Morgunblaðið - 07.12.1913, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.12.1913, Qupperneq 2
162 MORGUNBLAÐIÐ Jón Siverísen ItiQÓlfssfrætt 9 tekur að sér: að endurbæta bókhald verzlana og annara, sem bókfærslu- löggjöfin nær til, að endurskoða alls- konar reikningsfærslu, að semja hinar fyrirskipuðu efnahagsskýrslur, o. fl. þar að lútandi. Þeir sem nota vilja aðstoð hans, eru vinsamlega beðnir að geta þess innan ársloka. Til viðtals kl. 2—3 virka daga. þjóðar og þings um, hvaða gerð sé óskuð, og komi íslandsráðherra fyrst þar á eftir fram með tillögur um, að í nýjum konungsúrskurði verði ákveðin gerð fánans«. Síðan bar Hafstein fram konungs- úrskurðinn, sem kunnur er orðinn hér á landi. Þá stóð upp Zahle yfirráðherra Dana og mælti á þessa leið: Reglurnar um hið sameiginlega ríkisflagg og notkun þess í alþjóða- viðskiftum,heyrir undir hin sameigin- legu ríkismál, og breyting á þvi at- riði fæst eigi, nema með hluttöku (medvirkning) hinna dönsku stjórnar- valda. Þetta er afleiðing bæði af núgild- andi lögum, rás viðburðanna og eðli málsins; aðaleinkenni verzlunarfán- ans er, að hann nýtur alþjóðaviður- kenningar, og til þess að hljóta slíka viðurkenning, þarf til löggilding af hálfu þess valds, sem samkvæmt þjóðarréttinum hefir rétt til þess. En þetta er eigi til fyrirstöðu því, að löggiltur sé sérstakur fáni til not- kunar á íslandi og i landhelgi íslands, og alveg eins og ákvæði um fána- notkun í landi eru gerðar í Dan- mörku með konungsúrskurði 7. júlí 1854, svo hlýtur og að vera hægt að gera samskonar ákvæði á íslandi með konungsúrskurði, er Islands- ráðherra undirritar með konungi. Það skilyrði verður þó að gera, eins og íslandsráðherra einnig hefir í ljós látið, að rétturinn til að draga hinn sameiginlega ríkisfána á stöng á íslandi og í landhelgi íslands, sé eigi skertur, og að þessi fáni sé ætíð á stöng dreginn á húsi því, sem hið íslenzka stjórnarráð yðvarrar hátign- ar hefir bækistöð í. Loks mælti konun^ur á þessa leið: Enda þótt mér hefði fallið það betur, að alþingi hefði beðið með að láta í ljós ósk um islenzkan sérfána, þangað til komin væri regla á ríkis- réttarsamband Danmerkur og íslands, felst eg þó nú, er eg hefi heyrt þessi ummæli, á tillögur þær til kon- ungsúrskurðar, um sérstakan fána til notkunar á íslandi og í landhelgi íslands, sem íslandsráðherra hefir borið fram og yfirráðherrann ekki hefir komið fram með nein mót- mæli gegn. Um leið og eg geng að því vísu, að þessi fáni verði eigi eftirtakanlega Hkur fána neins annars lands, býst eg við, að fá síðar tillögur íslands- ráðherra um gerð fánans. Eg vil taka það sérstaklega fram (Jeg önsker at fastslaa), að afstaða Dana í þessu máli stafar af alvarlegri ósk um að efla gott samband milli Danmerkur og íslands. Eg gef hérmeð yfirráðherranum og íslandsráðherra leyfi til að birta ríkisráðsumræðurnar um þetta mál, bæði í Danmörku og á íslandi. Comes. ■----- DAGBÓfjlN. E=3 Afmæli i dag. Jakobina Gnðmundsdóttir húsfr. Ragnheiður Bjarnadóttir — Branddis önðmnndsdóttir — Gnðjón Gamalíelsson múrari 46 ára Kristinn Guðmundsson — 47 — Gisli Sveinsson málaflntningsmaðnr33ára Slra Einar Jónsson, Hofr i Vopnaf. 