Alþýðublaðið - 07.01.1958, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 07.01.1958, Qupperneq 4
4 AlþýðufolaðiTJ Þriðjudagur 7. janúar 1958 VETTVAAfGitlt VAGS/AfS MJÖG MARGIR gamanleikir eru innilialdslausir eða inni- haldslitlir og skilja li'cið eítir þó að hægt sé að skemmta sér við þá í svijiinn. Romanoif og Júlia, gamanleikurinn, seni hjóðleikhúsið sýnir nú, er ekki einn af þeim. Hann bregöur upp skopmynd af raunveruleika dags ins í dag, og þegar ýmis uppa- tæki ieiksins eru gleymd, mun- um við Jhelstu atburðina og til- svörin. 1>KTTA finnst mér vera helztu kostir góðs gamanleiks. Gaman- leikurinn hefur annan og meiri tilgang en aðeins að knýja fram hlátra lekihúsgesta, þeir ciga líka að hafa nokkurn boðskap að flytja. — Það er mjög gaman að þessum leik — og Rússar og aBndaríkjamenn eru sýntíir í .skemmtilegu og eftirminnilegu Ijósi. Auk þess er allmikið skraut í leiknum og tekniskt fyr irkomulag á honum dálííið c-; venjulegt. Það er regluloga góð skemmtun að horfa á jjénnan leik. MÉ MKIR fyrir því, ef skrif mín um happdrættin hafa mis- skilist á þann veg að valda muni tortryggni í garð happdrætíis SÍBS. — Hapdrættið lýtur ná- kvæmlega sömu reglum og fyrir íTjælum um eftirlit og Happ- drætti Háskólans. Skipað cr happdrættisráð til eftirlits alveg Góður og eftirminnilegur gamanleikur. Enn um happdrættin að gefnu tilefni. Þrettándinn er að hverfa Gamlir siðir, sem týnast og engir koma í staðinn. eins og HHÍ — og stjórnskip- áðir endurskoðendur íjalla um reikninga þess. Ennfreinur veit almenningur til hvers fénu er varið. ÉG MINNTIST á happdrættin þrjú í sarhbandi við ummæli mín um happdrætti ýfirleitt og fjársáfnanir ýmsra lílmaríélaga. En ég hef hvað éftir annað bent á nauðsyn þess að setja þuríi á éftirlit með þeim. Ég er alls ekki andvígur happdræiium til nauðsynlegra framkvæmda. Mér þykir meira að segja sjáifsagt og nauðsynlegt að byggja há- skólahverfið, Reykjalund og elliheimili sjómanna fyrir fé, sem þannig er fengið. En happ- draéttin eru fleiri og fjársafnanir eru mýmargar. — Og ekkert eftirlit er til með öllu því far- gani. ÞRETTÁNIDNN er að hverfa í sinni gömlu mynd. Jólahátiðin virðist vera að styttast. Þctta er enn einn votturinn um það, hvað siðir eru fáir hér, hversu lííið við eigum af gömlurn siðnm. sem við höldum ttryggð við. Álfa- dansar við álfabrennur á gaml- árskvöld eða á þrettándanum virðist vera úr sögunni um land allt. Hér í Reykjavík va>- reynt að éfna til-slíkra leika lengi -vel, en nú haía menni alveg gcfist upp. í FÁTÆKTIN’NI í gamla daga, var þessi siður í heiðri hafður í sjávarþorpum og þéttbýlum sveitum. Með tilkomu rafmagns ins, þegar byggðirnar íóru að færast saman, dróg úr þessu. — Ég man m.argar álfabrennur og álfadansa með áKkóng og álfa- drottningu og hirðfólki. Þá var mikil hátíð og eftirminnileg. — Brennan á sjávarbakkanum, — syngjandi skrautbúin álfahirð — og svört fjaran og ólgandi liaf ið me.ð mkilum .gný framundan ósýnilegt í myrkrinu en þó svo náiægt. —.Allt er þétta horfið — og maður saknar þess. — Og engir siðir hafa komið í stað þeirra, sem eru að hverfa. Hannes á horninu. REYNT hefur verið að gera almenningi auðskilið með ýms- um dæmum hve lítið atómið — -frumeindin — sé í raun og veru. Eitt slíkt skýringardæmi hljóðar á þá leið að það mundi . taka alla íbúa jarðar tíu þús- und ár að telja frumeindir eins vatnsdropa. Og þó eru það þess «r frumeindir, sem losna úr læðingi við karnorkusprcnging- ar. Bandarískur kjarnorkuvís- indamaður hefur komizt þann- ig að orði: Kjarnorkurannsókn- um má helzt líkja við það, að jnanní, sem aldrei hefur séð siaghörpu, væri ætlað að lýsa lienni nákvæmlega samkvæmt llljóðinu, sem myndaðist þegai’ hún ylti niðúr stigaþrep í myr-kri. Það er eitt hið mesta sigurhrós vísindanna, að það skuli hafa tekizt að fá nokkra vitneskju um frumeindirnar. l'ísindamennirnir hafa komizt && raun um að hvert einstakt frumefni sé samsett af slíkum eindum, og sé ekki frumeind neinna tvegg.ja frumefna eins að byggingu. Og þar sem frum- jjjufnin eru um hundrað talsins, ^ra/rirfinnast því um hundrað ó- * !?k atóm. Engu að síður er-mót- súgn í nafninu, -— frumeind býðir raunverulega það, sem ekki verður skipt, en samt sem &Öur er hægt að sprengja hana ’ ' ótal hluta. Og til þess að sprengja þessar ósýnilegu agn- þarf gífurlegan vélakost, — hina svonefndu kjarnakljúfa. Þessir kjarnakljúfar eru stór skotabyssur