Alþýðublaðið - 21.03.1958, Blaðsíða 4
4
AlþýSnblaSlS
Föstudagur 21. marz 1958
VETTVAN6tílt 9A6S/0S
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
sag'ði í ágætu erindi í útvarpinu
um daginn og veginn, að færri
tækju nú þátt í skíðaferðum en
fyrir áratug. Þetta er rétt. Um
tíma var það tízka að fara á sniði
um helgar, en svo féll tízkan nið
ur. Ef til vill stuðlaði það að
])ví, að varla var hægt að komast
á skíði í nokkur ár vegna snjó-
'eysis. í vetur hefur hins vegar
verið mjög gott skíðaíæri, en
fólkiff hefur ekki kunnað að nota
|>að.
f'ÁTT mun eins heilbrigt fyr-
tr ungt fólk og að stunda skiða-
íþrótt og er það því míkill skaði
fyrir það sjálft ef það hættir því.
Sigurður drap á það, að skólarn-
xr þyrftu að efna til skíðaferða
fyrir nemendur sína á vetrum.
Barnaskólarnir munu gera þetta,
en aðeins einu sinni á vetri fyr-
ir hvern bekk. Það er ekki nóg.
Þ»eir ættu að efna til skíðaferða
en aðeins fyrir börnin miklu oft
ar og að minnsta kosti tvisvar í
vnánuðí þegar snjóar eru.
ÞAÐ ER BETRA fyrir börnin
að fá að fara á sldði undir stjórn
kennara sinna en að sitja á skóla
bekknum allan veturinn og fara
liinu sama fram á hverjum ciegi.
Það mundi ekki draga úr náms-
Hvers vegna fækkar
fólki í skíðaferðum?
Börnin og snjórinn
Hvað eru styrkþegar
Menntamálaráðs að læra?
Gott erindi Sigurðar
Þórarinssonar.
vilja barnanna, þvert á móti. Ég
gæti trúað því að slíkar ferðir
mundu glæða hann. Skipulag
þarf að komast á þessi mál í
skólunum næsta vetur og væri
vel ef fræðsluráð Reykjavíkur
vildi athuga þetta áður eh næsta
skólaár hefst.
ÞAÐ er langt síðan heyrzt hef
ur eins gott erindi í þessum
þætti og erindi Sigurðar. Hann
talaði og um styrkja- og náms-
kerfi Menntamálaráðs og hafði
þar góðar tillögur fram að fcera.
Hann fullyrti það, að ýmsir, sem
njóta styrkja og lána frá ráðinu
til náms erlendis, dvelur í öðr-
um löndum aðeins til að
skemmta sér. Hann minntist á
alla þá, sem segjast vera að lesa
franskar bókmenntir,. ískyggi-
legt og grunsamlegt var það.
ÞAÐ ER og sannast móla, að
þegar maður les listann yfir
þann mikla fjölda, sem r.ýtur
stuðnings ráðsins, þá undrast
maður námsefnin, að minnsta
kosti mjög mörg. —■ Að likind-
um þurfum við að fara aö end-
urskoða þetta mál. Hagnýt vís-
indi eru nauösynleg. Það er
nauðsynlegt fyrir þessa þjóð að
eignast sem flesta menn vel
menntaða til þess að byggja upp
atvinnuvegi okkar, en rnargt,
sem sagt er að fólk sé að „læra“,.
virðist hvorki stefna að aúknum
þroska þjóðarinnar eða þeirra
sjálfra.
SIGURÐUR lagði til að tekin
væri nokkurskonar úttekt á sér
fræðingum okkar — og nám og
námsstyrkir síðan miðaðir við
það. Þetta er athygiisverð til-
laga. Það er engum blöðum um
það að fletta, að við þúrfurn að
fara að endurskoða þessi mál.
Hannes á horninu.
Framhald af 9. síðu.
ÁGÚSTA NÁÐI GÓÐUM
TÍMÆ KEPPNISLAUST.
