Alþýðublaðið - 30.04.1958, Side 11

Alþýðublaðið - 30.04.1958, Side 11
Miðvikudagur 30. apríl 1958. Alþýðublaðið Ðönsk og norsk d a g b I ö ð REYFIL S í m i 22 4 20 f DAG er miðvikudagurinn 30. ápríl 1958. Slysavarðsíofa Reykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni er oain allan sólarhringinn. Læknavörð ur LR (fyrir vitjanir) er á sare.a stað frá kl. 18—8. Sími 15030. llelgidagsvörSur L. R. í dag ér Tryggvi Þorsteinsson, Lækna- varðstofunni, sími 1-50-30. Næturvörður er í Iðunnarapc teki, sími 1-79-11. — Lyfja- búðin Iðunn, Reykjavíkur apo- tek, Laugavegs apótek og Ing- élfs apótek fylgja öll lokunar- tíma sölubúða. Garðs apótek og Holts apótek, Ápótek Austurbæj ar og Vesturbæjar apótek eru opin til kl. 7 daglega nema á laugardögum til kl. 4. Holts apó tek og Garðs apótek eru opín á sunnudögum milli kl. 1 og 4. Hafnarfjarðar apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laug- ardaga kl. 9---16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21. Næturlæknir er Kristján Jóhann esson. • Síópavogs apóíek, Álflrólsvegi 9, er opið daglega kl. 8—20, nema laugardaga kl. 9—18 og .helgidaga kl. 13-16. Sími 23100. JSæjarbókasafn Rv-ykjavíkur, Þingholtsstræti 29 A, sími 1 23 08. Útlán opið virka daga kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les- stofa opin kl. 10—12 og 1—10, laugardaga kl. 10—12 og 1—4 Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. Útibú: Hólmgarði 84 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 5—7; Hofsvalla götu 16 opið hvern virkan dag nema laugardaga kl. 6—7; Efsta aundi 36 opiö mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5.30— 7.30. FLU GFERÐIR Loftleiðir. Edda kom til Reykjavíkur kl. 8 í morgun frá New York. Fór , til- Stafangurs, Kaupmannahafn- ar og Hamborgar kí. 9.30. Saga er væntanleg til Reykjavíkur kl, 19.30 frá London og Glasgow. Fer til New York kl. 21. S KIPAFRÉTTIR Ríkisskip. Esja er á Austfjörðuxn á norð urleið. Herðubreið er á Aust- fjörðum á suðurleið. Skjaldbreið er á Húnaflóa á leið til Akur- eyrar. Þyrill er á leið frá Rauf- arhöfn til Bergen. Skaftfelling- ,ur fór frá Reykjavík í gær til Vestmannaeyja. Skipadeild SÍS. Hvassafell er á Vopnafirði. Arnarfell fór frá Ventspils 26. þ. m, áleiðis til Norðurlands- hafna. Jökulfell fór frá Akur- i. Magnús BJarnason: Nr. S3 EIRIKUR HANSSON Skáldsaga frá Nýja Skotlandi. eyri 28. þ. m. áleiðis til Riga. Dísarfell er á Hornafirði, fer þaðan í dag til Vestmannaeyja, Þorlákshafnar og Faxaflóa- hafna. Litlafell fór frá Reykja- vík í dag til Austfjarðahafna. Helgafell fór í gær frá Reme á- leiðis til Reykjavíkur. Hamra- fell átti að fara frá Palermo í gáer áleiðis til Batum. Krae fór frá. Reykjavík í gær áleiðis tii New York. Thermo er í Stykk- ishólmi. Eimskip. Ðettifoss fer frá Ventspils í dag til Kotka og Reykjavíkur. Fjallfoss kom til Reykjavíkur 28/4 frá Leith. Goðafoss kom til Norðfjarðar í gær, fer þaðan tii Akureyrar, Siglufjarðar, ísa- fjarðar, Vestfjarða- og Breiða- f jarðarhafna. Gullfoss fór f rá Leith í gærmorgun til Reykja- víkur. Lagarfoss kom til Reykja víkur 27/4 frá Kaupmannahöfn og Ventspils. Reykjafoss fór frá Reykjavík 25/4 frá Kaupmanna höfn og Ventspils. Reykjafoss fór frá Reykjavík 25/4 til Ham- borgar, Bremen, Rotterdam, Ant werpen ,og þaðan til Hamborg- ar, Hull og Reykjavíkur. Trölla foss fór frá New York' 25/4 til Reykjavíkur. Tungufoss kom til Hambor.gar 27/4, fer þaðan til Reykjavíkur. FCNDIR Æskul.