Morgunblaðið - 25.04.1915, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.1915, Blaðsíða 1
Sunnudag 25. apríl 1915 HOBGDNBLADID 2. argangr 170. fcölublad Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 499 Bio Keykjavtkur |Sio Biograph-Theater Tals. 475. Svörtu 13. Afbragðs leynilögreglusjónleik- ur í 3 þáttum um hin leyndar- dómsíullu afrek lögregluspæjar- ans, Brown, og ekkju miijóna- mæringsins, Ellen Sandow, leik- inn af hinum frægu leikurum »Vitaskop«s i Berlín. Jafn spennandi og skemtileg mynd hefir ekki sést lengi. Öllum þeim mörgu er heiðruðu minn- ingu Sigurðar barnakennara Sigurðs- sonar, með nærveru sinni við útför hans i dag og á ýmsan annan hátt, vottum vér hérmeð vort innilegasta þakklæti. Reykjavík 23. apríl 1915. Aðstandendur hins framliðna. Jarðarför Abelinu Guðrunar Hjalta- lín, sem andaðist 16. þ. m. að heim- ili mínu, Skólavörðustíg 16 a, ferfram á þriðjudaginn, þann 27. þ. m. og hefst með húskveðju kl. 12 á hádegi. Gunnar Einarsson. Það tilkynnist að mfn elskulega mððir andaðist h. 12. þ. m. Jarðar- förin fer fram 28. þ. m. Leirvogstungu 23. april 1915. Sveinn Gislason. Jarðarför okkar ástkæru móður og tengdamóður, Mariu Heilmann, fer fram mánudag 26. þ. m. frá Óðins- götu 10 og hefst með huskveðju kl. 12 á hádegi. Soffia Heilmann. Guðr. Þorsteinsson. Eyv. Árnason. Jón Þorsteinsson. Florylin þur-ger til bökunar, gerir brauðin bragðbetri, og er fjórum sinnum áhrifameira en venjulegt ger. Geymist óskemt, eins lengi og vill. Carr’s B retlands ezta iscuit alþekta keks og kokur, er lang ódýrast eftir gæðum. Búið til af ®lstu verksmiðju Breta i sinni röð. Stofnuð 1831. ^ heildsölu fyrir kaupmenn, hjá , G. Eirikss, Rvík. Erl. símfregnir. Opinber tilkynning frá brezku ntanríkisstjórninni í London. London 23. apríl Sir John French sendir svolátandi skýrslu 23. apríl: Óvinirnip gerðu áhlaup á stöðvar Frakka í gær vinstra megin við lið vort, í nánd við Bixschoote og Langemarck, fyrir norðan Ypres." Á undan áhlaupinu höfðu þeir ákafa stórskotahríð og notuðu þeir ýms gasefni í sprengikúlunum. Það er auðséð á því, hve mikið þeir notuðu af gasefninu, að óvin- irnir hafa lengi búið sig undir not- kun efnisins, sem er brot. á Haagar- samþyktinni, sem Þjóðverjar hafa skrifað undir. Menn skilja nú bet- ur hinn ranga áburð Þjóðverja á oss, að vér hefðum fyrir viku notað slík gasefni. Áburðurinn var auð- sjáanlega til þess að milda dóm hlutlausra þjóða fyrirfram. Um nóttina urðu Frakkar að halda undan úr þessu héraði, vegna kæf- andi gaslofts, að skurðinum í nánd við Bosinghe. Herlína vor hefir haldið sér nema vinstra megin. Þar hefir skeð dálit- il breyting til þess að lið vort gæti orðið samtaka frönsku herlínunni. Um nóttina gerðu óvinirnir tvö áhlaup á skotgryfjur vorar fyrir aust- an Ypres en þeim var hrundið. Það er enn barist i héraðinu fyrir norðan Ypres. 