Alþýðublaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 24.12.1928, Blaðsíða 11
« Halldóra reis á fætur og fitl- aði við svuntuhomið. — Hefir . . . hefir oddvitinn ekkert talað um mig við þig? — Ónei; það er nú orðið svo Jangt síðan ég hef séð hann, bless- aðan ððlinginn þaran ama. — Ég . . . ég vil, að þú vitir það, Gunnar, að hann . . . hann vill . . . viil hafa mdg burt úr sveitinni. . . . Ég er búin að biðja þá þrjá að taka mig, og enginn þeirra vildi gexa það. Gunnar rak upp á hana stór augu. ■— Já; hann vili ekki að ég eignist hér sveit. Gunnar hallaðist fram á hend- ur sér og virtist hugsá. En bráit stóð hann á fætur og stakk hönd- unum í buxnavasana. — Ég sæki þig á skildaganum þínumi í vor. Það er ákveðið mál, svo sárgrætilegt sem mér þykir nú að verða að gera á móti blessuðum oddvitanum okkar, eftir alla þá umhyggju, sem hann hefir sýnt mér og minum. — Og þö að oddvitinn komi, þegar hann fréttir þetta? Gunnar hristi höfuðið. — Veri hann alt af velkom- Snn, blessaður! En það breytir engu uim þetta; Dóra- auimnginn. „Framar ber að hlýða guði en mönnum'' — eða svo segir séra Helgi i sinni bók. Halldóra stóð um stund eins og agndofa. Svo leit hún ó Gunn- ar og augun ljómuðu. — Þetta vildi ég geta launað þér, Gunnar, sagði hún og rétti honum hendina. — Ekkert að launa. Þakkaðu þei-m, sem þakka ber og þig hafa sent hingað. . . . En nú ætla ég að biðja konuna að koma með skolp fyrir þig í bolla. . . . Gunnar fylgdi Halldóru til sjávar, þá er hún hafði drukkið kaffið. Hún kvaddi hann inni- lega, ‘ för síðan af stað og tók ærið rösklega í árarnar. ... En Gunnar stóð í fjöru og horfði á eftir henni. Ja, þvílikur kvenmaður! Sú gat nú damlað, þó að hann kældi. Það veitti heldur ekki af, þegar hann rak úr sér suðvestan spýj- urnar á haustin. . . . Og líklega mundi þessi manneskja geta sett hné undir bát í fjöru. . . . Hm. ... Að hann skyldi nokkum tíma fara að efast um það, að guð og lukkan greiddu fram úr fyrir honum. . . . Þau hættu ekki við hálfnað verk. Ónei, nei. VIII. Þegar sú fregn barst til Einars oddvita, að Halldóra færi að Máfabergi, varð hann alveg hissa. Hann sat lengl þögull og horfði því nær þunglyndislega niðui' fyrir fætur sér. . . . Nei; hann hafÖi ekki talað við Gunnar; ekki varað hann við að taka Halldöru. . . . Og n.ú var svona komið. Og oddviti stundi þungan. ... Ja; ekki vissi hann, hvort hann átti ALÞÝÐUBLAÐIÐ að fara. að eyöa orðum við hann Gunnar! En það varð nú úr, að oddviti fór út að Máfabergi. Þegar þang- að kom, vax Gunnar að koma af sjó með fullorðinn landsel í bátnum. Oddviti xeyndi bæði með illu og góðu að koma Máfabeigs- bóndanum í skilning um, að það væri ilt fyrir hreppinn, að Hall- döra ynni sér þar sveitfesti, en alt varð árangurslaust. Gunnar blessaði oddvita og þakkaði hon- um alla hans umhyggju, taLaði um guð og lukkuna, soldátabyss- una og selinn, en gat ómögulega iofað því að taka ekki Halldöru. Og oddviti hvarf heim, sár og reiður. Þótti nú flestum Gunnax gerast erfiður hfeppsn.efndinni og öþarfur sveitinni. Fékk odd- viti enn á ný að heyra, að hon- um hefði verið nær að taka svo ærlega i taumana í byrjmi, að Gunnar hefÖi ekki reist bú á