Forvitin rauð - 01.01.1982, Blaðsíða 5

Forvitin rauð - 01.01.1982, Blaðsíða 5
FORVITIN RAUÐ 5 úr Rshr, né út á við, af hverju þær höfnuðu Rshr og veldu „nýja kvennahreyfingu“. Þær treystu sér ekki til að réttlæta útgöngu sína úr Rshr með póli- tískum rökum og það sem meira er, þessar konur hafa engar tilraunir gert innan Rshr til að breyta grundvelli hennar eða starfsháttum til samræmis við sínar skoðanir. Það eina sem vakir fyrir þeim er að gangast athugasemdalaust inn á gagnrýni „margra kvenna“ (hverra?) utan Rshr. Þessum konum var bent á að innan kvennaframboðs væru háborgaralegir straumar og ekkert væri útséð um hvaða stefnu „ný kvennahreyfing" tæki. Voru þær einnig spurðar að því hvort leggja eigi Rshr niður án þess að hafa tryggingu fyrir því að merki róttækrar kvenfrelsishreyfingar yrði haldið á lofti. Ábyrgðarleysi þeirra og hentistefna reyndist slík, að þær lýstu sig reiðubúnar til að taka áhættuna! Sem sagt;, þær eru tilbúnar til að fórna Rshr á altari hentistefnu og pólitískrar tilraunastarf- semi. Með þessum hætti hefur um- ræðan um kvennaframboð snúist upp í umræðu um líf og dauða Rshr. Þær konur sem nú starfa innan Rshr og eru stað- ráðnar í því að halda merki hennar og kvenfrelsisins á lofti, standa enn í dag á þeim grund- vallarviðhorfum sem Rshr hefur á ferli sinum reynt að starfa eftir. Hún hefur gert mistök og það má gagnrýna hana um margt, en sú gagnrýni verður henni aðeins til góðs meðan hún er gerð á forsend- um róttækrar kvenfrelsisbar- áttu. En að gefast upp fyrir smáborgaralegri og hægri sinn- aðri gagnrýni fjandmanna sinna gerir Rshr ekki og hvetur þær konur sem áfram vilja efla róttæka, kvenfrelsissinnaða og verkalýðssinnaða baráttu að koma til starfa. Það er skoðun greinarhöf- undar að sú afstaða til Rshr sem ríkjandi er meðal kvenna- framboðskvenna, sé uppgjöf gagnvart þeirri gagnrýni og árásum sem borgaraöflin hafa ætíð haldið uppi, ekki aðeins gegn Rshr, heldur einnig gegn róttækri kvenfrelsisbaráttu yfirleitt. Með ofuráherslu á ein- hvern fyrirfram gefinn „reynsluheim kvenna“ skyggja þær einnig á raunverulegar þjóðfélagsandstæður og sjálfa orsök kvennakúgunarinnar. Eins og að kvennaframboðinu hefur verið staðið hingað til, vekja þær einnig upp falskar vonir um að róttækra breytinga sé að vænta í borginni, fals- vonir, sem geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir baráttuvilja kvenna í framtíðinni. Hildur Jónsdóttir

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.