Vísir - 02.04.1958, Blaðsíða 7

Vísir - 02.04.1958, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 2. apríl 1958 VlSIR 7 Póíyíé9t-kórmn hekfur kirkju- tónleika n.k. þr>5|tiáag. Kynnir lítt þekktan tóniistarstíl. Polýfónkórinn mun efna til iiirkjutónleika í Laug-arneskirkju á þriðjudaginn eftir páska. Stjórnandi kórsins er Ingólfur Guðbrandsson. Pólýfónkórinn var upphaflega barna- og unglingakór, og enn er kjarni hans börn og ungling- ar, sem Ingólfur Guðbrandsson Jiefur kennt við Laugarnesskól- ann og Barnamúsíkskólannn. En nú hafa nokkrir fullorðnir bætzt í hópinn, svo að kórinn er nú folandaður. Alís eru í honum 41 maður þar af 10 karlar. Flest söngfólkið er samt á æskuskeiði eða frá 13 ára aldri. Kórinn syng- ur í svonefndum pólýfónískum stil, sem er lítt þekktur hér á landi en kórinn vill kynna. Pólýfón er dregið af gríska orðinu pólíphonos, en var siðan tengt ákveðnum tónlistarstíl, þar sem allar raddir tónverksins höfðu hlutfallslega jafnmikla þýðingu, sjálfstæða langræna brejtingu og sjálfstætt hljóðfall, en mj-nduou þó hljómræna heild. Andstæða þessa stils er hið svo- kallaða homofoni, þar sem aðrar raddir en laglínan sjálf hafa lít- ið lagrænt gildi og enga sjálf- stæða breytingu. Er ekki að efa að marga mun fýsa að heyra þessa óþekktu tón- list en á efnisskránni eru verk eftir Bach, P. Nicolai, Buxtehude og Distler svo nokkuð sé nefnt. Páll Isólfsson mun leika undir auk nokkurra annarra hljóm- listarmanna auk þess sem Páll leikur einleik á orgelið. Ein- söngvari með kórnum verður Ólafur Jónsson. Stjórn kórsins skipa Ingibjörg Blöndal, Kristín Ólafsdóttir, Jó- hanna Jóhannesdóttir, Ásgeir Guðjónsson og Stefán Jónsson. Aðgöngumiða að hljómlsikun- um má panta í síma 12990 og kosta þeir 30 kr. // Þjóðleikhiisið: Eg bið að beiisa", „Bráðuhús'ð og „Tchaikovskystef". .\llir ballettame#/* eftir EeiS-i SMitSsteeS. Þjóðleikhúsið frumsýndi sið- astliðið föstudagskvöld þrjá balletta, Ég bið að heilsa, Brúðubúðina og Tchaikovsky- stef, sem hinn ágæti ballett- kennari Þjóðleikhússins, Erik Bidsted hefur samið. Svo sem kunnugt er eigum við íslendingar engar menn- ingarerfðir 1 listdansi, sem mjög er tíðkaður með öðrum jnenningarþjóðum og það kom bert í ljós síðast liðið föstu- dagskvöld, hvílíkt afrek Bid- síed hefur unnið hér með kennslu sinni í þessari listgrein, því að frumsýningin tókst fram úr skarandi vel. Að sjálfsögðu sköruðu þau fram úr Erik Bidsted, kona hans, frú Lisa Kæregaard og hinn danski ballettmeistari, John Wöhlk, sem dansaði hér sem gestur, en á því þarf engan að furða. Hitt vakti miklu fremur undrun, hversu mikla þjálfun hinir ungu nemendur ballettskóla Þjóðleikhússins hafa fengið undir frábærri leiðsögn ball- ettmeistarans, Erik Bidstedts. Þessi ágæti