Máfabergi og gengið að eiga Ás- gexði. Hafði oddviti1 af þessu mikla skapraun, og bölvaði hann Gunnari oft og innilega. Halldóra flutti að Máfabergi á tilskildum tíma, og vaxð nú Gunnari gott til fanga, því að Halldóra reyndist jafn liðtæk á sjó og landi. En ekki hafði hún verið árið út í nýju vistimni, þegar þau skelfilegu tiðindi bár- ust bæ frá bæ í allri Höfðavík, að fædd væru þrjú börn á Máfabergi — og væri Halldóra möðir að einu þeirra. Hrepps- nefndin hélt þegar fund á heimili oddvita, og vaxð það að ráöi, að reynt skyldi að fá prestinn til þess að sjá um, að Halldóra flytti þegar í stað frá Máfabergi. Fór oddviti með einum samnefnd- armanni sinum á fund prests. En prestur var þá ekki sárlega þæg- ur ljár í þúfu. Hann sagði, að' náttúrlega mundi hanin áminna Gumnar og Halldöru með kristi- legri alvöru, en annars þyrfti nú Gunnar nauðsynlega að hafa vinmUkonu, og ekki mundi vera að því hlaupið að fá manneskju í baslið og baxnahópinn á Máfa- bergj. Nú, aÖ vissu leyti væjri það líka hreppsnefndarinnar sök, að Halldóra hefði farið til Gunn- ars. . . . Fóru hreppsnefhdar- mennirnir svo frá presti, að þeir fengu ekkert loforð um hjálp í málinu, — en það sveið odd- vita mest, að hann heyxði ekki betur en það hálfgert hlakkaði í guðsmanninum yfir óförum hreppsnefhdarinnar. Sá oddviti, að hann hafði ekki farið hyggit- lega að ráði sínu, þá er honn hafði hleypt þykkju í prest — og iðraði hann þess nú sárlega. . . . En þó hét hann með sjálfum séír, að hann skyldi reyna að auð- mýkja prest, ef tækifæri gæfist. Oddvitá og Jöni á Hóli, sam- nefndarmanni hans, koim nú sam- an um, að boða Gumnar á fund sinn og tala ærlega yfir hausa- mötunum á honum. Hann hlaut þö að skammast sín, mannhelvítið — ja, hver vissi nema að hann skammaðist s;n svo, að unt yrði að fá hann til að láta Halfldóru fara. Gunnar lét ekki standa á sér. Hann kom strax og hann fékk boðin. Hreppsnefndarmenniinir heilsuðu honum kuldalega og skipuðu honum að koma með sér fram í stofu. Sagði oddviti hon- um aö setjast og tók sér sæti beint á móti honum. Jón settist og þannig, að hann ætti sem hægast meö að hafa áhrif á Gunnar með svip og augnaráði’. Gunnar var sakleysislegur og rólegur, tók upp pípu sína og tróð í hana tóbaki. Svo skimaði hann um stofuna, skoðaði hana hátt og lógt. — Ef maður hefði nú svona stofu á Máfabergi, sagði hann og velti vöngum. Oddviti leit til Jöns og kinkaði kolli, eins og hann vildi segja: — Þarna heyrirðu nú, hvernig hann er! -— Ja; mikið mætti maður skammast s;n, sagði Gunnar enn fremur. — Ja; ég segi það nú barasta. Mikið mætti maður skammast s;n, þegaT maður kem- ur á svona heimili úr bölvuðum eiði þrengslunum á Máfabergi! — Þar sagðirðu þó einu sinni satt, Gunnar, sagði oddviti svo hörkulega, sem honum var unt. — Mikið mættu menn eins og þú skammast sín, ef þeir hefðu vit á! — Satt segirðu, blessaður! Það er bölvuð skömm að því, hvernig maður býr. — Ég átti nú ekki við það;. Húsin á Máfabergi eru vlst full- góð fyrir þig. ... En það var annað. Það er svo sem ekkert ljótt, sem maður fréttir af þér! Gunnar hvítmataði upp á hann augunum. — Nei; það gengur alt saman vel. — Vel! Já; ekki spyr ég nú