Morgunblaðið - 09.06.1918, Side 8
b
iTORn-UNBLAÐID
stjórnin og tekið 200 miljónir að
láni innanríkis og yrði það greitt
smám saman.
Afta miljónir marka af finsku fé
sem var gert upptækt í Þýzkalandi
þegar stríðið hófst, hefðu Þjóðverjar
nú gefið laust aftur.
og
Jláff kaup.
2 karlmenn og tvær stúlknr geta fengið ágæta atvinnu eystra í sun ar
frit ferð með Sterling.
Menu gefi sig fram í dag eða á morgun.
<sJl, v a.
DAQBOX
Gangverö erlendrar myntar.
Bankar Doll.li.S.A. &Ganada 3,35 Póathúa 3,60
Franki franskur 59,00 62.00
Sænsk króna ... 112,00 110,00
Norsk króna ... 103,00 103,00
Steriingspund ... 15,50 15 70
Mark. ... ... ... 65 00 67,00
Holl. Florin ... 1,55
1 7 7 á r eru í dag liðln síðan barna-
ferming var lögboðin á íslandi.
Hé^með tllkynriist heiðruðum almenningi nð eg hefi nú
flutt vinnustofu mina í PóstháíiStraBti 11 norðurendann, og hefi þar
á boðstólum ýms:!r -vörur svo sem: Manicure-etni, hárbursta, hárnet
turbana, andlitspúður margar teg., andlitscreme, handa-áburð, ilmvötn frá
kr. 2.30—2300, ýms naglaáhöld svo sem: þjalir, sköfur o. s. frv. Hið
alþekta hærumeðal Juventine de Junon, Guldhaarvand, Kamilh-extrakt,
Brilliantine og margskonar önnur hármeðul. Mikið úrvat af hári við ís-
lenzkan og útlendan búning.
Vinnustofan er opin á miðvikudögum og laugardögum fiá kl. 10—6.
Aðra virka daga---10—6.
Simi 23, Kristolina Kragh. Sími 23.
Skrifstofur.
Útflutningsnefndin óskar að fá leigð nú þegar eða sem fyrst 2 rúm-
góð herbergi og 1 minna, fyrir skrifstofur, með sérstökum inngangi í
minsta herbergið, méð eða án skrifstofugagna,
Tilboð með lýsingu og leiguskilmálum sendist á skrifstofu
Ó. Benjamínssonar,
(hús Nathan & Olsen).
Guðsþjónuata í dag, 2. sunnu-
dag eftir þrenningarhátíð (Guðspj.
Hin mikla kvöldmáltíð, Lúk. 14) í
dómkirkjunni kl. 11 árd. (Fr. Fr.)
1 fríkirkjunni kl. 2 síðd., sfra
Ólafur Ólafsson.
Iðnó seld. Iðnaðarmannafélagið
befir selt Iðnó. Kaupandinn er H&-
kjnson, sá er nú stýtir þvottahúsinu
»Geysir< við Skólavörðnstíg.
Sjötugsafmæli átti í gær Ól-
afur Ámundason kaupmaður, einn af
elztu kaupsýslumönnum þessa bæjar.
TJm margra ára skeið veitti hann for-
stöðu verzlun J. P. T. Brydes hór i
bæ, sem blómgaðist vel í þá daga.
XJm hríð var hann verzlunarstjóri
Brydes í ' Hafnarfirði, en þegar sú
verzlun hætti, og Bryde dró saman
seglin bór á landi, þá byrjaði Ólafur
verzlun fyrir eigin reiknlng hór á
Laugaveginum og rekur hann hana
enn af miklum dugnaði.
Oddfólagar og allmarglr kaupmenn
bæjarins höfðu dregið flögg við hún 1
tilefni af þessu sjötugsafmæli.
í nokkru af upplagl Morgunbiaðs-
ins i gær hafði dagsetningin misprent-
ast — stóð 7. júní. jþetta ern þeir
beðnir að afsaka, er þan blöð hafa
fengið.
Hjónaefni: Jungfrú Hrefna Einars-
dóttir og Siggeir Einarsson, bakara-
meistari.
Austurasíu-Andersen.
Herra ritstjórii
Leyfið mér með örfáum orðum
að mótmæla grein með fyrirsögn-
inni tiAusíur-Asiu-iAnderseti*, er birt-
ist i dagblaðinu »Vísi« fimtudaginn
24. f. m. Greinin hefir að geyma
óviðurkvæmilegar aðdróttanir að hr.
