Morgunblaðið - 29.08.1915, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Jlíjkomið
með Guftfossi og ístandi í verzfan
Árna Eirfkssonar
Austurstræti 6.
Meðal annars: Peysuklæði (Domuklæði) margar teg.
Mislit (Milk) og hvit Léreft.
Prjónafot — Léreftsföt, fyrir fullorðna og börn.
Tilbúin flögg íslenzk. Gardinudúkar — nýjungar —
Strápokarnir marg-eftirspurðu.
Handsápur — gegnsæar — (transparent).
Harmonikur — Munnhörpur
og fjölda margt annað.
Sjöndeildarhringur
íslenzkra íþróttamanna.
Nú hafa Svíar teklð upp þann sið
að hafa íþrótta- og söngmót saman
þannig, að jafnhliða. íþróttamótinu
er hafður öflugur söngkór, sem
skemtir fólkinu á milli kappleikanna.
Hefir Svíum reynst þetta ágætlega.
Þeir eru engu síður góðir söugmenn
en íþróttamenn. Væri þetta ekki
góð nýbreytni fyrir íþróttavöllinn í
Rvik?
Munið al læknir á að vera við-
staddur alla kappleika og íþróttamót
(sjá reglur í. S. 1). Það er margt
ennþá sem bæta þarf og koma þarf
góðu skipulagi á hér við iþrótta-
kappleika. Hitt er það t. d. að cll
féiög eiga að senda í. S. í. skýrslu
yfir met (record), sem kunna að
verða gerð. Meðan þetta er ekki
gert er ekki hægt að sjá hve langt
við stöndum að baki öðrum þjóðum
i íþróttum, og þvi siður hægt að
sjá í hvaða landshluta beztu íþrótta-
menn okkar eru. Gott og gagn-
legt að eiga svona skýrslu.
»Met« Svissa á reiðhjólum yfir
50 rastir (Rvik—Þingvalla) er 1 kl.
20 mín. 25,2 sek. — og heitir sá
Wiediner sem það hefir gert.
Meinleg prentvilla í siðasta grein-
arlið »Evenings Mails* maraþon-
hlaupi — á að vera 1 kl. 14 min.
98/s sek-
íþróttaiðkanir lyfta mönnum á
hærra stig — til þroska og full-
komnunar — andlega og Hkamlega.
Kenna mönnum að meta sjálfa sig
og aðra að verðleikum.
í Sheepshead Bay, skamt frá New
York, á að fara að byggja þann
stærsta íþróttavöll sem ennþá hefir
verið bygður. Þar á að vera hægt
að keppa á bifreiðum og í flugvél-
um. Sæti eiga að vera þar fyrir
175.000 manns. Ekki er að sjá á
þessu að Ameríkanar séu orðnir full-
þroska eða hafi náð takmarki sinu í
iþróttum. En langt eru þeir nú
samt komnir áleiðis.
Yalesháskóla-íþróttavöllurinn tekur
61,000 áhorfendur.
Simaverkfalliö.
Svo sem kunnugt er, átti síma-
verkfallið að hefjast á hádegi i gær.
En landstjórnin komst að þeim
samningum við simamenn að þeir
gæfu frest til 31. þ. m.
Það er auðséð að hverju fer.
Simamenn hljóta að bera sigur úr
býtum, hvort heldur verður með
góðu eða illu. Það þýðir ekkert að
sPyrna á móti broddunum. Bezt
verður að sættast sem fyrst — verk-
^ll getur orðið landi og lýð til óbæt-
allegs tjóns.
—........010....
Landsspitalasjöður
Geirs Zoéga kaupmanns og
konu hans frú Helgu Zoéga.
Landsspitali er víst tvimælalaust
sú stofnunin til þjóðþrifa sem nú er
beðið eftir með mestri eftirvæntingu.
Mun öllu sem gert er til að ýta
undir það mál og halda því vakandi,
tekið með fögnuði.
Það er skemst á að minnast, að
Geir Zoéga gaf stórgjafir til Heilsu-
halisins á Vifilstöðum, þar sem hann
ásamt öðrum erfingjum Kristjáns sál.
