Forvitin rauð - 01.01.1982, Blaðsíða 6

Forvitin rauð - 01.01.1982, Blaðsíða 6
6 FORVITIN RAUÐ Barátta ófaglærðs starfsfólks á Eins og fram kemur í ávarpi Önnu K. Júlíusen var ákveðið að fjalla hér í blaðinu um baráttu ófaglærðs starfsfóiks á Kieppsspít- ala og Kópavogshæli. Barátta þessa fólks hefur vakið mikla athygii enda stór sögulegur þáttur í verkalýðssögu íslands, að rúmlega 200 manns gangi samtaka út af vinnustað sínum til að knýja fram kröfur sínar um launajafnrétti og um eitt stéttarfélag. En mál þetta er ekki bara kröfur um hærra kaup og þess háttar heldur kemur það inn á marga aðra þætti, s.s. vinnubrögð verka- lýðsfélaganna, fjölmiðla, ríkisbáknsins og ráðuneytiskaria. Ófag- lærða starfsfólkið á þessum stofnunum hefur á þessari einu viku sem verkfallið stóð lært óhemjumikið um kerfið að jafnvel má líkja við heilan vetur í þjóðfélagsfræðum við HÍ. Hér á síðunni birtum við ráðherrabréf það sem var útkoma verkfallsins. Blaðamaður Forvitinnar rauðrar fór einn sunnudagseftirmið- dag í heimsókn til tveggja starfsmanna á Kleppsspítala og ræddi við þau. Þau heita Agatha Agnarsdóttir sem vinnur á deild II og Stefán Ásgeirsson á deild III. Fara viðtöiin hér á eftir. Agatha fær fyrst orðið. reiði eða að við fengum svona „krakkar mínir“ viðmót og því „bara ekki trúað“ að við gerð- umst svona óþekk að fara útí svona aðgerðir. Ráðherrarnir, Ragnar og Svavar, tóku þessu sem hótun. Þeir voru einfald- lega hræddir um að ef þeir kæmu til móts við okkur myndi það skapa öðrum fordæmi, allir tækju þá upp á því að ganga út af vinnustöðum sínum með einhverjar kröfur. Svo má líka nefna það að mál þetta kemur inn á „landamæradeil- ur“ verkalýðsfélaganna, sér- staklega milli ASÍ og BSRB sem löngum hefur verið við- son formaður SFR hafði ekki komið inn á Klepp í 23 ár og vissi því lítið um eðli starfs okkar. Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir formaður Sóknar taldi engan eðlismun á störfum okk- ar og störfum ófaglærðs fólks sem vinnur á elliheimilum. Sjálf gaf hún ekki upp hversu oft eða hvenær hún hefði litið inn á Klepp eða Kópavogshæli. Við lendum oft í átökum við sjúklinga, því að þrátt fyrir öll lyf grípa sjúklingar oft til of- beldis. Þá er um að gera að bregðast nógu skjótt við. 1. október síðastliðinn gaf Davíð Gunnarsson fram- Við erum öll á bömmer — Mál þetta hafði blundað í fólki. Við horfumst í augu við þetta misrétti á hverjum degi, sérstaklega þó um mánaðamót þegar við fáum launaseðlana. Við erum jú i sitthvoru verka- lýðsfélaginu með sitthvort kaupið þótt við vinnum hönd í hönd og hlið við hlið á hverjum degi og störf okkarséu ná- kvæmlega þau sömu og hið opinbera viðurkenni þá stað- reynd. Hér á Kleppi hefur verið svo til stöðug umræða um þessi mál frá því í kringum og eftir aðgerðirnar sl. vor þegar starfs- fólkið hér fór með undir- skriftalista til Svavars Gests- sonar heilbrigðismálaráðherra, og krafðist þess að fá sömu laun fyrir sömu vinnu og þess að vera í einu stéttarfélagi því eins og kunnugt er eru allar ófaglærðar konur hér ráðnar á Sóknartaxta og til skamms tíma voru allir ófaglærðir karlar ráðnir á BSRB-taxta. Undanfari þessa verkfalls var í raun mjög stuttur. Við héldum nokkra fundi í samkomusal Kleppsspítala og ræddum mögulegar baráttuleiðir. Svo varð úr að við ákváðum að ganga út, það væri eina raun- hæfa