Morgunblaðið - 29.08.1915, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
M brwku ntanríkisstjóminni
i London.
Frá Frakklandi.
Úrdráttur úr opinberum skýrslum Frakka
24.-26. ágúst.
Þessa dagana bafa staðið stór-
skotaliðsorustur vió og við á allri
herlínunni. Kvað einkum mikið að
þeim 24. þ. m. þegar vér þögguð-
um niður í fallbyssum óvinanna í
Moutidier og Souchez. Stóð þar og
áköf stórskotaliðsorusta 26. þ. m.
í Vogesafjöllunum hafa sífelt stað-
ið ákafar orustur, en óvinirnir hafa
ekki unnið aftur neinn hluta af því
svæði, sem vér nýlega tókum, hvorki
hjá Schratzmaennel, Barrenkopf Son-
dernach eða Fecht.
Flugferðir.
Flugmenn hafa verið mikið á ferli.
23. þ, m. vörpuðu 7 loftför 80
sprengikúlum á stöðvarnar í Fergnier
og Noyon. Kviknaði þar eldur.
Allir flugmennirnir komu aftur heim
heilir á húfí. 24. ág. skutu flug-
menn á stöðvarnar í Lornach og
Oftenburg í Baden og 62 flugvélar
flugu sama dag yfir Dillingen i
Prússlandi og vörpuðu 150 sprengi-
kúlum, þar af 60 mjög stórum, nið-
ur á járnverksmiðju og hergagna-
verksmiðju. Flugmennirnir hæfðu
vel markið. 25. ágúst vörpuðu flug-
menn vorir sprengikúlum á herbúð-
ir óvinanna hjá Dannes og Bausant i
Woevrehéraði, á járnbrautarstöðina
og stöðvar Þjóðverja i Argonne,
brautarstöðina og flugskála i Vity og
og Boisleux.
Sama dag réðust 60 franskar, brezk-
ar og belgískar flugvélar á Forest
Noulthules. Kviknaði þar eldur viða.
Flugmannasveit kastaði 127 sprengi-
kúlum á brautarstöðina i Noyon.
Þýzkir flugmenn vörpuðu 4 sprengi-
kúlum á borgina Wesoul. Særðust
þar lítilsháttar ein kona og eitt barn
en eignatjón varð sáralítið.
London, 27. ágúst.
Útdráttur
úr opinberum skýrslum Rússa 24,—.27. ág.
Engin breyting hefir orið í Riga-
héraði.
Hjá Jakobstadt hafa staðið orust-
ur og ýmsum veitt betur og hjá
Friedrichstadt hafa Þjóðverjar fengið
liðsauka og hafið sókn, enda þótt
þeir hafi verið hraktir hjá Drinsk.
Milli Kovno og Vilna hefir fram-
sókn þeirra verið hnekt og vér hörf-
um undan hægt og rólega meðfram
Wilia.
Milli Bobr og Narew hörfum vér
undan á vestri bakka Bobr og sök-
um þeirrar hreyfingar hersins yfir-
gáfnm vér Ossowiec og sprengdum
þar öll vígin i loft upp og ónýtt-
um alt timbur, sem þar var. A
þessu svæði þrcngva Þjóðverjar að
eins kosti vorum hjá Birlystoc og
Bielsk.
Miili Narew og Bug sóttu Þjóð-
verjar ákaft að oss, en fótgöngulið
vort og riddarar hröktu þá og náðu
bæði föngum og hríðskotabyssum.
Þessi viðureign gerði oss það auð-
veldara að ná nýjum stöðvum.
A hægri bakka Bug stöðvuðum
vér tilraun Þjóðverja til framsóknar
í áttina til Kovel þann 22. ágúst.
Þar fyrir norðan reyna Þjóðverjar
að sækja fram á veginum milli
Brest Litowsk og Kovel og stend-
ur þar enn orusta.
í héraðinu sunnan við Vladimir
Wolynsky hafa staðið smáskærur og
í GaKziu er skotist á með riflum
og sumstaðar með fallbyssum.
Búlgaria.
Búlgarar og þjóöYerjar.
Fregnin um að Þjóðverjar hefðu
sent Búlgurum »ultimatum«, sem
getið var um í einkaskeyti til Mbl.
í gær, er harla einkennileg. Menn
hafa ætíð hugsað, að Búlgarar væru
mjög vinveittir Þjóðverjum, að minstá
kosti hafa þeir síðarnefndu gert alt,
sem í þeirra valdi stendur, til þess
að vinna Búlgara til liðs við sig gegn
Serbum og Rússum. Það eru ekki
nema nokkrir mánuðir síðan að
Þjóðverjar lánuðu Búlgurum stórfé,
auðvitað til þess að þeir betur gætu
búið sig undir að gripa til vopna.
Og nú rett fyrir skömmu — i
miðjum þessum mánuði, báðu Búlg-
arar Þjóðverja um meira fé — og
fengu það. — Sendu þeir mann til
Berlinar til þess að útvega pening-
ana, en það er auðvitað mál, að
þýzka stjórnin, sem sjálfsagt sjálf
þarfnast alla þá peninga sem hún
getur hönd á fest, muni ekki hafa
sint fjárbeiðni Búlgara nema hún
áður hafi trygt sér fylgi þeirra.
Undir öllum kringumstæðum er það
undarlegt að þeir skuli lána þeim
fé einn daginn, en senda þeim ul-
timatum 10 dögum síðar. Það hlýtur
eitthvað óvænt að hafa komið fyrir
sem sem spilt hefir vináttu þjóðanna.
