Vísir - 19.05.1958, Blaðsíða 3
Mánudaginn 19. maí 1958
— ■ - - - ■ * . ^ ./r.v. -l
Hér sést aflakóngur íslantls
1958, Benóný Friðriksson.
„Skyldu Grindvíkingar hafa
liaft það? Það þætti mér fjandi
hart!“
Vestm.eyjum, 11. maí.
I dag, á lokadag, lauk vetrar-
vertíð Vestmannaeyjabáta. —
Hafa nú aljir bátar, að einum
undanteknum, tekið' upp net
sín.
Þessi vertíð línu- og neta-
■ báta, sem nú er lokið, er sú
bezta, sem komið hefir í Eyjum
frá því að útgerð hófst hér og
er þá langt talið, því Landnáma
greinir frá útgerð héðan.
Segja má, að framan af línu-
vertíð hafi gæftir verið stop-
ular og lá þá einatt í norð-
. itustan og norðan hvassviðri.
Um 10. marz höfðu flestir
bátanna tekið upp línuna og
lagt net sín; má því segja, að
línuvertíð hafi lokið hér þann
dag. Á línuvertíðinni höfðu
flestir bátanna aflað 100—200
tonn og er því hlutur línver-
tíðarinnar hér eins og jafnan
áður rýr miðað við heildarafla
vertiðarinnar. Þó betri hjá
mörgum.
Á helginni 16. marz gerði
ofsarok af austri og var þá
netjatjón báta mjög tilfinnan-
legt og talið að tjónið næmi
20—25 þúsundum króna að
meðaltali á bát.
Hámarkið
var 8. apríl.
I seinni hluta marzmánaðar
brá til batnaðar með afla og
. veður, en þó brást afli enn að
mestu hjá handfærabátum.
8. apríl náði svo vertíðdn há-
.punkti sínum, en þann dag bár-
ust á Jand 1767 lesiir, en það
' er mesía aflamagn, sem borizt
• hefir á lánd' í Vestm.eyjum.
Annar bszti afladagu.rinn vár
.svo, 13. apríl, en þá bámst á
land um 1600 lestir.
Athyglisvert er það,. að báða
. þessa miklu afladaga bar upp
• á þriðjudag.
Þó á ýmsu ha,'i gengið á Jið-
ánni vertíð Jivað snertir gæftir
. og afla, þá er það rómur alJra
.sjómanna, að varla háfi þeir í
minni betri vertíð hvað snert-
ir veðurfar, afla og erfiði.
Vissulega eru nær allir þeir,
er stunda veiðar með liandfær-
VtSI*
9
Vertítatlck
I VESTMI X X A E Y J U M.
um hér undanskildir, því ver-
tíð handfærabátanna er eflaust
sú lélegasta, sem hér hefir
komið mörg síðastliðin ár og
munu um 47 bátar ekki hafa
aflað fyrir tryggingu og sumir
svo tilfinnanlega lítið, að til
stórvandræða virðist horfa
fyrir útgerð margra hinna
smærri báta. Margir útgerðar-
menn smærri báta eygja ekki
neina leið til að rétta hlut sinn
og forðast vandræði um
rekstur og áframhald útgerða
sinna, þ. e. handfærabátanna,
ef ekki rýmkast eitthvað um
með dragnótaveiðar og leyfi til
þeirra í sumar.
Yfir 52 þús. lestir.
Þó illa hafi gengið fyrir þess-
um mikla flota handfærabáta,
þá mun aflabrestur þeirra ekki
ná til að skerða heildarafla
Eyjabáta nema að mjög litlu
leyti, ef tillit er tekið til.þess,
að afli handfærabáta á vertíð-
inni 1947 var aðeins liðlega
5% af heildarafla þeim, er á
land barst í Vestm.eyjum.
í dag er heildaraflinn, mið-
að við veginn fisk upp úr sjó,
samtals 52.445 tonn.
Skiptist aflinn þannig milli
f iskvinnslustöðvanna:
Vinnustöð Vm. 13.670 tonn,
en það er um 1000 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra
og lætur nærri að aukningin
lijá liinum fiskvinnustöðvunum
sé í svipuðu blutfalli:
Hraðfrystist. Vm........12.503
ísfélag Vm............... 9.312
Fiskiðjan, Vm........... 12.005
Ársæll Sveinsson, Vm. 2260
Helgi Benedilctss., Vm. 2000
Aðrir, Vm.................. 700
Afla þennan liafa 75 neta- og
línubátar, 53 liandfærabátar og
16 trillubátar veitt. En þess
ber þá að geta að bátafjöldi
þessi er mun meiri en á ver-
tíðinni í fyrra.
| Lifrarmagn eftir vertíðiná
var 3550 tonn af lýsi og er það
^ 400 tonnum meira en á sama
1 tíma í fyrra.
I
Bátar með 700
tonn eða meira.
Framleiðsla á fiskimjöli lijá
Fiskimjölsverksmiðju Vest-
mannaeyja nam 3240 tonnum,
en það er um 1000 tonnurn
meira en í fyrra. Nú í vetur
liafa veriö gerðar á verksmiðj-
unni mjög gagngerar endur-
bætur og miklar viðbyggingar,
svo lieita má að hér sé um
nýja verksmiðju að ræða.
Á þessari vertíð hafa 28 bát-
ar aflað 700 tonn eða meira.
Eru þeir meira en helmingi
fleiri en í vertíðarlok í fyrra.
