Vísir - 21.05.1958, Blaðsíða 6
VlSiF
Miðvikudaginn 21. maí 1953
l) A (i B L A tí
Vl»lr fcemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíðui.
Rltstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
vSkrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstrætl 3.
Ritstjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 0,00—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: (11660 (fimm línur)
Vísir kostar kr. 20.00 í áskrift á mánuðl,
kr. 1,50 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Frá heilbrigðisnefnd:
Aðskotahlutir berist
ekki framar í brauð.
/>et/i7 veiit itgrÍB' ni//ttm reitinfja-
stofuwn i Mtt>i/Sijjaf*t/».
w
Oeiniing t stærstu nsákim.
Á undanförnum mánuðum hef-
ir oftlega verið á það bent
hér í blaðinu, að „stjórn
hinna vinnandi stétta“
mundi veitast mjög erfitt —
svo að ekki sé dýpra tekið í
árinni — að finna lausn á
ýmsum helztu vandamál-
unum, sem við er að glíma í
þjóðfélaginu. Er ástæðan
einfaidlega sú, að þeir flokk-
ar, sem mynda stjórnina, eru
svo sundurieitir og hafa svo
ólíkar skoðanir á næstum
öllum málum. í rauninni
eiga flokkar þessir ekkert
sameiginlegt áhugamál nema
löngunina til að halda sem
lengst í ráðherrastólana og
skapa vinum og ættingjum
aðstöðu við jötuna.
Flokkarnir eru ósammála um,
hvei-nig eigi að leysa helztu
vandamál atvinnuveganna.
og hefir það komið rnjög vel
fram síðustu dagana, eða síð-
án „bjargráðin“ sáu dagsins
Ijós í frumvarpsformi. For-
ingi kommúnista á þingi hef-
ir ráðizt hatramlega gegn
þeim, og hann hefir ekki lát-
ið nægja að tilkynna leynt
og ljóst, að hann sé þeim
andvígur. Blað kommún-
ista hefir einnig tilkynnt al-
þjóð, að framsóknarmenn
hafi svikið flest annað, sem
þeir höfðu lofað á sínum
tíma, og með svikum sínum
sanni þeir, að þeir vilji rík-
isstjórnina feiga.
Raunar eru það fleiri komm-
únistar en Einar Olgeirsson,
sem hafa látið í ljós andúð
sína á bjargráðum stjórnar-
innar. Margir þeirra komm-
únista, sem mest láta á sér
bera í verkalýðsfélögunum,
eru reiðubúnir til að hefja
þar hina gömlu barátlu
sína, verkfallsbaráttuna, sem
hefir alltaf verið það vopn,
sem þeir hafa brugðið síð-
ast, af því að þeir geta unn-
ið mest tjón með þvi. Þess-
um mönnum finnst tími til
kominn, að kommúnistar
hefji hina hefðbundnu bar-
áttu sína á nýjan lcik til þess
að auka enn á erfiðleikana
í þjóðfélaginu.
En flokkarnir eru ekki aðeins
sundurþykkir í efnahags- og
atvinnumálum þjóðarinnarJ
Þeir eru ósammáia i helztu1
utanríkismálum okkar, og
nægir þar að nefna varna-
málin og aðild okkar að
Atlantshafs-bandalaginu. —
Æðsta takmark kommún-
ista í þeim málum er að losa
okkur úr öllum tengslum
við lýðræðisþjóðirnar sem í
bandalaginu eru, leitast við
að koma af stað deilum við
þær og ýfingum, svo að við
hrekjumst úr samfélagi
þeirra með einhverjum hætti.
Þetta hefir alla tíð verið
helzta baráttumál þeirra á
sviði utanríkismála okkar.
Þegar á þetta er litið, er ekki
von á góðu um starf ríkis-
stjórnarinnar, og því mjög
eðlilegt, að ekki sé bjart
framundan eða „lausn“ fund-
in á nokkru mikilvægu máli.
Það gefur einnig bendingu
um það, hvernig stjórnin
muni taka málin framvegis,
. því að þótt hún kunni að
komast að einhverri niður-
stöðu um aðalmálin að þessu
sinni, er vart fundinn betri
framtíðargrundvöllur fyrir
þessa sundurlausu hjörð.
Hún verður sjálfri sér sund-
urþykk eftir sem áður, þeg-
ar um helztu málin er að
ræða, og þjóðin verður að
súpa af því seyðið.
Fyrir nokkuru var lagt fyrir
heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
áætlun frá bæjarverkfræðingi
um holræsagerð og hefur
heilbrigðisnefndin þegar skiiað
áliti af sinni hálfu um hvaða
holræsi það eru, sem liún telur
mest þörf á.
