Alþýðublaðið - 28.01.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 28.01.1958, Blaðsíða 6
6 AlþýðublaSiS Þriðjudagur 28. jan. 1958 ÍBÚAR JAPAjNÍ eru rúmar | &0 milljónir, en stærð landsins er tæplega 400.00ö ferkm. og koma því rúmlega 200 manns á bvern ferkilómetra. Land- þrengslin miklu meiri en þess- ar tölur gefa til kynna, þar eð aðeins fimmti hluti landsins er ræktanlegur. Japan er því þétt- býíasta land heimsins. Það er stöðugt vandamál, að sjá cllum þessum fjölda fyrir mat og klæðnaði. Landbúnaður og einkum hrísgrjónarækt hefur jafnan veriö mikilvægasti at- .vinnuvegur Japana, í seinni tíð hafa fiskveiðar aukist gifur lega. Japanir lærðu hrísgrjóna rækt af Kínverjum 200—300 árum f. Kr. um nautgriparækt- un er vart að ræða og hefur Japan verið kallað mjólkur- lausa landið. Það er fullyrt, að almenningur í hrísgrjónahéruð- unum hafi hingað til ekki bragðað mjólk, brauð né kjöt, heldur aðeins hrísgrjón og ein- stöku s.innum ögn af fiski. Áhrif Kína á Japan hafa jafn an verið mikil, Japanir miða tímatal sitt við árið 645, þegar keisarinn endurskiplagði ríkið, eftir kínverskri fyrirmynd, — -skipaði ríkisembættismenn, fyr irskmaði skiptingu eigna og lagði skatt á jarðeignir. „Allt land undir sólinni" var álitið vera eign keisarans, sem svo lánaði það þegnum sínum. Hver fullorðinn maður fékk til umráða eitt „tan“ (fimmta hluta úr hektara), en konur tvo þriðju úr „tan“. Þessi skipting jarðeigna hefur haldizt óbreytt síðan. Skattur var greiddur í hrísgrjónum. Vogin var hið svo kallaða „koku“, eða það hrís- grjónamagn, sem nægir full- hraustum manni til lífsviður- væris í eitt ár, hér um bil 150 kg. ,,Koka“ var gjaldmiðillinn þar til peningakerfið var upp tekið. Það magn af „koku“, sem ■ maður átti, gaf til kynna stöðu hans, vald og áhrif. Jarilögin leiddu brátt til harðrar samkeppni milli auð- mánna landsins. Akurlendí var eina kapitalið, sem nokkuð gaf af sér. Smám saman misstu bændur eignarréttinn yfir landi sínu og urðu leiguliðar. Þróun- ina til lénsveldisins má rekja þannig, að með fólksf jölguninni og aukinni ræktun, óx fram- leiðslan og söfnuðust fleiri „koku“ í hirzlur einstakra ætta. Við það skapaðist stétt her- manna, sem náðu öllum völdum í landinu. 1603 fluttist æðsta stjórn landsins til Tokyo, í auð- uðasta landbúnaðarhérað lands- ins. Eignaskipanin var komin í fast horf, og þar með lénsvald- ið. Lénsvaldið er sprottið upp úr hinu ævaforna ættflokka- kerfi. Höfuðstyrkur þess voru átthagafjötrar leiguliðanna. Landið sjálft efldi einnig léns- veldið, hin ræktanlega .jörð liggur dreyft um landið, há fjöll aðskilja landshluta, og auðvelt fyrir ribbalda að ná valdi vfir hlýðnum og lítils- megándi smábændum, og auð- velt að ver.ja eignir sínar fyrir | utanaðkomandi valdræningj- um. Lénsveldið friðaði landið og færði allar eignir í fárra hend- ur. Bændur voru réttlausir með öllu. Áið 1657 kærði bóndi nokkur yfir ágengni lénshöfð- ingja síns. Höfðinginn var sek- ur fundinn um órétt og yfir- gang, en bóndanum var refsað fyrir að hafa ákært herra sinn með því að fjölskylda hans var hálshöggvin og hann sjálfur kx-ossfestur.. Heimsóknir er- lendra skipa og trúboða til Jap an leiddu til óeirða, og 1639 var landinu lokað fyrir öllum er- lendum áhrifum. Neyddust Japanir til þess, að vei'ða sér sjálfum nægir á öllum sviðum. milljónir. Þrátt fyrir íhalds- semi Japana risu smám saman upp borgir og bæir, perúngar komust í umferð og aðallinn varð smám saman skuldháður borgarastéttinni. Bændur fluttu til borganna, óánægja með skipulagið breiddist út meðal allra stétta. Stór jarðræktar- héruð lögðust í eyði og hxxnerið barði að dyrum. 