Morgunblaðið - 25.04.1915, Síða 1
Sunnudag
25.
apríl 1915
HOBGDNBLADID
2. argangr
170.
fcölublad
Ritstjórnarsimi nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 499
Bio
Keykjavtkur |Sio
Biograph-Theater
Tals. 475.
Svörtu 13.
Afbragðs leynilögreglusjónleik-
ur í 3 þáttum um hin leyndar-
dómsíullu afrek lögregluspæjar-
ans, Brown, og ekkju miijóna-
mæringsins, Ellen Sandow, leik-
inn af hinum frægu leikurum
»Vitaskop«s i Berlín.
Jafn spennandi og skemtileg
mynd hefir ekki sést lengi.
Öllum þeim mörgu er heiðruðu minn-
ingu Sigurðar barnakennara Sigurðs-
sonar, með nærveru sinni við útför
hans i dag og á ýmsan annan hátt,
vottum vér hérmeð vort innilegasta
þakklæti.
Reykjavík 23. apríl 1915.
Aðstandendur hins framliðna.
Jarðarför Abelinu Guðrunar Hjalta-
lín, sem andaðist 16. þ. m. að heim-
ili mínu, Skólavörðustíg 16 a, ferfram
á þriðjudaginn, þann 27. þ. m. og
hefst með húskveðju kl. 12 á hádegi.
Gunnar Einarsson.
Það tilkynnist að mfn elskulega
mððir andaðist h. 12. þ. m. Jarðar-
förin fer fram 28. þ. m.
Leirvogstungu 23. april 1915.
Sveinn Gislason.
Jarðarför okkar ástkæru móður og
tengdamóður, Mariu Heilmann, fer
fram mánudag 26. þ. m. frá Óðins-
götu 10 og hefst með huskveðju kl.
12 á hádegi.
Soffia Heilmann. Guðr. Þorsteinsson.
Eyv. Árnason. Jón Þorsteinsson.
Florylin
þur-ger til bökunar, gerir brauðin
bragðbetri, og er fjórum sinnum
áhrifameira en venjulegt ger.
Geymist óskemt, eins lengi og vill.
Carr’s B
retlands
ezta
iscuit
alþekta keks og kokur, er lang
ódýrast eftir gæðum. Búið til af
®lstu verksmiðju Breta i sinni röð.
Stofnuð 1831.
^ heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
, G. Eirikss, Rvík.
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezku ntanríkisstjórninni
í London.
London 23. apríl
Sir John French sendir svolátandi
skýrslu 23. apríl:
Óvinirnip gerðu áhlaup á stöðvar
Frakka í gær vinstra megin við lið
vort, í nánd við Bixschoote og
Langemarck, fyrir norðan Ypres."
Á undan áhlaupinu höfðu
þeir ákafa stórskotahríð og notuðu
þeir ýms gasefni í sprengikúlunum.
Það er auðséð á því, hve mikið
þeir notuðu af gasefninu, að óvin-
irnir hafa lengi búið sig undir not-
kun efnisins, sem er brot. á Haagar-
samþyktinni, sem Þjóðverjar hafa
skrifað undir. Menn skilja nú bet-
ur hinn ranga áburð Þjóðverja á
oss, að vér hefðum fyrir viku notað
slík gasefni. Áburðurinn var auð-
sjáanlega til þess að milda dóm
hlutlausra þjóða fyrirfram.
Um nóttina urðu Frakkar að halda
undan úr þessu héraði, vegna kæf-
andi gaslofts, að skurðinum í nánd
við Bosinghe.
Herlína vor hefir haldið sér nema
vinstra megin. Þar hefir skeð dálit-
il breyting til þess að lið vort gæti
orðið samtaka frönsku herlínunni.
Um nóttina gerðu óvinirnir tvö
áhlaup á skotgryfjur vorar fyrir aust-
an Ypres en þeim var hrundið.
Það er enn barist i héraðinu fyrir
norðan Ypres.
1 morgun eyðilagði flugmaður úr
voru liði þýzkt loftskip, sem varð að
lenda.
