Alþýðublaðið - 31.05.1920, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
Geíið út af A-lþýðuflokknum.
1920
Mánudaginn 31. maí
120. tölubl.
írlaiid.
Khöfn 29. maí.
Frá Loadon er símað, að síðan
um páska hafi 400 lögregluskálar
verið brendir og 150 skattaskrif-
stofur rændar á írlandi.
Xrassin í £onðon.
Khöfn 29. maí.
Frá London er símað, að Krass-
in sé þangað kominn til að semja
við nefnd Bandamanna.
Jolsivikar og fersar.
Khöfn 29. maí.
Daily’ Express birtir skeyti frá
Konitantinopel, þar sem sagt er,
að bolsivíkar búist til að taka
Perísu (af Bretum), til að geta
beitt sem bezt áhrifum sfnum í
-Afghanistan og Indlandi.
forð kosinn.
Khöfn 29. maí.
Símskeyti frá Washington herm-
ár það, að Ford sé kosinn (sbr.
grein hér í blaðinu fyrir nokkru
um kosningar og mútur).
jfírmenía.
Khöfn 29. maí.
Armeningar hafa neitað að sam-
þykkja tiilögu öldungaráðsins um
utanríkisnefnd.
Dönskn verkjöllin.
Khöfn 29. maí.
Verkfalli því, sem verkamanna-
sambandið danska boðaði, verður
frestað í viku.
Erlend mynt.
Khöfn 29. maí.
Sænskar krónur (100) kr. 129,50
Norskar krónur (100) — 108,50
Þýzk rnörk (100)
Pund sterling (1)
Frankar (100)
Dollar (1)
15,00
23,45
46,00
6,01
Verkjölt á Spáni.
Khöfn 29. maí.
Frá Madrid er síma'ð, að á Spáni
standi nú yfir verkföll mikil.
ítalir óánægðir.
Khöfn 29. maí.
Le Matin segir, samkv. sím-
skeyti frá Róm, að ítalir séu
óánægðir með hluta sinn af hern-
aðarskaðabótunum, sem er 10%.
Millerand haröur.
Khöfn 29. maí.
Frá París er símað, að Mille-
rand setji samþykt Folkestone-
samningsins á oddinn. (Fer frá,
ef hann ekki verður samþyktur).
Pölverjar ia lægri llnt.
Khöfn 29. maí.
Frá Berlín er símað, að almælt
sé, að Pólverjar hafi beðið ósigur
við Minsk. Akafar orustur standa
yfir við Vilna.
Wilson.
Khöfn 29. maí.
Frá Washington er símað, að
Wilson hafi neitað staðfestingu
á samþykt þingsins um frið við
Miðveldin.
Bókafregn.
Tímarit fsl. samvinnu-
félaga. Ritstj. JónasJóns-
son frá Hriflu. XIII. ár,
IV. hefti.
Þetta hefti tímaritsins er hið
síðasta í XIII. árgangi þess, og
byrjar á grein eftir ritstjórann,
sem heitir Heima og erlendis. Er
greinin yfirlit yfir árið 1919 og
fróðleg á marga lund, enda vel
skrifuð, eins og annað eftir höf-
undinn. Meðal annars segir hann
um verzlunarmál og pólitfk:
„Fram á sfðastliðin ár hafði
það þótt óyggjandi vísdómur hér
á landi, að verzlunarmálin kæmu
ekki við hinum svo nefndu stjórn-
málum. Þessu trúðu margir menn,
sem ekki litu nema á yfirborö
hlutanna.
En stríðið skar úr þessu á ann-
an veg. Þingið og stjórnin neydd-
ist til að taka nokkurn hluta
verzlunarinnar í sínar hendur, til
að bjarga alþjóð manna frá ber-
sýnilegri hungursneyð og óhæfi-
legu tjárláti til milliliðanna. Við
þetta reis kaupmannastéttin upp