Þó að Ágústa synti vel og
,,karlmannlega“. tókst henni
ekki að hnekkja meti sínu, sem
hún setti á /Fgismótinu fyrir
nokkru. En árangurinn getur
verið góður, þó að ekki sé um
met að ræða. Ágústa synti á
sínum næstbezta tíma, 1:07,5,
algjörlega keppnislaust. Ágústa
vann Flugfreyjubikarinn, gef-
inn af Rögnvaldi Gunnlaugs-
syni til minningar um systur
haris, sem fórst í flugslvsi fyr-
ir 11 árum.
GLÆSILEGT BOÐSUND.
Þegar vitað var að Pétur yrði
ekki með, þá var enginn vafi á
sigri ÍR í 4X50 m skriðsundi,
en skyldi sveitinni takast að
setja met keppnislaust? Vissu-
lega tókst það, allir virtust
upplagðír- og sveitin náði hin-
um fr'ábæra tíma 1:49,7 mín, en
mét Ármanns var 1:52,1 mín.
Méðaltími á hvern sundmann
er 27,4 sek.
UNGLÍNGASUND.
MiKil þáttaka var í unglinga-
sundunum og mörg efni eru
þar á ferðinni, 'sérstaka athygli
vöktu Erlingur Georgsson SH,
Hörður Finnsson ÍBK og Þor-
steinn Ingólfsson ÍR.
frf t«'
Sagt eftir móúð
<iuðin5!ndur Gíslasonr
Eg er mjög ánægður með ár-
angurinn, en tíminn í 100 m
skriðsundi kom mér mjög á
ó.vart, hafði ekki búizt við því
að setja met.
Jóhas Haildórsson,
þjálfari:
Mjög ánægður með árangur
ÍR-inga þetta kvöld. Það hlaut
að koma að því, að Guðmund-
ur næði tíma á Evrópumæli-
kvarða, hann æfir mjög vel og
er reglusamur í hvívetna. Það
er gaman að þjálfa íþrótta-
menn, þegar þeir sýna jafn-
mikinn áhuga óg Guðmundur.
Hrafnhildur er í hraðri fram-
för og það líður ekki á löngu
þar til hún bætir bringusunds
met kvenna á flestum vega-
iengdum.
100 m. skriðsund karla:
Guðmundur Gíslason, ÍR, 58,2
{miet).
Guðmundur Sigurðss, ÍBK, 63,3
50 m. baksund drengja:
Sólon Sigurðsson, Á, 36,5
Hörður Finnsson, ÍBK, 36,8
Vilhjálmur Grímsson, KR, 37,5
Ágúst Þórðarson, ÍA, 40,1
100 m. hringusund kvenna:
Hrafnh. Guðmundsd., ÍR, 1:23,7
(metjöfnun).
Sigrún Sigurðard., SH, 1:35,8
Bergþóra Lövdahl, ÍR, 1:38,3
Ingibjörg Einarsdóttir, Á, 1:43,9
100 m.^bingusund karla:
Einar Kristinsson, Á, 1:18,1
Ólafur Guðmundsson, Á, 1:18.5
Valgarður Egilsson, HSÞ, 1:19,1
Þorsteinn Löve, ÍR, 1:19,2
Sigurður Sigurðsson, ÍA, 1:19,4
Torfi Tómasson, Æ og Magnús
Guðmundsson, ÍBK, 1:20,2
50 m. bringusund drengja
innan 14 ára:
Þorsteinn Ingólfsson, ÍR, 41,0
Sigurður Ingólfsson, Á. 43,7
Þorkell Guðbrandsson, KR, 44,4
Stefán Jónsson, SH, 44,5
100 m. skriðsund drengja:
Erlingur Georgsson, SH, 1:06,8
Hörður Finnsson, ÍBK, 1:07,6
Sólon Sigurðsson, Á, 1:08,2
Sigmar Björnsson, KR, 1:10,3
Sæmundur Sigurðss., ÍR, 1:11,0
Júlíus Júlíusson, SH, 1:13,5
100 m. baksund karla:
Guðmundur Gíslason, ÍR, 1:09,4
Jón Helgason, ÍA, 1:15,5
Steinþór Júlíusson, Á, 1:20,0
Guðm. Sigurðsson, ÍBK, 1:22,1
100 m. skriðsund kvenna:
Ágústa Þorsteinsd., Á, 1:07,5
Inga Helen, ÍBK, 1:27,4^
Þórdís Jóhannesdóttir, Á, 1:31,2
Hrafnh. Sigurbj.d., SH, 1:32,0
50 m. bingusund drengja:
Hörður Finnsson, ÍBK, 37,5
Erling Georgsson, SH, 40,0
Valur Jónsson, Á, 40,0
Árni Waage, KR, 40,3
50 m. hringusund telpna:
ITrafnh. Guðmundsd., ÍR,40,8
Sigrún Sigurðardóttir, SH, 44,4
Jóna Sigurþórsdóttir. ÍBK, 45,0
.Jónína Guðnadóttir, ÍA, 46,9
4x50 m. skriðsund karla:
Sveit ÍR, 1:49,7 nýtt ísl met.
