Morgunblaðið - 08.07.1917, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
f J*' , \t-,f 4^. ^jk •-
Tltjhotnid m@é siðusfu sfiipum
í varzlun
Árna Eirikssonar
Lérefí og Tvisídúkar, margar teg.
Uergartt, Erma- og Vasafóður,
Skijrtudúhar, Heiðfatadúkar.
Síuggafjoíéj úSarímannsfaíaofni.
Tafa-, Segta- og Tjatdastrigi,
Terðalöskur, Tfandlöskur.
Og margt og margt fleira.
Forsætisráðherra Frakka gat
þess í umtali um ræðu Lloyd
George s, að það mundi vera
miklu auðveldara að semja frið,
ef í stað keisaraveldisins kæmi
stjórnarfyrirkomulag, sem bygt
væri á einstaklingsrétti.
Smuts hershöfðingi hefir nú
lýst því yfir í viðræðu, að ófrið-
urinn mætti til að lykta með
sigri þjóðræðismanna (democracy)
og aukinni samvinnu frjálsra
þjóða og að tala hinna frjálsu
þjóða aukist.
Sir William Robertson yfir-
hershöfðingi sagði í ræðu á þjóð-
hátíðardegi Ameríku, að þátt-taka
Bandaríkjanna í ófriðnum gæfi
nýjar vonir og styrkleika. Banda-
ríkin hefðu þegar mikla þýðingu
i ófriðnum.
Innihald »nótu« Rússa til
brezku stjórnarinnar hefir nú
verið birt. Segir þar, að óvinirn-
ir hafi freistað þess að koma á
ósamlyndi milli bandamanna með
því að bera út þá rakalausu sögu,
að Rússar hefðu í hyggju að
semja sérfrið. I yfirlýsingum
bráðabirgðarstjórnarinnar felst
ekki hin minsta bending um það,
að Rússar ætli að minka sína
þátt-töku í hinni sameiginlegu
baráttu bandamanna. Þvert á
móti er þar skýrt tekið fram að
Rússar séu fastráðnir í því að
berjast til ákveðins sigurs. Gleðin
yfir hinni ný höfnu sókn Rússa, i
Galiciu sem þegar hefir borið þann
árangur að þeir hafa handtektið
rúmlega 8000 óvinahermenn, var
afskaplega mikilíRússlandi ogjafn-
vel þau blöðin, sem vinveittuat
hafa verið 'friði, hvetja nú mjög
til sóknar.
í Atlantzhafinu réðust þýzkir
kafbátar á ameríksk gufuskip,
sem voru á leið til Frakklands
með herlið. Orusta hófst milli
þessara og amerikskra tundur-
spilla. Kafbátarnir hæfðu ekkert
skipanna og ekkert tjón varð.
Einum þýzkum kafbáti var
áreiðanlega sökt og ef til vill
hafa fleiri farist.
Gríska stjórnin hefir kallað
heim sendiherra sína í þeim lönd-
um, sem eru i bandalagi við Þýzka-
land. Allir fyrirliðar Grikkja hafa
8varið nýju stjórninni hollustueið
og ríkinu lokað fyrir öllum þýzk-
um áhrifum,
2745 skip komu til brezkra
hafna vikuna sem leið og 2846
skip fóru frá brezkum höfnum.
15 skipum yfir og 5 undir 1600
smálestir að stærð var sökt og
11 fiskiskipum. Þó maður telji
þær vikurnar með, sem flestum
skipum hefir verið sökt, þá verð-
ur meðaltalið síðan hinn ótak-
markaði kafbátahernaður hófst,
svo lágt, að jafn vel þeir bjart-
sýnustu óvinanna geta ekki bygt
von sína um að sigra á kafbáta-
hernaðinum. Það birtást jöfnum
höndumí þýzkum blöðum ogíhlut-
lausra þjóða, sem eru undir þýzk-
um áhrifum, greinar þar sem sagt
er, að engum,semsérþekkinguhafi,
komi til hugar að unt sé að svelta
Breta. Þýzkir stjórnmálamenn
efatj ekki um að Bretar muni geta
haldið út þrátt fyrir kafbátahern-
aðinn. Einasta vonin er að skipa-
tjónið mundi geta haft áhrif á
kaupsýslumenn í Bretlandi og gert
þá vinveittari friðf.
