Vísir - 19.05.1958, Blaðsíða 4
VfSIK
Mánudaginn 19. maí 1958
•<
Hérbdis licfur veiDst
60-70 pt. lax.
SeimiBega er Grímseyjarlax-
inn sá næst-stærsfi.
i Fyrir nokkru ritaði Þór
, Guðjónsson, veiðimálastjóri,
grein í Náttúrufræðjnginn
j um stóra laxa og leyfir Vísir
sér að endurprenta Hiana.
Það þykir jafnan tíðindum
sæta þegar veiðast risar meðal
dýranna. Veiði stóra laxins við
Grímsey 8. apríl síðastliðinn
vakti að vonum mikla athygli.
Oli Bjarnason, sjómaður í
Grímsey, veiddi laxinn í þorska
net, er hann hafði lagt um 400
m. vestur af eynni. Var netið
með 4 þuml. teini. Laxinn var
132 cm. að lengd og vóg 49 pd.
(24% kg) blóðgaður. Má ætla,
að hann hafi verið nær 50 pd.
með blóðinu. Mesta ummál
hans var 72 cm. Iiöfuðlengd
laxins var tæplega % af heild-
arlengdinni. Laxinn reyndist
vera 10 vetra gamall og hafði
hrygnt tvisvar, 7 vetra og 9
vetra gamall. Laxinum var got-
ið haustið 1946. Vorið 1951
gekk hann í sjó í fyrsta skipti,
þá nál. 16 cm. langur. Sumarið
1953 gekk hann í ána til þess
að hrygna, og má ætla að hann
hafi verið nál. 80 cm. að lengd.
Sumarið 1955 gekk hann öðru
sinni þá nál. 120 cm. að lengd.
Laxinn hefur gengið til sjávar
veturinn 1955—56. Eftir um
árs veru í sjó veiddist hann
mánudaginn 8. apríl í þorska-
net við Grímsey, svo sem fyrr
segir, við botn á 16 m. dýpi.
Laxinn hafði fest sig á hausn-
um í netinu og vöðlað því utan
um sig. Þegar netið var inn-
byrt, var mjög af laxinum
dregið.
‘í'elja má líklegt, að risalaxinn
frá Grímsey, sem almennt hef-
ur verið kallaður Grímseyjar-
laxinn, sé íslenzkur að upp-
runa. Hann gæti vel hafa verið
úr Laxá í Þingeyjarsýslu, eins
og margir hafa getið sér til, því
að í þá á ganga óvenjulega stór-
ir laxar. Þegar la?finn gekk í
sjó að aflokinni hrygningu, lik-
lega fyrri hluta árs 1956, var
hann af svipaðri stærð og
stærstu laxar, sem veiðast _í
Laxá.
Lax hefur áður veiðzt við
Grimsey, og er greinarhöfundi
kunnugt um tvo laxa, sejn
fengizt hafa þar í snurpinætur
að sumarlagi. Annar laxinn
veiddist af ms. Eldborg frá
Borgarnesi í júlí 1938, 3—4
sjómílur suðvestur af Grímsey
og vóg hann 16 pd. Hinn lax-
inn veiddist af bv. Tryggva
gamla 1942 eða 1943 suðvest-
an við eyna og var hann 7—8
pd. að þyngd.
Eftir veiði Grímseyjarlaxins
hefur töluvert verið rætt um
stóra laxa og margt rifjazt
upp um þá. Skal nú skýrt frá
því markverðasta, sem höfundi
er kunnugt um stóra laxa, sem
veiðzt hafa hér á landi.