ýðsfélag Laugarnessókn ar. Fundur í kirkjukjallaranum í kvöld (miðvikudag) kl. 8.30. Fjölbreytt fundarefni. Ferming- arbörnum sóknarinnar frá í vor sérstaklega boðið á fundinn. Sr. , Garðar Svavarsson. Hafnarfjarðar apótek er opið alla virka daga kl. 9 —21. Laugardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21. Næturlæknir er Ólafur Ólafsson. Leiklistarmál rædd í Listamannaldúbbnum. í kvöld er listamannaklúbb- urinn opinn í baðstofu Nausts- ins. Umræðuefni verður: „Leik- list og leikdómarar“, og máls- hefjendur eru: Sigurður Gríms- son og Haraldur Björnsson. Um ræður hefjast klukkan 10 stund víslega og standa yfir lengur en venjulega, þar sem sumir leik- arar geta ekki mætt fyrr en eft- ir leiksýningu. Bolvíkingabazar. í tilefni 50 ára afmælis Hóls- kirkju nú á þessu ári hefur Bol- víkingafélagið í Reykjavík á- kveðið að taka þátt í fjársöfn- uninni með því m. a. að hafa bazar 4. júní nk. Það eru til- mæli til allra velunnara by.ggð- arlagsins, að þeir verði samtaka og styrki bazarinn. mynd þessi benda til þess, að húsráðandi væri; fyxst og fremst af enskum ættum, ag í öðru lagi, að hann vildi halda því á lofti, sem þenti á her- frægð Englendinga. Önnur myndin var af Victoríu droítn ingu, og fannst mér sú mynd ibenda á það, að húsráðandi væri maður þegnhoTur og lög hlýðinn. Og þriðja myndin var af Kristi og börnunum, sem hann tók í fang sér og blessaöi. Og af þessari ágætu mynd dró ég það, að húsráðandi væri kristinn og elskaði hið góða og íagra. Þegar ég var búinn að virða þessar myndir fyrir mér nokkra stund, kom frú Hamil- ton aftur inn í stofuna og það mig að koma með sér. Við gengum svo fram í ganginn, og þenti hún mér að ganga upp stigann á undan sér. Uppi á lóftinu lá mjór gangur frá stig anum eftir endilöngu húsinu, og voru margar dyr til beggja hliða, en allar voru þær aftur. Tveir lampar héngu uppi í ganginum, og var þar því vel bjart. Þegar við vorum komin inn í imiðjan iganginn, stað- næmdist frúin við dyr, sem voru til hægri handar. Hún opn aði dyrnar, vísaði mér þar inn í herbergið á undan sér og lét svo aftur hurðina mjög gæti lega á eftir okkur. Þetta her bergi var fremur lítið. Til beggja hliða á því voru dyr, og héngu fortjöld fyrir þeim, og voru þau fest í stóra tré- hringa, sem voru utan um sí valt kefli með gylltum hnúo um á endanum. Var því ekki hægt að sjá inn í þessi hliðar herbsrgi, og ekkert gaf tii kynna að nokkur maður væri þar. í mðju herberginu var lít- ið borð og tveir stólar. Á borð inu lágu skrifföng: pappír, blelc og penni/ Frú Hamilton bað mig að setiast á þann stólinn, sem var nær dyrunum, en sjáli settist hún á hinn. Sat ég því þannig, að ég sneri bakinu að aðaldyrum