Alþýðublaðið - 26.01.1958, Qupperneq 1
XXXIX. árg. Sunnudagur 26. janúar 1958 19. ttil.
Listi vinnustéttanna og
œskunnar í Reykjavík
FRAMBJÓÐENDUR ALÞÝÐUFLOKKSINS við
bæjarstjórnarkosningarnar í dag eru fulltrúar
vinnustéttanna og æskunnar í Reykjavílc og stefna
hans málefni fjöldans og framtíðarinnar. Hann yiil
berjast samtímis gegn kyrrstöðu og öfgum, en fyrir
umbótum, farsælli stjórn bæjarfélagsins og hag
og heill fólksins, sem byggir Reykjavík. Þess vegna
er óhætt að trúa Alþýðuflokknum fyrir úrslitavaldi
í hinni nýju bæjarstjórn. Hann mun beita því drengi-
lega, — af hófsemi og framsýni.
Bak við fulltrúa Alþýðmmkksins er vissulega
mikill meirihluti Reykvíkinga, — ef hann lætur
ekki sundra sér. Og só meirihluti á kröfurétt
á aukinni íhlutun um stjórn og rekstur höfuðborg-
arinnar. Kjörseðillinn gerir Reykvíkinga í dag að
dómurum stjórnmálaflokkanna og frambjóðend-
anna. Það dómsvald verður að rækja af ábyrgðar-
tilfinningu og réttsýni, ef vel ó að fara.
Reykvíkingar! Látið málefnin ráða. Kjósið san-
kvæjnt skoðun ykkar og sannfæringu með gifturíka
framtíð Reykjavíkur og íbúa hennar fyrir augum.
BÆJARSTJÓRNARKOSN
INGAR fara fram í öllum
kaupstöðum landsins í dag
og lireppsnefndarkosningar í
kauptúnum. í Reykjavík
hefst kjörfundur kl. 9 árd.
og iýkur kl. il. Kosið er á
sjö stöðum. Nærfellt fjörutiu
þúsund eru á kjörskrá í
Reykjavík.
Veöurhorfur fyrir kjördag
jnn eru. slærnar .um land allt.
*
*
*:
Stefnumál Alþýðuflokksins
við kosningarnar
Öflun nýrra atvinnutækja til áð auka atvinnu og
framleiðslu í sjávarútvegi og iðnaði.
Leitað samstarfs um virkjun Þjórsár með stóriðn-
að fyrir augum.
Heildaráætlun um framkvæmdir bæjarins.
Hitaveitan aukin, svo að allir bæjarbúar geti haft
af henni not.
Vatnsveitan aukin og bætt, svo enginn bæjarbúi
þurfi að búa við neyzluvatnsskort.
Unnið markvisst að því að fullgera holræsi frá
öllum íbúðarhverfxun bæjarins.
Gatnagerð í bænum bætt og aukin og nýjustu
tækni beitt, til aukinna afkasta og lækkunar á
kostnaði.
Stakrar hagsýni gætt í rekstri bæjarins, nýir tekju-
stofnar úívegaðir til að létta útsvarsbyrðina.
* Húsnæðisvandræðin leyst, alger útrýming heilsu-
spillandi íbúða, stóraukin bygging verkamanna-
bústaða.
* Fullt tillit sé tekið til sérhagsmuna bæjarbúa, sem
búa í úthverfum bæjarins.