Morgunblaðið - 05.12.1915, Page 3
S- des. 35. tbl.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kjöt og vín.
Grein þessa hefir hr. Pétur Pálsson
skrautritari beðið Morgunblaðið fyrir:
Það hefir löngum verið sagt sem
svo, að fátækt og fámenni þjóðar
vorrar væri þess ollandi, að stærri
Þjóðir gæfu því, sem/hér fer fram,
lítinn gaum. — Vér stöndum líka
íyrir utan það svæði, er stórviðburð-
hnir gerast á, eigum engan þátt í
stærri menningarframförunum og
stigum heldur eigi inn á leiksvið
hins hrikalega vopnaleiks, sem nú
er háður meðal mestu menningar-
Þjóða heimsins. — En eigi að siður
gerast nú þeir viðburðir i þjóðlifi
voru, er vekja mundu eftirtekt alls
heimsins, ef þeir gerðust meðal hinna
aflmeiri þjóða. — Mundi það t. d.
eigi þykja i frásögur færandi, ef
annaðhvort Frakkar eða Bretar hættu
allri vinframleiðslu og vínsölu fyrir
þá ástæðu eina, að nokkrir menn af
fjöldanum kunna eigi að fara með
áfenga drykki. Eða ef Svíar og Aust-
naenn tækju upp þann sið, að flytja
hvert einasta viðarspæki út úr land-
inu og sætu síðan sjálfir í vandræð-
um út af viðarleysi. Svona mætti
lengi halda áfram álíka flæmum, ef
öienn vildu imynda sér, að þjóðun-
um væri það áhugamál, að hafna
sínum eigin hagsnytjum. En fæstar
Þjóðir myndu fara svo óhyggilega að
táði sínu að undanskilinni islenzku
þjóðinni.
Nú er svo komið á voru forn-
fræga landi, að ibúar þess eru að
Uiestu sviftir tveimur mikilsverðum
Ueyzluvörutr, er alt frá landnámstið
Voru álitnar meðal hinna dýrmæt-
Ustu. Eg á hér við kjötið og vínið.
Kindakjöt hefir jafnan verið nota-
drýgsta fæða vor íslendinga, og þvi
fiinmitt sú fæðan, sem vér máttum
sizt missa. Svo sem kunnugt er,
er nú mestalt kjötið flutt út úr land-
ln&, og það sem hér verður eftir af
kjötmeti, selja framleiðendur til lands-
Utanna fyrir sannkallað okurverð.
Með slíku fyrirkomulagi eru kjöt-
Eaup almennings afmáð, því fátæk-
ara fólkið — og til þess telst allur
fjöldinn — hefir eigi efni á, að kaupa
sVo dýran mat, sem kjöt er nú. —
^4 eigi sjá, hve mikið ilt getur af
kjötskortinum leitt, ef eigi verður
^ honum bætt.
Ef til vill þykir sumum það mið-
llr heppilegt, ef ekki hlægilegt, að
r*ða um vinleysið samhliða kjöt-
s^°rtinum, en eg ætla þó að leyfa
Da^r það. Ekki svo að skilja, að eg
álíti
vínið eins nauðsynlegt til dag-
^rar neyzlu og kjöt. Hins vegar
y. 0r eigi séð, að annað leiði en
af þvi, að ætla að girða fyrir vín-
^ tQ landsmanna með lögum. Höf-
i k -V^r Þe§ar fenflrð nokkra reynslu
- v' efni. Síðan bannlögin gengu
j^Stldi þafa af þejm spunnist dag-
síz^ !lldeiIur og ákærur, og er slíkt
þesl f’arri vonum, þar sem lögum
Ssutn er beinlínis ætlað að drepa
<jr , nuiegt frelsi manna að því er
er þ iarnautn snertir. En fullljóst
°rðið, að lögin ná engan veg-
inn tilgangi sínum. Menn drekka
áfengi eftir sern áður, og sjást fullir
engu síður en áður. Munurinn ein-
ungis sá, að þeir, sem verst er ástatt
fyrir, drekka nú þá áfengisvökva,
sem blandaðir eru óheilnæmum efn-
um. Og þessi virðulegu landslög
(vinbannslögin) eiga fullkomna sök
á því, ef menn þannig bíða heilsu-
tjón fyrir neyzlu óhollrar áfengis-
blöndu.