Bátarnir ( u:
1. Gullborg
2. Ófeigur III .
3. Freyja .....
4. Kristbjörg .
1284 tonn
1052 —
965 —
941 —
Gunnlaugur Björnsson, yngsti
hásetinn á Ófeigi III. Gunn-
laugur varð nýlega 18 ára, en
aflahlutur hans var á 53. þús-
und króna.
5. Bergur....... 932 —
6. Reynir ......... 920 —
7. Sigurður Pétur 914 —
8. Stígandi ...... 911 —
9. Kap ............ 850 —
10. Snæfugl ...... 850 —
11. Sigurfari ...... 842 —
12. Gjafar ......... 834 —
13. Víðir SU ...... 817 —
14. Bergur NK .... 807 —
15. Þórunn....... 795 —
16. Hilmir ......... 793 —
17. ísleifur III .... 783 —
18. Sjöstjarnan .... 782 —
19. Erlingur III . . 753 —
20. Týr ............ 768 —
21. Sjöfn .......... 745 —
22. Baldur ...... 744 —
23. Hildingur .... 741 —
24. Ágúst .......... 731 —
25. Maggý .......... 706 —
26 Frigg ........... 706 —
27. Halldon ...... 702 —
28. Sidon .......... 702 —
Hásetahlutur á tveimur afla-
hæstu bátunum var:
Gullborg 1285 tonn, háseta-
hlutur rúml. 60.000.00.
Ófeigur III 1052 tonn, háseta-
hlutur rúrnl. 52.260.00.
Eins og að framan greinir þá
var Gullborg aflahæsti bátu'r-
inn með 1284 tonn, en það er
mesti afli sem um getur á
netabát hér á landi og mun þé
með sanni mega segja, að afla
kóngur Eyjanna sé jafnfram
aflakóngur víðrar veraldar.
.Ilann tók forust-
una snemma.
Fréttamaður Vísis náði tal af
formanninum á Gullborgu, <yi
hann er Benóný Friðriksson.
Það mun fáum hafa komið á
óvart að hinn landskunni for-
maður og aflakló Benóný Frið-
riksson skyldi verða aflahæstur
hér í vetur, vegna þess að
snemma í byrjun vertíðar tók
hann forustuna og hélt henni ó-
slitið til vertíðarloka, þrátt
fyrir dugmikla sókn og keppni
annarra fiskisælla og afburða
formanna.
Benóný hefur síðastliðin 5 ár
ávallt skipað sæmdarsessinn og
setið í fiskikóngsstólnum og
með því ritað nafn sitt óafmá-
anlega í fiskveiðisögu Vest-
mannaeyja.
Benóný er fæddur 7. jan.
1904 ,sonur hinna góðkunnu
Grafarhjóna Oddnýar Bene-
diktsdóttur og Friðriks for-
manns Benónýssonar frá Núpi
undir Eyjafjöllum. Þau hjónin
fluttu til Eyja árið 1902, en
Friðrik var formaður um mörg
ár, rómaður fyrir dugnað og
fiskisæll mjög.
„Binna frá Gröf“, eins og
hann er kallaður hér, er því í
blóð borin góð formennslía og
aflasæld, enda vandist Jiann
sjómannsstörfum allt írá barn-
æsku og á barnaskóm sínum
hefur hann trítlað á trilluborði
og varla hafði hann slitið ferm-
ingarskónum er hann tólc við
formennsku í forföllum á vél-
bátnum Nansen, sem faðir lians
átti.
Ólafur Sigurðsson frá Skuld
var annar mesti aflamaðurinn í
Vestmannaeyjum.
Hefir verið á
ýmsum bátum.
Þóttu honum farast stjórnar-
störf öll vel úr hendi, enda var
honum sðar fenginn nýr bátur
v.b. Gulla, sem Gísli J. Johnsen
hafði þá nýlega keypt. Var
Benóný formaður á Gullu í
þrjú ár. Síðan með ýmsa báta,
t. d. enska bátirin Newcastle,
GuJltopp, Stjörnuna, Andvara
og nú síðastliðin ár með Gull-
borgina.
GulJborg er 82 smálestir,
byggð í Danmörku 1946, í henni
er 240 ha. Alfa-dieselvél.
Áliöfn sú sem fylgt hefur
Benóný er að mestu sú sama
og verið hefur undanfarin 8—
10 ár og einkennist af sam-
heldni, áræði og þreki.
Eg hafði varla hafið mál mitt
við Benóný er hann segir:
„Skyldu Grindvíkingar hafa
haft það?“ Hér átti Benóný við
það hvort hinir fengsælu afla-
kóngar Grindavíkur hefðu
svipt hann konungdómi ís-
lenzkra fiskimanna. Þegar eg
svara því neitandi, þá segir
hann: „Jæja, það hefði már
líka fundizt fjandi hart.“ Siðan
I Frli. á 11. s.
Ilér sjást átta af tíu skipverjv.m á Gullborgu. í fremri röð eru,
frá vinstri, Sigtryggur Sigtryggsson, Gunnar Garðarsson, Kol-
beinn Sigurjónsson cg Rögnvaldur Jókannsson. í aftari röð, frá
vinstri, Einar Hannesson stýrimaður, Benóný Friðriksson for-
maður, Einar Sigurðsson 1. vélstjóri og Pálmi Sigurðsson. —
Á myndina vantar Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Inga Jónsson.
i