leiðin þar sem búið væri að reyna allt annað. Ófaglærða starfsfólkið á Kópavogshæli var í nákvæm- lega sömu stöðu og við. Það var líka að ræða þessi mál sín á milli. Upphaflega sendu þau okkur einungis stuðningsyfir- lýsingu en sögðust sjálf ætla að bíða eftir næstu sérkjarasamn- ingum. En svo allt í einu, 2 sólarhringum fyrir aðgerðina, ákváðu þau að taka þátt í þessu með okkur og ganga út. Við vorum fyrst að velta fyrir okkur að stofna okkar eigið stéttarfélag. Það var hug- mynd sem við hér á Kleppi vorum inni á. Kópavogshælinu leist hins vegar ekki á það, kannski var það ósköp eðlilegt, það er jú ekki eins auðvelt og að segja það, að stofna stéttar- félag. En við voru búin að gefa því nafn: Stéttarfélag með- ferðarfulltrúa og semja lög þss. (Agatha brosir) Viku áður en við gengum út fóru fulltrúar frá okkur í heim- sókn í ráðuneytin og til verka- lýðsfélaga okkar, Sókn og SFR (sem er í BSRB). Við afhentum þeim undirskriftalista með kröfum okkar um að fá starfs- heitið með’ferðarfulltrúar og vera öll í einu stéttarfélagi auk þess sem við tilkynntum þeim að við myndum ganga út 1á* 12 á hádegi 11. febrúar ef •Ikert samkomulag hefði tekist um málið. Þssu tvennu fylgdi svo starfslýsing okkar o.fl. Fólkið á þessum stöðum vissi varla hvernig það átti að bregðast við okkur. Við fengum óblíðar við- tökur hjá ráðuneytisstjóra Heilbrigðisráðuneytisins sem fannst við vera ábyrgðarlaust pakk, í verkalýðsfélögunum urðu viðkomandi ýmist æf af kvæmt mál. Hvert verkalýðs- félag virðist eiga sína félags- menn og maður fær í raun lítið að ráða þvi í hvaða verkalýðs- félagi maður er. Auk þess má nefna það að sjúkraliðar hafa 63 stöðugildi á Kleppi en hér eru hins vegar bara starfandi 26 sjúkraliðar. Ákvæði í lögum um staðgenglastörf segja svo til um að þeir sem gangi inn í störf annarra, í þessu tilviki sjúkra- liða, skuli fá greidd laun sam- kvæmt því og ættu því a.m.k. 37 okkar að fá kaup sjúkraliða sem byrja í launaflokki BSRB. Ég hef sjálf mikla trú á bar- áttu fjöldans fyrir réttlæti. Samstaða til sigurs. Það var stórkostleg þátttaka í þessum aðgerðum okkar og stuðnings- yfirlýsingarnar streymdu inn. Þetta var allt eins og einn stór draumur og andinn innan hópsins og samstaðan hreint frábær. Við vorum tilbúin til viðræðna við kerfið og ætluð- um okkur ekki að láta í minni pokann eða gefast upp. En verkalýðsfélögin afneituðu okkur og ráðuneytiskarlarnir neituðu að ræða við aðra en verkalýðsfélögin. Samt fund- uðu þeir með okkur en það var lítið vit í þeim fundum. Þetta voru bara snakkfundir þar sem við þurftum í flestum tilvikum að setja viðmælendur okkar inn í málið, sjálf gerðu þau ekkert til að kynna sér það. Sem dæmi um algjöra fákunn- áttu má nefna að Einar Ólafs- kvæmdastjóri Ríkisspítalanna út tilskipun að frá og með þess- um degi yrðu allir karlar ráðnir á ný á Sóknartaxta. Körlum sem báru starfsheitið gæslu- menn, var því alltaf að fækka. Þetta var dropinn sem fyllti mælinn. Það er nú varla for- svaranlegt að lækka fólk í laun- um! Og stéttarfélag gæslu- mannanna, SFR, sagði ekki múkk þótt meðvitað væri reynt að útrýma gæslumannastöðun- um á þessum stofnunum. Ef kröfum okkar um starfsheitið meðferðarfulltrúi hefði verið sinnt, hefði það falið í sér 9% launahækkun hjá gæslumönn- um í BSRB, en 20% launa- hækkun hjá starfsmönnum í - Sókn. Svo var