Risalax veiddist í silunganet
í Hvítá í Borgarfirði hjá Flóða-
tanga á síðustu öld. Menn eru
ekki á eitt sáttir um þyngd
hans, hvenær hann var veiddur
eða af hverjum. í Veiðimann-
inum nr. 18., 1951, og síðar í
bókinni „Að kvöldi dags“ 1952,
skýrir Björn J. Blöndal, rit-
höfundur, frá því, að lax, sem
talinn var 70 pd., hafi veiðzt í
Hvítá frá Flóðatanga 1 Staf-
holtstungum. Björn bar sögu
þessa undir Þorstein bónda
Böðvarsson í Grafardal, sem
heyrt hafði hana af vörum
sömu manna og Björn. Þor-
steinn taldi þyngd laxins hafa
verið 65 eða 70 pd., en hélt þó
síðari töluna vera réttari.Stefán
Ólafsson telur í grein í Veiði-
manninum nr. 19, 1952, að
Björn fari rétt með þyngd lax-
ins og annað í frásögninni um
Flóðatangalaxinn, en bætir við,
að hann hafi veiðzt í svokall-
aðri Sandskarðalögn í kvísl úr
Hvítá, sem nú er þurr, og enn-
fremur, að Hálfdán bóndi á
Flóðatanga hafi veitt laxinn um
1880. Kjartan Bergmann, sonur
annars sögumanns ofannefndra
manna, telur laxinn hafa verið
64 pd. og er Jósep Björnsson á
Svarfhóli sammála Kjartani
um þyngdina. Kjartan segir
ir einnig frá því eftir föður
sínum, Guðjóni Kjartanssyni,
bónda á Flóðatanga, að stóri
laxinn hafí veiðzt á búskapar-
rárum Ásmundar Þórðarsonar á
Flóðatanga, en Ásmundur bjó
þar á árunum 1840—1862.
Kjartan telur, að Ásmundur
hafi veitt laxinn eða Björn son-
ur hans, er síðar bjó í Svarf-
hóli í Stafholtstungum. Þá hef-
ur Kristján bóndi Fjeldsted í
Ferjukoti það eftir Sigurði
Fjeldsted, föður sínum, að
Flóðatangalaxinn hafi vegið
120 merkur eða 60 pd. Hvort
f
heldur, að þyngd laxins hafi
verið 60, 64 eða 70 pd., þá er
Flóðatangalaxinn stærsti lax,
sem sögur fara af, að veiðzt
hafi hér á landi.
Árið 1895 veiddist 45 pd. lax
í ádrátt í Laxá í Þingeyjarsýslu
frá Nesi. Þorgrimur Pétursson
bjó þá í 'Nesi, en Sigurður Guð-
mundsson og Jakob Þorgríms-
son veiddi laxinn í Vitaðsgjafa.
Steingrímwr bóndi Baldvinssn
í Nesi og Karl Sigurðsson,
bóndi á Knútsstöðum í Aðaldal,
hafa sagt mér frá þessum laxi.
Sigurður Sigurðsson, bóndi
að Núpum í Aðaldal, segir í
bréfi 1957 til Sæmundar Stef-
ánssonar, stórkaupmanps, frá
stórum laxi, sem fannst dauð-
ur í Laxá í Aðaldal á jóladag
1929. Laxinn var nák 123 cm.
að lengd frá trjónu og aftur að
sporði eða 132—133 cm., ef
sporðlengdinni er bætt við eftir
því, er Sigurður telur. Sigurð
minnir, að laxinn hafi vegið
36 pd. Lax þessi hefur verið
milli 40—49 pd. nýrunninn úr
sjó, því að gera má ráð fyrir,
að hann hafi tapað allt að 30%
af þyngd sinni frá því, að hann
geklc í ána. Er líklegt að um
hafi verið að ræða einn af fjór-
um stærstu löxunum, sem á
land hafa komið hér.
Frásagnir eru til af 7 löxum
milli 36 og 39 pd. Skal sagt frá
því, sem höfundi er kunnugt
um þá. Stærsti laxinn, sem
veiðzt hefur í Árnessýslu, vóg
39 pd. og fékkst fyrir um 40
árum í lögn, sem kölluð var
Víkin og var úti í Ölfusá. Um
þetta leyti stunduðu þeir Sig-
urgeir Arnbjarnarson og Símon
Jónsson, bændur á Selfossi,
veiðarnar, og er Sigurgeir
heimildarmaður minn um
þennan lax. 38 % pd. lax fékk
Kristinn Sveinsson á stöng í
laxaá landsins. Tveir 36% pd.
laxar hafa veiðzt á stöng í
henni, annar 1912 af L. S.
Fortescue hjá Nesi, en hinn af
Jakobi Hafstein þann 10. júlí
1942 í Höfðahyl.
Til samanburðar við ofan-
greint skal þess getið, að í ná-
grannalöndum vorum verður
lax stærri en hér á landi. Stærsti
lax, sem veiðzt hefur- í Skot-
landi, vóg 103 ensk pd. eða
93% íslenzkt pd. Kom hann í
net í Forthfirði. Stærstí stang-
veiddi laxinn vóg 58 íslenzk
pd., og veiddi hann kona í Tay-
ánni 1922. I Noregi veiddist
nvita nja iðu i juni 1946. Lax-
inn var 115 cm. á lengd og 70
cm. að ummáli. Þann 7. sept-
ember 1952 veiddi Víglundur
Guðmundsson lax, hæng, á
stöng í ármótum Brúarár og
IJvítár, og vóg hann 37% pd.,
var 122 cm. að lengd og 65 cm.
að ummáli. Laxinn var 6 vetra
gamall, hafði dvalizt 3 vetur í
fersku vatni og 3 vetur í sjó og
hafði ekki hrygnt.
í Hvítá í Borgarfirði hafa
veiðizt tvéir 36 pd. laxar. Ann-
ar veiddist í króknet frá Ferju-
koti rétt fyrir 1920. Daniel
Fjeldsted, læknir, vitjaði um
netið, sem laxinn var í, ásamt
Sigurði bónda Fjeldsted í
Ferjukoti, og hefur Daniel sagt
höfundi frá laxinum. í netinu
var einnig 26 pd. lax. Hinn lax-
inn var veiddur á stöng þann
22. ágúst 1930 fyrir neðan
Svarthöfða af Jóni J. Blöndal,
hagfræðingi, frá Stafholtsey.
I Laxá í Þingeyjarsýslu hafa
veiðzt tiltölulega flestir stórir
laxar miðað við laxafjöldann,
sem gengur í ána, og má því ó-
hikað telja hana mestu stór-
pu. a siong í rana-
ánni, og er hann stærsti At-
lantshafslax, sem veiðzt hefur
á stöng. Metlaxinn í Svíþjóð
veiddist í Faxánni 1914 og vóg
72 pd. í Finnlandi veiddist 70
pd. lax, 130 cm. langur, í
jKymmeneánni 1896. Stærsti
lax, sem veiðzt hefur í Dan-
mörku, fékkst. í Skjernánni
1953, og vó hann 53 pd. Hann
var 136 cm. á lengd og 70 cm.
að ummáli. Var hann því lítið
eitt stærri en Grímseyjarlaxinn.
Hér hefur verið sagt frá
stærstu löxunum, sem höfundi
er kunnugt um, að veiðzt hafi í
fersku vatni hér á landi og í
sjó. Heimildir, sem stuðzt hef-
ur verið við, eru vafalaust ekki
að öllu leyti tæmandi, og má
því vænta, að fram komi nán-
ari vitneskja um þessa laxa.
Þá má einnig við því búast, að
fleiri laxar 36 pd. eða þyngri
hafi veiðzt heldur en þeir, sem
hér hefur verið rætt um, og
væri æskilegt, að fá fregnir af
slíkum löxum.
„GróSiir" - Ijóðabók eftir
Artia G. Eylands.
skrifa sendibréf. Sú gáfa er ekkí
hættulaus, því hún freistar til
þess, að taka sér starfann létt
og lofa móðum að mása. Það.
liggur þó í því, er þegar var
sagt, að ekki virðist liafa orðið
honum að tjóni.
Því réð tilviljun að eitt sinn
komust í mínar hendur allmörg
óprentuð kvæði eftir Árna Ey-
lands, þau er í hvorugri bók
hans að f inna. Eitt þeirra,
„Eldmessan“, mikið kvæðd, hef-
ir þó síðan birzt í „Lesbók
Morgunblaðsins“, en margra
annara sakna eg stórlega. Eg
vona að þau eigi eftir að koma
fyrir almenningssjónir, þó að
þeim hafi að þessu sinni verið
úthýst.
Árni Eylands hefir ætíð ver-
ið afburða-starfsmaður. En
þó að hann hafi verið þrekmað-
ur, mun hann eins og aðrir
komast að raun um að.viturleg-
ast er að vinna í hófi. Hann
varð öndverðlega á þessu ári
að taka sér algera hvíld frá em-
bættisstörfum og fór þá til
Noregs, sem er honum annað
föðurland. Nú er það sumra
sögn að vafasamt sé hvort hann
treystist til að taka aftur við
embætti. Verði svo ekki, mun
fleirum en mér virðast sem
bændastéttin hafi mikils misst.
Það hefir hver maður getað séð
nú um langt árabil, að þó að af
engum sé dregið það er honum
ber, hefir á því skeiði enginn
verið skörulegri fprvígismaður
búnaðarmálanna en hann, og
enginn haft yfir þau meiri yf-
irsýn. Hann hefir reynst manna
einarðastur, og sennilega feng-
ið að finna það, að næðinga-
samt verður um hvern þann, er
einurð sýnir á okkar landi, enda
kunna flestir vel að forðast hað.