Brezkir flugmenn hafa farið
margar flugferðir þessa viku til
ýmsra þýðingarmikilla staða i
Belgíu. Allar vélarnar hafa kom-
ið aftur heilu og höldnu. Ovina-
loftför gerðu árás á Harwich,
drápu 11 og meiddu 36 menn.
Dálítið eignatjón. Tvær óvina-
fiugvélar voru skotnar, ein skemd.
Argentina hefir krafist fyrir-
gefningar og skaðabóta af Þjóð-
verjum þegar í stað fyrir það, að
þýzkir kafbátar söktu skipunum
Oriana og Toro.
London 6. júlí.
í síðastliðnum jdnímánuði hafa
Bretar i viðureigninDÍ hjá Messiner-
hæðinni og annarsstaðar á vesturvíg-
vellinum samt. handtekið 8686 Þjóð-
verja, og náð 67 fallbyssum, 102
sprengivörpurum, 344 vélbyssum,
auk mikilla annara hergagna. Síðan
í aprll byrjun hafa Frakkar og Bret-
ar samtals tekið 63222 menn hönd-
um, náð 503 sprengivörpurum og
1318 vélbyssum. Siðan ófriðurinn
hófst hafa Bretar handtekið einir
á öllum vígvöllunum 1x7,776
menn, auk þess sem Afríkuherinn
hefir tekið í viðureigninnl í þýzku
suð-vestur-Afríku, austur-Afríku og
Kameroon. Hinir siðarnefndu hafa
verið látnir lausir og sendir heím.
Siðan í ófriðarbyrjun hafa Bretar sam-
tals mist á öllum vigstöðvunum
51,088 menn handtekna og þar með
taldir allir menn frá Indlandi og ný-
lendunum. Vér höfum frá byrjun
tekið að herfangi 739 fallbyssur, en
höfum mist 133, en af þeim náð
aftur 37. Þessar 37 eru ekki taldar
með þessum 739, svo talan er í raun
og veru 96 fallbyssur mistar og739
teknar. Vér höfum ekki mist eina
einustu fallbyssu á vesturvígstöðv-
unum síðan í aprilmánuði 1915.
Merkilegasti viðburður vikunnar á
vesturvígstöðvunum er framsókn
Breta í áttina íil Lens. Vér höfum
tekið mörg ramgerð varnarvirki báðu
megin Souchez-ár, sem verja Lens.
Framsóknarliðið hefir náð öllu því,
sem það ætlaði sér, mannfallslítið,
en mannfall óvinaliðsins hefir verið
mikið. Staðir sem ramlega voru víg-
girtir og mikla hernaðarþýðingu hafa,
eru því komnir í vorar hendur.
í jdnímánuði voru 282 þýzzar
flugvélar 'skotnar niður. Yfirburðir
brezku flugmannanna halda áfram.
Rdssar hafa hafið nýja sókn. 1.
og 2. júli var mikil orusta háð í
Austur-Galiciu gegn þýzku og aust-
urríksku og tyrknesku liði. Rússar
tóku eina hinna ramgerðustu stöðva
óvinanua í Galiciu og handtóku
300 fyrirliða og rúmlega 18000
hermenn, auk 29 fallbyssna og 33
vélbyssna. Þjóðverjar eru sem steini
lostnir yfir hinDÍ nýju sókn Rússa,
þar sem þeir hafa flutt allt það lið
sem þeir gátu, til vesturstöðvanna,
til þess að stöðva framsókn banda-
manna þar.
