Morgunblaðið - 02.04.1916, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.04.1916, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ JTlotiíenegro. Vitri asninn. Nafnkunnur Afríkufari hefir sagt þessa sögu: A einni af ferðum mínum hafði stjórnin í Tunis fengið mér lifvarð- arlið þarlendra riddara, til þess að gæta þess, að Arabar rændu mig eigi né dræpu, því þeir eru uppi- vöðslumenn miklir. Foringi þessara riddara var aldraður maður og reið hann asna. Varð eg þess fljótt var, að menn hans álitu þennan asna einhverja yfirnáttúrlega veru. Einhverju sinni hvarf mér úr mitt og ýms áhöld, og eg vissi þegar, að einhver af fylgdarmönnum mín- um var valdur að hvarfi gripanna, því að við vorum þá langt frá öll- um mannabygðum. Eg skýrði for- ingjanum frá þessu og kallaði hann þá saman alla menn sina og skip- aði þeim að skila þýfinu innan stund- ar. Eg lét þess getið við hann, að eg ætti þess litla von að heimta gripina aftur. Hann mælti þá: — Bíðið við, herra minn; ef alt um þrotnar, þá skal eg láta asnann minn finna þjófinn. Auðvitað lét þjófurinn ekkert á sér bæra, og foringinn mælti þá til manna sinna: — Nú fæ eg asnanum mínum málið til úrlausnar. Eg ætla að skipa honum að finna þjófinn. Síðan fór hann inn í hesthúsið, þar sem asninn var, og dvaldi þar drykklanga stund. En er hann kom aftur, mælti hann til mannanna: — Nú farið þið hver á eftir öðr- nm inn í hesthúsið og takið i hal- ann á asnanum. Um leið og þjóf- urinn tekur i halann, mun asninn slá hann svo hastarlega, að hann mun takast á loft. Eg þóttist þess alveg viss, að for- inginn væri að leika með mig. — Mennirnir gengu einn á fætur öðr- um inn í hesthúsið og auðvitað sló asninn engan þeirra. Foringinn skipaði þeim siðan í fylkingu og skoðaði hendur þeirra mjög grand- gæfilega. Alt í einu staðnæmdist hann fyrir framan einn manninn og mælti: — Þú ert þjófurinn! Manngarmurinn tók að nötra af hræðslu og játaði það á sig að hafa stolið gripunum og grafið þá bak við tjaldið okkar. Þar fundust þeir líka. Eg þóttist þess fullviss, að asninn væri eigi gæddur neinum yfirnátt- úrlegum gáfum og bað þvi foringj- ann að segja mér frá hvernig þessu viki við. — Það er ákaflega einfalt, mælti hann og hló. Allir mennirnir trúa því, að asninn geti fundið stolna muni. Eg vissi að þjófurinn mundi þess vegna eigi þora að taka í hal- ann á honum. Þess vegna stráði eg dufti, sem sterk lykt er að, á nalann. Mennirnir héldu að eg væri að skoða hendur sínar, en eg var að þefa af þeim. Maður sá, er eng- inn þefur var að, var auðvitað þjóf- urinn, þvi að hann hafði ekki þor- að að taka í halann á asnanum. Eg hló og dáðist að kænsku gamla mannsins. Legu landsins geta menn séð á þessari mynd. Að norðan og vestan liggur Austurriki (Bosnía og Heize- govina), að norðaustan og austan Serbía, að sunnan Albanía og Adría- haf. Landið er alt hálent og fjöllótt mjög, einkum að vestan. Heitir sá hluti þess Czernagora (Svörtufjöll) á máli landsbúa, og venjulega kalla þeir því nafni alt landið. En hinn hlutinn heitir Brda, og er hann nokkru frjósamari. Eru þar skógar í fjallahlíðunum, en Svörtufjöll eru ber og nakin. Hlíðar þeirra eru snarbrattar og gil og gljúfur skerast um fjöllin þver og endilöng. Hæstu fjöllin er Durmiter, 2528 metrar, Kom, 2448 metrar og Sto, 2268 metrar. Ár eru fáar i landinu og renna í djúpum og þröngum giljum. Stærsta áin heitir Moratsha og fellur hún i Skutarivatnið. Piva er önnur mesta áin og fellur hún til norðurs í Drina. Zeta heitir ein og rennur hún í Morátsha. Fjöldi litilla stöðnvatna er á milli fjallanna. Veðrátta er þar mjög óstöðug, og ólík í hinum ýmsu héruðum. í Czernagora er köld veðrátta og úrkomusamt, en rétt þar fyrir sunn- an er loftslag milt sem í Neapel. Vaxa þar i dölunum fikjur, döðlur, appelsinur, olíuviður, möndlutré mór- berjatré og pálmar, og snjór sést þar eigi á sumrum nema á hæstu fjallatindum. Annars er jurtagróður landsins heldur fáskrúðugur, og dýr eru þar fá. Þó hittast þar birnir, úlfar og villisvín. Landið er strjál- bygt og eru Svartfellingar flestir grisk-kaþólskrar trúar. Rússakeisari var áður höfuð kirkunnar þar í landi, en þó eiga landsmenn einn æðsta prest, og nefnist hann Vladika. Svartfellingar eru nraustir menn og harðfengir, en mentun þeirra er á heldur lágu stigi. Hefir þeim þó fleygt fram núna á siðustu árum að þvi leyti. Þeir erum fátækir menn og sparsamir. Vel efnaður er talinn hver sá maður, sem hefir svo sem 600 króna tekjur á ári. Húsakynni eru mjög iéleg, og svipar þeim uokk- uð til þeirra