Með hverju broti gegn þessum
þvingunarlögum og leynipukrinu á
bak við þau, eykst 'lítilsvirðing al-
mennings fyrir þeim. Og endirinn
verður án efa sá, að þjóðin og lög-
gjafarvaldið sér þann leik vænstan á
borði, að nema lögin úr gildi.
Ofdrykkja var lítil hér á landi áð-
ur en bannlögin komust á, og eg
hefi það traust á siðferðisþreki lands-
manna, að þeir mundu engu síður
sjá sóma sinn í þessu efni, þó bann-
lagabandið yrði höggvið sundur, —
þetta þjóðarhelsi heimskulegs ófrelsis.
Reykjavik, 30. október 1915.
Pétur Pálsson
skrautritari.
Af Miðnesi.
1. desember.
Tíðin hór hefir verið afbragðs góð,
þa?J sem af vetrinum er.
Afli hefir verið lítill og það óvana-
lega lítill, þar til fyrir rúmri viku, þá
kom fiskur í djúpið og hefir fært sig
á grunnið og fiska opnir bátar nú af-
bragðs vel, bæði á línu og færi —
ágætan fisk.
2 lítt kendir fiskar hafa fengist hér
og munu þeir verða sendir Bjarna
Sæmundssyni í Rvík til rannsóknar;
mun annar þeirra heita »Steinsuga«,
en hinn þekkja menn hór ekki undir
neinu nafni
Mótorbátar hafa ekki farið á sjó hér
utan einn sem einu sinni hefir róið
og aflaði þá 2 skpd. af fiski og 800 stk.
háf. Var hirt úr honum lifur sem var
150 lítrar og seld á 25 aura pr. liter.
Ó.
. Ofriðarsmælki.
Fangaskifti. Robert Cecil lávarð-
ur skýrði nýlega frá því í brezka
þinginu, að engar tilraunir hafi ver-
ið gerðar til þess, hvorki í Englandi
né hlutlausum löndum, að koma á
fangaskiftum mill Þjóðverja og Breta.
Hér er átt við skifti á óbreyttum
liðsmönnum, því eitthvað hafa þeir
áður skifst á liðsfonngjum og lækn-
um.
Herstjórnin aö vestan. Nýlega
beindi einn brezku þingmannanna
fyrirspurn um það til hermálaráð-
herrans, hvers vegna eigi væri höfð
ein og sama herstjórn yfir liði
Frakka og Breta á vestur-vígstöðvun-
um. Asquith varð fyrir svörum
(þvi Kitchener var þá ekki heima),
og sagði hann, [að mönnum hefði
enn eigi litist það ráðlegt, að hafa
einn aðalherstjóra yfir öllu liðinu.
Bezta ðlið
Heimtið það!
— o —
Aðalumboð fyrir ísland:
Nathan & Olsen.
Beauvais
niðursuðuvörur eru viðurkendar að vera langbeztar í heimi.
Otal heiðurspeninga á sýningum víðsvegar um heiminn.
Biðjið ætíð um Beauvais-niðursuðu. Þá fáið þér verulega góða vöru.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
O. Johnson & Kaaber.
Special Sunripe Cigarettur.
Þrátt fyrir
ófrið
og dfrtið
heimta allir
hefir alla hina ágætustu. eijrinlegleika. Betra að þvo úr
henni en nokkurri annari sápu, skemmir ekki fötin þvi hún
er búin til úr hinum hreinústu efniim, og ailur tiibáningur
hennar hinn vandaðasti. í iýtir o" Icttir þvottir.n.
ÞE55A sánu ættu allir að biðja usn.
FarlS eftir fyrirsogninni sem er á < linm íuniight sapu umbuliuni.