Morgunblaðið - 09.11.1913, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið.
Kemur út á hverjum morgni,
venjulegt blað (4 bls.) á rúmhelgum
dögum, tvöfalt bláð (8 bls.) á sunnu-
dögum.
Auglýsingum sé skilað fyrir kl. 2
deginum áður í ísafoldarprentsmiðju.
Kostar 6 5 aura um mánuðinn
Tekið við áskriftum í ísafoldar-
prentsmiðju.
Einstök blöð kosta 3 aura.
Talsimar 500 og 48.
Bæjarstjórnarfundur
6. nóv. 1913. Frh.
Þá var tekið tekið fyrir fisksölu-
málíð, — málið, sem mest allra
bæjarmála hefir verið rætt síðasta
missirið.
Tr. Gunnarsson kvað það vera
tvent, sem í fyrstu hefði komið þessu
fisksölumáli af stað, óhreinlæti (al-
veg eins og með salernin!) og verð
fisksins. Það hefði verið ómögu-
legt að lækka verðið, þó mönnum
alment fyndist það of hátt. Sagðist
vita til þess, að ýsa hefði hér um
daginn verið seld fyrir 12 aura pund-
ið, og gæti það kallast dýr matur.
Það væri því meiri ástæða fyrir bæjar-
stjórnina að taka í taumana og koma
sölunni í lag. Það mundi vera
mörgum erfiðleikum bundið fyrir
bæjarfólk, að sækja fisk í soðið á
að eins einn stað í bænum. Eitt
fisksöluhús væri þó með öllu ónógt.
Lagði hann til, að gjörðir yrðu þrír
»pallar« og 3 menn hafðir til að
annast söluna. Vildi hann láta þá
hafa árslaun af bæjarfé og trúa þeim
fyrir öllum fiskkaupum af botnvörp-
ungunum. Bærinn ætti ekki að
græða á sölunni, en taka fyrir fisk-
inn það, sem hann kostaði með
öllum áföllnum útgjöldum. Vildi
hann banna alla aðra fisksölu i bæn-
um, og útiloka bæði »Akurnesinga,
Álftnesinga eða aðra slæpinga« héð-
an úr bænum. Vildi hann hafa minst
tvo fasta staði, sem fiskur væri seld-
ur á, og þar að auk hreinlega vagna,
sem sendir væru um stræti bæjar-
ins. Kvað öllum »fisk spekúlöntum«
vera alveg sama um hvað fiskurinn
kostaði hjá botnvörpuskipunum, því
að »þeir láta bæjarbúa borga gildið«.
Þá las borqarstj. upp bréf, undir-
ritað af flestum fiskimönnum héðan
úr bænum og nærlendis. Þeir biðja
þar bæjarstjórnina að hugsasig tvisvar
um áður en hún taki af þeim rétt-
inn til þess að aka um bæinn og
selja þann afla, sem þeir öfluðu. —
L. H. Bjarnason kvað hér vera
algjört atvinnufrelsi, eins og menn
vissu. Áleit hann eigi að lög leyfðu
að banna mönnum að selja fisk.
Sjálfur mundi hann þora að brjóta
slik lög, ef þau yrðu samþykt, í
fullu trausti þess, að hann mundi
verða sýknaður. Það væri ómögu-
legt fyrir alla að nálgast fisk frá ein-
um stað. Enn fremur yrði fiskur-
inn mun dýrari en nú, vegna leigu
á húsinu; væri ráðgert, að eingöngu
lóðin mundi kosta 9000 kr. Áleit
litla meiningu í að kosta svo miklu
til — að eins til þess að taka at-
vinnu frá þeimj sem lögum sam-
kvæmt hafa rétt til hennar. Og
hvaða eftirlit yrði svo með þessu
húsi. »Hún verður aldrei i lagi«.
Það væri alvanalegt erlendis, að fisk-
ur væri seldur á götunum úr vögn-
um, og því mætti ekki gera hið
sama hér. Menn töluðu um óhrein-
indin og óhollustn; en miklu óholl-
ari áleit hann niðursoðinn fisk vera,
en t. d. ýsa, sem væri tveggja daga
gömul. Sagði, að sér þætti úldinn
fiskur bezti matur!