Annars er í þessu sambandi nógu
fróðlegt að líta á það hvað forsætis-
ráðherra Búlgara, Mr. Radoslavoff,
sagði í viðræðu við ameríkskan
blaðamann nýlega. Honum fórust
svo orð:
Búlgaría bíðnr.
Búlgaría er fyllilega við því búin
að ganga inn í styrjöldina, en hún
biður eftir áreiðanlegri tryggingu
fyrir þvi að hún fái laun fyrir verk
sín, þau laun, að fá safnað þjóðinni
saman.
í serbnesku Makedoníu eiga nú
heima hér um bil 1.500.000 Búlgar-
ar og það var ætlan okkar i Balk-
anófriðnum að ná þessu landi undir
okkur og það er ætlan okkar enn.
Þegar bandamenn hafa fullvissað
okkur um það að við fáum þetta
land og litinn hluta einnig úr grisku
Makedoniu, þá er okkur ekkert að
vanbúnaði lengur. En tryggingin
vsrður að vera áreiðanleg. Búlgaria
fer ekki að úthella blóði þegna sinna
fyrir óvissu eina.
Því miður erum við nú þannig
settir að við getum eigi rutt okkur
til þessara landa með oddi og egg.
En i þess stað gætum við fengíð
þau með samningum, með því að
beita her okkar gegn öðium.
Vegna þessa höfum við af fúsum
vilja ráðgast um það við báða máls-
aðila þessa ófriðar, hvert vera skuli
hlutskifti okkar. Og einmitt með
þvi að leita hófanna hjá búðum, get-
um við séð hversu mikils við meg-
um vænta.
Bandamenn fara þess á leit við
okkur að við skipum her okkar fram
til viga við hlið þeirra. En Þjóð-
verjar mælast til þess eins að við
gætum hlutleysis okkar meðan á
striðinu stendur. En hvort sem
verður nú ofan á, þá heimtum við
fyrir það sömu laun.
Okkur gengur ekki það til að
draga málið á langinn, þótt svo virð-
ist ef til vill. Við viljum að eins
hafa fulinaðarvissu fyrir laununum,
áður en við afráðum nokkuð. Til
þess að menn geti betur skilið þetta,
er vert að geta þess, að nú sem
stendur eru nær þrjár miljónir Búlg-
ara undir erlendum þjóðum. Og
megin þorri þeirra er 1 löndum, er
liggja að okkar landi. Það hefir ver-
ið framtíðardraumur okkar að sam-
eina þá sem flesta. í Bessarabíu eru
liklega hálf miljón Búlgara og i
Rúmeníu 300.000. Nokkrir eru í
Þrakiu, en meginþorrinn í Make-
doniu.
Þjóðin þekkir ógnir ófriðarins, —
eftir það að hafa sjálf átt i blóðugri
styrjöld, en hún er þó fús til þess
að ganga inn í ófrið að nýju, til
þess að ná löndum sinum undan
oki erlendra þjóða.
Meðal annara þjóða er það álitið
að förum við til liðs við banda-
menn, þá munum við krefjast þess
að fá Miklagarð. Þetta er fjarri öll-
um sanni. Búlgaria hefir ekkert með
borgina að gera.
Enda þótt Búlgaria sé reiðubúin
til þess að ganga inn í ófriðinn, þá
veit hún vel hvað það kostar. Hún
veit að Tyrkland er öflugt, helm-
ingi öflugra en alment er álitið í
Evrópu. En her okkar er nú betur
búinn við striði, en nokkru sinni
fyr. Hann hefir verið æfður á rúss-
neska vísu og herforingjar okkar
hafa stundað nám við herskóla helztu
rikja Norðurálfunnar. Og okkur er
sama með hverjum vér berjumst.
Við berjumst að eins fyrir einu—:
Makedóniu, og við verðum að hafa
fulla vissu fyrir þvi, að við fáum
hana, áður en við grípum til vopna.
H. P. DDUS
Á-deild
HAFMARSTRÆTI.
Mikið af nýjum vörum kom ^
siðusta skipum, meðal annars:
Saumavélar — Sjöl — SaumagafI1
hvit og mislit Gluggatjöld
sniðin Gluggatjöld
störr og mislit Kjólaefni — Kápueft11
— Silki — ágætt Léreft —
Borðdúkar
Mikið úrval af ullarvörum fyflt
konur, karla og börn.
— Svart og mislitt ullarband
Enskar húfur o. m. m. fl-
Heijkið
*Zo&afÍQCj Qigamíitf
úr
JEiverpool
Margar ágætar tegundir nýkomU31'
Cigarottur:
Nilometer (Egypt)
Three Castles
i pökk. og dós.
Acom í dósum
Westminster í pk.
Capstan í pk.
Tóbak:
Criterion,
Traweller,
Loy Cabin,
Sun Dried,
Sun Cured,
Waverley Mixtufí
Three Castles tóbak ,
j:
og margar fleiri tegundir ágætaf
pökkum og dósum, fást í
Liverpool.
Maís
ómalaður, kominn aftur í
Verzl. VON1
Langavegi 55,
Reyktur Laí
afbragðsgóður, frá Hvanney1*'
fæst daglega
á kr. 1.00 og kr. U®
pr. Va kíló
I Matarðeildu 1 Hafnarstræh
Sími 211.
Sláturfélag Suðurl-