Alþýðublaðið - 02.04.1958, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 02.04.1958, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 2. apríl 1958, I DAG er miðvikudagúrinn 2. apríl 1958. STysavarðstofa KeyKjavSlcwr er opin allan sólarhringinn. Nætur- læknir L.K. ki. 18—8. Sími 15030. Eítirtalin apótek eru opin kl. 9—20 alla daga, nema laugar- daga kl. 9—16 og sunnudaga kl 13—16: Apótek Austurbæjar (sími 18270), Garðsapótek (sími 34006), Holtsapótek (simi 33233) og Vesturbæjar apótek ísími 22290). líæjarbókasafn Rtoykjavíknr, Þingholtsstræti 29 A, sími 1 23 08. Útlán opið virka daga il. 2—10, laugardaga 1—4. Les- ítofa opin kl. 10—-12 og 1—10, laugardaga kl. 1-0—12 og 1—4. Lokað á sunnudögum ýfir sum- armánuðina. Útibú: Hóimgarði 34 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 5—7; Hofsvalla götu 16 opið hvern virkan dag nema laugardaga kl. 6—7; Efsta 3uridi 36 opið mánudaga, mið- rikudaga bg föstudaga kl. 5.30— 7.30. FLU GFEKÐIR Fluglélag íslands. Millilandaflug: Millilandáflug véiin Hrímfaxi fer til Glasgow, Kaupmannahafnar og Hamborg ar kl. 8 í dag. Væntanleg aftur til Reykjavísur kl. 16.30 á morg un. Innanlandsflug: í dag er á- ætlað að fljúga til Akureyrar, ísafjarðar og Vestmannaeyja. Á mörgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudais, .Egilsstaða, ísafjarðar, Kópa- skers, Patreksfjarðar og Vest- mahnaéyja. Loftleíðir. Hekla kom til Reykjavíkur kl. 7 í morgun frá Now York. Fór til Stafangurs, Kaupmannahaín- ar og Hamborgar kl. 8.30. Edda er væntanleg til Reykjavíkur kl. 18.30 frá London og' Glasgow. Fer til New York kl. 20. skifafkettir Ríkisskip. Hekla er á Austfjörðum á norðui'leíð. Esja fer frá Reykja- vík kl. 18 í dag vestur um land tit Akureyrar.. Herðubreið er væntanleg til Reykjavíkur í dag að austan. Skjaldbreið er í Rvík. Þýrill er væntanlegur til Reýkja víkur í dag að austan. Skaftíeli - ingur fer frá Reykjavík í dag til Véstmannaeyja. Skiþaíleild SÍS. Hvassafell er í Rotterdam. Arnarfell er í Rotterdam. Jökul- fell er í New York. Dísarfeli er í Reykjavík. Litlafell er í Rencls burg. Helgafell er á Akureyri. Hamrafell er væntanlegt til Riykjavíkur á morgun. Troja iestar sement í Álabörg til Kefla víkur. BífreiðastöS Steindórs Sími 1-15-80 BifíeiSastöð Reykjavíkur Sími 1-17-20 SEPiBÍLÁR SendibíIastöSin Þröstnr Sími 2-21-75 Eimskip. Dettifoss fór frá Kaupmanna- höfn 31/3 til Reykjavíkur. Fjali foss fór frá Hafnarfirði í gær til Bremen, Hamborgar, Rotterdam og Hull. Goðafoss kom til Nev; York 30/3 frá Reykjavík. Guli- foss er í Kaupmannahöfn. Lág- arfoss kom til London 31/3, fer þaðan til Roltcrdam og Vent- spils. Reykjafoss kóm til Réykja víkur 30/3 frá Hamborg. Tröila- foss fór frá Reykjavík í gaár- kvöldi til New York. Tungufcss fór frá Lýsékil í gær til Gauta- borgar, Hambcrgar og Rvíkur. —o— Ársliátíð verzlunarmanna. í kvöid verður árshátíð Verzlunarmannafélags Reykja- víkur haldin í Sjálfstæðishúsinu. Hefur það verið venja félagsíns um árabil að halda slíka hátíð, svo sem títt er um ýmis önhur stéttarfélög. Fram til þéssa hef- ur árshátíð þessi verið á ýmsan hátt mjög íburðarmikil, en nú hefur verið að nokkru breytt um fyrirkomulag þannig að sem flestir félagsmenn sjái sér fæí't að taka þátt í henni. Verður sýó nú og framvegis að safnkvæmis- kiæðnaður vérður ékki tilskil- inn og bórðhaldi slepþt og héíst skémmtunih kl. 20.30. Stáfár þessi ráðstöfun af því, að árshá- tíðir félagsins voru í seinni tíð ekki sóttar sem skyldi af félágs- mönnum alniennt. Til árshátíðar þessarar verð- ur þó á ýmsan hátt mjög vand- að. Verða þar góð skemmtiatriði ágætra listamanna og síðan dans að til kl. 2. Hægt er að