allan tímann verið að tala um að launamis- munurinn væri í raun enginn. Þáttur fjölmiðlanna er nú bara sérkapítuli út af fyrir sig. Þeir höfðu litla samúð með baráttu okkar, en virtust frekar tilbúnir til að birta yfirlýsingar Aðal- heiðar, Einars og ráðherranna þar sem lýst var frati á okkur og yfirlýsingar okkar. Ef yfirlýsingar okkar voru á annað borð birtar væru þær rangfærðar eða sleppt úr mikil- vægustu þáttum þeirra. Ég tek ekki stórt upp í mig þegar ég segi að við séum búin að missa allt álit á fjölmiðlum landsins, þá sérstaklega ríkisútvarpinu. Allir kerfiskallarnir haldast brosandi hönd í hönd, þetta er allt ein stór Frímúrararegla. Okkur var hótað úr öllum áttum, oft mjög persónulegar hótanir. Talað var um að við værum að reyna að bylta þjóð- félaginu. Vá! Eins og það væri takmark okkar. Eyjólfur Mel- sted (starfsmannastjóri á Kópa- vogshæli) hótaði starfsfólkinu þar, hótaði að þau fengju ekki að koma til vinnu aftur og þau myndu missa dagheimilispláss- in fyrir börnin sín. Þáttur hans í fjölmiðlunum var ein stór lygi. Hann lét líta svo út að helmingur starfsfólks á Kópa- vogshæli hefði snúið aftur inn á stofnunina, en það var einber lygi. 104 starfsmenn á Kópa- vogshæli gengu út 11. febrúar, 7 urðu eftir og nokkrir guggn- uðu undan hótunum hans sem síðan voru stöðvaðar. 110 starfsmenn á Kleppi gengu út, eftir urðu 10, en samstaðan var öllu betri meðal Kleppsfólks- ins. Það á sér eðlilegar skýring- ar, það höfðu alla tíð verið meiri umræður um þetta mis- rétti hér á Kleppi en á Kópa- vogshæli. Við fengum lítið út úr bar- áttu okkar. Við vorum orðin langþreytt, mörg okkar sváfu lítið sem ekkert alla þessa viku sem verkfallið stóð og ég held að flest okkar hafi ekki gert sér nægjanlega vel grein fyrir því út í hvað við vorum að fara. Við vorum svo bjartsýn og héldum að þetta yrði allt miklu auðveldara en raun bar vitni. Aðgerðir okkar voru líka ólög- legar og það vakti upp hræðslu meðal okkar að okkur yrði refsað á einhvern hátt, eða við öll rekin, og hvaðan ættum við þá að hafa okkar lifibrauð? Fjölmiðlarnir og hlutdrægni þeirra varð ekki til að örva okkur, dregin var upp mjög ósanngjörn mynd af okkur sem einhverjum ábyrgðarlausum lýð, sem við teljum okkur alls ekki vera. Það sem við fengum út úr þessu voru loforð um ein- hverjar bætur í næstu sérkjara- samningum, auk einhvers sí- menntunarnámskeiðs. Auð- vitað viljum við fá einhverja menntun, en það var bara alls ekki aðalkrafan okkar. En við erum alls ekki hætt, þótt við höfum öll snúið aftur til vinnu. Við munum halda málinu vakandi, við höfum ekkert gefist upp, kröfur okkar eru ennþá þær sömu. Kerfis- karlarnir skulu líka fá að standa við loforð sín. Við gleymum þeim ekki svo auð- veldlega, það máttu bóka. En óbeinar afleiðingar inngöngu okkar er að við erum öll leið og sár. Við erum öll á bömmer. Hvað um það, ég persónulega hef misst nokkurn áhuga á starfi minu sem slíku. Það kemur enginn hingað til vinnu vegna launa. Þetta getur verið mjög gefandi og þroskandi starf og maður vill gera sitt besta og vonandi er þessi starfs- leiði í mér bara tímabundinn. En það er helvíti hart að finna að það er ætlast til alls af okkur, en sjálf fáum við ekkert í staðinn. Það er ekkert réttlæti til í þessu máli. Margrét Rún Guðmundsdóttir

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.