1858 neyddust Japanir til að opna hafnir sín- ar fyrir útlendum kaupmönn- um, lénzveldið hrundi, keisara veldið styrktist í sessi og öll völd komust í hendur ríkisem- bættismanna. Iðnvæðing Japans er eitt af ævintýrum nútímans. Hinir námfúsu, iðnu og kröfulitlu Japanir gerðust brátt ein- hverjir beztu iðnaðarmenn heimsins. En á það hefur rétti- lega verið bent, að Japanir stukku beint úr miðöldunum yf ir í nútímann. Einstaklingurimx hlaut ekki það andlega frelsi, sem orðið hafði undanfari slíkra byltihga á Vesturlönd- um. Hugmyndakerfi lénstím- ans ríkti enn, og stjórnarvöld- in gættu þess vel, að halda því •við. Á árunum 1874—1940 sjö- Bóndabær í Japan. metrar á breidd. Ástandið í matvælaframleiðslu Japana varð ógurlegt eftir heimsstyrj- öldina síðari, þegar Japanir -voru sviptir. -allt. að helmingi lands síns. Þar á ofan bættist, að fólkinu fjölgaði um 12 mill- jónir á árunum milli 1945—50, þar af 6 milljónir uppgjafaher- manna og fólks frá þéim lands- rsamþykki almennings. Hefur Iþað borið góðan árangur og hef ur ■ þjóðinni lítið fjölgað frá 1950. Það er staðreynd, að þörf Jap jana fyrir aukið landrými var höfuðástæðan fyrir útþenzlu- pólitík þeirra frá 1874. Vinnú- •færu fólki fjölgar með hverjú ári. Japanir vonast til að levsa vanda sinn með auknum iðn- ði. en landið er snautt af hrá- num. Japanir eru álitnir einhýerj'- beztu verkamenn í heimi, og nfalaust mun þeim takast að nna lausn á vandamálum sín’- "f beim tekst að aðlaga sig 'ýðræðislegum háttum norður- íuþjóða. ¥©rja 1.6 mi!!- Túnfisksverkun í hafnarbænuxn Yaizu. Land var brotið til ræktuxxar og vatnsveitur lagðar, en það tókst ekki að auka matvæla- fx-amleiðsluna í hlutfalli við fólksfjölgunina. Gripu þá stjóm arvöldin til þess ráðs að tak- marka barneignir. Fékk sér- hver lénsherra rétt til þess að drepa nýfædd börn eftir því sem honum þurfa þótti. Síðustu 125 ár lénsveldisins hélzt íbúa- fjöldinn stöðugur, kringum 30 | faldaðist fjöldi iðnverkamanna og fjöldi verzlunarfólks þrefald aðist. En fólksfjölgunin var svo mikil, að tala bænda hélzt ó- breytt. Japan varð smám sam- an háð innflutningi erlendis frá, jafnvel hrísgrjón varð að flytja inn. Ríkisstjórnin reyndi að auka ræktunina, og teygð- ust hrísgrjónaakrar upp eftir fjallshlíðunum og voru efstu akrarnir jafnvel aðeins tveir svæðum, sem tekin voru af Jap önum. Gripið var til þess ráðs, að minnka jarðir í einkaeign; 1950 var meðal landareign að- eins 0.5 hektari. Flestir bænd- ur stunda landbúnað, aðeins hluta af árinu, en vinna fyrir sér á annan hátt stærstan part ársins. Nú hefur aftur verið gripið til þeirra ráða, að takmarka Ibarneignir, en nú með fullu a 4 arum WASHINGTON, xnánudag, 'NTB-AFPl. Eisenhí>w°r