útlendingur kom hingað til lands, sem veíur- seíumaður, fyrir fáeinum ár- um og með starfi sínu við Þjóðleikhúsið virðist hann hafa tmnið hreinasta kraftaverk. Sýningarnar voru hver annarri fallegri, samhæfing og sam- æfing dansenda með ágætum og svifmýkt og sveigiþol sumra einstakra dansenda framúrskar andi. Ekki er hægt að nefna allan þann fjölda íslenzkra dansenda, sem komu fram í þessari sýningu, svo að ef til •vi.ll er ekki sanngjarnt að nefna neinn sérstakan, en þó get eg ekki stillt mig um að nefna Bryndísi Schram í hlut- verki sjóliðans í Brúðubúðinni. Það var frábærlega skemmti- leg frammistaða. Hún hefir ágæta „plastik“ og svipbrigða- leikur hennar var framúrskar- andi. Þá má einnig nefna Irmy Toft og Helga Tómasson, sem bæði virðast efnileg í þess- ari listgrein. í sérflokki eru auðvitað hin- ir erlendu listamenn, Lisa Kæregaard, Erik Bidsted og John Wöhlk. Það er að vísu stórt orð Hákot, en eg held, að óhætt sé að segja, að Erik Bid- steá sé snillingur. Flestir virðast hafa orðið á- sáttir um að áfellast gryfjubúa fvrir skort á ,,precision“ og sitthvað fleira, en allt læt eg það nú vera. Einhverntíma hef- ir maður nú heyrt annað eins. Hins vegar er gaman til þess að vita, að menn skuli ein- hverntíma geta orðið sammála um eitthvað. Því miður voru mörg sæti í Þjóðleikhúsinu full af tóm- leika á frumsýningunni. En ef bæjarhúar vilja ekki sjá þessa sýningu, er þeim ekki matur bjóðandi. Karl ísfeld. Ferðir SVR um Stræíisvagnar Keykjavíkur aka um páskahátíðina sem hér segir: .4 skírdag verður ekið frá kl. '9 til kl. 24; fösíudaginn langa frá kl. 14 'til kl. 24; laugardag fyrir páska verðui' hinsvegar ekið frá kl. 7—17,30 á öllum Ieifrum. ' Eftir kl. 17,30 verður aðeins ekið á eftirtöldum leiðum til kl. 24: Leið 1 Njálsg. —- Gunnars- braut á heilum og hálfum tima Leið 1 Sólveliir 15 mín. fyrir og yfir heilan tíma. Leið 2 Seltjarnarnes 2 mín. yfir hvern hálfan tíma. Leið 5 Skerjafjörour á heila- tímanum. Leið 6 Rafstöð á heila tím- anum með viðkomu í Blesugróf í bakaleið. Leið 9 Háteigs. — Hlíðar- hverfi, óbreyttur tími. Leið 13 Hraðferð —- Kleppur, óbreyttur tími. Leið 15 Hraðferð — Vogar, óbreyttur tími. Leið 17 Hraðferð Aust.— Vest. óbreyttur tími. Leið 18 Hraðferð Bústaðanv. óþreyttur tími. Leið 12 — Lækjarbotnar, síðasta ferð af Lækjartorgi kl. 21,15. Á páskadag hefst akstur kl. 14 og lýkur kl. 1 eftir miðnætti. Annan páskadag hefst akstur kl. 9 og Iýkur kl. 24. MESSUR Oháði söfnuðurinn: Föstudagurinn langi: Hessa í Kirkjubæ kl. 5 e. h.. Síra Óiafur Skúlason prédikar. Páskadagur: Hátíðamessa í Kirkjubæ kl. 4 e. h. Síra Emil Björnsson. Messur um hálíðina: Hátíðarmessui'. Dómkirkjan: Skírdagur: Messað kl. 11 ár- degis. Síra Jón Auðuns. Alt- arisganga. Föstudagurinn