60 — Annar sunnudagur I jólaföstu. Teikn á sól og tungli (Lúk. 21. Matt. 25, 1—18. Lúk. 3, 1—6.) Messur. í Þjóðkirkjuui kl. 12 sira Bjarni Jónsson, kl. 5 sira Jóh. Þorkelsson. I Frikirkjunni kl. 12 sira Ól. Ólafsson. I Katólsku kirkjunni kl. 9 árd. og kl. 6 siðd. levitaguðþjónusta. Þá heldur Menlenberg prestur fyrirlestur. Náttúrugripasafnið opið kl. I1/*—2‘/, siðd. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2 síðd. Háflóð er i dag kl. 12.33 siðd. Sólarupprás kl. 10.9. Sólarlag 2.24. Veðrið i gær: Reykjavik, austangola, -i- 1.1 ísafirði, austangola, -f- 0,5. Akur- eyri, sunnankul, ~r 1,0. Grimsstaðir, snð- austangola, -f- 5,0. Seyðisfjörður, suð- vestankul, -j- 0,7. Vestmannaeyjar, aust- anhvassviðri -f- 3,0. Skýjað loft um land alt, en i Þórshöfn á Færeyjnm var hálf- heiðskirt loft, logn 7,1 stiga frost. Er það nýtt sem sjaldan skeður, að kaldara sé þar en hér og alt að þvi einsdæmi að svona miklu muni. Dáin er nýlega hér i Landakotsspítal- anum Júlia Jónsdóttir, 17 ára gömul, ætt- uð frá Háakoti i Fljótshlíð. Hafði hún slasast eitthvað nýlega — dottið ofan stiga og dó af afleiðingunum. Jarðaður var i gær Gisli Gnðmundsson, 80 ára gamall, ættaður frá Fróðárhálsi i Borgarfirði. Dó hér á Landakotspitala. Nýja Bíó sýnir þessa dagana >Káti liðs- foringinn«, ástarsögu ímyndum. Sagan byrjar vel, liðsforinginn trúlofast ungri og afbragðsfriðri stúlku, sem hann elskar, og alt virðist leika i lyndi. En gázki hans og léttúð, hið óviðráðanlega fjör hans, verður þess valdandi að hann missir stöðu sina og heytmey. Og svo verður hann landflótta um hrið, en ástin dregur hann aftur heim á fornar stöðvar — og þá hlýtur að fara illa — þvi hún er gift. Aukamynd er: >Skóhlifar ógæfunnar«, hlægileg. Gamla Bió sýndi i gær mynd sem heit- ir »Atförin«. Sagan geri«t á siéttunum miklu i Norður- Ameriku. Leikendur eru allir aœerískir og leysir Miss Dorothy aðalhlutverkið af hendi með sömu nákvæmni og alúð og venjulega. Hún er áður kunn hér i bæn- um sem afbragðs-leikkona. Efnið er ákaflega áhrifamikið og það sem mesta eftirtekt vekur, er það hve myndin er framúrskarandi skýr og eðli- leg. •Þvottakonan ástfangna* er aukamynd leikin af frönskum leikurum. Ákaflega hlægileg. Botnfa kom frá útlöndum og Austfjörð- um i gær. Farþegar: Hannes Hafstein ráðherra og dóttir hans Ástriður, Níelsen verzlunarstjóri á Eyrarbakka, frú hans og barn, Carl Sæmundsson umboðssali, Mauritzen stórkaupm., frá Leith, Guðm. Eirikss, Obenhauft umboðssalar, danskur bókhaldari til steinoliufélagsins, Þorsteinn ÞorBteinsson cand. polit., Jón Espolin, Olgeir Friðgeirsson. Frá Austfjörðum kom Sveinn Árnason fiskimatsmaður, Bjarni Hávarðarson, Páll Oddgeirsson og Gisli Hjálmarsson kaupm. Ennfremur margir frá Vestmanneyjum, Gunnar Ólafs- son kaupm. 0. fl. Vesta fór til Vestfjarða i gær kl. 4. Farþegar Pétur Ólafsson kaupm. og Sig. Magnússon læknir. Sfmaskráin fyrir 1914 er nýkomin út, 0g er gaman að sjá hve allur frágangur bennar er betri, en var á eldri systrum hennar. Er þar fyrst að nefna þann kost á henni, að nú er nöfnum manna ekki snúið við eins og áður tlðkaðist, heldur hefir þar hver maður sitt rétta heiti, t. d. Árni Bjarnason, en ekki Bjarnason Árni 0. s. frv. Þetta er auðvitað ekki þakkavert, þvi það er bein skylda simastjórnarinnar, eins og hvera annara, að uppnefna engan. Þeim Islendingum, sem ættarnöfn hafa, er þó raðað hæði eftir því og skirnar- nafni. Kápan er að mun smekklegri en áður. Efni hið sama og i fyrra, nema við er bætt skrá yfir skammstafanir talsimastöðv- anna. Áfram. Hin ágæta bók Mardens byrjar i blaðinu i dag. Fylgist með frá upphafi! Hluttaka Y.