Alþýðublaðið - 29.12.1928, Side 3
ALÞ.VÐUBLAÐIÐ
3
ast samningatilraunir næstu dag'a.
Er aðstaða félagsins góð, því að
næstum alt verkjíiafólk þorpsins
er annaðhvort komið eða kem-
fur ibráðlega í félagið. Eru félags-
menn ráðndr í að neyta nú sam-
takanna tál að koma fram veru-
legum umbótum á, kjörum sínmn.
Stjórnán er skipuð ötulum mönn-
um og áhugasömum,
Lág vinnulaun greidd með
dýrum vörum, — þetta er jafnan
vottur vanmáttugra verklýðs-
samtaka ' eða engra. Hækkandi
kaup og skilvís greiðsla í pening-
upi eigi sjaldnar en vikulega er
aftur á móti . votitur öflugra,
starfandi verklýðssamtaka.
Svo mun það verða á Patreks-
firði.
„Baustkvöíd við haíið“.
Sögur eftir vestur-ís-
lenzka ' skáldið Jóhann
Magnús Bjarnason. —
Fyrra hefti. Ársæil Árna-
son gaf út.
Höfundurinn er islenzkum les-
endum áður kunnur. „Eiríkur
Hansson" vakti talsvert umtal á
sínum tíma. — Sögur þessar —
og sögur J. M. B. yfirleitt — eru
um íslendinga erlendis, oftast í
Ameríku, um afrek þeirra eða
"sérkennilega atburði, sem fyrir þá
koma. Ást höf. á Islendingum
speglast í isögúm hans. Hins veg-
ar er meiri hlution af þeim. sög-
um, sem i þessu hefti eru, fbf
keimlíkar hver annari og þær
flestar þannig samsettar, að fyrst
er tiltölulega langur inngangur,
eni aðalefnið i hniút undir lok
sögunnar. Pá hefði verið betra, að
höf. hefði , slept sumum sviga-
skýringum, sem engar skýringar
eru, t. d.: ,,Eni þegar kvöldverði
var lokið (það kvöld)“, á 88. bls.
Langbezta sagan í heftinu er
að mínu áliti „íslenzkur blaða-
drengur", eina barnasagan, sem í
því er. Hún er um íslenzkan
dreng, sem tekur umko-mulausan
smádreng í sína. umsjá og reynist
honum ósvikinn vinur. Er lýs-
ingin á drengjunum góð. í þeinri
sögu gætir lítt eða ekki annáls-
formsins, ,sem margar hinna eru
skrifaðar. í. Sú saga ætla ég að
sé yel þess verð að vera valin í
sýnirit ; íslenzkra hókmenta, og
væri þá bæði vel séð fyrir hlut
höfundar og lesenda.
Yfirleitt ber að dæma menn
eftir því, sem þeir gera bezt.
Gudm. R. Ólafsson
út Grindavík.
Erlemd siiaaskeyti.
Khöfn, FB„ 28. dez.
Kaupgjaldssamningur i Osló.
Frá Osló er símað: Samning-
ur á milli verkamanna og at-
vinnurekenda var undirskrifaður
á aðfangadag jóla. Núverandi
launakjör í jámiðnaðdnum verða
óbreytt um næstu tvö ár. Norsk-
ar skipasmíðastöðvar hafa fengið
margar nýjar pantanir.
Óánægja með einvaldinn
spánska.
Frá Berlín er símað: Skeyti frá
Madrid herma, að alvarleg deila
sé komin upp á milli Spálnar-
stjörnar og liðsforingjaefnanna í
Segovia. Hundrað liðsfbringjaefai
í Segovia voru handtekin fyrir
mötþróa gegn foxmanni Rivera-
flokksins. Margir liðsfbrilngjax
hafa mötmælt gexðum stjómar-
innar og hafa nokkrir þeirira
vexið handteknir fyrir að neita
að hlýða skipunum hennar.
Launadeilan í pýzkalandi.
Frá Berlín er símað til Kaup-
mannahafnarblaðsins „Social-de-
mokraten'*, að verkamenn í Bre-
merhaven, Liibeck og Kiel hafi
felt að ganga að gerðardóminum
i vjnnudeilunini í skipasnúðaiðn-
aðinum. Álíta verkamenn launa-
hækkunina ófullnægjandi.
Kvefpestin í Ameriku.
Frá Washington er símað:
Verzluna rráöuneyti ð tilkynnir, að
tvö þúsund manns í 78 bæjum
í Bandaríkjunum hafi ,dáið úr
„inflúenzu" síðast liðna viku.
Frá Montrœil er sirnað: „Inflú-
enzan" er farin að breiðast út í
Kanada. Hundrað maima hafa
dáið i Montreal.
Frá ísafirði.
ísafírði, FB„ 28. dez.
„Kjnnarhvolssystur" voru leikn-
ar hér í gærkVeldi og fyrrakvöid.
Ingibjörg Steinsdóttir lék Ulrikku,
Eva Pálmadóttir Jóhönnu, Elías
Halldörsson bergkonunginn, Sa-
múel Guðmundsson Axel og Hali-
dór Ölafsson Jóhann. Leikurinn
tókst yfirleitt vel og aðalhlutveik-
ín voru vel ledkin. Leiktjöld eru
máluð af Sigurði Guðjónssyni
hér. Útbúnaður leiksviðs er góð-
ur.
Tvreir vélbátar Samvinnufélags
Isfirðinga em komnir frá Noregi,
þriðji væntanlegur í dag. Hinir
tveir á leiðinni. Bátamir eru
stærsfír af fiskibátum hér.
Látinn er Jóhann Pálsson, fyrr
bóndi á Garðsstöðum. Hann var
á sjötugsaldri.
Nýtt dilkakjot
ísl. sijor.
Kanpfélap
Orfmsnesinga.
REYKJAVÍK, SÍMI 249.
Níiðursoðið: Ný framleiðsla,
Kjöt í 1 kg. og V* kg. dösum.
Kæta í 1 kg. og Va kg. dósum.
Bæjarabjúgu í 1 kg. og Va kg.
dósum.
Fiskbollur i 1 kg. og V* 2 * * * * * 8 kg.
dósum.
Lax í V2 kg. dósum.
Kaupið og notið þessar inn->
lendu vörur.
Gæðin em viðurkend og al-
pekt.
Reykinganienn
vilja helzt hinar góðkunnu ensku
reyktóbaks-tegundir:
Waverley Mixtare,
Glasgow ------------
Capstan —-----------
Fást í öllum verzlunum
Frá Vestmannaeyjiim.
Vestm.eyjum, FB„ 28. dez.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs var
samþykt á hæjaxstjómarfundi 13.
dez., aíls 277 947 kr„ þar af nið-
urjöfnun aukaútsvara 212 447 kr.
Nýr vélbátur, „Fylkir", 40 smá-
lestir á stærð, kotn hingað fyrir
jól. Báturinn var keyptur í Sví-
þjóð. Eigendur eru fjórir ungir
Vestmannaeyingar og eru þeir all-
ir á bátnum. Ferðin gekk vel. *
Sjaldan er nú farið til fiskjar.
Afli tregur. Bátar héðan búast
sem óðast til að fara til Sand-
gexðis á línuvertíð.
Einn nýkeyptur ísfirskur bátur
kom hingað í gær frá Svíþjoð..
Vél í ólagi. [Alþýðublaðið átti
í moxgun símtal við kunnan mann
í Vestmannaeyjum, og var honum
ekki kunnugt um, að vél bátsins
hefði verið eða væri í ólagi.]
aura gjald-
raælis- bif-
reiðar alt af
til leigu hjá
Steindóri.
Lægsta gjaid í borginni.
Sjómannafélag Reykjavikur.
Sjömenn þurfa nauðsynlega að
sækja fundinln í kvöld svo vel, að
enginn félagi, sem unt er að
koma, verði eftir. Eins og áður
hefir verið skýrt frá,. fer fram
atkvæðagreiðsla á fundinum um
tillöguT sáttasemjara ríkisins um
launakjör á togurum. Fundurinn
verður í Bárusalnum og byrjar
kl. 8.
Um á&ginn og ireginn.
Næturlæknir
verður i nótt Ólafur Helgason,
Ingólfsstræti 6, sími 2128 (í stað
Níels P. Dungals, sem er utan-
lands), og aðra nótt Daníel Fjeld-
sted, Lækjargötu 2, símar 1938
og 272.
Næturvörður
er næstu viku í lyf jabúð Lauga-
vegar og Lngölfs-lyfjabúð.
Messur
á morgim: 1 dömldrkjunni kl.
II séra Friðrik Hallgrímsson, kl.
2 barnaguðsþjónusta, séra Bjarnt
Jönsson. í frikirkjunni kl. 2 séra
Árni Sigurðsson. í Landakots-
kirkju og Spítalakirkjunni í
Hafnarfirði kl. 9 f. m. hámessa,
kl. 6 e. m. guðsþjönusta með
predikim. — Á Njálsgötu 1 kl.
8 e. m. kristileg samkoma. Allir
velkomnir. — Hjálpræðisheriim:
Samkomur kl. 11 f. m. og 8 e. m.
og kl. 2 sunnudagaskóli.