Alþýðublaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 1
hafði gefizf Hvorki ríkissijórn Ólafs Thors né Reykja víkurhær gáiu fengið lán Ef stjórnin hefði ekki bjargað málinu, mundi rafmagnsskortur byrja 1959-60 MORGUNBLAÐIÐ gcrir mikið úr „farsælli forustu Sjálf stæðismanna í raforkumálum“ í fyrradag. Sannleikurinn er þó sá, að í Reykjavík mundu blasa við vandræðaástand 195.9- 60, ef íhaldið hefði eitt átt að duga í þeim efnum. Ríkisstjórn Ólafs Thors og Sogsstjórnin undir forustu Gunnars Thoroddsen gófust upp við að útvega lán til virkjunar Efra-Sogs, en nú- verandi ríkisstjórn tókst að leysa þann vanda. Ef hún hefði ekki tekið mólið' að sér, væru engar framkvæmdir byrjaðar við Efra-Sog og stórfelldur rafmognsskortur framundan. Það hefur verið ljóst öllum sérfróðu mmönnum um nokk- urra ára skeið, að núverandi raforkufamleiðsla fyrir Reykja vík mundi ekki reynast nægi- leg fyrir þarfir hins vaxandi bæjar lengur en til 1959—’60. A jbeim árum er búizt við al- varlegum raforkuskorti. ef ekki verður úr bætt. Þega leið að þeim tíma, er nýj ar virkjunai'framkvæmdir áttu að hefjast, eí þær næðu að fyrirbyggja rafmagnsskoitinn, hófst ríkisstjórn Ólafs Thors handa og tók að leita fyrir sér um lán víða um lönd. Sú við- leitni bar engan árangur, og kom svo, eftir allmiklar tafir, að stjórnin tilkynntj Sogsstjórn inni bréflega uppgjöf sinar og kvað Sogsstjórnina mega leitast fyrir sjálfa. Gunnar Thoroddsen lagði nú land undir fót sjálfur og fór um mörg Evrópulönd. —- Lét hann ekki mikið upp um erindi sitt heima fyrir, en kunnugir vssu, að hann reyndi hvað hann gat til að fá lán til nýrrar Sogsvirkjunar. En liann sneri heim tómhentur. Þegar núverandi rikisstjórn kom til valda, skildist henni, hversu mikið var í húíi ög hún lagði sig alla fram um að út- ! vega hin nauðsynlegu lán. En hlutur Sjálfstæðismanna var að halda uppi ófrægingarher- ferðinni í fréttaskeytum til út- landa og reyna að hindra, að tsjórnin fengi nokkur erlend lán. Þrátt fyrir þetta t.ókst að fá nauðsynleg lán frá Bandaríkj- unum og framkvæmdir hófust, svo að væntanlega kemur ekki til rafmagnsskorts í Reykjavík. Þegar fulltrúar rikisstjórn- arinnar voru búnir að bjarga málinu vestan hafs og allt var klappað og klárt, þurfti Gunn- ar Thoroddsen að undirrita fyrir hönd Sogsstjórnar ýmsa pappíra málinu viðkomandi. Lét hann þá taka af sér mikl- ar myndir og birta í Morgun- blaðinu, rétt eins og hann hefði bjargað málinu. Þannig er sýndarmennska ílialdsins í þessu máli eins og öðrum. r Ibúð skemmist af eldi í GÆR kl. 9 kom upp eldur í Selbúðum nr. 9. Brann þar inni bú einnar íbúðar að mestu og urðu skemmdir allmiklar, enda veður mikið og stormur.----- Slökkviliðinu tókst þó von bráð ar að ráað niðurlögum eldsins. Eldsupptök munu vera þau, að börn voru að leik og kveiktu á jólatré! Voru þau ein í her- berginu, en húsfreyja hafði brugðið sér frá. Skipti engum togum, jólatréð tók að loga. — Húsið mun vera steinhús með timburlofti, og komst eldurinn fljótt í loft og einangrun úr spæni. En eins og ’fyrr segir, tókst slökkviliðinu að kæfa eld inn eftir skamma stund, en mn- bú var þar að mestu eyðilagt. Happdrættislán Ríkisins, B- flokkur: 75.000 kr. á nr. 149945. 40.000 kr. nr. 58276 15.000 kr. nr. 43403. 10.000 kr. nr. 6134, 75130, 124811. 5000 kr. nr. 40326, 63021, 76543, 86065, 103492. !il Bæjarmálastefna Alþýðuflokksins VII. Afiað nýrra fekjustofna að léffa úisvarsbyrðlna ÚTSVÖR af lágum tckjum og meðal tekjum verði lækkuð verulega og þeim, sem vinna að út- flutningsframleiðslu veittur sérstakur frádráttur. Leitað verði samninga við ríkisstjóm og; al- þingi um, að Reykjavíkurbær fái nýja tekjustofna, þannig að fjárhagur hans þurfi ekki eingöngu að hyggjast á innheimtu útsvara. Verði í þessu sambandi sérstaklega tekið til at- hugunar, hvort ekki sé réttmætt, að rikissjóður taki á sig í ríkari mæli en nú er framlög til ýmissa fram- kvæmda og létt verði af bænum einhverju af þeirri útgjaldabyrði, sem á hann er nú lögð af hálfu ríkis- valdsins. USA vill viðræður æðsiu manna við hentugar aðstæður, segir Dulles Washington, fimmtudag. DULLES utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í dag, ,að Bandaríkjamenn óskuðu eftir i íundi æðstu manna austurs og i vesturs svo framarlega sem að- 1 stæður væru hentugar fyrir slík l an fund. I í ræðu sinni, sem hann héit , í blaðamannaklúbbnum í Wash- 1 ington, sagði Dulles, að svar Eisenhowers við bréfi Bulgan- ins ætti í eitt skipti fyrir öll að kveða niður þá hugmynd, að Bandaríkin óski ekki eftír eða séu hrædd við að semja við sovétleiðtogana, Við viljum ekki fund æðstu manna, sem aðeins mundi tákna nýtt stig kalda stríðsins og yrði haldinn við aðstæður, sem hafa í för með sér mikla hættu fyrir hinn vestræna hiem, sagði uDll es og hann kvaðst vera þeirrar skoðunar, að það ættu og mundu koma til nýjar samn- ingaumleitanir við Sovétríkin, því að í mörgum málum ma?ttl ná samkomulagi, sem báðir að- ilar gætu fellt sig við. Macmilfan svarar Bufganin: rEngin brezk ríkissfjérn Ennn sfanda að árás á Sovéfríkln' Leiðréttir rangfærslur Ráðstjórnarinnar LUNBÚNUM, fimmtudag. Macmillan. forsætisráðheríra Breta hefur svarað bréfi Bulganins frá 11. þessa mánaðar og fullvissar í svari sínu Bulganin liátíðlega um það, að engin brezk ríkisstjóm muni nokkurn tíma eiga þátt í árás á Sovét- ríkin. Segir Macmillan, að það hafi verið það, sem hann átti við í útvapserindi sínu um griðasáttmála við Sovétrikin. Adenauer, kanzlari hefur hafnað tilligunni, sem Pólverj- ar báru fram urn kjarnorku- laust svæði í Mið-Evrópu. en hins vegar vill Maemillan að tillaga þessi verði tekin til nán ari athugunar. En ákveðin at- riði tillögunnar sé ekki hægt að komast hjá að gagnrýna. Eigi að síður ætlar brezka stjórnin að taka til rannsóknar tillöguna ef s'ke kynni að hún feli í sér atriði, sem gæti orðið samkomu lagsgrundvöllur. UTANRIKISRADHERRAR FYRST. Samkvæmt skoðun Macmill- an ser nauðsynlegt að kalla fyrst til fundar utanríkisráð- herranna áður en efnt sé til fundar forsætisráðherranna og hann undirbúinn á fyrri fund- inum. Um þetta mál sagðist Macmillan myndu fjalla, þegar hann svaraði síðasta bréfi Bulg anins, en leggur áherzlu á, að ekki megi gleyma því, að þjóð- (Frh. á 2. siðu.) IHALDÍÐ GUMAR nú mik- ið af tillögum þeiin. setn það irð! A-LISTINN í Hafnarfirði heldur skemimtun í AI- þýðuhúsinu ó morgun, laugardag, og hefst hún kl. 8,30 síðd. Til skemmtunar verður: ’Sameigi'iíég kaffitli-ykkia, Emil Jónsson flytur ávarp, Þorsteinn Hannesson óperu söngvari svngur eiusöng, Karl Guðmundsson leikari flyt ur gamanþátt. Að lokum verður dansað. Aðgöngumiðar að skemmtuninni fást í kosningaskrif stofu A-listans í dag og á morgun. hefur lagt franx um staíkk- un Reykjavíkurhafnar, eu sannleikurinn er sá, að þess- ar tillögur eru vanhugsað skrum, senx aðeins er til þess ætlað að fegra nxálstað bæjar- stjórnaríhaldsins nú fyrir kosningar, og breiða yfir að- gerðaleysið í hafnarmálunum. Ekkert samráð hefur verið haft við hafnarstjórn um undirhúning niálsins og tilliig- urnar konia í veigamiklum at- riðum þvert á þær áætlanir, sem hafnarstjórn hefur gert um stækkun hafnarinnar. Jafnvel stofnanir íhaldsins sjálfar komast ekkj hjá að benda á þessi einstæðu vinnu brögð, Til dæniis liefur sam- vinnunefnd um skipulagsinál þann fyrirvara á meðmælum sínum með tillögum þessum, að jafnframt „verði athugað, livort aðrir hentugri stækkun- armöguleikar komi til greina.“ Af þessu sést,' að málið er óundirhúið og lagt fram í þeim tilgangí einum að sýnast. KOSNINGATILLÖGÍJR. í gærkvöldi voru sýudartil- lögur íhaldsins í hafnarmál- um teknar fyrir á bæjarstjórn arfundi. Margir bæjart'ulltrú- ar tóku til máls og gagnrýndu harðlega síarfsaðferðir íhalds- ins, þ. e. að leggja fram illa undirbúnar og vanhugsaðar tillögur um mannvirki, sem kosta hundruð milljóna króna, í þeinx tilgangi einum að geta hampað stórhug sínum í „Bláui hókinni“ og víðar franxmi fyr- ir kjósendum. Borgarstjóri og Biðskýla-Björgvin reyndu að klóra í hakkann en fórst held- ur óhönduglega, eins og við mátti búast. Lét horgarstjórí. alla sína menn rétta upp hend urnar til að samþykkja sýndat* tillögurnar, og svo seixi við mátti búast, skorti ekki á hús- bóndahollustuna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.