Alþýðublaðið - 28.05.1920, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 28.05.1920, Blaðsíða 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ eru orðnir lciðir á kúgun Breta. Eins og menn muaa, reyndu bolsi- víkar að brjótast inn í lönd Breta þar, en hættu við. Þegar Afghan- ar og Indverjar spurðu það, hófu þeir uppreisn, en gátu aldrei tekið höndum saman við Rússa, voru undirokaðir áður. Þá hafa Persar ekki búið við nein sældarkjör frá hendi Breta, en nú er þar kominn rússneskur her, sem heimtar að þeir hverfi algerlega á burtu það- an. í Egiftalandi logar alt í upp- reisnum, enda hefir brezk stjórn- vísi aldrei verið svívirðilegri en einmitt þar. Þá munu Alzir, Tunis, Tripolis og Marokkobúar ekki una vel yfirstjórn Frakka og ítala, sem ekki hefir verið nein fyrirmynd, enda gekk Frökkum æði illa að sigra uppreisnarforingjann Abd el Kader, sem kunnur er fyrir hina frækilegu baráttu sína fyrir sjálf- stæði Alzirbúa. Nú hafa Anatoiíu- búar bæzt í hóp hinna óánægðu og hafa hótað að hefja heilagt stríð. Eins og gefur að skilja, mun Evrópumönnum lítil hætta stafa af því, en þarna eystra búa miljónir kristinna manna, bæði í Armeníu og fleiri stöðum. Sumar þjóðir þar, sem Mohammedstrú játa, svo sem Kurdar og Tjerkess- ar, eru löngu kunnar að afburða hreysti og grimd, svo hættulegur leikur er það, sem bandamenn leika. Því skeinuhættir munu þeir verða, játendur íslamstrúar, þegar þeir hafa gripið hinn græna fána Mohammeds til að falla eða sigra fyrir kenningar spámannsins. Þeir munu nú ca. 230,000,000 talsins f heiminum. H. Rannsóknarnefnd hefir verið skipuð af öldungadeild- inni í Washington, til þess að rannsaka hið háa verð á skófatn- aði og öðrum leðurvarningi. Hafa þingmetm sannfærst um, að eitt- hvað sé meira eða minna bogið við verðlagið. Skýrslurnar sýna að skór, sem seldir voru í búðum fyrir 9 dali 1919 og kosta nú tó>5o dali, kostuðu í innkaups- verði 4 36 dali 1919 og 5 40 dali í ár. Leðrið og atrnað efni í skóna kostaði árið sem leið 2 33 dali og verkalaun 90 cent; þetta ár er efnið 3.37 dali og verkalaunin x.04 dali. Verksmiðjueigendur höfðu í ábata á hverju pari 89 cent 1919 og 1.04 dali í ár. Skóverzlanirnar hafa því hækkað skóverðið um helming eða því sem næst, frá innkaupsverði, Ástæðan fyrir þess- ari rannsókn varð til með einkenni- legum hætti. Einn af þingmönn- unum keypti sér skó, sem kostuðu 20 dali. Þótti honum það all hátt og leitaði upplýsinga hjá verk- smiðjunni um verð hennar og var það 8 dalir. Það þótti þingmann- inum furðu langt gengið og nú hefir hann komið þessari rannsókn af stað, og er hann sjálfur for- maður nefndarinnar/ Hkr. Ekki er ólíklegt, að rannsókn þessi eigi nokkurn þátt í verðfalli skóvöru, sem sagt er að orðið hafi nú nýlega í Bandaríkjunum. tltlenðar fréttir. Leningrad. „Echo de Paris" flytur þá fregn, að Petrograd (St. Pétursborg) skuli framvegis heita Leningrad, til heið- urs Lenin á 50 ára afmæli hans. Danir fá feeint loftakeytasam- band rið Bandaríkin. „Times" segir frá því, að í New York sé nú nefnd danskra sérfræðinga til að semja við Bandaríkin um beint loítskeyta- samband milli Danmerkur og Bandaríkjanna. Vcrkföll í Japan. Sporvagnaþjónar í Tokio í Japan hófu verkfall fyrir skömmu. En yfirvöld Japana fara ómjúkum höndum um verkfallsmenn. Hafa þeir strax tekið höndum 47 leið- toga verkfallsins og bannað allar samgöngur. En þrátt fyrir þessar hörðu ráðstafanir auðvaldsins láta verkfallsmenn engan bilbug á sér finna. Hundrað ára afmæli Herfeert Spencers. í lok síðasta mánaðar voru lið- in 100 ár frá fæðingu Herbert Speccers f Derby á Englandi. Hann var spekingur að viti, og ritaði geysimikið. Mörg af ritum hans lifðu vart sjálfan hann, sök- AlþýdnblaðiO er ódýrasta, fjölbi’eyttasta eg bezta dagfelað landsins. Kanpið það og lesið, þá getið pið aldrei án þess verið. um þess að þau voru eins konar vísindaleg alfræðisorðabók, en tímarnir og hugsunarháttur manna eru breytingum undirorpnir. En um önnur rit hans, svo sem „The Study of Sociology" og „First Principles" er öðru máli að gegna. Á íslenzku mun hafa verið þýdd eftir hann bók um uppeldismál. Bissolati látínn. Signor Bissoiati, foringi jafnað- armanna á Ítalíu, er nýlátinn 6 Róm. Hann var áður ráðgjafi á stríðstímunum. Jarðarför hans fór fram á kostnað hins opinbera, að viðstöddum yfir 100 þingmönnum. Japnnar hervæðast. Japanar eru ein af þeim fáu þjóðum, sem óx fiskur um hrygg af heimsstyrjöldinni. Nú búa Japanar sig að sama skapi undir stríð, sem þeir geröu fyrir stríðið við Rússa 1904. Nú hafa þeir í smfðum 2 her- skip, bæði 40 þús. tonn að stærð,, annað 700 fet á lengd, en hitt 800 fet. Japanar hafa nú lært alt sem læra má af vestrænum „teknisk- um“ vísindum, og munu bráðlega- geta farið að kenna vestrænu þjóðunum. Ouatemala er, eins og menn vita, eitt af smá- ríkjunum f Mið-Ameríku. í smá- ríkjum þessum eru tíðum óeirðir og stjórnarskifti. Sá, sem hefir verið forseti þar um nokkurt skeið, heitir Cabrera. í síðasta mánuði var honum vikið frá af þinginu, en hann sat sein fastast. Var sfð- an sendur her á hendur honum og varð hann loks að gefast upp eftir 6 daga vörn. Nýi forsetinn heitir Herrera og hann hefir lofað að koma á friði og spekt í laudinu, en Cabrera er nú fangi stjórnarinnar. Munu slfk stjórnarskífti eigi einsdæmi þar um. slÖðir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.