Morgunblaðið - 31.10.1915, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Andlit mótað.
Lundúnablað spyr, hvort hægt sé
að kalla þá veru mann, sem hvorki
hafi nef, varir, kinnar né höku eða
hvort hún geti orðið að manni. Blað-
ið svarar spurningunni á þá leið, að
ekki þurfi að leita langt aftur í tím-
ann til að sannfærast um, að það
hefði verið kallað kraftaverk, ef slík
vera hefði nokkurn tima átt að geta
talist með mönnum.
En nú er öðru máli að gegna.
Nú eru það daglegir viðburðir, eink-
um í Rotchild-spítalanum í París, að
skapa og ummynda andlit manna.
Tveir læknar eru nefndir, sem leikn-
astir eru í þeim listum, þeir Forestin
og Taffer.
Frönskum blaðamanni var nýlega
leyft að koma inn í spítalann til að
sjá með eigin augum »kraftaverk«
læknanna. Aðstoðarlæknir bauð hon-
um að líta á mynd af manni, sem
særst hafði í skotgröfunum frönsku
og fluttur hafði verið i spítalann.
»Það var hræðileg mynd«, segir hinn
franski blaðamaður. »Neðri hluta
vinstri kinnarinnar vantaði, hökuna,
varirnar og nefið. Gat það verið
mannsmynd? Gat það, sem mynd-
in var af, nokkurn tíma orðið að
manni ?«
A meðan blaðamaðurinn var að
horfa á myndina, brá sjúklingi fyrir
í hinum enda gangsins og virtist
vera á leið út. Aðstoðarmaðurinn
benti honum að koma til þeirra.
»Þetta er maðurinn«, sagði að-
stoðarmaðurinn. Blaðamaðurinn starði
á manninn og trúði hvorki því sem
hann sá né heyrði, svo læknirinn
bætti við brosandi: »Þetta er mað-
urinn, sem myndin er af; það er
satt. Það er maðurinn, sem var
kinnlaus, hökulaus, neflaus og vara-
laus«.
Blaðamaðurinn hélt að læknirinn
væri að draga dár að sér, því
sjúklingurinn bar fá merki þess,
að myndin gæti verið af honum.
Vinstri kinnin var nákvæmlega
eins og sú hægri, eins og þær
hefðu báðar verið steyptar f sama
mótinu og haka, varir og nef, voru
hin fegurstu. Enn þá sáust að
vísu ljósleitar rákir á andlitinu,
för eftir nálar læknisins, en þau
voru sem óðast að hverfa. Sjúk-
lingurinn staðfesti sögu læknisins.
»Já, myndin er af mér og engum
öðrum«, sagði hann. »Þeir
græddu lítið á að rífa í sundur á
mér andlitið; læknirinn þarna
getur gefið öllum langt nef, sem
reyna að afmynda fólk. Þú sérð
að hann hefir »smíðað* nógu snot-
urt andlit á mig. Satí að segja held
eg, að það sé öllu snotrara en það
var og ekki verð eg hugminni en
eg var, þegar eg heilsa þeim aftur í
holunum*. Hann kveikti í vindl-
ingi og hélt leiðar sinnar, en að-
stoðarlæknirinn hélt áfram sögu hans.
»Mr. Morestin gerði þetta undra-
verk«, mælti hann. »Hann skar
stykki úr baki sjúklingsins og fylti
með kinnina og fláði húð af bakinu
til að klæða með varirnar. Þannig
fíetti hann hold og húð af ýmsum
hlutum líkamans og sletti á andlitið
eftir því sem með þurfti«.
Að lokum sagði aðstoðarlæknirinn
honum, að í spítalanum væri að minsta
kosti þrjátíu sjúklingar, sem fengið
hefðu sams konar eða svipaða bún-
ingsbót, og þegar einn væri orðinn
heill heilsu, kæmi annar í hans stað.
(»Lögberg<).
D AGBÖRIN. SZZ2I
Afmæli í dag:
Johanne H. Zimsen húsfrú.