Banda ríkjaforseti gerði það að tillögu sinni til þingsins í dag, að .stxórnin verji 1,6 milljörðum dollara á fjórumárum til menn-t unar vísinrlanxanna og verlc- fræðinga. í boðskap tll bcggja d-'ilda bingsins scgir forsetinn, að tilgangui-inn með tillögunni sé oð ná unp forskoti því, sem Bússar bafi náð á vísinda- og tæknisviðinu. Tillaga Eisenhowers gerir ráð fyrir, að stiórnin hiálpi ein stökum ríkium við menntun vísindamanna og verkfræðingá á fjögurra ára tíw*’hMi Hug- myndin er veita 10.000 styrki fátækum stúdentum, er vilj'a stunda vísindanám, og flýta menntun kennara. 4 Kvennapáltnr rf HÚSMÓBIR, sem alltaf kemst að þeirri niðurstöbu að kvöldi, að henni hefxir alls ekki tekizt að ljúka þeirn störfum, sem hún ætlaði sér að Ijúka yfir daginn, ætti ein- hvern tíma að íá sér sæti í ró- legheitum og gera alvarlegar athuganir á því hvort ekki sá mögulegt að skipuleggja störf- in að nýju og þar af leiðandi koma meiru af þeim í verk. Það kann að virðast "bartt að setjast niður til að láta störf safnast fyrir á meðan, en það er nú ekki alls kostar r.xct. Það er nauðsyn fyrir slíka húsmóður að sctjast og hugsa málið vel, því að eitthvað í heimilishaldi hennar er ekki í lagi. Ég þekki margar hús- mæður, er hafa mikið að gera, en flestar þeirra hafa grætt mikinn tíma á því að endur- skipuleggja hússtörfin. Það þarf fyrst að gera lista yfir öll þau störf, er vinna á yfir vikuna og skipta þeim á milli daga. Því, að þótt flest þeirra þurfi að gera daglega, þá eru mörg þeirra, sem ekki þarf að gera nema einu sinni í viku eða svo og þá þarf að ákveða á hvaða degi vikunn- ar á að þvo þvottinn o. s. frv. Þegar þessu er lokið, þarf að ákveða í hvaða röð störfin eiga að vinnast hvern dag og þér munuð vissulega sjá, að margt má gera öðruvísi en til þessa og á hagkvæmari hátt. Það er staðreynd að góð hús- móðir getur t. d. hreinsað liús sitt á sama tíma og vinnukon- an ef til vill aðeins lýkur við hreinsun eins herbergis. Þetta stafar aðeins af því, að hús- móðirin þekkir betur sitt hús og er faiún að vinna verkið skipulega, hvort sem það er nú vegna þess að hún hefur skipulagt störfin sérstaklega, eða óafvitandi. Það eru svo möi'g skref, sem spara má með svona skipxilaki, aðeins ef húsmóðirin geíur sér tí"~a til að setjast niður og hug- leiða, hvernig hún vann þessi störf áður og hvaða möguleikar eru á því að vinna þau á nýjan og hagkvæmari liátt. Þegar svo húsmóðirin einu sinni hefur endurskipxilagt heimilisstörfin, þá er ekki þar með sagt að strax murii kórriást sú regla á þau, sem hún hefur ákveuið. Maðurinn er óskap- legt vanadýr og það á einnig við um þetta. Hún mun áreið- anlega gera ýmislegt með gamla laginu fyrstu dagana, en nú þegar störfunum hefur verið dreift yfir alla vikuna, þá væri líka gott að hafa list- ann hjá sér til að minna á hvað á að gera þennan og þennan daginn. Minnizt svo þess, að jafnvel albeztu og duglegustu húsmæður eru alls eklci alltaf ánægðar með það, sem þær ía út úr sínum vinnu- degi. Örvæntið því ekki til að ybrja með þótt eitthvað fari öðruvísi en ætlað er, það má alltaf laga og leiðrétta smám saman.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.