Alþýðublaðið - 02.04.1958, Qupperneq 1
KXXIX. 4rg. Miðvikudagur 2. apiil 1958. 76. tbl.
Töldu sig ekki geta tekið slíkt skref í áróðurstilgangi
eirraxn saman, sagði Dulles í gær.
WASHINGTON, þriðjudag. — Bandaríkin höfðu til athug-
uisar fyrir tveim vikum að sendá út tilkynningu um, að Ame-
rikumenn mundu stöðva tilraunir með kjarnorkuvopn, en
stjórnin komst <)ö þeirri niðurstöðu, að hún gætj ekki tekið
•slikí skref í þeim eina tilgang'i að vinna áróðurssigur, sagði
Dulles utanríkisráðherra USA á sínum vikulega blaðamanna-
fúhdi í dag. „Síjórnin tók þessa ákvörðun fullviss um, að hún
yrði að gera þétía í stað þess að taka ákvörðun, sem hún teldi
óheiðarlega,” sagðj Dulles.
Um fund æðstu manna sagði
Dulles, að Bandaríkjastjórn
væri ennþá þairrar skoðunar,
að draga yrði úr ósamkomulag-
Haraldur Guðimundsson
ambassador íslands í Noregi er
staddur hér heima í stuttri
heimsókn. Hann fer aftur utan
á laugardaginn kemur.
inu milli austurs og vesturs,
áður en slikur fundur yrði hald
inn.
Hann kvað sovézku yfirlýs-
inguna vera óróðurssigur fyrir
Sovétríkin, en hún hefð; ekki
komið Bandaríkjastjórn á ó-
vart. Hann kvað ekkert nýtt í
yfirlýsingu rússnesku stjórnár-
innar. Bandaiúkjastjórn hefði
ekki fengið neinar upplýsingar
um það eftir diplómatískum
leiðum hvað yfirlýsing Sovét-
ríkjanna fæli í raun og veru í
sér. „Það er alkunna,“ sagði
Dulles, ,,að Sovétríkin hafa ný
lokið heilli röð tilrauna, sem
Sovétþjóðirnar hafa ekki hug-
mynd um.“
Dulles kvað það eðlilegt og
óhjúkvæmilegt að hlé yrðu á
tilraunum með kjarnorku-
sprengjur. Sovétríkin áskildu
sér rétt til að 'hefja tilraunir á
ný, ef Bandaríkin héldu áfram
tilraunum. Nú vissi Sovétstjórn
in það vel, að Bandaríkjamenn
ætluðu að hefja tilraunir eftir
þrjár til fjórar vikur. Það hefði
verið tilkynnt fyrir mörgum
mánuðum. „Því geta Sovétríkin
hafði tilraunir á ný hvenær sem
er, eftir því að dæma, sem seg-
ir í yfirlýsingu þeirra í gær,“
sagði Dulles.
SSiS:;:;
• vxíx;:
HALLDÖR KILJAN LAXNESS
Yfirlýsing Rússa kom að afloknum elgin
tilraunum, en áður en tilraunir Banda-
ríkjamanna áffu að hefjasf.
Viðíal við Hall-
dór Kiljan Lax-
ness.
„KOMINN HEIM - það
er nú svo eínkennilegt, að
ég er ekki að öllu leyti
kominn heim enn. Það
kemur nefnilega oft fyrir
þegar ég losa svefninn á
nóttunni, að þá finn ég
mig staddan á Austur-
lönd'um . . “
Alþýðuhlaðið sendi Loft
Guðmundsson upp að Gljúfra
steini fyrir skemmstu, að
hann ætti tal við nóbelsverð-
launaskáldið H. K. Laxness í
tilefni þess að Laxness er nú
setztur að störfum eftir hnatt
reisuna, og birtist viðtalið
inni í blaðinu, ásamt mörg-
um myndum, sem ljósmynd-
ari blaðsins tók af skáldinu
og húsi þess við þetta tæki-
færi.
