Alþýðublaðið - 28.05.1920, Qupperneq 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ó.s. Suðurlanó
fer héðan á mánudag 31. maí til Austfjarða, lengst til Fáskrúðsfjarð-
ar, og snýr þar við til Vestmannaeyja og Reykjavíkur, tií þess að
komast ina í ferðaáætlun sína.
Viðkomustaðir: Keflavík, Vestmannaeyjar, Vík, Hornafjörður,
Djúpivogur, Breiðdalsvik, Stöðvarfjörður og Fáskrúðsfjörður.
Vörur afhendist £ dag föstudag.
H.f. Eimskipafélag1 íslands.
Hrisgrjón og
fæst hjá
H. P. Duus.
frá Alþýðubrauðgerðiriai.
Ný brauöaútsala trá 'Alþýðubrauðgerð-
: : : inni er á Hverfisgötu 34. : : :
leSi kontmgnr.
Eftir Upton Sinclair.
Þriðja bók:
Pjónar Kola konungs.
(Frh.).
„Líklega veitti hann yður ekki
áheyrn. En þó hann nú gerði
það, myndi hann ekki hreyfa litla
fingurinn, hvað þá meira. Hann
er auðvirðilegur skrýpakarl, sem
otað er fram til þess að gabba
yður. Hann hreyfist ekki, nema
þegar Pétur Harrigan kippir í
strenginn".
„Já, eg vissi reyndar, að hann
var maður Harrigans", sagði
Hallur, „en hvað á eg til bragðs
að taka?“
„Eg sé það á öllu, ungi maður,
að þetta er í fyrsta skifti, sem
þér rekið yður á viðskiftahring-
ana hér í Iandi“.
„Getið þér ekki skilið það, að
eg get ekki setið um kyrt, með-
an þessir menn farast í námun-
um“.
„Eg v'eit ekki hvort þér getið
setið kyrrir, en hitt veit eg, að
hvert sem þér farið bjargið þér
þeim aldrei", sagði hinn og brosti
beisklega
Það leið nokkur tími, áður en
Hallur hóf aftur máis; en hann
snéri sér að Edström og Mac
Kellar með auknum ákafa, er
hann sagði: „Hlustið á mig eitt
augnablik! Eg verð að hafast ejtt-
hvað að, þó ekki sé nema sjálfs
míns vegna. Ég mundi hvorki
geta neytt svefns né matar íramar.
En eg er nýliði og þekkingar-
snauður, eins og Keating segir.
Og þið verðið að hjálpa mér að
leggja á ráð, heyrið þið þaðl"
Það varð löng þögn. Loksins
sagði Edström: „Það má Guð
vita, að eg vildi af heilum hug
stinga upp á einhverjum, ef eg
gætU“
„Það vildi eg nú líka", sagði
Mac Kellar. „Þetta er eins og að
berja höfðinu við steininn, dreng-
ur minn. Öll embættismannastétt-
in er ekki annað en nýtt nafn á
„G. F. C.“. Þeir eru allir þorpar-
ar, allir þrælar félagsins".
„Bíðið nú við", sagði Hallujr.
„Gerum ráð fyrir, að þeír væru,
eins og þeir eiga að vera, hvað
ættum við þá að gera? Myndum
við ekki 'fara til málfærslumanns
ríkisins með svona mál?“
„Jú, auðvitað", svaraði Mac
Kellar.
„Þér sögðuð rétt áðan, að hann
hefði hótað því, að höfða mál á
hendur nokkrum námustjórum fyr-
ir kosningasvik".
„Já, það var á meðan kosn-
ingarnar stóðu yfir, meðan hann
lést berjast gegn félaginu".
„Nú man eg það, að Jeff Cott-
on sagði, að hann væri vinur
verkamannanna þegar hann talaði
og félagsins í framkvæmdinni".
„Svo er víst", sagði hinn stutt-
ur í spuna.
„Jæja“, sagði Hallur, „en ætti
eg nú samt sem áður ekki að
fara til hans og gefa honum þó
að minsta kosti tækifæri. Það er
ekki alveg víst, að hann sé hjarta-
laus".
„Hann vantar ekki hjarta,
heldur krafta í köggla", ansaði
Mac Kellar.
2 skrúfublöð
tilheyrandi 4 hkr. Dan-
mótor vil eg kaupa.
]*Æax*kiiísi Jónsson,
Bjargarstíg 3.
Verzlunin „Hlíf" á Hverfisgötu
56 selur: Sólskinssápu, Red Seal-
sápu, Sápuduft (ágætar tegundir),
Sápuspæni, Taubláma, Þvottaduft
(Vi to Willemoes-kraít og Richs-
kraft), Soda á 0,25 pr. >/2 kg.,
Ofnsvertu, Fægilög í smádunkum
á 0,50, Handsápur, Flandáburð
(Arnesan glycerin), Götukústar,
Gólfskrubbur, Pottaskrubbur, Hand-
bursta, Olíu á saumavélar (( glös-
um), Teiknibolur (á 0,20 pr. 3
dús.), Þvottaklemmur o. m. fl.
Gerift svo rel og lítið inn í
lníðina eða íiringið í síma 503.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg,