Alþýðublaðið - 15.01.1958, Page 12
VEBRIÐ: Gengur í vestan stinningskalda
með snjóéljum.
Alþýímblaötí)
Miðvikudagur 15. janúar 1958
Sovéfríkin verða að skuldbinda sig fi! að
hlífa Ámúmm S.Þ., ef árás verður
Segir Gaillard, forsætisráðherra Frakka, í
svarbtéfi til Bulganins um tillögu
Rússa um griðasáttamála
Óssmkvæini í orðum Rijssa og síyðn*
ingi við Asíy- ©g Afríku samþykicfir
PARÍS, þriðjudag, (NTB-AFP). Frakkar fallast á, að kom-
ið verði í kring ráðstefnu æðstu manna stórveldanna á hentug
um tínia að því tilskildu, að dagskráin verði áður undirbúin af
útanríkisráðherrum, segir í svari Gaillards, forsætisráðherra
Frakka, við bréfi Bulganins fá FO. desember sl.
t svari sínu segir Gaillard
ennfremur í sambandi við sov-
ézku tillöguna um griðasátt-
mála, að Sovétríkin verði fyrst
að skuldbinda sig til að virða
ákvarðanir Sameinuðu þjóð-
anna, ef til árásar komi, Gaill-
ard leggur til, að öllum samn-
ingum um ákveðin efni skuli
fylgja hátíðleg yfirlýsing um,
að löndin muni aldrei beita
valdi til að útkljá alþjóðleg
deilumál.
Gaillard kveðst ekki geta fall
izt á þá tillögu Rússa að stöðva
tilraunir með kjarnorkuvopn í
tvö til þrjú ár fyrr en ngápt
haif aiþjóðleg samþykkt um
framkvæmanlegt eftirlit og sam
komulag um stöðvun fram,-
leiðslu atómvopna í öllum lönd-
um. „Örfá lönd geta ekki kom-
ið á afvopnun“, segir hann,
VÍSAR PÓLSKU ÁÆTLUN-
INNI Á BUG.
Gaillard segir Frakka ekki
vera á móti öryggisráðstöfun-
um, en bendir á, að pólska é-
ætlunin um atómlaust svæði í
Mið-Evrópu sé takmarkað við
hernaðarlegar tillögur, sem
ekki sé Ijóst hve gagnlegar séu
en mundu aðeins staðfesta það
óheilbrigða ástand, esm nú rikti
í Mið-Evrópu. Áætlunin snert-
ir íiefnilega ekki við hinni póli-
tísku hlið málsins, segir Gaill-
ard og bætir því við, að hann
álk'ti ekki kleift að ræða hern-
aðar- og stjórnmálavandamál
Evrópu hvert fyrir sig,
RÚSSAR HINDRA
AFVOPNUN.
Ástæðan til, að ekki hefur
komizt á alþjóðlegu rafvopnun-
arsamningur er sú, að Sovét-
ríkin hafa neitað að kanna til-
lögur um eftirlitskerfi, seg.ir
Gaillard, sem bætir við, að
Far-kkar séu reiðubúntr til að
ræða hvernig koma megi á ný
umræðum um hin óleystu verk
efni á þessu sviði.
Gaillard segir, að tillaga Sov
étríkjanna um bann við notkun
kjarnorkuvopna muni ein ekki
nægja til að draga úr striðs-
hættunni og bendir á, að því
væri betra, að atómríkin skuld
bindi sig til að nota atómvopn
ekki nema í sjálfsvörn.
SJÁLFUM SÉR
ÓSAMKVÆMIR.
Lokjs benti Gaillard á, að
stuðningur Rússa við ráðstefnu
Asíu- og Afríkuríkja í Kairo
fyrir skemmstu sé að Frakka
áliti ekki samrýmanlegur full-
vissunum Rússa um fagran til-
gang gagnvart Frökkum, cg
vísar til ályktana fundarins um
tafarlaust sjálfstæði Algiers og
um hvatningu til franskra iands
svæða um að brjótast undan yf
irráðum Frakka.
