Morgunblaðið - 19.07.1914, Side 2

Morgunblaðið - 19.07.1914, Side 2
1186 MORGUNBLAÐIÐ lohs. Hartvedt Bergen Norge. Selur: Tunnur, salt og* niðursoðnar vörur lægsta verði. Kaupir: Síld og allar íslenzkar aíurðir bæði í reikning og umboðssölu. Símnefni: ,Brisling‘. DAGrBÓBflN. ritað, þá það, sem hann hefir safn- að, útgefið og þýtt. Er þessi bóka- skrá ekki að eins nauðsynleg fyrir þá, sem nota vilja Fiskesafnið, held- ur á erindi til allra þeirra, er við íslenzka fræði fást. Því hér má sjá hvað til er af því tagi á öllum svið- um bókmentanna, ekki einungis af íslenzkum bókum, heldur af bókum og greinum útlendum, er að ein- hverju leyti snerta Island, og jafn- vel rit útlendinga, er orðið hafa fyr- ir einhverjum áhrifum af íslenzkum ritum. Aftan við skrána er efnis- registur (Subject-Index). Ekkert er betur fallið til að vekja eftirtekt á ísiandi meðal mentamanna í útlönd- um en slík rit, og má með sanni segja, að Fiskesafnið í höndum Hall- dórs sé orðin hin mesta nytsemdar- stofnun og ómetanleg fyrir land vort, því að bækur Halldórs hafa farið víða um lönd, enda hafa þær hlotið alment lof. ------------------- Joseph Chamberlain. Hann var fæddur árið 1836 í Birmingham. Arið 1876 var hann kjörinn þingmaður og varð þá for- ingi rótnema-flokksins. Arið 1880 fekk hann sæti í ráðuneyti Glad- stones, og var þá formaður verzl- unarmálaráðuneytisins. En 6 árum síðar sagði hann af sér vegna sund- urlyndis þeirra Gladstones og gekk þá í lið með sambandsmönnum. Nokkru síðar varð hann og for- ingi þeirra i neðri deild og steyptu þeir þá ráðuneyti Gladstones, en studdu Salisbuty lávarð til stjórnar, og árið 1895 varð Chamberlain ný- lenduráðherra í ráðuneyti Salisbury. Hann kostaði alls knpps um það að styrkja betur yfirráð Englendinga í nýlendunum. Hann átti mestan þátt í þvi að Búastríðið hófst og varð lítt þokkaður fyrir það um alla Norðurálfuna. Hann andaðist 4. þ. mán., eins og vér höfum áður getið um hér í blaðinu. Afmæli í dag: Gerda S. Hansson, húsfrú Katrín Sveinsdóttir húsfrú Magdalene S. Árnadóttir, lsúsfrú Hannes Hafliðasou bsejarfulltr. Jón Jónsson kaupm. Sólarupprás kl. 2.54. Sólarlag kl. 10.11. YeSriS í gær: Rvík logn, hiti 11.3 Ak. andvarí, hiti 13.0 ísafj. logn, hiti 11.6 Gr. logn, hiti 14.6 Vm. gola, hiti 9.3 Sf. andvari hiti 10.1 Þh.F. logn, þoka hiti 10.8. H á f 1 ó S í d a g kl. 2.24 og kl. 2.52. NáttúrugripasafniS opiS. ÞjóSmenjasafniS opiS. P ó s t a r í dag : Sterling til BreiSafjarSar. Á morgun : NorSan og Vestanpóstar fara. Ingólfur til Borgarness. Ceres á aS koma frá útl. »Q u i d p r o q u 0«. Þessi latnesku orS voru tilgreind orSrótt í þýSing á enskri grein, er nýlega var í Mbl., en þá láSist aS þýSa þau. Samkvæmt tilmælum lesenda blaSsins, skal þess getiS, aS í því sambandi sem þau standa í greininni, tákna þau sama sem »maka-skifti« eSa því um líkt, en eftir orSunum: »eitthvað gegn ein- hverju«. Gestum í bænum skal á þaS bent, aS þeir eiga kost á ágætri söng- skemtun í kvöld hjá »Söngfólaginu 17. júní« í Gamla Bfó. L á t i n er sýslumannsfrú Ragnhild- ur J. Sverrisson, ekkja SigurSar sál. Sverrissonar. Hún andaSist í fyrrinótt á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Vilhjálms