Sv. Björnsson sagðist ekki trúa því,
að prófessor við Háskóla íslands ætli
sér að ráða mönnum til þess að
brjóta samþyktir bæjarstjórnarinnar.
Áleit vísan rétt til þess, að innfæra
slíka reglugerð. Það væri mikið í
varið fyrir bæjarbúa að fá góðan fisk,
hreinan, nýjan — og rétt veginn. Það
væri miklu meiri trygging, ef selt
væri á einum stað, en ef fisksölu-
staðirnir væru margir.
Kn. Z. áleit enga meining í að
taka réttinn af þeim mönnum, sem
nú seldu fisk í bænum, hversu mik-
ið sem þeir tækju fyrir fiskinn.
Jón Þorláksson kvað fiskinn mundu
verða dýrari en hann þyrfti að vera.
Fiskur væri hér fátækrafæða aðallega,
en erlendis hinn dýrasti matur. Fisk-
verð mundi enn fremur hækka við
þann aukakostnað, sem það hefði í
för með sér, að senda hann austan
úr bæ niður í miðbæinn, til þess að
kaupa fisk. Lagði hann til að »pall-
ar« Tr. G. yrðu gerðir; væru þeir
það, sem menn nú bezt myndu við
una.
Hannes Hajiiðason kvað »palla«
Tryggva vera alveg þýðingarlausa.
Sér væri bölvanlega við þessar röngu
vogir.
Rimma mikil varð milli þeirra Sv.
B. og L. H. B. um lagaheimild fyrir
slíkum samþyktum. Kvað Lárus all-
ar breytingar vera i bága við lögin.
Jón Jensson kvað nefndina hafa unn-
ið í alveg mótsetta áttt, en hún átti
að gera. Hefði hún að eins gert ráð-
stafanir sem gerði fiskinn dýrari, en
hefði átt að gera hann ódyrari. Þess-
ar ráðstafanir hefðu ekkert að gera
við hreinlæti. Vildi hann nota palla
Tryggva; »þeir benda í áttina, sem
vér eigum að halda«; þá hefði bæjar-
stjórnin ráðið verulega bót á fisk-
sölunni.
Sv. B. kvað fiskinn í raun og veru
ekki verða dýrari, því óhreinindin
yrðu þó ekki seld með þorskinum.
Kvað hann margar aðrar samþ. hafa
verið gerðar í líka átt, t. d. kjöt-
eftirlit og mjólkursölu, og þær hefðu
verið viðurkendar af stjórnarráðinu.
Loks kom fram rökstudd dagskrá
frá Jóni Þorl. og Lárusi og var hún
samþykt.
Var hún svohljóðandi:
»1 því trausti að fjárhagsnefnd
komi með till. um fjárveiting til að
gera fisksölupall, tekur bæjarstj. fyrir
næsta mál á dagskrá.
Vaqabundus.
■------ DAGBÓFjlN. C=3
Afmæli 9. nóv.
Gnðrún Pétnrsd. húsfr.
Maria Signrðard. —
Marta Indriðad. —
Þóra G. Möller —
Pálmi Þóroddsson prestur 51 ára
Olafur Theódórsson trésm. 37 —
Jón Klemensson stýrimaður 36 —
Veðrið í gær (8. nóv.) var stilt, logn nm
land alt, nema á ísafirði norðvestankul,
heiðskirt á Snðnrlandi, en skýjað á norð-
austnrlandi.
Hitinn var 2,8 stiga frost í Beykjavik,
0,3 á ísafirði, -4- 5,2 á Aknreyri, — 4,0
á jGrimsstöðum, 1,6 stiga hiti á Seyðis-
firði.
Háflóð í dag kl. 2.33 e. h. Sólarupp-
koma kl. 8.37, sólarlag 3.45.
Samkvæmt leyfi bæjarstjórnarinnar var
farið að spranta va„ni á Anstnrvöll i gær
kl. 2^/a síðd. Voru vatnsæðar opnaðar í
Kirkjnstræti og Pósthússtræti og vatnið
látið renna i sifellu á völlinn. Virst þó
sem ónógt væri, þvi kl. 8 — eftir 5 stunda
austur — sást hvergi að völlurinn hefði
verið »vatni ansinn«. Skautafélagið þarf
áreiðanlega meira vatn — alveg eins og
orgelspilarinn þnrfti >meiri vind« forðum
— ef duga skal. Ef til vill gætu meðlim-
ir fnndið eitthvert ráð 1
Komið á Austnrvöll i dag!