„Er hér ekki állt í lagi?“ segir
Laxness. „Raunar er ég svo ný-
kominn heim að mér hefur ekki
unnizt tími til að gefa því gaum
* sem skyldi. Lífskjör almenn-
ings eru betri hér en jaínvel í
Bandaríkjunum, hvergi eins vel
og mikið byggt og allflestir hafa
meira en nóg að bíta og brenna
og margir of f jár að því er virð-
ist . . .“
(Sjá 6. síðu).
HROGNKELSA. VEIÐIN
hófst að þessu sinn; fyrir um hað bil hálfum mánuði, Veiðin
hefur gengið allsæmilega. Maður nokkur í Kópavogi hefur
fang.izt við veiðarnar og náð 100—200 fiskum á dag. Hrogn-
kélsin eru feit og falleg og kosta ca. 6 krónur stykkið út úr
búð. Aðallega veiðist rauðmaginn, en grásleppan slæðist með.
Sagði Macmillan í gær. Gaitskell hvetur til jákvæðrar
afstöðu til ákvörðunar Rússa.
LONDON, þriðjudag. Mac-
millan forsætisráðherra sagði í
málstofunni í dag, að
í'ormleg yfirlýsing uni ákvörð-
un Rússa um einhliða stöðvun
kjarnorkutilrauna yrði ekki gef
in af brezku stjórninni fyrr en
liún hefði haft um það samráð
. bandamenn sána. „ Hann
þó við, aðrhann hefði tek
ið eftir því, að sovézka yíirlýs-
i^gin kom að afloknum miklum
tilraunum með kjarn-orkuvopn,
en á undan tilsvarandi tilrauna
kefiju Bandaríkjamauna. Hann
gat þess éinnig, að hinum fyrir
huguðu ti’raunum Breta hefði
"kki verið áfjýst.
Hann kvað brezku stjórnina
l'?ngi hafa hallaz-;: að þeirri
sko'un. að ná samningum um
afvoþnun, þar sem gert væri
i'áð fyrir stöðvun tilrauna með
kjarnorkuvopn undir trvggu
eftirliti. B?nti hann á. að Vest-
urveldin hefðu hváð eftir ann-
að flutt tillögur um þetta at-
riði og þær tillögur væru enn i
fullu gildi.
Macmillan sagði enn fremur,
að hann vonaði, að orðsending-
ar Vestunveldanna til Sovétríkj
anna, sem afhentar voru á
mánudag, mundu verða til þess
að undirbúningur hæfist að
fundi æðstu manna.
HVATTI TIL
JÁKVÆDRAR AFSTÖDU
Gaitskell. leiðtogi jafnaðar-
manna, hvatti stjórnina til að
taka jókvæða afstöðu til ákvörð
unar Rússa. Kvað hann það al-
menna ósk í Bretlandi. að
stjórnin lýsti yfir vilja til að
stöðva atómsprengjutilraunir
og stakk- upp á, að samninga-
| viðræður hæfust um nauðsyn-
legt eftirlitsk rfi.
| Uppbætur og |
Umræðuefni á
málfundi
AlþýSuflokksins
NÆSTI málíundur Ai
þýðuflokksmanna verður ý
þriðjudaginn 8. apríl, þriðja^
í páskum. Umræðuefni verðs
ur: Uppbætur og gengislækk S
un. Nánar auglýst síðar. S
S
20 ára aímœlisíagnaður
Á Iþýðuflokksfél. Reykjavíkur
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur 20 ára
almælisfagnað í Iðnó föstudaginn 11. þ. m. kl. 7,30 síð-
degis. Aðgöngumiðar verða séldiir í iskrifstofu Aliþýðu-
í'lokksins og Alþýðubrauðgerðinni, Laugavegi 61, í dag og
eftir páskana, ef eitthvað verður eftir. — Nánar auglýst í
blaðinu á morgun.