Forstjóri fé-
lagsins, Örn Ó. Johnson, sem
komið hafði frá Bandaríkjun-
um nokkrum dögum áður, hafði
átt í vikulöngum samningum
við fyrri eiganda vélarinnar,
Philippine Airlines.
Laust fyrir kl. 5 þennan
fimmtudag, hófu sjö flugvélar
Flugfélags íslands sig til flugs
frá Reykjavíkurflugvelli og
stefndu á haf út. Þær hurfu
vestur á bóginn, en innan stund
ar heyrðust drunur í lofti og
nú birtust átta flugvélar í odda-
fylkingu og fór Skymaster
flugvélin fyrir, en lenti síðust
eftir að hafa hnitað nokkra
hringi yfir bænum og flogið
lágt yfir flugvöllinn.
Nokkru síðar fór hann fyrsta
áætlunarflug sitt sem íslenzk
flugvél og um miðjan júlí var
áætlun hans auglýst í blöðum
og útvarpi, þar sem áætlaðar
voru vikulegar ferðir frá Rvík
til Kaupmannahafnar, Oslóar
og Prestwick.
Mikið var flogið á þessum
tíma og þann 1. september, tæp
um tveim mánuðum eftir að
Gullfaxi kom fyrst til landsins,
flutti hann þúsundasta farþeg-
ann. í byrjun desember 1948,
kom .heiðni.frá danska sendi-
ráðinu r Roykíavíkj uœt að sende
flugvél til Scoresbysunds á
Grænlandi með.lyf handa dönsk
um verkfræðingi, sem þar lá
dauðveikur. Þrátt fyrir erfið
veðurskilyrði var þessi ferð far
in og pósti og lyfjum kastað
niður í fallhlífum.
Þessi fyrsta ferð Gullfaxa til
Grœnlands bjargaði mannslífi
og var jafnframt fyrsta ferð ís-
lenzkrar flugvélar þangað að
vetri til. Síðan hafa ferðirnar
orðið margar og enn sem fyrr
heyja íslenzkir flugmenn harða
baráttu við óblíð veður í skamm
degismyrkrinu yfir auðnum
Grænlandsjökuls.
En leiguferðir voru farnar
víðar en til Grænlands, og Gull
faxi kom við á mörgum fjar-
lægum stöðum. Auk Bandaríkj -
anna og margra Evrópulanda
fór hann til Sýrlands, Kýpur,
Bermuda, Puerto Rico og Vene-
zuela. Hann kom til sextán
landa fyrsta árið, sem hann
var í eigu Flugfélags íslands og
flaug vegalengd, sem samsvarar
tíu sinnum kringum jörðina. —
Alls voru flugferðir Gullfaxa
þetta ár rúmlega tvö hundruð.
Margþœtt verkefni.
Snemma árs 1952 kom til
lækkunar fargjald milli landa
og nam lækkun á flugleiðum
Flugfélags íslands 8%. Gullfaxi
hafði þá um hríð verið eina
millilandaflugvél landsmanna
og flutningaþörfin jókst stöð-
Þessi mynd var tekin í gær, þegar gamli Gullfaxi, sem hefur aðeins gengið undir nafninu
Faxi í 10 mánuði, lyfti sér til flugs við brottförina til Jóhannesarborgar. Afgreiðslubygging
Flugfélagsins er í baksýn, og þar stendur hópur starfsmanna F. í. og fleiri til að kveðja þennan
(Ljósm,: Sveinn Sæmundsson).
ugt. Var þá horfið að því ráði
að breyta innréttingu Gullfa'xa
til samræmis við þau ferða-
mannafargjöld, sem þá gengu í
gildi. Voru legubekkir teknir
burtu, svo og skilrúm og settir í
flugvélina stólar fyrir 52 far-
þega. Vegnua þess að skilrúmin
voru tekin, varð ekki þrengra
tun farþega í sætum sínum en
áður hafði verið •
Eftir að Sólfaxi, önnur Sky-
masterflugvél félagsins kom til
landsins árið 1954, voru báðar
þessar flugvélar notaðar jöfn-
um höndum til áætlunarflugs
og leiguflugferða.
Nokkru síðar, eða árið 1955,
eykst enn verkefni þessara flug,
véla, er farið var að nota þær
til innanlandsflugs.
Hefur svo verið síðan og
hafa Skymasterflugvélar Flug-
félagsins iðulega flogið til Ak-
ureyrar, Egilstaða, Sauðár-
króks, og enn fremur til Horna-
fjarðar og Skógasands.
Eins og hundrað sinnum 'r
kringum jörðina.
Er Flugfélag íslands, fyrir
tæpu ári síðan eignaðist hinar
Framhald á 7. siðu.
Innanhúsmeistara-
mót FHl.
Á morgun fer fram í íþróíta-
húsi Háskólans innanhúsmeist-
aramót F.R.Í. Hefst mótið kl.
3 e.h.
Keppnisgreinar að þessu
sinni eru þrístökk, hástökk og
langstökk án atrennu, hástökk
með atrenu og kúluvarp.
Vilhjálmur Einarsson mun
reyna við Norðurlandamet í
langstökki án atrennu. Hann
náði nýlega afbragðsárangri í
þeirri grein, stökk aðeins .tíu
sentim. styttri en metið er nú.
Eins er um aðrar greinar að
segja, að búast má við geysi-
harðri og skemmtitegri keppni
í þeim. íþróttamennimir eru
allir í góðri þjálfun og aðeins
koma fram þeir beztu í hverri
grein. Meðal þeirra eru all-
margir ungir menn, sem mikils
má vænta af.
40 dönsltiim
skipum lagt.
Frá fréttaritara Vísis.
Kiiöfn í fyrradag.
Um 40 dönskum skipum hefur
nú verið lagt.
Þau eru samtals um 146.000
smálestir eða 7% af kaupskipa-
stól Dana, miðað við smálesta
tölw (gross reg, tonn),