Alþýðublaðið - 27.05.1920, Síða 1
O-eíið itfc af Alþýð uíiokknttm.
1920
fri frakklaRðl
Khöfn 25. maí.
Símað frá París, að járnbrautar-
þjónar haldi verkfallinu áfram.
Dechanel hefir dottið út úr járn-
brautarlest og særst lítilsháttar.
yiljijðllasambaniið.
Khöfn 25. maf.
Fulltrúar frá 37 löndum mæta
á aðalfundi Alþjóðasambandsins.
Alþjóðaráðið hefir ákveðið að
skipa nefnd til þess að rannsaka
afvopnunina.
Smáríkin. eru kvödd til fund-
anna, til þess að standa þar fyrir
máli sfnu.
Ungverjar hræððir.
Khöfn 24. maí.
Frá London er símað, að Ung-
verjar neiti þvf, að hafa boðið
Pólverjum hjálp f árásinni á Rússa.
GffilfckjalKcmgui* í
I PaFís.
Khöfn 24. maí.
Frá London er símað, að Alex-
ander Grikkjakonungur sé kominn
til París í heinisóknarferð.
ísl. skipstjóri er nú ráðinn á
skonnortuna „Svala“. Hann heitir
Árni Gunnlaugsson ættaður af
Akranesi, og hefir siglt á dönsk-
úm skipum undanfarin ár, enda
maður með dönsku prófi.
Fimtudaginn 27. maí
IsaleiplögiE 09
Fasleipafél. Rvíkar.
(Niðurl.)
Húsagerð heft.
Fjórða ástæðan, sem vitring-
arnir færa fram máli sínu til stuðn-
ings, er sú, að lögin standi húsa-
gerð fyrir þrifum (að „standa í
vegi fyrir" einhverju, er ekki fs-
lenzka), vegna þess að menn ótt-
ist það, að ráða ekki leigu á hús-
um sínum, svo og vegna þess,
að margir reisi ekki hús, sem
hefðu ástæðu til þess, vegna þess
að þeir geti setið í annara hús-
um.
Á meðan Fasteignafélagið ekki
færir eitt einasta dæmi þessari
staðhæfingu til stuðnings, tekur
enginn hugsandi maður hana til
greina. Og sýni það ekki svart á
hvítu, og telji upp þá menn, sem
ekki reisa hús vegna húsaleigulag-
anna, þá verður þessi „ástæða"
tekin sem munnfleipur eitt og
staðleysustafir.
Morgunblaðið sagði í vetur, að
um 150 hús myndu reist í sumar.
Síðar gat það um, að vegna dýr-
tíðar og peningavandræða myndu
ýmsir hætta við húsagerð að sinni.
Húsaleigulögin voru hvergi nefnd.
Þarna fer blaðið með rétt mál.
Dýrtíðjn og peningakreppan eru
höfuðorsök þess, að ekki eru reist
ný hús. Hverjum myndi koma til
hugar, - að leigja þær rándýru og
lélegu íbúðir, sem hann nú neyð-
ist til að búa í, ef hann hefði ,
efni á eða gæti fengið fé til að
reisa sér hús sjálfur? Engum.
En ef húsabraskarar meina það
með orðunum í bréfinu til bæjar-
stjórnar: „ . . . að þeir ráði ekki
yfir leigu á húsum sínum ... ",
að þeir megi ekki vegna húsa-
leigulaganna setja leiguna svo
hátt, sem þeim gott þykir, án til-
lits til verðgildis húseignarinnar,
þá hafa þeir rétt fyrir sér. Því
I '
117. tölubl.
lögin taka það einmitt fram, að
húsaleigunefnd skuli athuga „alt
það, er áhrif getur haft á leiguna,
svo sem verð hússins, viðhald og
ástand" o. s. frv., sé leitað ti!
hennar um dóm. Á hinn bóginn
taka lögin það skýrt fram, að
íeigusali haldi „óskertum rétti til
að slíta leigumálanum vegna van- ,
skila á húsaleigu, eða arsnara
samningsrofa af hálfw leigutaka".
Svo ekki standa þau þarna hús-
eigendum fyrir þrifum.
Þessi ástæða hrapar um sjálfa
sig, eins og hinar. Okrarar og
braskarar eru feður peningakrepp-
unnar og dýrtíðarinnar, og þar
með húsnæðiseklunnar. Húsaleigu-
lögin eru algerlega sýkn saka.
Allra meina bót.
Fimta „ástæðan" er sú, að af-
námið myndi „óðar en frá liði
bæta úr húsnæSiseklunni, þar sem
öllum mundi verða Ijúfara að
þrengja að sér, er þeir vissu, að
þeir gætu losnað við leigjendur
aftur úr húsum sínum".
Hverjir og hve margir geta
þrengt að sér? Hvað margir fé-
lagar Fasteignafélagsins t. d., og
hvað geta þeir tekið marga í hús
sín? Hve langur tími er þetta
„óðar en frá liði" ? Er það i, 2,
3 eða 10 ár ? Og Joks, hvað á að
gera við alla þá, sem vísað verð-
ur út á götuna í haust, ef húsa-
leigulögin verða afnumin? Ætlar
Fasteignafélagið að hýsa þá í hug-
húsum þeim, er það smíðar fyrir
fé, er stendur fast f fiski, síld og
kjöti ?
Meðan þeir háu herrar, sem
ætla að bæta úr húsnæðisleysinu
með afnámi laganna, hafa ekki'
svarað þessum spurningum, er
þessi 5. ástæða þeirra verri en
engin ástæða, því hún verður að
teljast sögð út í Ioftið — helber
vitleysa og heilaspuui.
Niðurlagsorðin. Ösamræmi á
leign einsdæmi.
Sjötta ástæðan er sú, að langt