Akaft hefir verið barist á .vígstöðv-
um Frakka. Þjóðverjar hófu fyrir
nokkru mjög ákafa sókn á tólf milna
svæði hjá Chemin des Dames i þeim
tilgangi að veikja þessa mjög þýð-
ingarmiklu línu. A miðri Hnunni,
í nánd við Cerny, er úrvalslið til
varnar. Tilraun óvinanna endaði
með stærsta ósigri, sem þeir hafa
beðið síðan Frakkar ráku þá aftur
hjá Douauniont og öðrum stöðum
hjá VerduD Mannfall óvinanna var
afskaplegt.
Italir haia yfirgefið nokkurn hluta
Agnellaskarðs. Óvinirnir sækja á á
mörgum stöðum, þar á meðal Carso-
sléttu. Ahlaupum óvinanna milli
Gardavatns og Lédrodals hefir verið
hrúndið.
Fullkomnu skipulagi hefir nú aft-
ur verið komið á her Rúmena.
Töluverðar orustur hafa staðið í
Austur-Afríku suðaustanverðri og hafa
óvinirnir verið neyddir til þess að
yfirgefa mjög sterkar stöðvar. Al-
lenby hershöfðingi hefir tekið við
stjórn liðsins í Egyptalandi.—Spreng-
ingar hafa verið gerðar i forðabúri
og flugvélaskýli Tyrkja í Palestínu.
50 sprengikúlum var varpað niður
á staði, sem höfðu hernaðarþýðingu
í nánd við Jerúsalem, en ekkert tjón
varð í sjálfri borginni. >
» ea
11 1 - ■ * s-.'" ‘?aa>
Erl. símfregnir..
Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 6. júlí
Tiltölulega rólegt á öll-
um vígstöövunum.
Þjóðverjar hata yflrgefið
Brzezany.
Komist heflr upp um
njósuarmenn innan skrif-
stofa stjórnar Bandaríkj-
anna.
Borgarastyrjöld í Kíua.
Frá alþingi.
Ed. 7. júli.
Aðeins eitt mál var á dagskrá:
Frv. um bxjarstjórn á Isafirði; 1. umr.
Frv. þetta er í nánu sambandi við
frv. um sameining ísafj. og Eyrar-
hrepps og stendur og fellur með þvi.
Deildin hleypti málinu umræðu-
laust til 2. umr. og vísaði því til
sömu nefndar, sem fjallar um sam-
einingarfrv.
Koiin i hðfninni.
Björgunarskipið »Geir* hefir nú
lokið við að ná upp kolunum úr
seglskipinu, sem sökk hér um árið
inni á Rauðarárvík og bæjarstjórnin
ákvað að ná skyldi kolunum úr. Er
»Geir« sem stendur önnum kafinn
við að ná kolunum úr öðru seglskipi,.
sem einnig sökk þar fyrir nokkrum
árum. Mun Ellingsen kaupmaður
og nokkrir aðrir hafa keypt það skip,
þar sem það liggur og er það á
þeirra kostnað sem »Geir* vinnur
að þvi.
Vér höfum átt tal við borgarstjóra
um kolin, sem »Geir hefir náð upp
fyrir bæjarstjórnina. Sagði borgar-
stjóri að bæjarstjórninni hefði verið
sagt að i skipinu væru um 600 smá-
lestir af skipakolum, en það mun
ekki vera rétt. »Geir« hefir náð
upp 216 smálestum og fullyrða björg-
unarmenn að eigi muni vera nema
20—30 smálestir eftir, sem erfitt
muni vera að ná upp. Enda telja
þeir fráleitt að skipið muni hafa borið
meira en 300 smálestir alls.
Af þessum 216 smálestum fær
»Geir« */g hluta í björgunarlaun, en
bærinn fær % hluta. Eru kolin af
mjög góðri Newcastle-tegund, eru
stór og lítið sm$lki í þeim. Verða
þau væntanlega seld eins og önnur
kol sem bæjarstjórnin á.
Kolabirgðirnar, sem Ellingsens-
félagið lætur ná upp, er sagt að nemi
um 300 smálestum.