Leggur heilbrigðisnefnd sér-
staka áherzlu á holræsi frá Há-
skólahverfi, holræsi í hluta af
Njarðargötu, holræsi í hluta
Holtavegar milli Engjavegar og
Langholtsvegar, byrjunarfram-
kvæmdir við Kaplaskjólshol-
ræsi, rotþró í Blesugróf og und-
irbúning að lagningu Fpssvogs-
ræsis.
Aðfinnslur.
Á fundi heilbrigðisnefhdár
15. apríl s.l. var lagt fyrir eig-
enduv veitingastofunnar Gosa,
Skólavörðustíg -10, að fram-
kvæma endurbætur að við-
lagðri lokun.
Á sama fundi var lagt fyrir
eiganda „Cafeteria“ í Hafnar-
stræti 15, að fara þegar í stað
eftir áður gefnum fyrirmælum
borgarstjóra, að viðlagðri lokun
ella.
Loks var eiganda fiskverzl-
unarinnar að Mánagötu 25 gert
að fara þegar í stað eftir áður
gefnum fyrirmælum borgar-
læknis varðandi fislcúrgang, að
viðlagðri lokun.
Á fundi heilbrigðisnefndar
þann 2. maí s.l. var samþykkt
að leggja fyrir eigendur Gamla
kompaníisins á Snorrabraut 56
að fara eftir áður gefnum fyr-
irmælum borgarlæknis, að öðr-
um kosti verði notkun sag-
geymslu fyrirtækisins bönnuð.
Samþykkt var ennfremur að
áminna eigendur Alþýðubrauð -
gerðarinnar h.f, Laugaveg' 61,
um að gera nú þegar nauðsyn-
legar ráðstafanir til að koma í
veg fyrir að aðskotahlutir berist
í brauðvörur fyrirtækisins.
Samþykktar umsóknir.
Á fundi heilbrigðisnefndar
frá 15. apríl s.l. var samþykkt
að veita Sláturfélagi Suður-
lands að breyta húsakynnum
sínum ,þ. e. niðursuðudeild, að
Skúlagötu 20.
Samþykkt var á sama fundi
að veita Henry Andreasen leyfi
til að starfrækja sjómannastofu
við Skúlagötu fyrir færeyska
sjómenn þar sem á boðstólum
verður kaffi, mjólk og kökur.
Bráðabirgðaleyfi var veitt
til starfrækslu rakarastofu að
Njálsgötu 48.
Samþykkt var umsókn Axels
Magnússonar um leyfi til að
hafa matarveizlur í húsakynn-
um Silfurtunglsins við Snorra-
braut.
Samþykkt var að veita Guð-
varði Sigurðssyni, Bjargarstíg 2,
bráðabirgðaleyfi til að starf-
rækja söluturn við Veltusund.
Þá var samskonar leyfi veitt
Sveini Símonarsyni til að starf-
rækja veitingastofu í Hafnar-
stræti 17.
Loks var á sama fundi sam-
þykkt að veita Páli Pálssyni
bráðabirgðaleyfi til að starf-
rækja veitingastofu að Vestur-
götu 45, þar sem á boðstólum
verður kaffi, kakaó, mjólk,
smurt brauöt, sætt brauð, heitar
pylsur, öl, gosdrykkir, tóbak,
sælgæti og blöð og tímarit.
Á fundi heilbrigðisnefndar-
innar þann 2. maí s.l. var sam-
þykkt að leyfa Kristínu Jó-
hánnsdóttur Grundarstíg 12 að
reka veitingastofuna Skeifuna
við Vogarskýlið með vissum
skilyrðum borgarlæknis.
Þá var Sigursæli Magnússyni
veitt leyfi til að starfrækja
veitingastofu að Brautarholti
22 og loks var Ásgeiri Guð-
bjartssyni matreiðslumanni
veitt leyfi til að starfrækja
veitingastofu að Lækjargötu 6
i núverandi húsakynnum til 1.
janúar 1960.
50 ára.
Einar Björnsson
skri/stofumaður.
Þeir, sem hafa góða skapgerð
og eru ritfærir gera öðrum
mönnum meira gagn í félags-
málum, — slíkur er Einar
Björnsson. Þess vegna ber að
þakka — á merkilegum tíma-
mótum — mikilsverð störf, um
Enn spyrja jsetr.
Málgögn stjórnarinnar hafa
stundum verið að spyrja,
hvað sjálfstæðismenn leggi
t-il í efnahagsmálunum. Síð-
an bæta þau við, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi engar
tillögur fram að færa, svo að
hann eigi ekki að leyfa sér
að bera brigður á það, að
stjórnarflokkarnir hafi fund-
iS réttar aðferðir til að leysa
vandann.
