Morgunblaðið - 29.07.1925, Side 5

Morgunblaðið - 29.07.1925, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ Aukabl. Morgunbl. 29. júlí 1925. Seðlabankinn. Rœða Björns Kristjánssonar alþingísmanns i Efri deild Alþingis 27. april s. I. Jeg ætlaði mjer ekki að taka til máls í þessu máli, en láta álit mitt nægja. En þar sem mjer finst, að hæstv. fjármálaráðherra (J. Þorl.) hafi tekið því svo f jarri að láta athuga þetta stórmál í nefnd til næsta þings, sem jeg tel bráðnauðsynleg't, þá vil jeg þó segja nokkur orð. par sem umræðurnar eru orðn- ar svo langar um þetta mál og að framsögumaður meiri klutans (S. E.) hefir svo rækilega svai’að því, sem fram er komið til and- mæla, þá vil jeg aðeins fara fá- einum orðum um þau atriði, sem hæstv. fjármálaráðherra (J. Þorl.) virðist leggja mesta áhersln á. pað sem hæstv. fjármáíaráð- herra virðist leggja mesta áherslu á, er, að seðlabankinn geti haldið genginu sem stöðugustu næstu ár- in, og að bankinn safni sjer er: lendis fje í þessu skyni. Ennfrem- ui að draga úr lánveitingum, er þörf er á, og að kjáfpa í viðlög- um. Og þetta telur hæstvirtur fjármálaráðherra gerlegt, ef bank- inn liafi inikið fje til umráða. petta virðist mjer vera mergur- inn málsins lijá honum i öllu því, sem hann hefir sagt, og á því byggir hann andstöðu sína gegn sjerstakri seðlastofnun eða sjer- stökuin seðlabanka, sem hafi of lítið afl til að framkvæma þetta. Mjer virðist því vera aðalatrið- ið í þessu máli, að athuga gaum- gæfilega, livort þessar höfuðá- stæður, og í raun og veru einu ástæður, eru á nægum og traust- um rökum bygðar. I nefndaraliti minni hlutans hefi jeg leitt hjer rök að því, að reynslan liafi sýnt, að seðlabankar erlendis geti ekki ráðið við gengið. Og liafa þeir þó miklu meiri möguleika til þess en bankar vorir geta nokk- urn tíma haft. Og káttv. frsm. meiri hl. (S. E.) hefir jafn greini- lega sýnt fram á, að seðlabank- arnir erlendis geti ekki gert þetta. pað eina, sem þeir geta gert, er að sjá um að seðlar þeirra sjeu löglega gulltrygðir, svo þeir missi ekki traust almennings og verið þó noklkur hemill á því, að of mikið sje lánað. Við háttv. framsögurnaður (S.E.) og jeg höfum fært skýr Tök að því, að SVona reynist þetta erlendis. En hvernig er vor eigin reynsla í þessu efni? Hún ætti þó að vera óiýgnust. Síðan árið 1905 höfum vjer liaft seðlabanka. Bankastjór- ar þess banka hafa verið það vanir slíkum störfum, að menn munu ekki geta gert sjer vonir um, að bankastjórar yfirleitt í voru landi reki öllu betur seðla- bankastarfsemi, en stjórn þess banka gerði, og dettur mjer þó ekki í hug að liæla henni fyrir góða seðlaban'kastjórn. Að lögum hafði banki þessi sterka yfir- stjórn, bankaráð 7 inanna, með sjálfum forsætisráðherra jafnan sem formanni, og þrjá þingvalda bankaráðsmenn. Á árunhni 1905 til 1918 gekk alt í ljúfa löð. — Gjaldeyririnn eða seðlarn'n- li.jdd- ust í fullu verði. En ár.ð 1919 — eitthvert það besta Vorslun- arár, sem vjer höfum hafj, fyrir utan árið í fyrra — þá ske5i það, að seðlabankinn komst í skuld er- lendis, sem nam 8,719,826 kr. Bankinn hafði sem sje alls ekki gætt þess að nota góðærið til þess að safna sjer fje erlendis og að draga úr útlánum, til þess að geta mætt lakari árum. En þrátt fyrir þetta fellur ltrónan íslenska ekki þetta árið. Næsta ár, 1920, getur bankinn heldur ekki borgað neitt að mun. Skuldir erlendis voru þá í árs- lok kr, 7,704,233,00. Upp frá því fara seðlar bankans að falla. Og enginn efi er á, að bankinn hefði þá orðið að leggjast niður, hefði landssjóðurinn ek'ki komið honum til lijálpar. Og alveg eins hefði •farið fyrir Landsbankanum litlu síðar, eða 1923, ef ríkissjóðurinn hefði ekki hlaupið undir baggann. Slík er okkar reynsla! En nú kunna menn að segja, að það væri von, að svona færi, þar sem bankinn kafi haft svona lítið fje að vinna með, og er þá rjett að athuga það. petta sama ár, 1919 í árslokin, hafði bankinn hlutafje 4^ milj. kr., sparisjóðsfje -yfir 12 milj. kr. og lilaupareikningsfje 9 milj. petta er allálitleg upphæð, 26 milj. kr. eða álíka og Landsbank- iun hafði