Jónssonar gaf 10,000 kr. sjóð til
styrktar sjúklingum þar. Sá sjóður
mun nú vera rúmar 11,000 kr., og
hefir þó mörgum hjálpað siðan hann
var stofnaður. Þá gaf hann og c.
5,/00 kr. til útbúnaðar (húsgagna-
kaupa o. s. frv.) á 10 herbergjum á
Heilsuhælinu.
Nú hefir þessi sami maður stofn-
að nýjan sjóð á afmæli sinu 26. mai
i vor til styrktar fátæku fólki, sem
heilsubótar þarf að leita á væntan-
legum landsspitala, einkum þeim
Reykvíkinqum, sem þurfa meiri háttar
skurðlækninga. Aðrir landsmenn þó
ekki útilokaðir.
Verði Landsspitali ekki tekinn til
starfa 26. mai 1920, má verja x/s af
árstekjum sjóðsins á sama hátt til
styrktar sjúklingum á öðrum spitala
i Reykjavík. Sjóðurinn er 2000 kr.
með rentum frá 26. maí þ. á.
Sjóðurinn verður í vörzlum gef-
anda meðan hans nýtur við og þang-
að til byrjað verður að nota tekjur
hans samkvæmt tilætluninni, og
grunar kunnuga að hann muni ávaxt-
ast drjúgum, rúmlega um vextina,
næstu árin, ef gamla manninum
auðnast að lifa nokkur ár enn, sem
vér vonum allir.
Þetta er óvenjulegt örlæti við bág-
stadda, og gott fordæmi fyrir þá,
sem eitthvað geta af mörkum lagt.
Geir Zoéga hefir þar lengi verið góð
fyrirmynd. Hjartagæði hans hafa
dregið huga hans að þeim sem eiga
bágt; hann vildi geta bætt úr böli
allra. Meðan hér var ekki kostur
mjög vandasamra lækninga, einkum
skurðlækninga, vegna spitalaleysis og
annars, hefir það komið oftar en
einu sinni fyrir að hann hefir kost-
að sjúklinga til utanfarar. Stofnun
spitalasjóða hans er ofur eðlilegt
framhald af greiðvikni hans og hjálp-
semi við sjúka menn og hjálparþurfa.
Reykjavík hefir farið vel með Geir
Zoéga, þar sem hann hefir safnað
hér auði. En hann vill auðsjáanlega
sýna það i verkinu, að hann vill láta
Reykjavik njóta góðs af þvi.
X.
Kolamenn i Wales.
Það er nú eigi all-langt síðan, að
kolamenn í Wales gerðu verkfall.
Horfði þá til mikilia vandræða og
er ekki að vita hvað af hefði hlot-
ist, ef Lloyd George hefði ekki
skorist i leikinn og miðlað málum.
En nú koma eftirköstin. Verka-
menn þykjast ójöfnuði beittir af
verkveitendum, segja að þeir upp-
fylli ekki þau loforð, sem þeir hafi
gefið um kauphækkun, eða dragi
það að minsta kosti á langinn, til
þess, að græða sem mest. Kveður
svo ramt að þessari óánægju, að
nefnd verkamanna hefir farið til
Lundúna til þess að tala við við-
skiftaráðuneytið um þessa deilu.
Eru verkamenn hinir ákveðnustu í
i þvi, að hafa fram rétt sinn, hvað
sem það kostar, — enda þótt þeir
þurfi að hefja annað verkfall.
Reykt siðuflesk
Ostar
og Pylsur
margar tegundir,
nýkomið í
Verzl. VON,
Langavegi 55.
CONSUHI
Sjókólade
er ódýrast í
Liverpool.
Tlýr
Laukur
i
Verzt. VOn,
Laugavegi 55.
Prjónatuskur
Og
Ullartuskur
kaupir hæsta verði
Hittist f pakkhúsum Godthaabs
eftir mánaðamótin.
Liptons Te
nr. 1
fæst í verzlun
0. Amnndasonar
Laugavegi 22 A.
Kaupið Morgunblaðið.