húsa, er landnámsmenn reistu hér á landi. Eru það skálar, þar sem menn sitja, snæða, sofa og elda mat sinn. Er það víða, að eld- ur er kveiktur á hlóðpm, og fer reykurinn út um stromp á mæni hússins. Sums staðar er kvikfénað- ur hýstur i þessum skála lika. í Czernagora eru húsin flest hlaðin úr steini, en í Brda eru timburhús. í höfuðborginni sjálfri, Cettinje, eru flest húsin úr steini og einlyft. Svartfellingar eru frændræknir menn; halda ættirnar saman, og er eizti maður höfðingí í hverri ætt. Er það altítt að 2—300 merm af sömu ætt búi saman. Svartfelling- ingar eru sundurgerðarmenn og þyk- ir gaman að klæðast í skart. Eiga þeir sinn þjóðbúmng; er hann ein- kenniiegur mjög, og halda þeir trygð við hann, þrátt fyrir áhrif menning- arinnar. Á 14. öld hét landið Zeta, og lá þá undir Serbíu. Árið 1389 lögðu Tyrkir Serbíu undir sig og flýði þá fjöldi Serba til Svörtufjalla og settist þar að. Stofnuðu þeir þar frjálst ríki, sem aldrei hefir unnist fyr en nú. Er saga þess óslitin bardaga- saga, og höfuðféndur þess hafa Tyrk- -ir verið. Svartfellingar tóku hraust- asta manninn til foringja og erfðu afkomendur hans foringjatignina. En sú ætt var aldauða árið 1421. Þá var Stefán frá Svörtufjöllum kos- inn landstjóri. Var hann hraustur maður og vitur. Hann reisti tvær borgir við Adríahaf og gerði bandalag við Feneyjar gegn Tyrkj- um. Sonur hans hét ívar, og var kallaður hinn svarti. Hann var hin mesta hetja, og er það enn þann dag í dag rómað þar í landi, hversu hraustlega hann varðist Tyrkjum,og honum þakkað það að landið gat þá varið sjálfstæði sitt. Um hann geng' ur sú sögusögn i Montenegro, ^ hann muni snúa sér í gröf sínni af fögnuði, þegar Tyrkir verða hraktir úr álfunni. Þótt Svartfellingar væru samtak1 í því að verja land sitt gegn Tyrkj' um, þá var þó hver höndin upp á móti annari meðal þeirra. Reyndu ættirnar á alla lund að skara eldi að sinni köku, og varð hiriu litla ríkl mikið tjón að því. En árið 1696 komst til valda sá maður, er Danilo Petrovitsch Jiét, og tókst honum að binda enda á innanlandsdeilurnar. Hann gerði bandalag við Rússland og Feneyjar, og árið 1711 fékk hann því til leiðar komið, að konungs- tignin skyldi ganga að erfðum til niðja sinna Svartfellingar þóttust öruggir, þeg- ar þeir höfðu náð bandalagi við Rússa og treystu þeim eins og nýju neti. Arið 1788 lenti Rússum og Tyrkjum saman í ófriði, og skoraði þá Katrín drotning önnur á Svait- fellinga að grípa til vopna og létu þeir ekki biðja sig þess tvisvar. Börðust þeir eins og ljón í þrjú ár, en þegar friður var saminn, gleymdu Russar þeim alveg. En eftir þenn- an ófrið komu nokkur friðarár, og notaði konungurinn, Pétur I., þann tíma til þess að koma á betra skipu- lagi ir.nanlands. Átti hann þó fult í fangi með það, því að landsmenn vildu eigi greiða neina skatta, en voru jafnan fúsir til þess að berjast. Árin 1803—1807 og 1810— 1814 áttu Svartfellingar í ófriði við Tyrki og náðu þá Cattaroborg. Árið 1830 kom Pétur annar til valda. Hann hafði dvalið lengi í Petrograd og lagði hann mikið kapp á það, að menta og fræða þjóð sína. Gafst honum tími til þess í nokkur ár, en 1840 hófst ófriður við Tyrki enn að nýju og stóð sú styrjöld næf óslitin fram til 1878. Nikita kon- ungur kom til ríkis árið 1860, þegar föðurbróðir hans, Danilo konungur, var myrtur. Tveimur árum síðar þröngvuðu Tyrkir mest kosti Svart fellinga. Óðu þeir þá yfir landið og náðu höfuðborgiuni á sitt vald Urðu Svartfellíngar þá að beiðast friðar, og fengu sæmilega friðarkosti fyrir milligöngu Rússa. Arið 1878 voru þeir hepnari. Unnu þeir þá hvern sigurinn á eftir öðrum, og þegar friður var saminn . i Berlío það sama ár, fengu Svartfellingar svo mikla landaukningu, að riki þeirra stækkaði rúmlega um helming (3100 ferrastir) og var viðurkent af stórveldunum sem sjálfstætt ríki. Þó voru settir þeir kostir, að það mretti ekki hafa herskip af neinu tagi, og ekki heldur leyfa herskipum annara þjóða að nota hafnir slnar. En jafn- framt fengu Svartfellingar fyrirheit um það, að skip þeirra skyldu vera undir vernd austurrikskra konsúla. í Balkanófriðnum fékk Monte- negro enn laglega landaukningu, eD nú hefir hin hrausta fjallaþjóð orðið að lúta i lægra haldi fyrir Austurríkis- mönnum. Það frelsi, sem hún hefif getað varið í sex aldir og hefir fórn- að svo miklu blóði fyrir, er nú 3 henni tekið eftir drengilega vörn- En hver verður framtíð hennar, og hver verður framtið Belgíu, Serbíu/- Albaníu og Póllands?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.