að! — Já; þeim heilsast báðum hreint furðanlega, Ásgerði minni og Halldóru aumingjanum. . . . Og blessaðir hornungarnir eru frískir og rétt skapaðiff. Oddvitinn skalf. Og hann leit til Jóns á Hóli. En Jón virt- ist ekki eins svipharður og hann hafði verið. Það var eins og hann væri meira hissa en reiður. Og oddvita sárnaði. Það ætlaði þá vfst ekki að verða mikill styrkur að honum Jóni. . . ,. En Gunnar skyldi nú hafa það! Og oddviti spratt upp úr sæti sfnu og fcrepti hendurnar um borðröndina. — Sérðu það virkilega ekki, mannkvikindi, hvert þetta stefnir? Er þér varnað alls vits og áLLrar sómatilfinningar? Og hefirðu ekki minsta snefil af. ábyrgðair- tilfinningu? Sérðu ekki, hvaða voði og svívirðing þetta er? Hleð- ur fyrst niður börnum ineð kon- unni og svo farinn að eiga höd- kxakka! Gunnar var nú bínnn að kveikja 11 í pipunni. Hann þrýsti hölcunnii bfan í bringuna og hvirflaði um sig þykkum reykjarskýjum. — Þetta er svo sem ekki nema satt og rétt í alla staði, sagðf hann auðmýktarlega. — Það var ekki sem þénugast, að þau skyldu verða þrjú. En þeim lof, sem lofið ber. Það var guðs og lukk- pnnar handleiðsia, að ekki fóH vér en fór. Oadvitinn gapti. Og nokkur augnablik stóð hann grafkyr og þögull. Svo sagði hanh Lágt og mæðulega: — Ja; guð almáttugur miskunni mér! Mi-i-k-ið er að mega ekki' flytja svona manndjöful út í hafis- auga. Gunhar tók út úr sér pipuna og ininiieikinn og sakleysið ljómaði úr augum hans, þá er hann leit á oddvitann. — Það er sárgrætilegt, vinurv að þú skulir verða að hafa alt þetta ergelsi út af mér og minnf velferð. . . . En maður getur þö huggað sig við það, sem ég nefndi áðan, að guð og lukkan stýrðu því þannig, að ekki fór. ver en för. Það var hvorki mér né Döru aumlngjanum að þakka, að það urðu ekki tvíburar líka hjá henni. Oddvitinn horfði eitt andartak á Máfabergsbóndann, en leit síð- an á Jón á Hóli. . . . En hvað var þetta? Jön var lagstur fram á borðið með olnbogana undir hausnum. Hann var þó v;st ekki að hlæja? Og oddvitinn brá við,, rauk fram að hurðinni og opnaði. Svo benti. hann skjálfandi hendi á dyrnar og horfði tindrandi augum á Gunnar. — Ú-ú-t! Oddvitinn sagðá að eihs þetta eina orð. Gunnar tautaði eitthvað í skeggið. Svo stakk hann pípunni í vasa sinn, tók húfu sína og labbaði lúpulegur fram í göngin. — Vertu sæll og blessaður — og þið báðir tveir, sagði hann síðan blíðlega. Oddvitinn skelti ’svo hart aftur hurðinni, að þilið skalf. Svo þaut hann að glugganum og opnaði. Það var ekki vanþörf á að hleypa út Máfabergsfýlunni. . . . Því næst snéri hann sár að Jóni, sem nú var risinn upp og var hálfveg- is skömmustulegur á svipinn. • — Það vax ekki lítil hjálp að' þér! Það sér á, að þú ert trún- aðarmaður sveitarinnar. Þú hlakkar líklega til þess, að það fæðist tvö, þrjú börn á Máfa- bergi órlega! Jón leit í augu oddvitanum. — Ég er nú ekki annað en manneskja, þó ég sé aldrei nema. í hreppsnefndinni. IX. Árin liðu, en ekki leitaði Gunn- ar til hreppsnefndarinnar. Hanin virtist nú líka, eins og vera bar, halla sér aðallega að konunni, því að hún átti barn á hverju ári, en Halldóra bætti ekki við sig nema

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.