-lslendinga í Eimskipafélaginu. Það sem sagt var af hluttöku V.- íslendinga í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Löqberqi, en þar hafði misprentast 75.000 dollarar, i stað 75.000 krónur. Þann 6. nóv. birti Löqberq gef- endalistann, og er hann svona: Árni Eggertsson . . kr. 10.000 Ásm. P. Jóhannsson — 10.000 J. T. Bergman . . . — 10.000 Jóseph Johnson . . — 10.000 Jón J. Bíldfell . . . — 5.000 Jónas Jóhannesson . — 5.000 Loftur Jörundsson . — 5.000 Aðalst. Kristjánsson — 3.000 Hannes Pétursson . — 2.500 Líndal Hallgrímsson — 2.500 Jóhannes Sveinsson — 2.000 Sveinn Thorvaldsson — 1.250 Thos. H. Johnson . — 1.250 Jónas Jónasson . . . — 1.000 Jón J. Vopni .... — 1.000 Thorsteinn Oddsson — 1.000 B. L. Baldvinsson . — 1.000 Hannes Lindal . . . — 1.000 Ólafur Pétursson . . — 1.000 Halldór Halldórsson — 1.000 Hjálmar Bergman . — 500 Gisli Goodman . . . — 500 Þórb.Sveinbjörnsson — 500 Jón Eggertsson . . . — 500 St. B. Stephanson . — 500 Ólafur Bjarnason. . — 250 Gunnl. Tr. Jónsson — 250 Samtals kr. 77.500 Gættu Amaliu — en ekki meiral Smáyegis víðsyegar að, Vilson Bandarikjaforseti hefir ætíð gamansögur á reiðum höndum. Einu sinni sagði hann þessa sögu: Þessi saga gerðist á Englandi. Þar er það siður að ungar stúlkur má enginn karlmaður heimsækja, nema því að eins að hann sé áður kyntur fjölskyldunni. En þá er þeim boðið heim og svo gengur alt eins og í sögu. Já, svo var það að einn gest- anna kom of snemma. Ungfrúin hafði að visu klætt sig, en móðir hennar var að skifta um föt. Gest- inum var nú fylgt til stofu og átti ungfrúin að skemta honum á með- an móðir hennar kæmi ekki. Sam- ræðurnar gengu heldur stirt í fyrstu. En þá vill svo óheppilega til að henni fara að blæða nasir. Hún reynir að stöðva blóðrásina, en það er þýðing- arlaust. Hann hafði heyrt þess getið, að gott væri að halda lykli við hnakk- ann á þeim, sem hefði blóðnasir, Þrífur hann því til stcfulykilsins, en læsir hurðinni í ógáti. Nú heldur hann lyklinum við hnakkann á yng- ismeynni, en í því heyrist fótatak móðurinnar fyrir utan. Verður hon- um þá svo felmt, að hann missir lykilinn, og hann fer ofan á bakið á stúlkunni — milli holds og klæða. Hvað átti nú til bragðs að takaf Kerlingin við dyrnar. — Dymar læstar. — — Og — lykillinn er — er týndurl Roseberry lávarður ferðaðist eitt sinn, sem oftar í járnbrautar- vagni. í sama klefa og hann voru ýmsir aðrir merkismenn og ein heldri frú. Hún steig úr vagninum á und- an og gleymdi þá regnhlifinni sinni,. Roseberry greip regnhlífina og rétti konunni, en hún tók við henni án þess að segja eitt einasta orð. — Frú mín góðl þér gleymið fleiru, kallaði lávarðurinn á eftir henni. — Það er ómögulegt! Hvað get- ur það verið ? sagði hún og sneri við. — Þér gleymduð að þakka fyrir, svaraði Roseberry, með mestu hægð, en hinir skellihlóu. Skautar og skautaólar, langstærst úrval og lágt verð* hjá Jónatan Þorsteinssyni. Gættu Amaliu — en ekki meiraL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.