herbergisins, en hliðardyrnar voru nrér til beggja handa, en frúin sat gagn vart mér við hinn enda borðs ins. Ég þóttist viss um, að það væri af ásettu ráði frúarinnar, en ekki af tómri tilviljun, að ég var látinn sitja þannig. Þeg ar við vorum sezt, tók frú Ham ilton bréf, sem lá á borðinu, rétti það að mér og bað mig að lesa það nokkuð hátt. Bréfið var umslagslaust og sá ég strax, að það var á íslenzku. Það var skrifað með bláu bleki. Línurnar voru miög þéttar og stafirnir sérlega smáir, en yfir hcfuð var skriftin fremur fall eg. Það voru rúmir þrír mánuð Jtr. gliðhir (frlá ,þvjii, gað þréiuð hafði verið skrifað. Og það hafði verið skrifað í Skaga- firði á Islandi. Af vissri ás.tæðu vil ég ekki nefna bæinn, þar sem það var skrifað, en ég vil geta þess, að sá bær er. á •l'itym e'Knh ljer hinn helzti í S kagafj arðai’sýslunni. Bréfið byrjaði með þessum orðum: „Elskulega dóttir!“ Svo þakk- aði höfundur bréfsins fyrir langt og gott bréf frá fyrra ári, gat um bærilega líðan sína, cg sagðifet mundi yerða hjá hinum sömu húsbændum næst komandi ár. Þar næst kom langur kafli um tíðarfarið, skipskaða, dauðsföll og gifting ar og margt fleira. Svo endaði bréfið með innilegum heillaósk um og: „Það mælir þín heitt elskandi móðir, Kristín Björg Jóhannsdóttir". Ég las bréfið nokkuð hátt, eins og frúin hafði mælzt til, en áður en ég byrjaði að lesa horfði óg 1 kring til að vita, hvort ekki yrðu aðrir áheyrend ur en frúin. En ég sá engan nema hana. Ég spurði hana svo, hvort ég ætti að lesa það á ensku. „Þú lest þetta bréf á ís- lenzku“„ sagðí frú Hamilton. Og ég las það á íslenzku. Ekki gat ég séð það á andliti frúarinnar, ,bvort hún skildi nokkuð af því, sem ég las, eða ekki. Hún sat bara hreyfing arlaus á stólnum gagnvart mér, eins og köld, en fögur marmaramynd. „Þú lest þetta bréf aftur“, sagði hún, þegar ég var búinn að lesa það einu sinni og var í þann veginn að rétta það til hennar. Svo las ég bréfið í annað sinn og fékk henni það. Þar næst stóð hún. upp af stólnum og gekk inn í annað hliðarher bergið og var þar nokkra stund. Ég bjóst við að heyra hana tala þar við einhvern, en það varð þó ekki. Ég heyrði ekki hið allra minnsta þrusk eöa skrjáfur. Þegar frúin var kom in aftur fram fyrir til mín og sezt á stólinn gagnvart mér, in og skrifa á íslenzku það, bað hún mig að taka skriffær sem hún læsi mér fyrir á ensku: Bréfið var mjög stutt. Það byrjaði á orðunum: „Kæra móðir!“ Móðurinni var þakkað íyrir bréf, sem komið hefði með góðum skilum. Höfundur bréfsins ,gat þess, að sér liði vel og væri alltaf hjá sömu kon unni, að faðir sinn hefði dáið um sumarið, qg hefði verið jarðaður að kristinna sið. Sagð ist ráða móður sinni frá að flytja vestur. Bað að heilsa öll- nm kunningjunum og lofaði að skrifa aftur. innan skamms. Svo endaði bréfið með þessum orð um: „Þín elskandi dóttir“. Þegar ég var búinn að skrifa sjálft bréfið, þjóst ég við, að frúin segði mér, hvaða nafn ég ætti, að skrifa undir það, en í þess stað bað hún mig að lesa það hátt, sem ég væri búirm að skrifa. „En hvaða nafn á ég að skrifa undir bréfið?