í árslok 1923. En á ár* inu 1920 missir bankinn nálega helminginn af þessu sparisjóðs- fje, en hlaupareikningsfjeð vex um hálfa miljón kr. En þrátt fyr- ii þessa reynslu vor sjálfra, á að þyggja nýjan seðlabanka á sama grundvellinum og honum lakari, þar sem Landsbankinn hefir nú helmingi meira sparisjóðsfje. Og á sparisjóðsfjenu á þá aðallega að byggja gengið á krónu vorri, og að byggja inneignina erlendis. Tel jeg þetta of veikan grund- völl. En svo' kemur hitt atriðið, sem liáttv. frsm. (S. E.) hefir svo rækilega bent á. Islandsbanki á nú að draga inn eina miljón kr. árlega, og hefir þegar dregið tvær inn. Út úr frv. eru dregin þau tryggingarákvæði, sem sett voru fyrir því í frv. í fyrra að ís- landsbanki geti endurselt víxla í Landsban'kanum fyrir þau kjör, sem geta borgað sig fyrir banka, og að geta fengið þar stórt reikn- ingslán. Bankinn er því samkv. frumvarpinu skilinn eftir alveg í lausu lofti, þó hann eigi að draga inn eina miljón króna á ári í seðl- um fyrst um sinn. íalandsbanki á því alt undir náð eða ónáð keppi- nauts síns, Landsb., hvort hann get ur selt þar víxla sína eða ekki. Og þessi keppinautur íslands- banka á éftir sem áður að vera keppinautur hans á öllum svið- um, sem er gagnstætt því, sem gerist um seðlabanka erlendis. Vel getur verið, að hæstv. fjármála- ráðherra, með sínum mikla dugn- aði, geti greitt úr þessu í bili, en jeg get ékki vænst þess, að hann verði mosavaxinn í þessari stöðu, fremur’ en aðrir fjármálaráðherr- ar. Landsbankinn er þannig bygð- ur, að hann getur aldrei orðið seðlabanki á þann hátt, sem seðla- bankar erlendis eru, sem eiga alt á því þurra, og reka að meira leytinu þau viðskifti sem aðrir bankar reka ekki. peir eru því á sárfáum sviðum keppinautar hinna bankanna. En jeg sje ekki betur en að Landsbankinn verði að hafa allar klær í frammi til þess að græða fje upp í töp sín og skuld- ir, og að sú samkeppni geti orðið svo illvíg, að aðrir bankar kjósi heldur að búa að sínu, en að eiga líf sitt eða tilveru undir seðla- bankanum. Við erum fámenn þjóð; hver þekkir annan, og baráttan er liörð fyrir tilverunni. Menn eru því altaf með lífið í lúkunum um það, að aðrir skaði þá ekki. Og sjálfsbjargarleiðunum vilja menn halda sem heimulegustum. Jeg tel því víst að hinir betri viðskifta- menn bankanna kæri sig ekki um að láta víxla sína t. d. í íslands- banka fara til Landsban'kans, sem allir vita að er hreinn keppinaut- ur íslandsbanka. pessar kringum- stæður geta valdið því, að Is- landsbanki verði með hröðum skrefum að draga inn lán sín, svo að liann geti með eigin fje full- nægt þörfum sinna góðu viðskifta- manna. Og auðvitað verða þeir minni máttar framleiðendur og aðrir fyrir því að missa samband sitt við íslandsbanka. En hvar fá þeir þá hjálp? Tæplega hjá Lands- bankanum, sem á nú að fara var- lega. Hjer er því stefnt til að minka framleiðsluna, minka út- flutninginn. Og hvaða áhrif hefir það á gildi krónu vorrar og hag landsins? Jeg hefi velt þessari spurn- ingif fyrir mjer, og jeg sje ekki betur en að íslandsbanki verði að draga lán sín inn, jafnótt oghann dregur inn seðla sína. Hann verð- ur því að leggja alla áhersluna á, að gera sig óháðan Ikeppinaut sínum. Og það inundi- jeg gera, væri jeg bankastjóri í þeim banka. En vitanlega hlýtur það að hafa sorglegar afleiðingar fyrir vio- skiftalífið í landinu og hag lands- ins yfirleitt. Jeg teldi enga á- byrgð hvíla á mjer til þess að bjarga þeim minni máttar fram- leiðendum og öðrum, ef jeg væri búinn að sjá, að þingið sjálft hefði ekki hugsun á því eða vilja til þess. En öllu þessu mætti afstýra, ef seðlastofnunin væri sjerstök eða að stofnaður væri sjerstakur seðla- banki, sem styddi báða bankana og hefði annaðhvort lítil viðskifti önnur en að styðja bankana, eða alls engin, eins og seðlastofnun m)ín var fyrirhuguð í fyrra, þá gætu báðir bankarnir unnið með fullum krafti, eins og hingað til, án þess að nokfkur truflun komist á. Og þessi skoðun mín hefir skap- ast af reynslu og minna af bók- viti, því það er ekki einhlýtt. í þessum sökum. Jeg sný mjer því næst að