Marta Stephensen jungfrú.
Grímur Ólafsson bakari.
Einar Benediktsson skáld.
J. M. Maelenberg prestur.
Ólafur Daníelsson dr. phil.
Thj. Klingenberg konsúll.
Friðfinnur Guðjónsson L a u g a-
v e g 4 3 B, selur fjölbreytt og smekk-
leg afmæliskort.
Sólarupprás kl. 8.9 f. h.
Sólarlag — 4.10 e. h.
Guðsþjónustur í dag, 22. sunnnu-
dag e. trín. (Guðspj. Tíu þúsundir
punda, Matth. 18, 1.—20., Mark. 4,
21.—25.). í dómkirkjunni kl. 12 síra
Jóh. Þorkelsson, kl. 5 síra Bj. Jónsson.
í fríkirkjunni kl. 12 síra Ól. Ól.
Kl. 5 síra Har. Níelsson.
Hjónaefni : Anna Oddbergsdóttir
jungfrú og Eiríkur Helgason stud. theol.
Sterling fór til útlanda f gærkvöldi.
Átta sjómenn fóru með skipinu og eru
þeir á leið til Þýzkalands að sækja
þangað botnvörpung, sem þar hefir
verið smíðaður. Til Vestmanneyja fóru
Þorst. Jónson, Anton Bjarnason kaup-
maður o. fl.
Bannið. Sterling hefir legið við
hafnarbryggjuna undanfarna daga. —
Hefir lögreglan haldið vörð á bryggj-
unni, til þess að hindra það, að áfengl
yrði flutt í land.
Fyrsta dýrasjúkrahús á Norðurlöndum.
Fyrir rúmum mánuði var opnað og vigí dýrasjúkrahús, í
Emdrup í Danmörku og er það hið fyrsta sjúkrahús á Norðurlöndum í
þeirri grein. — 1 Ameríku hafa slík sjúkrahús verið reist víða, en í
Evrópu hafa þau eigi þekst að þessu. Og það má telja það tilviljun eina
að þetta sjúkrahús var reist. — Veilauðug keriing hafði mælt svo fyrir í
erfðaskrá sinni að eigum sinum skyldi vaiið til þess að reisa sjúkrahús
fyrir dýr, og það hefir verið gert og nú stendur sjúkrahúsið þarna sem
fagur minnisvarði góðs dýravinar.
Efst á myndinni sézt sjúkrahúsið, þá fyrsti sjúklingurinn og siðan
stofan þar sem sjúktingarnir eru »skornir«.
STEINOLÍA.
Ódýrasta steinolían í bænnm.
Kaupið steinolíu að eins eftir vigt. Tóm föt undan steinolíu, sem
keypt er hjá okkur, kaupum við aftur á 6 krónur hvort.
Ceres er enn á VestfjörSum. Skip-
ið fer héðan aS öllu forfallalausu á
miSvikudaginn.
Snúið yður til:
Verzl. V O N, Laugavegi 55,
Leikhúsið. í kvöld sýnir Leikfó-
lagiS tvö smáleikrit: Brúðkaupskvöld-
ið eftir Peter Nansen, og Apann eftir
Joh. Heiberg. Bæði eru leikritin með
afbrigðum skemtileg, svo fult ætti að
verða í Iðnó í kvöld.
°g
Verzl. á Vesturgötu 50.
Talsími 353. Talsími 403.
Landsins bezta úrval af
Síðustu simfregnir
London 30. okt. kl. 5.30 siðd.
Georg konungur er á góðum bata-
vegi. Hann hefir sofið allvel í dag
og verkurinn i rénum. Hann er
hitalaus og æðaslögin eru regluleg.
Rammalistum
fæst á Laugavegi 1.
Innrömmun fljótt og vel af hendi leyst. Þar fást einnig
beztar tækifærisgjaflr, svo sem:
myndir, myndastyttur o. fl.
Alt óheyrt ódýrt. Komið og reynið.