„Vikan" efnir lil verðlaunasamkeppni
sambandi við Flugfélag íslands
VIKAN hefur ákveðið að
efna tvisvar til verðlauna-
keppni og hefst sú fyrri í blað-
inu, sem út kemur á morgun,
en sú síðari með næsta tölu-
blaði. Tvenn verðlaun verða
veitt: Flugferð til Kaupmanna-
hafnar og London og heim aft-
ur, Keppnin er í bæði skiptin
Önnur keppnin er ætluð á-
hugaljósmyndurunj, en hin öll-
um almenningi. Verður hún
tengd forsíðu Vikunnar hverju
sinni. Lesendum blaðsins er
ætlað að finna hversu mörg af
happdrættisskuldabréfum þeim
sem Flugfélag íslands nú býð-
ur til sölu, séu á forsíðumynd-
raunar að nokkru leyti tcngdar j inni. Þessi keppni hefst í 3. tbl.
starfsemi Flugfélags íslands,
en það þjóðþrifafyrirtæki hefur
í ór stundað innanlandsflug í
tvo áratugi.
Dagsbrúnarmenn
Munið fundinn í Iðnó annað kvöld
KL. 8,30 ANNAÐ KVÖLD verður Dagsbrúnarfundur í
Iðnó. Á íundinum mun stjórn Dagsbrúnar gera grein fyrir ina hlýtur sigurvegarinn í þess
Vikunnar og verða verðiaunin
flugferð fram og aftur til Kaup
mannahafnar.
Áhugaljósmyndurum er ætl-
að að spreyta sig á því, hver
tekið geti beztu og skemmti-
legustu -myndina, sem setja
megi í sambandi við siarfsemi
Flugfélags íslands. Frestur til
að skila myndum er til 22.
febrúar. Er „leikreglum1' lýsí
rækilega í Vikunni á morgUn,
en að launum fyrir beztu mynd
„störfum” félagsins á liðnu starfsári og væntanlega skýra frá
því hvernig hún muni haga hagsmunabaráttu verkamanna á
yfirstandandi ári.
Það er mjög nauðsynlegt að verkamenn mæti á fundi
þessum og veiti Dagsbrúnarstjórninni verðuga gagnrýni fyrir
starfsleysi hennar, sem hefur verið með eindæmum á liðnu
starfsári.
Á fundinum verður einnig rætt um stjórnarkosninguna,
sem fram á að íara n.k. laugardag og sunnudag. Frambjóð-
endur verkamanna — B-Iistans — rnunu á fundinum gera
grein fyrir þeim málum, sem þeir telja að vinna beri að á
yfirstandandi ári.
Veirkamenn; fjölmennið á Dagsbrúnarfundinn annað
kvöld.
ari keppni flugferð til London
og heim aftur.
Fregn til Alþýðublaðsins.
Búðardal í gær.
TÖLUVERÐUR sniór er í
Dölum og fæð erfið víða. Veg-
urinn suður yfir Bröttubrekku
var ruddur, svo að fært var í
dag, en ef fer að snióa aftur,
eins o» nú eru horfur á, verður
sennilega ófært aftur. Líkur
eru til, að haglítið verði, er
frystir á þennan blota. Svína-
dalsvegur er ófær. — Á. S.
Svar Macmillans
borið undir NATO
London, þriðjudag.
SVAR Macmillan við síðara
bréfi Bulganins um ráðstefnu
æðstu manna stórveldanna,
verður lagt fyrir önnur aðildar-
ríki NATO, áður en það verð-
ur sent til Moskvu, segir utan-
ríkisráðuneytið í London í dag.
Kvað talsmaður ráðuneytisins
svarið því ekki verða sent fyrr
en eftir nokka daga. Hann neit-1
aði þó, áð þetta þýddi, að mikl-
ar breytingar hefðu verið gerð-
ar á innihaldi bréfsins.
Hveíifarmur Pamirs
hefur hreyfzf
Lúbeck, þiðjudag,
('NTB-AFP).
Hreyfing á hveitifarmi um
borð í skólaskipinu Pamir var
aðalástæðan til að skipið fórst
með 86 manns um borð s. I.
haust, sagði Wendel prófessor
við háskólann í Hannover við
sjópróf út af máli þessu í aag.
Kvað prófessorinn sKipið ekki
mundu hafa fengið rúmlega 20
gráðu slagsíðu, ef það hefði haft
vatnstanka sem kjölfestu. —
Hann skýrði ennfremur frá
því, að skipið hefði getað þolað
30 gráðu slagsíðu án þess að
hvolfa.
