Alþýðublaðið - 28.05.1920, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.05.1920, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 blaðsins er í Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti og Hverfisgötu. Sími 9@S. Auglýsingum sé skilað þangað eða í Guteriberg í síðasta lagi kl. 10, þann dag, sem þær eiga að koma í blaðið. Um dagimi 09 vegiim. 40 ára prentaraafmseli eiga þeir í dag Guðjón Einarsson og Guðmundur Þorsteinsson. Þeir eru báðir vinnandi setjarar í Guten- berg og ekkert lát á þeim, þó þeir séu svo lengi búnir að standa við kassana. Alþbl. árnar þeim allra heilla í tilefni af vel unnu starfi þeirra, og væntir að þeir megi sem lengst njóta sín enn þá. Skúli Fógeti kom í gær frá Englandi, hLðinn kolum. Hafði danskan póst. Fiskmarkaður í Englandi er mjög lélegur, og hafa togarar, að sögn, fallið um þriðjung í verði. Syrtir ,því meira að, og er ekki gott að segja hvar lendir. Skjaldbreið kom inn í gær með um 50 tn. af reknetasíid. Veðrið í dag. Reykjavík .... ASA, hiti 6,8. Isafjörður Akureyri . . Seyðistjörður Grímsstaðir . Vestm.eyjar . Þórsh., Færeyjar Iogn, hiti 8,8. logn, hiti 7,0. S, hiti 7,6. logn, hiti 6,5. logn, hiti 8,3. NA, hiti 8,4. Stóru stafirnir merkja áttina. -i- þýðir frost. Loftvog stöðug, hæst fyrir aust- an land. Hæg suðaustlæg átt. Farþegar á Islandi voru með- al aunara: Jónas Jónsson frá Hriflu og kona hans (dvelja í Englandi í sumar), Jakob Möller ritstjóri, Halldór Sigurðsson úrsmiður, Páll Bjarnasón kennari, Einar Péturs- son, Jón Björasson og kona hans og frú Kristín Jacobson. Alþýðukrauðgerðin hefir opn- að nýja bi;ausölu á Hverfisgötu 34. Hermannaglettur og Yilli- dýrið verða leikin á morgun í Iðno. Maður druknaði í fyrradag á Dýrafirði. Hét hann Jens Guð- mundsson og var kaupm. á Þing- eyri. Féll hann út úr báti er hann var að vitja um net einsamall. Tjarnarvegurinn. Verið er nú að gera við tjarnarvegiun, sem sigið hefir mikið frá því í fyrra. Eru brautarkantarnir nú þaktir grasrót, sem sannarlega ekki var vanþörf á að gert yrði. í sam- bandi við þetta má geta þess, að ekki væri vanþörf á, að vegirnir kringum Tjörnina væru algerlega friðaðir fyrir bifreiðum og hjóium, að minsta kosti á öllum helgidög- um og frídögum. Fólki, sem er á gangi sér til skemtunar, er ekki ‘lengur vært á aðalgötum bæjarins. Og hvað væri þá eðlilegra en að það fengi friðland á þessum veg- ura. Enginn staður er betur fallinn til skemtigöngu, en einmitt þessi, ekki sfzt, ef „artað" væri ögn upp á Tjörnina og umhverfi hennar. Samvinna þar. Skipstjórafélag- ið og Sjómannafélagið f Færeyjum hafa gert með sér þann samning, að enginn skipstjóri megi taka á skip hjá sér mann, sem ekki er í Sjómannafélaginu, gegn þvf, að enginn sjómannafélagi ráðist á skip hjá skipstjóra utan Skipstjóra- félagsins. Olíkt er hún betri sam- vinnan þar, en hérna. Suðurland fer 31. þ. m. austur um land til Fáskrúðsfjarðar. Helgi Yaltýsson kom með Koru með allan farangur sinn, en skildi íjölskyldu sína eftir í Noregi fyrst um sinn. Hendrik S.-Ottosson biður þess getið, að hann muni stefna Birni Halldórssyni fyrir þau hin ósvífnu meiðyrði, er hann setur nafn sitt undir í grein, er stóð í Vísi í gær. Clotliilde kom af veiðum í morgun með dágóðan afla (60 föt af lifur). Enginn fundnr verður í verka- mannafélaginu Dagsbrún á laugar- daginn. Sa sem vill vera viss um sð verka- lýðurinn lesi auglýsingar sínar, verður að auglýsa í Aíþýðublað- inu, sem er eign verkalýðsins og gefið út af honum. Skoyti frá bolsivíkmn 1. maí. Miðstjórn rússneska Bolsivíka- flokksins sendi eftirfarandi loft- skeyti út um allan heim 1. maí: 1. Breytum frídögum vorum í frídagavinnu. 2. 1. maí leggja öreigarnir af stað í herferðina gegn auðvaldinu. Rússnesku verkamennirnir eru að hreinsa burtu leyfarnar af sora auðvaldsfyrirkomulagsins. 3. „Kommunísmi" er afspreugi bungurs og harðræðis; hann vinn- ur sigur með svitabylgjum öreig- anna; hann mun 'hrósa sigri, er hann hefir veitt öllu mannkyninu gleði og hamingju. 4. Verkamenn og bændur sigr- uðust á Denikin og Koltchak, með riflum og vélbyssum; þeir afmá minning þeirra með hamri og plógi. 5. ;Valdið er frá Guði," segja klerkarnir. „Auðsins er valdið," segja auðmennirnir. „Verkamann- anna er valdið," segjum vér. 6. Munum hinn ósigraða óvin vorn 1. maí. Munum vesturvíg- stöðvarnar. 7. Vér krýnum nýjan konung til valda á jörðunni. Vinnan skal verða konungur jarðarinnar. 8. Sigrið kulda og hungur með skipulegri vinnu. 9. Auðvaldið baðaði landið blóði. Verkamennirnir baða það svita. Auðvaldið gerði landið að dýflissu. Oreigarnir gera þaö frjálst land frjálsra manna. 10. Hinn rauði fáni vinnunnar blaktir hátt yfir alla veröld í dag. Undir honum berjast þúsundir og niiljónir til sigurs. (Sent út af Wireless Press og birt í fjölda útlendra blaða).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.