Alþýðublaðið - 01.12.1928, Page 2
i
ALÞÝÐUbLAÐIÐ
%
Sambandslðgin
10 ás*a«
„Batnandi hagur.“
Þeger þú, vinir þínir og vanda-
menn verðið að neita ykkur um
nauðsynjar og líða skort vegna
Btvinnuleysis og féleysis, þá skul-
UÖ þið hugga ykkur við það,
gleðjast yfir því, að til eru þeir
menn á Bretlandi, sem stöðugt
bœía hag sinn, auka auð sinn.
Meðan milljónir heimiilisfeðra
hafa tæplega til hnífs og skeið-
ar, meðan enn fleixi milljónir lifa
við sárustu örbirgð, meðan hundr-
uð þúsunda barna og unglinga
órkynjast andlega og likamlega
á ári hverju vegna viðbjóðsleg-
ustu fátæktar, þá er það bein-
3inis hressandi að fá vitneskju um
það í skattaskýrslunum, að hag-
ur „máttarstoðanna'‘ fer stöðugt
batnandi.
Hátekjumönnunum (svo nefna
Englendingar þá, sem hafa yfir
900 krónur á viku í hreinar tekj-
ur) fer fjölgandi ár frá ári og
tekjur þeirra hvers um sig vax-
andi. Eftirfarandi skýrsla sýnir
tölu þeirra og tekjur í sterlings-
pundum árin 1922—1927:
Ár: Hátekjum. Tekjur í stpd.
1922—23 90000 516 milljónir
1923—24 93 000 536 —
1924—25 95 000 546 —
1925—26 97 000 562 —
1926-27 98 000 568 —
Á þessum 5 árum hefir hátekju-
mönnunum fjölgað um 8000 og
tekjur hvers þeirra að meðaltali
hækkað um 100 sterlingspund,
Þeir eru h. u. b. 1/50 hluti þjóð-
arinnar og eiga nálægt s/4 hlut-
um af þjóðareigninni allri. Meðal-
tekjur hvers þeirra voru síðasta
árið um 5800 sterlingspund (129
þúsund íslenzkar krónur). — Tala
atvinnulausra verkamanna skiftir
nú milljónum, Hundruð þúsunda
er ráðgert að flytja af landi hurt
fyrir fátæktar sakir.
Blöð hátekjumannanna tala um
„batnandi hag“. Þau líta á hag
þessara tiltölulegu fáu manna,
milljónatugunum gleyma þau.
(Þýtt úr „ForwardÁ)
Messur á morgun.
í fríkirkjunni kl. 5 séra Ámi
Sigurðtsson r í dómkirkjunni kl, 11
séra Friðrik Hallgrimsson, kl. 5
séra Bjarni Jórasson; i frikirkjuinni
í HafnarfirÖi kl. 2 e. h. séra Ól.
ÓL
1 dag eru 10 ár liðin síðan full-
veldi íslenzka ríkfsins var viður-
kent, síðan sambandslögin gengu
í gildi.
Þó'.t ýmsir mætir menn legðust
á mö‘i samþykt sambandslaganna,
þá var andsíaðan gegn þeim hóg-
lát og svo mikill meiri hiuti þjóð-
arinnar hné að því ráði, að sam-
þýkkja þau, að segja má, að um
þetta hafi verið meiri eindrægni
pg samheldni meðal íslendinga en
pokkru sinni áður í sjálfstæðis-
iiaráttunni.
/ Þeir, sem ekki vildu samþykkja
lögin, munu undantekningur 1 ítið
hafa viljað algerðan skiLnað land-
anna, eða þá svo li'lar hömiur á
oss lagðar með nýjum samðands-
lögum, að auðvelt væri að segja
slitið sambandinu vdð Dani hve-
nær sem væri. —
1. dezember 1918 verður ávalt
skoðaður merkisdagur í sögu
okkar íslendinga; þá er lokið
deilu þeirri við Dariir, sem
s'aðið hafði um óra langan tíma,
fyrir því að fá viöurkenningu
þeirra á fullveldi islenzka ríkisins.
Samhandsþjoð vor hafði í þess-
um samningum teygt sig lengra
en nokkru sinni fyrri; lágu til
þess margar ástæður ,en fyrst og
fremst sú ástæðan, að lýðræðis-
flokkarnir í Danmörku fóru þá
með völdin þar.
Og varla verður amiað sagt en
að Danir hafi yfirleitt viljað fram-
kvæma sambandslögin eins og til-
skilið er, og farið með umboð
o'kkar út á við eins vel og hægt
er að búast við, að nokkur er-
lend þjöð mundi hafa farið með
umboð vort. —
Það er vitanlega fyrst og fremst
að þakka vaxamdi sjálfstrausti
þjöðarinnar, að allir flokkar eru
nú sammála um, að hún taki í
sínar hendur, svo fljött sem verða
má, meðferð utanríkismála sinna.
Jafnaðarmenn vilja ekki láta sér
þetta nægja, heldur ganga skrefi
lengra og taka-algerlega löggjaf-
’ar- og framkvæmdar-valdið í
hendur þjöðarinnar sjálfrar með
því, að stofna lýðveldi.
