Morgunblaðið - 08.07.1917, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Atvinna.
N o k k r i r vanii s j ó m e n n
geta fengið pláss á mótorkútter.
-2^ Aðgengileg kjör.
Allar frekari npplýsingar gefur
Qlafur Kristófersson, Bræðraborgarstíg 8B.
Heima kl. 4—6 e. m., 8. og 9. júlí.
Sumarnóff.
Oi I. Havsteen
heildsala, Reykjavík,
hefir miklar birgðir af allskonar
Vefnaðarvoru:
Handklæðadregill,
Þurkdregill,
Hvít léreft,
Vasaklútar,
Ermafóður,
Lasting,
Flonel,
Satin,
Creton,
Crepon,
Vergarn,
Alpacca.
Enntremur fiskstriga, tilbúinn fatnað, Creolin baðlyf og
Kartöflur.
Einungis fyrir kaupmenn og baupfélög.
Sífflí 268.
Póstbólt 397.
Heiðskýra, bjarta, blíða,
blækyrra sumarnótt!
AUs8taðar inn til hlíða
alt er svo kyrt og hljótt.
Náttdaggar drifinn tárum
drúpir nú fíflll smár;
dottar á drafnarbárum
dreymandi, þreyttur már.
Senn styttiat sólargangur
og syrta tekur að,
skapstór og skuggalangur
skundar vetur í hlað.
Rosum og rökkri kviðir
róöin sem vorið ól;
»öll birta el um síðir*,
og aftuf hækkar sól.
H. S. B.
Lögreglan.
Svo sem getið var um í blaðinu
f gær, kaus bæjarstjórnin eftir tillögu
borgarstjóra, þrjá menn i nefnd til
þess að koma fram með tillögur um
verksvið væntanlegs lögreglumanns í
stað Þorvalds Björnssonar.
Tillaga þessi ber með sér, að það
er ætlun borgarstjóra, að einhver
breyting verði á lögregluliði bæjarins.
Hingað til hefir það verið svo, að
bæjarfógetinn gegnir lögreglustjóra-
embætti ásamt öðrum bæjarfógeta-
störfum sinum. Hann hefir haft um-
sjón með lögregluliðinu, gefið því
fyrirskipanir og það jafnan gefið hon-
um skýrslur þegar þess hefir gerst
þörf. En fyrirkomulag þetta er ekki
heppilegt. Annir bæjarfógetaembætt-
isins eru oft svo miklar við önnur
störf, að það liggur i hlutarins eðli
að litill tími verður umfram til lög-
reglumála.
Hugsun borgarstjóra er sú, á með-
an að embættinu verður ekki skift,
þá sé skipaður sérstakur fulltrúi, sem
eingöngu hafi með lögreglumálin að
gera. Hann vetði nokkurskonar yfir-
lögregluþjónn um leið, og stjórni
réttarhöldum i öllum smærri lög-
reglumálum.
Nefndarinnar er nú að rannsaka
þessa hugmynd ítarlega og færi vel
ef bægt væri að koma lögreglumál-
um vorum í eitthvert betra horf.
Það fer að verða nauðsynlegt i þess-
um bæ, eins og allstaðar annarsstaðar,
að lögregluréttur sé haldinn á hverj-
um degi, en éigi þurfi að biða i
marga daga til þess að útkljá ýms
smámál vegna anna bæjarfógetans.
É" DAGBOK j
T al s í m a r Alþingis:
354 þingmannasfmi. Um þetta númer
þurfa þeir að biðja, er œtla að
nd tali af þingmönnum i Alþingis-
húsinu í sima.
411 skjalaafgreiðsla.
61 skrifstofa.
Lúðrafél. »Harpa« ætlar að skemta
bæjarbúum með hljóðfæraslætti á Aust-
urvelli kl. 8f kvöld ef veður leyfir.
Eunfremur efnir hún til dansleika á
íþróttavelliuum kl. 9 og verða þar
elnnig veitingar eftir þörfum.
Sextugsafmæli átti 1 gær frú Ásta
Hallgrímsson.
Steiuolíu töluverðri hefir lands-
stjórnin látið festa kaup á 1 Amerlku.
Er vonandi að það takist að koma
henni hiugað fyrir haustið.
Saltskip kom til Kveldúlfsfélagsins
í fyrrakvöld. Heitir það Skandia.
Svanurinn kom hingað í gær, með
fjölda farþega frá Breiðafirði.
E.s. »St. Sunnida«, leiguskip frá
stórkaupmanni A. Gudmundsson 1
Leith. um 900 brutto ton að stærð,
kom til ísafjarðar siðastlið. föstudags-
kveld, hlaðið tunnum og salti.
Uppboð var haldið 1 gær á skemdu
smjörlíki. Fyrsta númerinu, kassa með
16 enskum pundum af smjörlíki í,
fylgdi 15 króna boð. Ein kona bauð
10 aura yfir og var henni sleglð það.
Næsta númer var boðið fyrir sama,
en enginn gerði boð 1 það. Uppboðinu
var þá lokið — og fóru menn burt
eftir að hafa klappað konunni, «em
kassann keypti, lof í lófa.
Mesaað i dómkirkjunni kl. 12
síra Bj. J. (altarisganga). Engln síð-
degismessa.
Meðal, ágætt til að ná blettum
úr fötum, fæst i
Verzl. Goðafoss,
Sími 436. Laugavegi 5.
Skemt.
Lifstykki, sem dálitill galli
er á úr verksmiðjuDni, en eru
10 kr. virði, verða seld frá
kr. 4.50—6.75 stykkið.
Vöruhúsið.
Ódýrast!
Jlærföf
Ameriskir karlm. bolir 2.40—2.70.
Makkobolir 1.70.
Alullarpeysur.
Karlm. sokkar frá 0.25—1.85.
Kven ullar-bolir frá 2.00.
Áusturstr. 1
Asg 6. Gunnlaugsson & Co.
Geysir
Export-kaffl
er bext.
vöalumboðsmenn: • %
/
0. Johnson & Kaabsr
^ ^Xaups&aput $
Lipur“handvagn, nýr eða brúkað-
ur, óskast til kaups nú þegar.’R.v.á.
Góðar dagstofumöblur óskast til
kaups eða í skiftum fyrir nýjar, vand-
aðar púðamöblur, sem hafa reynst
of stórar. R. v. á.
J&eiga
2 piltar óska eftir 2 smáum eða
1 einu stóru herbergi frá 1. okt.,aí
miðbænum. R. v. á.
2 herbergi og eldhús óskast frá 1.
okt., i austurbænum, og helst verk-
stæðispláss á sama stað. A. v. á.
Barnlaus fjölskylda óskar eftir 2ja
til ?ja herbergja íbúð, (heil hæð gæú
komið til greina) 1. okt. n. k. Fyrir-
framborgun ef óskað er. R. v. á.
Sölubúð á Siglufiiði er til leigu
á góðum stað. Jósef Blöndahl vísar á.
C£inna
Stúlka eða eldri kvenmaður ósk-
ast nú þegar til 1. okt.
Guðný Ottesen.
Kanpakona óskast á gott heimili
norður í Vatnsdal. Gott kaup. Sem-
jið við Bjarna fónasson Sjómanna-
heimilinu nr. 8, til viðtals kl. 6—7.