Ingvarssonar, eftir langa legu. Hún var nær 83 ára, fædd 28. febrúar 1832. Þessarara merku konu rerSur síSar minst hór f blaSinu. FræSimaSurinn Jón prófastur Jónsson frá Stafafelli dvelst hór um þessar mundir. Hann er aS sjá um útgáfu bókar sinnar um víkingaferSir á NorSurlöndum. Rit þaS hlaut verS- laun úr sjóSi Jóns Sigurðssonar. Síra Jón verSur hér fram í næsta mánuS. Jón Sivertsen, verzlunarskóla- kennari, er nýlega heim kominn frá útlöndum. Hann hefir ferSast um Þýzkaland, Danmörku og England. Páll Oddgeirsson, verzlunarm. frá Vestmannaeyjum, er hér staddur. Hann hefir veriS á ferSalagi um NorS- urlönd, Þýzkaland og England, og er nýkominn til landsins. HeiSurssamsæti. Prófasti Magnúsi Andréssyni og frú hans var boSiS til samkvæmis í ISnó í fyrra- kvöld. Fyrir því gengust alþingis- menn neSri deildar, því aS Magnús prófastur var forseti neðri deildar sein- ustu árin sem hann sat á þingi og þótti gegna því embætti skörulega og hlutdrægnklaust. Forseti Ólafur Biiem mælti fyrir minni prófasts en Matthias Ólafsson fyrir minni frúarinnar, og þakkaSi prófastur i ræSu. Jón bæjar- fógeti Magnússon tók og tll máls og fleiri. Var setiS fram eftir kvöldinu og var skemtun góS. Hjónin fara heimleiSis á morgun. E i t r u S 1 i f u r. SíSastl. föstudag bar svo til, aS steikt lifur var höfS til miSdegisverSar í einu húsi hór í bæ; er þar þrent í heimili. AS lokinni máltíS hólt fólkiS kyrru fyrir, en þeg- ar lítil stund var liSin, veiktist þaS alt meS uppköstum. Var þá læknis vit- jaS og veitti hann þeim skjóta hjálp svo aS þau hrestust fljótt. Uppköstin orsökuðust af eitri í lifrinni. ÞaS er altítt erlendis, að eitur komi fram í lifur og kjöti, einkum kálfslifur og kálfskjöti; hór á landi er þaS fátíðara. Bjarni Jensson læknir er al- kominn hingað til bæjarins með fjöl- skyldu sína. Cand. med. Jónas Jónas-- son frá Hrafnagili hefir verið settur til að gegna læknisstörfum í héraðr hans. G e y s i r hefir gosið tvívegis í sum- ar lítilsháttar, segja menn að austan. Sápa hefir ekki verið borin í hann enn, en þess þarf, ef vel á að vera. Þórh. biskup Bjarnarsonog Þorvaldur prófastur Jónsson frá Isafirði, og Klemenz landritari Jónsson fóru upp í Borgarnes um miðja fyrri viku og ætla að ferðast upp um Hvít- ársíðu. Gunnl. Classen er Iæknir á frakkneska spítalanum í fjarveru spí- talalæknis. Einkennilegt mótorhjól hefir veriS á ferðinni hór um göturnar tvo undanfarna daga. Það er með öðru sniði, en áður hefir tíðkast; hjólin eru þrjú, þriðja hjólið lítið og fest við eftra hjólið ásamt hreyfivólinni. Guðsþjónustur í dag (6. s. e. trinitatis, guðspj.: Róttlæti Fariseanna Matth. 5, 17—19. Matth. 19, 16-30. í frík. f Rvík kl. 12 Bj. Jónsson, kl. 5 Ól. Ól. í frfk. í Hafnarf. kl. 12 Ól. Ól. Leirótting. Villur hafa orðið í' efnisyfirliti Skírnis, sem birt var í> Mbl. Guðm. Finnbogasyni er ranglega eignuð greinin um klaustrin, en niður hefir fallið nafnið á erindi hans, sem heitir: »Hafa plönturnar sál?«' Síra Magnús Jónsson, prestur ísleud- inga á GarSar í Norður Dakota, hefir samið ritgerðina um áhrif klaustranna.- á íslandi. n>t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.