karnorkualdarinn- ar. Þær skjóta ósýnilegum skot um á . ósýnileg skotmörk. Kúl- urnar eru öreindir, — svonefnd ■d r prótónur, elektrónur eða neutrónur, sem þeytt er af feiknakrafti að skotmarkinu, ó- klofinni frumeind. Takmarkið með skothríðinni er meðal ann- ars að komast að raun um bygg ingu atómsins, eða með öðrum orðum, hvað það sé, sem haldi hinum ýmsu eindum þe.ss sam- an. Arangurinn af slíkum rann sóknum getur orðið til að ger- breyta öllum okkar lífskjörum. Ennþá eru kjarnorkurann- sóknirnar nefnilega á byrjun- arstigi. Menn hafa náð þeim tökum á þeim, sem með þarf til að jafna borgir við jörðu eða til þess að lýsa upp borgir með rafmagni, en sjálft .eðli þeirra er óþekkt. Menn vita að þær eru hlaðnar óskaplegri orku, en hversvegna þær laðast saman og hvað heldur þeim saman vita menn ekki enn, nema að -sáralitlu leyti. Það er von manna að takast megi að leysa þessar gátur f.yr- ir tilverknað kjarnkljúfanna. Þegar minnst er á kjarnorku | sprengingu gera flestir sér í hugarlund ógurlegan hvell. Kjarnorkufræðingar leggja aðra merkingu í orðið. Þeir verða daglega vitni að mörgum þöglum kjarnorkusprengingum í hinum risastóru rannsóknar- stofum sínum, þar sem þeir mvlja frumeindirnar sundur í Áiþýðublaðið vaniar unglinga til að bera blaðið til áskrifenda í þessum hverfunt: Laugarási Kleppsholti. Miðbænum Rauðalæk. Talið við aigreiðslufla - Strni 14960 því skyni að kynna sér bygg- ingu þeirra og gerð. Jáfnvel þótt kjarnakljúfarnir séu stórfengleg og rándýr áhöld vinna þeir éftir tiltölulega ein- faldri hugmynd. Ef við eigum að halda áfram líkingunni við skotvopnin, þá er það hin já- kvæða og neikvæða orka raf- magnsins, sem notuð er í stað púðurs og segulmagnað svæði í stað byssuhlaups. Skot- markið er nokkrar milljónir frumeinda, og kúlurnar, —■ ör- eindirnar, — eyðileggja margar sem fyrir þeim verða. Á sek- úndu hverri rekast á hópar smá sólkerfa og sundrast, en marg- brotin mælingatæki og furðu nákvæm, lýsa öllu sem fram fer. Jafnvel mesónan, sem er ekki einu sinni milljónasti hluti úr frumeind og lifir að- eins milljónasta hluta úr sek- úndu, sleppur ekki við athygli þeirra. Vísindamennirnir geta fylgst méð hvað smárri og skammlífri öreind sem er og flokkað þar samkvæmt athæfi og eðli. Til eru mismunandi gerðir kjarnorkukljúfa. Sá stærsti þeirra sem enn hefur verið reistur af grunni, er í Berkeley í Kaliforníu, en í New York ér verið að reisa annan, sem verð- ur miklum mun stærri, — eða 150 metrar að þvermáli. Meðal þess merkilegasta, sem fundizt hefur við frumeinda- sprengingar í kjarnakljúfum, má telja ný frumefni, sem ef- laust hafa fyrirfundizt á jörðu vorri í árdaga, en eytt sér sjálf sökum geislavirkni sinnar. Þá er það andprótónan, sem sann- ar að hrein orka getur orðið að efni og efni að hreinni orku. Þá verða og ýmiss fyrirbæri úti í geimnum aðeins skýrð út frá þessum rannsóknum. Takist manninum að þekkja og skilja eðli frumeindanna, hlýturhann um leið skýringu á eðlislög- málum efnisins. Þegar það héfur tekizt, hefur mikið unnizt. Verkamannafélagið Dagsbrún idagsbím Féiagsfundur verður haldinn í Skátaheimiiinu við Snorrabraut, mið- vikudaginn 8. janúar 1958 kl. 8.30 s. d. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Lagabreytingar, 2. umræða. 3. Frumvarpið um rétt verkamanna til uppsagnar- frests og greiðslu launa vegna sjúkdóms og slysa- forfalla. 4. Önnur mál. .Félagsmenn sýni skírteini við innyangbnn. Stjórnin. Seldir verSa mjög ódýrir Aðallcga stök pör eða gallaðir. GARÐASTRÆTI 6 Ti Ikynning frá umboði Aisnanna trygginga í Gu!lbring.u- og Kjésarsýslu og Hafnarfirði. Frá 1. ianúar verða bætur í Gullbringu- og Kjósar- sýslu aðeins greiddar á þriggja mánaða fresti, það er eftir 15. marz — 15. iúní — 15. sept. og 15. des. og til loka þass mánaðar. Á öðrum tímum fara engar greiðslur fram í sýslunni. — Greiðsla til bótaþega í Hafnarfirði hefjast 10. hvers mánaðar. — Frá 1.—10. hvers mánaðar fara engar bótagreíðslur fram hjá umboðinu. BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI. Útför móður okkar og tengdamóður, GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR, Tjarnargötu 47, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 8, janúar kl. 2 e. h. Athöfninni verður útvaroað. Guðríður Jónsdóttir. Ragnhciður Jónsdóttir. Arnlieiður Jónsdóttir. Björn Bcnediktsson. Guðjón Guðjónsson. ■Guðjón II. Sæmxmdsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.