Morgunblaðið - 24.10.1915, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
5
Smávegis.
Lánið mikla. Lán það, sem Breta
og bandamenn þeirra eru að taka í
Bandaríkjunum hefir gengið greiðar
en nokkur hafði búist við í fyrstu.
Bretum hefir boðist miklu meira fé,
en farið var fram á.
Frá ítölnm. ítalir berjast við
Austurríkismenn í fjöllunum fyrir
norðan landamœrin. Þar hafa geisað
hríðar miklar og ill veður undanfarn-
ar vikur, svo iítið hefir orðið úr fram-
kvæmdum þar syðra.
Stroknmenn. Þrír rússneskir stroku-
fangar kornu nylega til Assens á Fjóni.
Höfðu þeir strokið úr varðhaldi <
Þýzkalaudi og siglt á plönkum yfir til
Fjóns.
Björgvinjarfélagið. Á aukafundi
félagsins, sem haldinn var í Bergen
5. þ. m., var samþykt að auka hluta-
fó félagsins upp ( 14 miljónir króna.
Hlutaféð var áður 9 miljónir króna.
Þá var og samþykt að láta byggja
nokkur ný skip fyrir fólagið.
Síldveiði Svía í suniar. Sam-
kvæmt skýrslum, sem birtar hafa ver-
ið í Svíþjóð, hafa Svíar aflað alls
410 þúsund tunnur af sild hór við
ísland í sumar. Er það fjórðungi meira
en nokkru sir.ni áður.
Panamaskurðurinn. Nýlega skemd-
ist skurðurinn töluvert, svo að sigl-
inga-teppa hefir verið þar síðan. Talið
að viðgerðinni muni vera lokið í byrj-
un nóvembermánaðar.
Nýtt dagblað. í Bretlandi er farið
að koma út nýtt dagblað, sem sér-
staklega er ætlað særðum hermönnum.
Er það sent ókeypis í óll sjúkrahús,
þar sern særðir menn eru, og flylur
það fréttir frá ófriðnum og ýmislegt
annað til fróðleiks og skemtunar.
Wilson ætlar að gifta sig. Wilson
Bandaríkjaforseti er nýtrúlofaður ungri
og fagurri stúlku, er Galt heitir og er
dóttir einhvers auðugasta gimsteina-
salans í Washington. Brúðkaup þeirra
á að standa í desembermánuði.
Wilson er ekkjumaður; kona hans
andaðist fyrir rúmu ári.
f landinu helga. Sú fregn er höfð
eftir flóttamönnum frá Síríu og Pales-
tínu, að Tyrkir hafi nú mikinn víg-
búnað < landinu helga undir yfirstjórn
Þjóðverja. Öllum þeim ldaustrum <
Jerúsalem, sem eru eign hinna ýmsu
trúarflokka úr öllum löndum banda-
manna, hefir verið breytt < kastala.
Nýliðar eru látnir æfa sig á Oli'ufjall-
inu, og mælt er að Þjóðverjar hafi sett
þar nokkrar njósnarstöðvar, en skot-
æfingar eru haldnar á Golgata, undir
eftirliti þýzkra liðsforingja. Á öllum
vegum úir og grúir af flutningalestum
með skotfæri og vopn og bændur hafa
verið kvaddir til þess að grafa skot-
gryfjur á öllum þeim stöðvum < land-
inu, sem einhverja hernaðarþýðingu
hafa.
Castelnau, hershöfðingi Frakka, á
sárt að binda eftir þennan ófrið.
í síðustu hríðinni, sem Frakkar gerðu
aðj Þjóðverjum núna hjá Artois, fóll
yngsti sonur hans, Hugues de Castel-
nau, liðsforingi í stórskotaliðinu. Tveir
eldri synir hans voru fallnir áður.
Herlán Kanada. Mr. White, fjár-
málaráðherra < Kanada hefir lýst þvi
yfir að Kanada muni taka átta eða
t<u miljón sterlingspunda herlán <
vetur, líklega um miðjan janúarmánuð,
því þá eru bankarnir bezt birgir
að fó.