panta miða í skrifstofu félagsins, Von arstræti 4, sími 1-52-93. — Að- göngumiðar verða seldir í Sjálí- stæðishúsinu frá kl. 5 í dag- J. Eiagnús OJarnasons Nr. 67 EIRIKUR HANSSON Skáldsaga frá Nýja Skotlandi. ADEN, þriðjudag. — 1288 manns var í morgun bjargað af skipinu Skaubryn frá Osló. Síðar í dag voru farþegarnir flnttir í brezka skipinu Cit.v of Sidney í ítalska skipið Rpma, sem væntanlegt éi' til Aden á fimmtudag. Eldur kom upp í vélarúmi Skaubryn á Indlands- hafi á mánudag, er skipið var á leið frá Bremerhaveh til Ástral íu með útflytjendur og venju- lega ferðamenn. Eldurinn breiddist fljótt út og varö að yfirgefa skipið. Eigendur Roma tilkynna. að allt sé í lagi með farþegana 1080 að tölu og 208 manna á- höfn norska skipsins. Einn hinna þýzku farþega dó úr hjartaslagi, er hann var kom- inn í einn björgunarbátinn. Hann var grafinn í dag. lestin á ný, og í sömu andrárrai kom hinn rauðskeggjaði far- stjóri inn í vagninn, sem ég var í, og gekk rakleiðis að sæt inu til mín og sagði mér að fara undir eins út. Ég' ætlaði að fara að segja eitthvað við víkjandi því að ég skýldi borgá honum síðar, ef hann vill véra svo góður að leyfá mér að vera í vagninum, það sem eftir vaéri af leiðinni til Shubenacadie, en þá tók hánn í kragami á tréýj unni minni og rak mig út á undan sér og nséstum hratt mér ofan tröþpurnar á vagninum, svo að ég átti fullt 1 fángi með að détta ekki um leið og ég kom niður á vagnstöðvastétt- iná, Á sama augnabliki lagði lést in af stað aftur og var á svip stundu köminn á briinandi ferð. Ég tök strax eftir þvi, að taskan mín og pokir.n höfðu orðið eftir unclir bekknum í vagninum. Yarð niér svo hverft við, þegar ég varð þess var, að ég var rétt í þami véginn að hlaupa af stað og elta lestina, en sá strax, að það var þýð- ingarlaust. Ég stóð um stund í sömú sporum á vagnstöðvastéttinni og vissi ekki, hvað ég ætti til bragðs að taka. Einmana og ráðalaus og allslaus stóð ég þar, en aleiga mín, sem ekki var mikil, barst með járnbaut ariestinni óðfluga áleiðis til Trúró, og var mér algerlega töpuð, eða svo hugsaöi ég. Þessi vagnstöð, sem ég var nú staddur á, var lítil, og voru þar aðeins fjögur hús nærri. Landið umhverfis var sérlega hrjóstrugt og eyðilagt. Að aust anverðu við járnbrauti’na var dálítið fell', og sá ég nokkrar geitur þar uppi á klettasyllun um. Það var komið fast að sólar lagi, og ég fór að hugsa um það, hvort ég ætti ekki að biðja manninn, sem ég sá þar á vagn stöðinni, að vísa mér á veit- ingastað, en af því að ég var penrngalaus, áræddi ég það ekki. Ég bað hann bara að vísa mér á leiðina, sem skemmst væri að fara til Gays River eða Cooks Brokks, og benti hann mér á akveg, sem lá norðaustur með fellinu. Þegar ég hafðj gégnið um hríð, kom ég að húsi sém var þétt við veginn. Þar stóð maður við girðingu, sem var utan um lítinn kálgárð, og hafði hann verið að stinga uþp moldina, því að hann hélt á spaða í 'hemdmni. Skammt frá hon- um stóð unglingspiltur og studdist fram á mykjukvísl, Ég kastaði á þá kveðju, og kinkaði fullorðni maðurinn ofurlítið höfðinu, en unglingurinn glápti bara á mig, eiiis og ég væri eitthvert furðuverk. Mað- urinn spurði mi.g svo, hvaðan ég keemi og hvert ég ætlaði, og sagði ég honum, að ég kæmi frá vagnstöðvunum og ætlaði til Cooks Brook. og bað hann að segja mér, hvaða leið væri stytzt þangað. „Þú gengur þennan veg nökfeuð lengi“. sagði maðurinn og benti á veginn,, „þá kem- urðu að brautamótum. Farðu þá brautina, sem liggur til suðausturs. .