Andersen, sem hefir, það menn vita
frekast, aldrei 1 orði eða verki gert
landi voru eða þjóð nokkuð til
miska, nema síður sé.
Eg veit ekki frekar en greinarhöf.
X, hvernig stendur á ferðum hr.
Andersens hingað til lands. En flog-
ið hefir það fyrir, að ráðgert sé, að
koma á beinum kornflutningum frá
nokkrum kornauðugum héruðum i
Notður-Ameríku og hingað. Eftir þvi
ætti að reisa kornvörubirgðastöð
einhverstaðar á Suðurlandi eða Vest
urlandi og ef til vill mylnur til að
mala kornið, og flytja það svo héð-
an til Norður- og Vesturlanda. En
slikar fyrirætlanir viðast ekki á neinn
hátt geta verið hættulegar frelsi eða
sjálfstæði landsmanna. En þó nú
hr. Andersen kæmi í einhverjum
öðrum kaupsýslu- og fjárgróða-erind-
nm hingað til lands, þá er það bein
skylda vor að taka honum sem
mentuðum og siðuðum mönnum
sæmir, en gæta allrar varkárni og
hygni i samningnm við hann, og þá*
ætla eg, að oss gæti staðið fremur
hamingja en óhamingja af hingað-
komu hans. Og fossanefndin er
vitanlega svo vel skipuð, að hún
verður væntanlega ekki að gjalti, þó
að hún eigi orðastað við hr. Andersen.
Kynni svo að vera, að einhver þeirra
manna, er nú skipa æðstu stjórn
landsins, hafi áður fyr leitað ein-
hverra samninga við þing íslendinga
fyrir hönd Andersens eða réttara
sagt einhvers félags, sem hann hefir
verið riðinn við, þá er ekki að
óreyndu ástæða til að gera ráð fyr-
ir, að mann þenna bresti vitsmuni,
þrek og samvizkusemi halda
i fullu tré við herra Andersen eða
aðra fjársýslumenn, er hingað kunna
að koma í einhverjum kaupsýslu-
erindum við þing og stjórn. En hitt
má ekki með nokkru móti eiga sér
stað, að gripið sé til svo ódrengi-
legra vopna, að ófrægja menn eða
gera þá grunsamlega áður en menn
vita nokkuð um erindi þeirra.
Virðingarfyist
Civis.
Islandsmál
í blöðum Svía.
Símskeyti.
Khöfn, 6. júni.
Hið alkunna sænska blað »Stock-
holms Tidningen« segir:
Sviar verða að telja sig sem með-
eigendur að þeim menningarfjár-
sjóðum, sem íslendingar hafa varð-
veitt fyrir kynþátt vorn, en Sviþjóð
hrýs hugur við þvl, að stjórnmál
íslendinga taki ranga stefnu.
íslendingar ættu að geta lært það
af öðrum smáþjóðum hve erfitt er
á þessum timum að gæta sjálfstæðis.
ísland hefir meiri hagsmuni af þvl
cJhaupió cfliorgunBl.
Notið
Súrsað kál
og
þurkað grænmutl
frá
AMA
að vera i sambandi við Danmörk,
heldur en af þvi, að vera háð stór-
veldi.
Islendingar vantar skipastól og
þeir geta ekki komist af án hjálpar
Dana. Svíar eru vinir beggja og
vona það, að þeir verði sáttir og
sammála.
»Stockhólms Dagblad* vekur at-
hygli á því, að Island muni vera
óháðara í sambandi við Danmörku,
i bandalagi Norðurlanda, heldur en
það mundi vera sem óháð riki.
Skiinaðurinn getur orðið Dönum
til mikils tjóns og öllum Norður-
löndum.
Finnland hefir nú fengið sjálf-
stæði og sinn eigin blá-hvita fána.
Ea af þvi virðist ætla að verða sú
sorglega afleiðing að þjóðin ^jarlæg-
ist hinar bræðraþjóðirnar á Norður-
löndum. En alt, sem verður til
þess að Norðurlandaþjóðirnar fjar-
lægist hver aðra, dregur úr öryggi
þeirra allra.
íslendinga skortir fé og þeir eiga
greiðast með að fá það i Danmörku.
Erlent auðvald leiðir til yfirdrotn-
unar og þegar íslendingar hugsa
sig betur um, munu þeir komast að
raun um það, að ekki er jafn hættu-
legt að fá fé frá Norðurlöndum, eins
og hjá stórþjóðunum.
Sjálfstæði íslands, eftir það, að það
hefir skilið við Danmörku, er komið
undir náð gtórþjóðanna og háð
samningum þeirra á milli.
Ritzau.