1 morgun eyðilagði flugmaður úr voru liði þýzkt loftskip, sem varð að lenda. Flugmenn vorir hafa og skotið niður þýzka flugvél í nánd við Messines. London 23. apríl. Churchill heimsótti flotamálaráð- herra Frakka í París og ráðgaðist við hann um framhald árásarinnar á Hellusund. Gremja mikil í Grikklandi yfir því að þýzkur kafbátur sökti grízka skipinu Hellespontos án þess að gefa skipverjum tækifæri til þess að komast í bátana. Blöðin fordæma athæfi Þjóðverja og eru harðorð mjög. London 24. apríl. Útdráttur úr opinberum skýrslum Frakka frá 21.—23. apríl: í Ailly-skógi voru áhlaup óvin- anna stöðvuð i nánd við St. Mihiel. Vér gerðum gagnáhlanp og náðum svæðinu og tveimur skotgrafaröðum á þeim stað, sem stöðvum vorum var mest hætta búin. Öllum áhlaupum Þjóðverja á 60. hæðina, í nánd við Ypres, hefir verið hrunaið. Áhlaupin hafa algerlega mishepnast. Notkun Þjóðverja á kæfandi gas- efnum í sprengikúlunum. f orustunni fyrir norðan Ypres, hefir ekki haft neinar alvarlegar afleiðingar fyrir oss. Vér gerðum gagnáhlaup með aðstoð Breta og Belga, og unnum á aftur. London 24. apríl, Hermálaráðaneytið tilkynnir, að orusta standi enn um það svæði, sem Þjóðverjar höfðu náð fótfestu á, milli Steenstraete og Langemarck. Bandam. mistu stöðvar þessar vegna þess-að vinstri herarmur Kanadaliðsins varð að halda undan, til þess að vera samtaka hægra herarmi hins liðsins. — Fjórar 4,7 þuml. fallbyssur, sem Kanadaliðinu fylgdu voru að baki liðsins. Þjóðverjar náðu þeim, en nokkrum stundum síðar gerði Kana- daliðið mjög ákaft áhlaup og tók aftur þessar fallbyssur og náð fjölda fanga, þar á meðal einum yfir-fyrir- liða. Kanadaliðið misti margt manna, en áræði þeirra og þol hefir áreiðan- lega riðið baggamuninn. Erl. simfregnir frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl. Khöfn 22. apríl. Þjóðverjar tilkynna að 70% þegar innborgað af öðru herláni þeirra. Tyrkneski tundurbáturinn Timur Hissar strandaði á Chioseyju. Þjóðverjar hafa fyrir milligöngu Bandaríkja-sendiherrans andmælt því að Bretar tóku skipið »Paklat* er það var á leið frá Tsingtau til Hongkong með flóttamenn. Segja tökuna brot á alheimslögum. Það er búist við því að póst- og farþegaflutningur frá Hollandi til Bretlands muni bráðlega hætta. Þýzkur kafbátur hertók botnvörpu- skip vtð Bretlandsstrendur og hélt með það yfir þveran Norðursjó til hafnar í Þýzkalandi. NYJA BI O Spæjarinn. Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn af þýzkum leikurum. Aðalhlut- verkið leikur hin stórfræga og fagra leikkona Susanne Grandais. Þetta er ein af allra beztu njósnarmyndum sem sést hafa. Leikfélag Reykjavíknr Æfintyri á gönguför. I verður leikið sunnudag 25. kl. 8 í síöasta sinn. Aðgöngumiðar seldir í Iðn.m.h. í dag. |> Biðjið ætíð um hina heimsfrægu Mustad öngia. ■g-0 Búnir til ai 0. Mustad Sön Kristjaníu. H.P.DUUS A-deild. Stœrsta urval t bœnum af allskonar vefnaðarvörum. Altaf nýjungar. Aðeins góðar vörur. Ætíð ódýrastm Mikið af nýjum vörum kemur með s.s. Botnía. H. P. DUDS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.