Það cr nóg að gera hjá starfsmönnum pósthússins þegar Gu!I-
foss kemur frá útlandinu. Að þessu sinni kom hann meft 450
poka af pósti og 220 poka af bögglapósti. Hver poki vcgur um
40 kg. Gullfoss kemur með póst bæði frá Evrópu og Ameríku^
en Ameríkupóstinn tekur bann í Englandi þyí Ameríkurncnn
hafa þann hátt á að senda póst þaðan fyrst til Englands með
sínum eigin skipum, síðan er hann fluttur til íslands með ís-
lenzkum Skipum. Mikili hluti póstsins eru blöð og tímarit. —■
Hér á myndinni er verið að lesa sundur póstinn í pósthólfin,
(Ljósm. Alþbl. O. O.
Agælur og fjölsóttur fundur
Einhugur og áhugi á glæsilegum
sigri Alþýðuflokksins í bæjarstjórn-
arkosningunum í Reykjavfk
KVENFÉLAG Alþýðuflokks
ins í Reykjavík hélt fund í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu s.
1. mánudagskvöld. Fundarefni
var bæjarmál og komandi bæj
arstjórnarkosningar. Framsögu
höfðu þær frú Jóhanna Egils-
dóttir og frú Soffía Ingvars-
dóftir, formaður félagsins.
Fundurinn var fjölsóttur og
ríkti mikill einhugur og áhugi
meðal kvennanna á því, að
vinna sem bezt að undirbúningi
kosninganna og gera sigur Al-
þýðuflokksins sem mestan. —
Enda hafa Alþýðuflokkskonur
aldrei legið á liði sínu við kosn-
ingaundirbúning og önnur að-
kallandi verkefni.
FJÖRUGAR UMRÆÐUR.
Er framsögukonur höfðu lok
20-30 manns fer á
verfíð suður frá
Borgarfirði eysfra
Fregn til Alþýðublaðsins.
BORGARFIRÐI eystra.
ÖLL útgerð liggur nú niðri
hér á Borgarfirði eystra. Hér
eru ekki gerðir út aðrir bátar
en trillur, og er ekkert róið á
þessum tíma. Lítið er um at-
vinnu. 20—30 manns munu
fara suður á vertíð. SP.
ið máli sínu við góðar undir*
tektir, tóku þessar konur tii
máls: Guðbjörg Arndal, Krist-
ín Ólafsdóttir, Helga Ólafs-
dóttir, Helga Þ. Kröyer, Sig-
ríður Húnfjörð, Guðbjörg Guð
mundsdóttir, Gyða Thoralcius-
og Guðný Helgadóttir.
Spufnik I klofnaðí í 8
hlufa, áður en hann S
félðr segir amerískur
vísindamaður
Columbus. Ohio, þi iðjudag.
FYRRA gervitungl Sovétn'kji
anna, Sputnik I, kloínaði í átta
stykki og féll síðasti hlutnm
til jarðar s. 1. föstudag, segjá
vísindamenn við ríkisháskól-
ann í Ohio. Segir yfirmaðuK
radíótæknideildar skólans,
John Kraus, að sputnik liafi
byrjað að klofna í lok desenx-
ber og hafi reynzt kleift að sýna
að þrír hlutar hans gengn um-
liverfis jörðina. Þessir hlutaj?
klofnuðu svo meira og (1. janú-
ar voru átta hlutar svííandi xim
geinxinn og drógust jafníraint
xneð síauknunx hraða nær jörðu0
Dr. Kraus segir, að allir hlut-
arnir nema einn hafi verið
horfnir 9. janúar en dagim. eft-
ir hafi ihnn síðasti einnig ver-
ið horfinn.
Fjölmermið á spilðkeppni Alþýðo-
ALÞYÐUFLOKKSFELÓG-
IN x Reykjavík halda spila-
kvöld í Iðnó á föstxidagskvöld-
ið. Hefst skemmtunin kl, S,30.
Þá lýkur fimm-kvölda keppn-
inni, senx staðið hefur í vetur.
Magnús Ástmarsson bæjar-
ffulltrúi, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík,
flytur ávarp. Dans verður að
lokum.
Alþýðuflokksfólk er hvatt
til að fjölmenna og taka þáit
í hinum velheppnuðu skémmti
kvöldiun.