Þú kemur svo eft- ir lítinn tíma að húsi —“. „Og það er hús skólakenn- arans“, gall pilturinn fram í, „og nái hann í þig til að spyrja þig, þá togar hann upp úr þér allt, sem þu veizt og meira til“. „Þú kemur svo að húsi, sem er hús skólakennarans",- sagði maðurinn ennfremur. „Þar er þér bezt að fara norður með vírgirðingunni, þangað til þú kemur á götu, sem liggur aust ur með hálnum“. „En fái buxurnar þínar ekki að kenna á vírgirðingunni þeirri, þá er ég illa svikinn“, sagði pilturinn, „því að það er gaddavír". „Hinum megin við hólinn kemurðu að stóru húsi“, sagði maðurinn, „þar er hlaða skammt frá, og á stafninum á henni eru stafirnir: O og K, — stórir, hvítir stafir“. „Svo stórir, að jafnvel stein blindur maður gæti séð þá“, gall pilturinn fram í. „Farðu þar beint austur ýfir .völlinn, þar til þú kemur á ak- veginn áftur“, sagði maðuxinn. „En verði gamli Donáld var við, að þú gangir yfir völlinn hans, þá kreistir hann síðustu líftóruna úr skrokknum á þér, áður en þú hefur tíma til að tel'ja upp að tíu“, sagði piltur- inn. „Og ekki er hann nú alveg svo skæður“, sagði maðurinn. „Það getur skeð, að þú hafir tíma til að telja til tíu“, sagði pilturinn. „En ég skal’ veðja skónum mínum uþp á það, að þii skalt ekki telja til tuttugu“. Ég hafði enga löngun til að fá frekari leiðbeiningar og bauð þeim því góða nótt og hélt áfram. Mig hafði í fyrstu langað tií að biðja manninn um að tjá mér húsaskjól yfir nóttiná, en þeg ar ég fór betur að. virða þá fyr ir mér, sérstaklega piltinn, þá hvarf sú löngun með ollu, ög ég held næstum, að ég hefði ekki þegið að yera þar úm.nótt; _ ina, þó að mér hefði verið boð- ið slíkt, því að mér gazt mjðg illa að öllu, sem ég ,sá þar. Húsið, og allt í kringum það var ákaflég skuggáíégt, en mað urinn og piiturinn þó hálfúi skuggalegri. - iSólin var nú sigin til viðaiy og i-ökkrið var haegt og hægt að breiða sig yfir allt umhvérf is mig. En loftið var hreint, pgr, leit því út fyrir, að nóttin yrði ekki mjög dimm, þó að ékkii" lýsti af tunglinu. Ég fór að reyna til að ganga nokkuð greitt og komast sem léngst, áður en dagsett yrði. Hvér gat sagt nema ég kæmi fyrir hátta tíma að einhverju húöi, sem mér litist á að fará heim að og; biðjast nseturgistingár? Ég fór fram hjá tveinriur hest um, sem voru á beit við veg- inn. Þeir litu upp sem snöggv- ast og horfðu á mig óg fóm1 svo aftur að bíta grasið. Það var eins og þeir hugsuðu' „Við þurfum ekki að vera hræddir, —: Það er eklci hann, það er bára einhver meinlaus, aúm- ingja drengur“. Nokkru síðár fór ég frarrti' hjá fáeinum kindum, sem voru á beit í dáiitlu rjóðrl við veg- inn. — Vegurinn lá ;í gegnum nýgræðingsskóg. Kindumar. hrukku við og hlupu lítinn spöl, svo stönzuðu þær og horfðu á eítir mér og fóru svo aftur að bíta. Og það var eins og þær hugsuðu: „Vio þurfum ekki að vera hræddar. Hann sigar ekki hundi á eftir okkur, þessi drengur“. Tvær uglur sátu í trjátoppi, sín hvoru megin við yeginn, Þær kölluðust á og horfðu hátt. Það var eins og þær væru að segja hvor annarra frá því, að þær þyrftu ekki að hreyfa sig minnstu ögn, því að ég mundí ekki kasta steinum upp til þeirra, — ég væri á alltof mikl- um flýti til að sinna því. „Ú-hú hú-ú!“ sögðu þær og horfðu á. eftir mér. Áfram hélt ég og hljóp við' fót. Það var komið dagsetur og nýgræðingsskógurinn meðfram! veginum var orðinn skuggaleg ur. Ég heyrði við cg við þruslc og skrjáfur, sem lét mjög Tla/ 'SD O 4*0*1 Þetta góðhjartaða fólk í Sem einn maður trúði fólkið Grunol var æst upp í baráttu-^sögunni og lagði hatur á Shast- hug af hinni hálu tungu Zorins. ar af öllu hjarta. Sá dagur kom að geimfarið hcf sig einu sinni enn til flugs og þetta einfalda fólk veifaði og hrópaði a’f gleði þegar það horfði á það með hinu nýja merki Zorins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.