í „Gróðri“ kemst hann á einum
stað þannig að orði:
Að segja bændum sannleikann,
ei sýnist mikill vandi,
en þó er á því algert bann
svo oft í þessu landi.
Ljóðasafn Árna G. Eylands,
„Mold“, kom út um jólin 1955.
Á meðal þeirra, er um bókina
skrifuðu, var Gísli ritstjóri
Jónsson, en um langt skeið hafa
hans umsagnir um bækur ver-
ið á meðal hinna athyglisverð-
ustu, því að þær hafa að von-
um sýnt góða dómgreind og
um leið fágæta hreinskilni.
Eftir að hafa gert grein fyrir
skoðun sinni á „Mold“, segir
hann að niðurlagi: „Og svo fór
eg að’spyrja sjálfan mig: Er
ekki hér í raun og veru á ferð-
inni stórskáld? .... Stórskáld
er sá einn, sem hefir stórar
hugsjónir."
Tvennt virðist mér einkenna
Ijóð Árna Eylands, en það er
hugsjónir og samanþjappað
efni. Hvorugt ætla eg að sagt
verðd að almennt einkenni
kvæði hiixna yngri skálda; má
því vera að hvorugt sé aldar-
andanum að geði, og því ekki
eins og vera ber. „Man skal
hyle med de ulve man er
iblandt11, segja Norðmenn. En
hitt verður þá líka að viður-
kenna, að svo verður hver fugl
að fljúga sem hann er fiðraður.
Heyrir og hver maður til sinni
kynslóð.
„Mold“ var gróðurmold; um
það var ekki að villast. Og upp
úr henni er vaxinn „Gróður“;
en svo nefnist nýútkomin ljóða-
bók eftir þetta sama skáld.
(ísafoldarprentsmiðja).
Bókinni er skipt í tvo megin-
kafla, „Mold og gróður“ og
„Mál og menn“, hinn fyrri
miklu stærri. Þeir sem „Mold“
hafa lesið, munu auðveldlega
geta sér til um yrkisefnin í
fyrra kaflanum og meðferð
þeirra. í síðara kaflanum er
ort um samferðamennina, lífs
og liðna, hérlenda og erlenda.
Ekki er þá alltaf hirt um að
nefna nöfn, enda stundum alls-
endis óþarft, eins og t. d. þeg-
ar Árni yrkir um „‘Ráðs’-
manninn“. En það kvæði er
ekki nema þessi þrjú erindi:
Þykist vera manna mestur,
mælir góðverkin í spóni,
reynist flestum valdaverstur,
vcldur mörgum skaða og tjóni.
Flesta kosti beztu brestur,
blíðlega þó hann ræðu tóni,
í öllum málum illur gestur,
undirförull sleipur dóni.
Þó í valdasæti seztur
sé hann nú og hátt sér tróni
upp var margur annar festur
öllu betri maður á Fróni.
Skylt er að geta þess, að það
er aðeins örsjaldan að Árni yrki
í sama tón og hér, en líklega
munu enhverjir taka undir með
honum einnig þegar hann kveð
ur þetta lag;
Árni Eylands hefir þá gáfu
að geta ort ljóð eins og aðrir
Þá hentar betur blekking gróf
og þelgingur án raka,
og meiri há+tar málaþóf:
af miklu er hér að taka.
Þetta skilst, þó að ekki skelli
í tönnunum. Árni er, svo er
fyrir að þakka, aldrei torskil-
inn, enda er hann maður sepi
hugsar skýrt.
Sn. J.
----«----
Akureyrartogarar á
Grænlandsmið.
Frá fréttaritara Vísis. —i
Akureyri í gær.
Akureyrartogarinn Svalbak-.
ur kom af veiðum til Akureyr-
ar í gær með um 280 lestir a£
fiski, mestmegnis karfa.
Afla þenna hafði Svalbakur
fengið eftir 12 daga útivist á
Jónsmiðum og í Þverál. Karf-
! inn fer í hraðfrystihús til
, vinnslu.
Sléttbakur, sem kom s.l.
þriðjudag til Akureyrar og Vísir
hefur áður skýrt frá, reyndist
með nokkru meiri afla en talið
var í fyrstu, eða alls 293 lestir.
Togarinn Kaldbakur fór s.l.
laugardag á Grænlandsmið, þar
sem veitt verður í salt. Er bú-
izt við að togarinn verði a. m. k,
mánuð í ferðinni. ,,-.i