Þessu er hægt að svara með fá-
ekmm setningum: Stjórn
,.umbótaaflanna“ var m. a.
stofnuð til þess að útiíoka
Sjálfstæðisflokkinn frá allri
þátttöku í stiórn landsinq. r>g
hann hefir síðan verið leynd-
ur öllum helztu atriðum
þjóðmálanna, sem hægt hef-
ir verið að leyna. í öðru lagi
tilkynnti forsætisráðherr-
ann fyrir réttum mánuði, að
nú fyrst vissi hann — eftir
margra mánaða athuganir
sérfræðinga — hvernig mál-
i.n stæðu, og nú fyrst væri
hægt að athuga, hvað gera
mætti til úrbóta.
Getur nokkur ætlast til þess,
að flokkur, sem útilokaður
er frá stjórnarstarfi og öðru,
leggi fram tillögur, þegar
sjálfur forsætisráðherrann
vissi ekki neitt þar til fyrir
aðeins mánuði?
Btaðaljósmyndararnlr gíeymdu
kvikmyndastjörnunum.
Þeir komu auga á tvær norskar
blómarósir skammt frá.
Frá fréttaritara Vísis. —
Oslo í fyrradag.
Tvær litfríðar Oslóarmeyjar
,,stálu“ athygli manna frá
kvikmyndadísunum við Mið-
jarðarhaf í gær.
Kvikmyndahátíðin í Cannes
stendur þessa dagana, og á
laugardag voru nokkrar kvik-
myndastjörnur, þar á meðal
Dany Robin og Danielle Darr-
ieux, að spóka sig á eynni Ste.
Marguerite með herskara af
blaðaljósmyndurum á eftir sér.
En einhver deyfð var yfir
„selskapnum“, þar til einn
blaðaljósmyndarinn kom auga
á tvær ljóshærðar meyjar, sem
stungu sér til sunds af klettum
skammt frá. Þeir gleymdu
samstundis kvikmyndadísun-
um, og tóku myndir af sund-
meyjunum, sem reyndust Veraj
frá Oslo. Síöan ræddu blaða-
mennirnir við þær og kom þá
á daginn, að þær höfðu stund-
um leikið smáhlutverk í norsk-
um kvikmyndum, langaði til
að komast til stóru félaganna
úti í heimi, voru þarna í orlofi
og þar fram eftir götunum.
Kannske það. hafi ekki verið
alveg af tilviljun, að þær voru
þama í námunda við „gömlu“
stjörnurnar, og kannske ;,til-
viljunin“ beri árangur.
★ Hanunarskjöld kveðst vona
að á næsta alsherjárþing’
verði eiiirónia saniþykltt, að
ekkert jarðneskt ríki geri til-
raun til að leggja ulidir siy
tunglið eða nokkra plánetu.
langt skeið, 1 þágu bindindis-
málsins og íþróttamála. Einar
er manna skemmtilegastur í
umgengni, duglegur baráttu-
maður fyrir þau málefni sem
honum eru kær.
Kvæntur er Einar ágætis
konu, frú Ellen Lúðvíksdóttur,
og eiga þau þrjú mannvænleg
börn.
Þ. J. S.
Félagsbréf
A.B.
7. Félagsbréf Almenna bók-
félagsins er nýkomið út. Flytur
það m. a. þetta efni:
Ljóðagerð yngri skáldanna,
eftir Sigurð A. Magnússon. Er
þar fjallað um ellefu ung ís-
lenzk ljóðskáld og sýnishorn úr
verkum þeirra.
Sigui'ður Jónsson frá Brún á
þarna tvö kvæöd, sem heita
Framsvið og grunnur og' Heið-
arferð heitið.
Þá er grein eftis. svissneska
rithöfundinn Francois Bondy.
Nefnist hún Skáldið og komm-
íssarinn og er um skringilegar
tilraunir Ráðstjói'narinnar til
að koma í veg fyrir, að skáld-
sagan Dr. Zhivagó, eftir rúss-
neska skáldið Boris Pastarnak,
yrði gefin út á Ítalíu. Var þessi
saga bönnuð í Rússlandi. Þórð-
ur Einarsson skrifar nokkur
orð um skáldsögu þessa og höí'-
und hennar.
Halldór Þorsteinsson ritar um
leikhús, Glerdýrin og Gauks-
ldukkuna, en um bækur skrifa
þeir síra Sigurbjörn Einarsson
prófessor og - Eiríkur Hreinn
Finnbogason.
Þá er tilkynnt í þessu Fé-
lagsbréfi um næstu útgáfu-
bækur bókafélagsins, júní- og'
júlí-bók. Júníbókin heitir Til
framandi hnatta og er eftir
Gísla Halldórsson verkfræðing.
Fjallar hún um geimför og
geimfarir og er prýdd mörgum
myndum. Júlí-bókin er eitt af
kunnustu . verkum sænska
skáldsins Harry Martinson,
Netlurnar blómgast. — Þýðir
Karl ísfeld þá bók.