Freyr, botnvörpuskip P. J. Thorsteinson
& Co., sem rak upp hér við Bauðará í
ofsaveðrinu 19. f. m., kvað nú vera seit
h.f. Timbur- og kolaverzlunin Raykjavik.
Messað i dómkirkjunni i dag ki. 12 af
sr. Bj. J. (altarisg.), en kl. 5 af sr. Jóh.
Þork. í fríkirkjunni kl. 12 af sr. Ól. Ól.
Alþýðufræðslan. Bjarni frá Vogi flytur
fjórða og siðasta erindi sitt, B r 0 t ú r
sögu Islands, i Iðnó i dag kl. 5
ís á tjörninni. Isinn á tjörninni var
mannheldnr í gær. Var hann töluvert
notaður — einkum af drengjum bæjarins,
sem óróir blða þess, að Austurvöllur fari
að >halda<.
Síra Matth. Jochumson verðnr 78 ára
næstk. þriðjudag, 11. þ. m. Hann dvelst
um þessar mnndir hér i bænum hjá tengda-
syni sinnm, Jóni Laxdal kanpm. En norðnr
á Aknreyri ætlar hann i miðjum þessum
mánnði á Ceres.
Súlan, sem um daginn strandaði á
Hornafirði, verðnr tekin hér upp í dráttar-
brautina í dag nm flóðið. Skemdir eru
töluverðar á skipinu.
Hafnargerðin. Kirk verkfræðingnr hefir
boðið blaðamönnnm bæjarins og hafnar-
nefnd að skoða hafnarmannvirkin á mánu-
daginn.
Stúdentafélagið. í stjórn þess voru kosnir
á siðasta fundi þeir Matth. Þórðarson
form., Pétur Magnúss. stud. jnr. ritari, Kr.
Linnet cand. jur. gjaldkeri og Ben. ritstj.
Sveinsson og Andrés Björnsson cand. jur.
Um August Bebel, hinn látna þýzka
afnaðarmannakonnng, flytur >Verkmanna-
\ '
Nýhöfn
býður sínum heiðruðu viðskiftavin-
utn ágætt margarine, fyrir að
eins 48 aura pundið og 46 í 10
pundum.
Býður nokkur betur?
Ávextir og Kálmeti
kemur með Ceres í dag í
Liverpool.
Diamant-hveitið
í 5 og 10 punda pokum, fæst að
eins í
Nýhöf n.
Reyktur Lax
fæst í
JSiverpool
Pure Latakia
og margar fleiri uppáhalds reyktóbaks-
tegundir bæjarbúa, fást nú í
N ý h ö f n.
blaðið« í gær fróðlega grein eftir Baldvin
Björnsson. En hann dvelnr á Þýzkalandi
og mnn knnnngri starfi Bebels en flestir
aðrir hér i landi.
Taflfélag Reykjavlkur hélt aðalfnnd sinn
á föstndagskvöldið. I stjórn voru kosnir
Pétnr Zophoniasson form., Þorlákur Ófeigs-
son ritari og Haialdur Signrðsson gjaldk.
Endnrskoðendur voru kosnir próf. Björn
M. Ólsen og dr. Ólafur Danielsson. Fé-
lagið á i sjóði rúmar 793 kr. auk mikilla
bókaleifa (upplög). Allir skákvinir ættu
að vera meðlimir féiagsins.
Vélaskipið Njáll — gamla hetjan, sem
forðum stundaði hákarlaveiðar héðan —
fór i gær vestnr að Stapa með kol og
vörnr fyrir P. J- Thorsteinsson & Co.
>Sjögutten«, Kolaskipið, sem hingað kom
nm daginn, fór i gær til Ólafsvlkur með
kol og vörur fyrir Garðar kanpm. Gisla-
son.
Bréfaskrína.
Fisksalan enn.
Kaupandi skrifartil Morgunblaðsins:
Undanfarna daga hefir verið seld-
ur fiskur hér í bænum fyrir ioaura
pundið.
Eg vil koma með þá uppástungu
að bæjarbúar kaupi engan fisk með-
an verðið er svona hátt, og mun þá
sannast að fiskverðið lækkar eftir
einn eða tvo daga.
Á. S.