“ spurði ég, þegar ég var búinn að lesa það. ,„Þú skrifar utan á betta um slag“, sagði frú Hamilt'on og rétti mér ferkantað umslag, en líét yJsem hún Ijrfði ekki heyrt spurningu1 mína. Ég skrifaði svo utan á umslag ið nafn konunnar, sem var und ir bréfinu frá íslandi, sömu ieiðis bæjarnafnið, sem var efst á bréfinu, og þar næst .„Skagafjarðarsýsla, Ieeland, Europe“, En nafnið á hreppn um, sem bærinn var í, gat ég ekki sett á umslagið, því að ég sá það hvergi í bréfinu. „Þú ert viss um, að þetta sé ■ fui'.lkomin ujtaná(skrifi;“, sagði frú Hamilton. „Ég held það“, sagði ég, „ent á ég ekki að skrifa . eitthvert nafn undir bréfið?“ „Þú hefur skrifað. allt, sem þú þarft að skrifa hér“, sagði frú Hamilton, og braut hún saman bréfið, sem ég hafði skrifað, og lét það innan í um slagið, en límdi það þó ekki aftur. ,,Þú segir mér, hve mik ið ég á að borga fyrir fyrir- höfn þína“, sagði hún. ,,Ég tek ekki á rnóti neinnii borgun fyrir þetta“, sagði ég og stóð upp. ,,Ég álít það mógðun, ef þú villt ekki taka við neinni borg un. af mér“, sagði frú Hamil- ton og stóð upp um leið, en það var langt frá því, að ég sæi nokkurn þykkjusvip á and. liti he.nnar. „Það er langt frá því, að ég vilji mógða þig, frú Hamilton“, sagði ég, „en ég verð að segja þér það, að ég mun aldrei taka á móti neinni borgun fyrir a‘ö skrifa bréf fyrir sjúkling, ,og sízt, þegar sjúklingurinn er af sama þjóðflokki og ég“. Frú Hamilton stóð þegjandí litla stund og horfði á ennið á mér. „Þú þiggur þá enga borgun“, sggði hún. „Nei, enga“, sagði ég, „en þurfi sami sjúklinguxinn að láta skrifa fyrir sig aftur, þá vildi ég mega vera skrifarinn“. .„SjúklinguTinn er þér af hjarta þakkl$tu|r“, sagðií frú Hamilton, og um leið brá ofur litlu brosi fyrir á vörum henn ar. Og mér heyrðist um leið, —• en það ;gat hafa verið t.ómur ■ hugarburður, — að einhver varpa öndinni lágt og rauna- lega inni í öðru hliðarheorberg inu. Ég leit sem snöggvast á for tjaldið, 'sem hékk fyrir dyrun um á því herberginu, sem mér heyrðist andvarpið koma frá, en það bærðist ekkii Ég get ekki lýst því, hvað sárt mig langaði til að mega sjá sjúkl inginn, sem ég var nú viss um, að þar var fyrir innan, og mér fannst endilega, að sjúkling- inn langaði líka til að sjá mig. Ég hefði fúslega'viljað skrífa hundrað bréf til að mega sera allra sönggvast sjá hina sjúku, íslenzku stúlku. En hversií sárt sem mig langaði til að biðja frú Hamiíton að leyfa; mér að sjá stúlkuna, þá kom ég mér þó engan veginn að þvi> og ekki fannsf mér heldur vel viðeigandi að spyrja ura nafn her/nar, þar sem frúin hafði ekki viljað láta mig skrifa það undir bréfið. Svo gengum við frú Hamil- ton ofan. Ég tók hattinn minn: og kápuna, sem ég hafði skiliði eftir á ganginutn niðri. Og,,þeg ar ,ég var koroinn í kápuna, lauk frúin upp framdyrum hússins. „Þú stígur upp í vagninn, scm bíöur fyrir framan húsið“, sagði hún, „og þújVerður flutt ur alla leiö:heim til þin. Góða nótt!“ „Góða nótt!“ sagði ég og hneigði mig um leið og ég gekk út.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.