Flugmenn vorir hafa og skotið
niður þýzka flugvél í nánd við
Messines.
London 23. apríl.
Churchill heimsótti flotamálaráð-
herra Frakka í París og ráðgaðist
við hann um framhald árásarinnar á
Hellusund.
Gremja mikil í Grikklandi yfir
því að þýzkur kafbátur sökti grízka
skipinu Hellespontos án þess að
gefa skipverjum tækifæri til þess að
komast í bátana. Blöðin fordæma
athæfi Þjóðverja og eru harðorð
mjög.
London 24. apríl.
Útdráttur úr opinberum skýrslum
Frakka frá 21.—23. apríl:
í Ailly-skógi voru áhlaup óvin-
anna stöðvuð i nánd við St. Mihiel.
Vér gerðum gagnáhlanp og náðum
svæðinu og tveimur skotgrafaröðum
á þeim stað, sem stöðvum vorum
var mest hætta búin.
Öllum áhlaupum Þjóðverja á 60.
hæðina, í nánd við Ypres, hefir verið
hrunaið. Áhlaupin hafa algerlega
mishepnast.
Notkun Þjóðverja á kæfandi gas-
efnum í sprengikúlunum. f orustunni
fyrir norðan Ypres, hefir ekki haft
neinar alvarlegar afleiðingar fyrir oss.
Vér gerðum gagnáhlaup með aðstoð
Breta og Belga, og unnum á aftur.
London 24. apríl,
Hermálaráðaneytið tilkynnir, að
orusta standi enn um það svæði,
sem Þjóðverjar höfðu náð fótfestu
á, milli Steenstraete og Langemarck.
Bandam. mistu stöðvar þessar vegna
þess-að vinstri herarmur Kanadaliðsins
varð að halda undan, til þess að
vera samtaka hægra herarmi hins
liðsins. —
Fjórar 4,7 þuml. fallbyssur, sem
Kanadaliðinu fylgdu voru að baki
liðsins. Þjóðverjar náðu þeim, en
nokkrum stundum síðar gerði Kana-
daliðið mjög ákaft áhlaup og tók
aftur þessar fallbyssur og náð fjölda
fanga, þar á meðal einum yfir-fyrir-
liða.
Kanadaliðið misti margt manna,
en áræði þeirra og þol hefir áreiðan-
lega riðið baggamuninn.
Erl. simfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 22. apríl.
Þjóðverjar tilkynna að 70%
þegar innborgað af öðru herláni
þeirra.
Tyrkneski tundurbáturinn Timur
Hissar strandaði á Chioseyju.
Þjóðverjar hafa fyrir milligöngu
Bandaríkja-sendiherrans andmælt því
að Bretar tóku skipið »Paklat* er
það var á leið frá Tsingtau til
Hongkong með flóttamenn. Segja
tökuna brot á alheimslögum.
Það er búist við því að póst- og
farþegaflutningur frá Hollandi til
Bretlands muni bráðlega hætta.
Þýzkur kafbátur hertók botnvörpu-
skip vtð Bretlandsstrendur og hélt
með það yfir þveran Norðursjó til
hafnar í Þýzkalandi.
NYJA BI O
Spæjarinn.
Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn
af þýzkum leikurum. Aðalhlut-
verkið leikur hin stórfræga og
fagra leikkona
Susanne Grandais.
Þetta er ein af allra beztu
njósnarmyndum sem sést hafa.
Leikfélag Reykjavíknr
Æfintyri á
gönguför.
I
verður leikið sunnudag 25.
kl. 8
í síöasta sinn.
Aðgöngumiðar seldir í Iðn.m.h.
í dag.
|>
Biðjið ætíð um hina
heimsfrægu
Mustad öngia.
■g-0
Búnir til ai
0. Mustad Sön
Kristjaníu.
H.P.DUUS
A-deild.
Stœrsta urval t bœnum af
allskonar
vefnaðarvörum.
Altaf nýjungar.
Aðeins góðar vörur.
Ætíð ódýrastm
Mikið af nýjum vörum
kemur með s.s. Botnía.
H. P. DUDS.