Savinsky. Þegar það var ljóst að
svar Búlgara til Rússa var ófullnægj-
andi, kröfðust sendiherrar Rússa,
Frakka, Breta og ítala þess, að fá
vegabréf og fóru heimleiðis litlu síðar,
allir nema Savinsky, sendiherra Rússa.
Kann varð eftir. Vita menn eigi hvað
veldur, en »Times« segir að það sóu
eingöngu hans einkamál, sem haldi
honum kyrrum. (His stay will be of
a strictly private nature). En þegar
þess er gætt, hvernig honum var bor-
in sagan heima < Rússlandi áður en
friÖBlitin urðu milli Rússa og Búlgara,
er það ekki að kynja þótt hann só
ekki óðfús að komast heim þangað.
Búlgarar hafa farið þess á leit við
Rúmena að þeir flyttu fyrir sig 6000
Búlgara frá Þýzkalandi suður yfir
landamærin. Sendiherrar bandamanna
< Rúmeniu vinna á móti þessu með
oddi og egg, eigl svo mjög vegna
þess, að þeim sé ekki sama þótt
Búlgararnir komist heim til sín, held-
ur óttast þeir það, að eitthvað kunni
að slæðast með af þýzkum liðsforingj
um. %
Nýtt sprengiefni.
Danskur verkfræðingur, K. V.
Nielsen að nafni, hefir nýlega fund-
ið upp nýtt sprengiefni, sem hann
kallar -»^AeroliU. Segja dönsk blöð
að það sé töluvert betra en önnur
sprengiefni, sem nú tíðkast, og sé
þar að auki ekki eins hættulegt, þar
eð það þarf sérstakan útbúnað til
þess að sprengja það. Hélt Nielsen
þessi sýningu á verkun efnisins og
fór sú tilraun vel fram. Danska
herstjórnin hefir pantað 30 þús.
pund af sprengiefni þessu hjá Niel-
sen, sem hefir reist sér verksmiðju
í nánd við Kaupmannahöfn. Er
talið að efni þetta muni geta haft
mikla þýðingu, einkum nú á þess-
um ófriðartímum.
Staaff látinn.
Fyrverandi forsætisráðherra Svía,
Karl Staaff, er nýlega látinn. Hann
var að eins 5 5 ára að aldri, en hafði
um mörg ár verið einn af allra
fremstu stjórnmálamönnum Svía.
Honum er lýst svo, ' að hann hafi
Fyrir kaupmenn:
Cfyivers
niðursoðnu jarðarber
og
Fruit Salad
ávalt fyrirliggjandi, hjá
G. Eiríkss, Heqhjavík.
Einkasala fyrir ísland.
HUIKDSIIllllKDMIlll
Kaupið Morgunblaðið
sem ætíð flytur nákvæmastar og mestar fréttir
frá ófriðnum mikla
og ölíu, sem við ber utan lands og innan.
Nýir áskrifendur fá
blaðið ökeypis
það sem eftir er mánaðarins.
MHHIHD0||1]||1]|^)0|1]H||^
Með e.s. „Slerling"
komu:
Ofnar - Eldavélar -- Þvotfapottar
og margskonar r Ö r i
Eldfæraverzl. í Kirkjustr. 10.
Sími 35. Sími 35.
Hver er ,Horacie?
verið vitur maður, en eigi að þvi
skapi framsýnn, en hafi þó jafnan
kunnað að laga skoðanir sinar eftir
því, hver rás viðburðanna var, og
aldrei sýnt þann eintrjáningsskap,
sem auðkennir marga stjórnmála-
menn. Hann var aðalmaður frjáls-
lynda flokksins um mörg ár, en kom
þó ætíð þannig fram, að andstæð-
ingar hans hlutu að bera virðingu
fyrir honum og þykja vænt um hann.
Regnkápur
karla, kvenna, drengja og telpu
panta eg undirritaður með þvi sem
næst innkaupsverði, fyrir hvern er
hafa vill. Fyrir kvenfólkið úr 30 mis-
munandi gerðum (Faconer) að velja,
og fyrir karlmennina úr 12 gerðum.
Sýnishorn fyrirliggjandi, engin fyrir-
fram greiðsla. Fljót afgreiðsla.
Carl Lárusson.
Fyrst um sinn Þinghdltsstr. 7, uppi.
Heima kl. 1—4. daglega.