(í sveitinni voru: Ólafur Guð-
mundsson, Skúli Rúnar, Guð-
mundur Gíslason, Gylfi Guð-
mundsson).
Sveit Ármanns, 1:55,4 mín.
Sveit Ægis, 1:56,5 mín.
„Hundrað kall"
Framhald af 3. siðu.
sambandi við kosningarnar. Á
leiðinni lenti hann í hörðum
bíiárekstri, en lét það ekki á
sig fá, héit blaðamannafundinn
eins og til stóð, hraðaði sér aft-
ur heim til Napólí og hvatti
knattspyrnulið sitt svo til sig-
urs að dugði.
Samanborið við hann fer
heldur lítið fyrir þeim öðrum
auðmönnum, sem vitað er að
taka þátt í kosningabaráttunni
í þetta skiptið suður þar. Meðal
þeirra er þó ritvélakóngurinn
Olivetti, sem lætur til sín taka
á Norður-ítalíu, þar sem hann
hefur myndað stjórnmálaflokk
er ber langt nafn og hátíðlegt,
—• Menningarsamband verka-
manna og bænda. Hann telur
sig standa næst sósíalistum og
kveðst ganga til samstarfs
annað hvort við Saragatista,
sem eru fámennir, eða hina svo
nefndu vinstri-sósíalista. sem
Nenni veitir forpstu, en hann
hefur lengi verið í slagtogi við
kommúnista.
Kommúnistar eru enn næst-
fjölmennasti flokkur á Ítalíú,
og Togliatti kveðst nú ekki í
neinum vafa um sigur þeirra
þar sern gervimáninn hafi sýnt
og sannað yfirburði kommún-
ismans, svo að ekki verði um
villzt. Eftir er þó að vita hyern
ig það stenzt í ítölskum kosn-
ingunum.
Norsk Tidcnd.
S
S
S
KERÐAHAPPDRÆTTI S
Samband.s ungra jafnaðar-S
manna er í fulium gangi. Mið^
ar cru afgreiddir til sölu-'1
harna á skrifstofu SUJ í AI-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu
alla virka daga nema laugar-
daga kl. 9—12 f. h. og 4—7^
e. h. Söluborn! Komið og tak^
ið miða Góð sölulaun. S,
ÁSalfuidur
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
verður haldinn í Fríkirkiunni, sunnudaginn
23. þ. m. kl. 4 e. h.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Safnaðarstjórnin.
fngélfscafé IngéSfscafé
í Ingólfs Café í kvöld klukkan 9.
Hljómsveit Óskars Cortes leikur.
Ðansstjóri: Þórir Sigurbjörnsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12-8-26.
Útvega frá Vestur-Þýzkalandi og öðrum löndum:
SSCIP OG BÁTA
af öllum gerðum og stærðum.
Ennfremur alls konar
VÉLAfl O G ÁHOLD
Leitið tiiboða.
ATLANTOR
DR. MAGNÚS Z. SIGURÐSSON,
Hamburg 36/CoIonnaden 5.
Verð staddur á Hótel Borg, Reykjavík til 25. b. m.