landi: Messað kl. 11 árdegis. Síra Óskar J. Þcvláksson. Síð- ! degismessa kl. 5. Síra Jón! Auðuns. Páskadagur: Messað kl. 8 síðdegis. Síra Jón Auðuns. Messað kl. 11 , ái'degis. Síra Óskar J. Þor- iáksson. Dönsk messa kl. 2 síðdegis. Síra Bjarni Jóns- son. Annar páskadagur: Messa? kl. 11 árdegis. Síra Jón Auðuns. — Síðdegis- messa kl. 5. Síra Óskar J. Þorláksson. Bústaðaprestakall. Skírdagur: Messa í Kópa- vogskirkju kl. 2. Föstudagurinn langi: Messað í Háagercdsskóla kl. 2. Páskadagur: Messað í Kópa- vogsskóla kl. 2. Annar í páskum: Messa í Háagerðisskóla kl. 2. Síra Gunnar Árnason. Hafnarfjarfrarkirkja: Skírdagur: Messa kl. 2. Krisniboðsguðsþjónusta. — Sama dag kl. 8.30 altaris- ganga. Föstudagurinn langi: Messa kl. 2. Páskadagur: Messa kl. 9 árdegis. Bessastaðakirkja: þjónusta kl. 5.30 síðd. árdegis. Kálfatjörn: Páskadagur: Messað kl. 2. Sólvangur: Annar í páskum: Messa kl. 1 Kaþólska kivkjan: Skírdagur: Biskupsmessa kl. 6 síðdegis. Föstudagurinn langi: Guðs- þjnóusta kl. 5.30 síðd. Laugardagur, aðfangadagur páska: Páskavikan hefst kl. 11 síðd.. Páskamessan hefst um miðnætti. Páskadagur: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 11 árd. Bænahald kl. 6.30 síðd. Fríikrkjan: Skrídagur, Messsa kl. 11 f. h. Altarisganga. Föstudarinn langi: Messa kl. 5 e. h. Athyglisvert á erlendum vettvangi í apríl. Apríl Atburður: Staður: 11.—20. Alþjóðl. kaupstefna Washing- tonríkis Seattle 11.—20. Alþjóðl. kaupstefna Zagreb 12,—21. Alþjóðl. kaupstefna Lyon 12.—22. Svissneska iðnaðarkaupstefna Basel 12.—27. Alþjóðl. kaupstefna Miiano 12.—27. Alþjóðl. kaupstefna Osaka 14,—17. Fjartækja- og viðtækja-sýning London 1- 14,—19. Sýning verksmiðjuvéla London 16.—25. Alþjóðleg sýning: Instruments, Electronies, Automation London 17/4—19/10 Heimssýning Briissel 18/4—1/5 Alþjóðl. kaupstefna Saarbrúcken 19.—27. Alþjóðl. húsbyggingasýning New York 19.—4. maí Alþjóðl. kaupstefna Lille 22,—30. Alþjóðl. sykursýning Amsterdam 24.—15. maí Alþjóðl. handiðnaðarkaupst. Florens 26.-29. Loðskinna-kaupstefna Frankfurt a/M 26.—4. maf Almenn kaupstefna Graz 26.—12. maí Sjrning íbrótta- og útilegu- útbúnaðar París 27.—6. maí Þýzk iðnaðarkaupstefna Hannover Blaðinu hefur borizt ofangreindur iisti frá skrifstofum Loft* leiða, sem veita nánari upplýsingar. tvaka i Lawgar- raeskirkfu aunað kvöðd. Páskavaka kirkjukórs Lang- holtssafnaðar verður haldin í Laugarneskirkju á skírdags- kvöld kl. 8,30. Er þetta í 4. sinni, sem kór- inn gengst fyrir slíkri samkomu og hafa þær verið fjölbreyttar og ánægjulegar. Að þessu sinni mun kórinn flytja mörg falleg kórlög eftir innienda og erlenda höfunda, Páskadagur: K. 8 f. h. og 2 e. h. Annar páskadagur: Barna- guðsþjónusta k....... Þor- steinn Björnsson. Hallgrímskirkja: Skírdagur: Messa kl. 11 f. h. Altai'isganga. Síra Sigur- jón Árnason. Föstudagurinn langi: Messa kl. 11 f. h. Síra Sigurjón Árnason. Messa kl. 2 e. h. Síra Jakob Jónsson. Páskadagur: Messa kl. 8 f. h. Síra Sigurjón Árnason. Messa kl. 11 f. h. Síra Jak- ob Jónsson. Annar í páskum: Msssa kl. 11 f. h. Síra Jakob Jónsson. Messa kl. 5 e. h. Altaris- ganga. Síra Sigurón Árna- son. Laugarneskirkja: Skírdagur: Messa kl. 2 e. h. Altarisganga. Föstúdagurinn langi: Messa kl. 2.30 e. h. Páskadagur: Messa kl. 8 f. h. og messa kl. 2.30 e. h. Annar í páskum: Messa ld. 2 e. h. Síra Garðar Svavars- son. Háteigssókn: Messur í hátíðasal Sjó- mannaskólans: Föstudagur- inn langi: Messa kl. 2 e. h. Páskadagur: Messa. kl. 8 ár- degis, ennfremur messa kl. 2,30 e. h. Séra Sigurbiörn Einarsson prófessor prédikar. Annan páskadag: Barnasam- koma kl. 10,30 árdegis. — Séra Jón Þorvarðarson. Neskirkja: Skírdagur: Messa kl. 2; almenn altarisganga. Föstu- dagurinn langi: Messa kl. 2. Páskadagur: Messa kl. 8 ár- degis og kl. 2. Annar páska- dagur: Barnamessa kl. 10,30 og messa kl. 2. Séra Jón Thorarensen. svo sem Sigvalda Kaldalóns, Sigurjón Kjartansson, Bach„ Mozart, Bortmiansky o. fl. Með- al laganna má nefna þrjú norsk sálmalög, sem nú eru fyrsta sinni kynnt hér við íslenzka texta, en verða vafalaust vin- sæl í íslenzkum kirkjum jafnt sem norskum. Kórinn vill þann- ig sem fyrr leitast við að auka fjölbreytnina í kirkjusöngnum. hér, en ýmis lög, sem flutt hafa verið fyrsta sinni á páskavöku kórsins, eru nú sungin við mess- ur til jafns við önnur sálma- lög. Lögin eru ýnjist sungin af blönduðum röddum eða karl- röddum. Einsöngvari með kórnurn er að þessu sinni Karl Sveinsson, og auk þess syngur hann með- orgelundirleik lög eftir Sig- valda Kaldalóns og Sigurð Þórðarson. Sr. Jakob Kristinsson, hinn. alkunni ræðusnillingur, flytur stutt erindi, er hann nefnir „Blikur af öðru lífi“. Þá les Oddfríður Sæmunds- dóttir nokkur frumort kvæði,. Hún er ein þeirra mörgu ís- lenzku kvenna, sem ann ljóða- dísinni, þótt fáar stundir gefist frá heimilisstörfum. Ennfrem- ur les ung stúlka, María Árelí- usdóttir, fagurt ævintýri eftir H. C. Andersen. Aðgangur að páskavökunni er ókeypis og öllum heimill, en fjárframlög til kirkjubygging'- ar safnaðarins eru þakksamlega þegin. Óskadraumur safnaðar- ins er, að félagsheimili kirkj- unnar geti orðið starfhæft á þessu ári, en bygging þess hófst í fyrra, sem kunnugt er. Öll liðveizla við það mál er kær- komin. ----•----- Brúðkaup. f dag verða gefin saman í hjónaband af séra Árelíusi Níelssyni Hjördís Heiða Björnsdóttir frá Hnjúkum í Húnavatnssýslu og Andrés Sigurður Jónsson frá Pat- reksfirði. Brúðhjónin eru í. dag stödd á Flókagötu 61,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.