Þðtt baráttan við Dani og inn-
þnlandsdeilurnar í sjálfstæðismáli-
inu hafi verið nauðsynlegar til
þess, að ná þeim árangri, œm nú
er orðinm, þá er því ekki að leyna,
áð vegna þeirrar deilu hefir mlk-
ið af nauðsynlegu starfi alþingis
orðið að sitja á hakanum. Inmam-
lands löggjöfin, sérstaklega fé-
la’gsmálalöggjöfin, varð útundan.
Þetta sézt bezt á því, að á þess-
um 10 árum, sem liðin eru frá
fullvéldisviðurkenningimni, og
deilurnar við Dani féllu að mestu
niður, þá hafa verið afgreidd i
atvinnu- og félags-mála'löggjöf
mikilsverðari mál en afgreidd
hafa verið á tímabilinu alt frá því
alþingi var endurreist og fram
til 1918.
Þó vantar enn mikið á, að við í
þessum efnum séunx komnir í
námumda við frændþjóðimar í
nágrannálöndunum. Enn er ærið
verkefni fyrir hendi til þess að
tryggja alþýðu manna lífvænleg
kjör í þessu landi.
Jafnaðarinenn vilja vinma að
þessu. Þeir telja fullveldi lands-
ins fyrst borgið, þegar trygt er
andlegt og efnalegt sjálfstæði
allrar islenzku þjóðarinnair; en
það getur þvi að eins orðið, að
náttúrugæðum okkar auðuga
lands og ^yöxtunum af starfi
þjoðarinnar sé réttlátlega skift
núíli landsins barna.
Reykjavík, 1. dez. 1928.
Jón Baldvinsson.
Hagalagðar
eftir Einar Þörkelsson
' <k
Reykjavik
Félagsprentsmíðjan.
1928.
Níu sögur eru 1 bök þessarb
Þær heita: Munaðarleysingjar, Á
banasænginmi, Lært hjá mömtmu,
Kápa, Mera-Grimur, Röddin,
Varðengillinm, Óiíkindatólið og
Heimþrá.
Líklega hiefir höfundur ekki
munað eftir Hagalögðum Júlíönu,
þegar hann nefndi bók sína. Verð*
ur nú að una samnefninu, —
Nýir IJagalagðar eru ellefu
arkir.
Prentun tetr prýðileg og pappír
ágæíur.
AUar sögxirnar bera vitni skáld- -
hneigð, athygli, mælsku og frá-
sagnarlsmild höfundar,
Hallgrímur Jónsson,
Msatask borgarstjóra.
Húseignina á Bergþórngðtn
ÍO, sem borgarst|ói>i seldi f
heimildarleysi fyrir lO Jtús-
und krónnr fyrir skömmu,
hefir kaupandinn nú selt
fyrir 13 500 krónur.
Þess var getið hér í blaðinu
fyrir nokkru, að borgarstjöri hefði
án þess að fá heimild til þess
hjá bæjarstjörn, selt húseignina
Bergþörugöíu 10 Stefáni Þorláks-
syni fyrir 10 þús. krönur og tekið
notaðain bil fyrir 2500 krónur upp
í andvirðið.
Nú hefir kaupandinn aftur selt
húseignina fyrir 13500 króniur, eða
3500 krönum meira en hann gaf
fyrir hana.
Það er dágöður gróði á einuni
mánuði, og mun að dómi Knúts
og íhaldsmanna mega teljast vtitt-
ur um ágæti „einkaframtaksins'V
ísland í erlendnm blöðmn.
í „The Scandinavian Shipping;
Gazette" er skrifað um reynslu-
flugferðir Súlunnar í sumar fyrir
norðan og þá reynslu, sem þá
fékst viðvikjandi síldarlei't etc.
1 „The Scotsman“ er grein eftir
J, R. Leslie Gray, en hawn geltk
upp á Heklu í surniar,
„The Lancet“ birtir grein um
helisufar á Islandi samkvæmt
skýrslum fyrir árið 1926.
Ýms blöð í Canada hafa birt
greinar um Island, flest með til-
liti til aIþingishátíðarinnar fyrir-
huguðu.
1 „Nationaltidende“ er greim um
minningartöf^ina Um Jórias HalÞ
grímsson, sem komið var fyrir f
húsi því, sem skáldið síðast bjö,
St. Pederstræde 22 í Kaupmanna-
höfn,
í símskeyti frá Trondhjem, sem
birt er í norska „Morgenbladet“,
er sagt frá ráðstöfunum þeim,
sem gerðar voiru á Islandi til þesg
að vaxna því, að gin- og klaufna-
veikin bærist til Islands. EEtir
skeytinu að dæma hefir talsvert
af heyi verið selt frá Þrænda-
lögum til íslands þangað til inn-
flutninguT á heyi og hálmi vai'
bannaður, og ber skeytið það með
sér, að menn kunna því miður
að tekið hefir verið fyrir hey-
söluna til Islands.