Lands- bankanum, sem eftir frv. á að verða seðlabanki. Ef hann starfar sem raunverulegur seðlabanki, þá hlýtur hann þegar í stað að tak- marka mjög lánsstarfsemi sína, eins og aðrir seðlabankar gera. Hann má því hvorld lána fje til vafasamrar útgerðar, hæpinnar verslunar eða yfir höfuð til vafa- samra fyrirtækja. Tryggingarnar verða að vera af bestu tegund, ef hann á að verða sem seðlabanki. Nú hefir hann síðarí árin lánað bankinn, og geri jeg ekki ráð fyr- ir, að órannsökuðu máli, að það sje nema lltið brot. af útistand- andi skuldum hans um áramót, sem sjeu svo vel trygðar, eða lán- að til svo stutts tíma, að sam- rýmst geti seðlabanka. Sá banki hlýtur því einnig að draga saman seglin, svo framárl. sem hapn á að reka viðskifti sín álíka tryggi- lega og aðrir seðlabankar gera, sem vitanlega verður að gera kröfur til. En það skapar nýja áhættu fyrir gildi íslenskrar kr., áhættu fyrir því, að minna sje flutt út. Jeg játa, að hugsjón hæstv. fjármálaráðherra er fögur og í sjálfu sjer rjett, að vilja láta seðlabankann safna inneignum er- lendis á góðu árunum; en það má ekki gerast á þann hátt, alt í einu að hefta frainleiðsluna, eins ; og hjer mundi verða raunin á. : Sjerstakur seðlabanki gæti unnið nokkuð af þessu hlutverki, og bankarnir sjálfir, þó þeir enga seðla liafi. En enginn banki getur þó mætt verulegum gengis- sveiflum, eins og reynslan sýnir. Á meðan við Björn Sigurðsson vorum bankastjórar, árin 1910— 1918, átti Landsbankinn altaf inni erlendis um nýjár, og ipneignin óx, eftir því sem árin liðu og bankaviðskiítin Stækkuðu, eins og sjá má af bankareikningunum fpá þeim árum. Þannig eiga bankarn- ir „að disponera“, ef rjett er að farið, og það er mögulegt. Og það er altaf mögulegt á vemju- legum tímum. Nú er á milli tvenns að velja: að stofna sjerstakan seðiabanka, sem útheimtir minna fjárframlag frá ríkissjóði, en ef Landsbank- anum verður afhentur seðlaút- gáfurjetturinn, nýjan seðlabanka, sem truflar ekki í neinu viðskifta- lífið eða starfsemi bankanna, en styður þó hvorttveggja, — eða þá hitt, að afhenda Landsbank- anum seðlaúfgáfuna, með allri þeirri truflun, sem það veldur, og sem jeg hefi nú stuttlega lýst. Yalið ætti ekki að vera vanda- samt, þótt seðlabfenkinn sje lítill, þá getur hann unnið þrent: að halda seðlum sínum nægilega gull trygðum, svo almenningur hjer og erlendis geti haft fult traust þeim; í öðru lagi a$ verka sem hemill á of ðra framtakssemi manna, að of nýkið af seðlum sje gefið út í landinu; og í þriðja lagi að ráða vöxtunum í landinu. petta tel jeg höfnðatriðin. Hitt vegur minna í mínum aug um, hvort hann á inni erlendis miljóninni meira eða minna, er misæiú koma, þvi. sú inneign verð- ur aldrei fullnægjandi þegar veru- Íega út af ber. Yið sjáum, að þótt landið eða bankarnir skuldi nokkr ar miljónir, þá gerir það ekkert til, meðan landið hefur traust, og meðan framleiðslam er nægile'g. pað fellir ekki krónuna í gildi. pess vegna er meira áríðandi að leggja alla áhersluna á að styrkja og auka framjeiðsltma í landinu, þannig, að vjer getum ávalt flurtt meira út en inn. pað eitt getur fyrirbygt allar óhagstæðar geng- issveiflur, ef seðlaútgáfu er hald- ið í hófi. En mjer vírðist, frum- varpið stefna í gagnstæða átt. Með þessari greinargerð og grein argerð minni í áliti mínu á þskj. engu síður djarflega en hpm 1367 vænti jeg að hæstv. fjrh. afsaki, þótt jeg hafi ekki getað orðið honum sammála í þessu máli. Ætli maður sjer að láta seðlabankann verða lífvörð gegn öllum gengissveiflum, eins og- hæstvirtur fjármálaráðh. og ráðunautur hans, próf. Axel Niel- sen ætl-ast til, þá verður bankinn að eiga eigið fje svo tugum milj. skiftir, og sem hann gerir lítið annað við, en að, ptJBsa upp á gengissveiflur bæði nú og máske eftir 50—100 ár að ný heimstyr- jöld kann að skella á. En sú trygging yrði vissulega dýr, og dýrari en að selja svo mikinn gull- forða fyrir seðlunum, að hægt sje að leysa þá inn ef með þarf, en sem menn veigra sjer þó við. Jeg hefi jafnan litið svo á, að framleiðsla og hæfileg takmörkun seðlaútgáfunnar gæti fyrirbygt verðfall gjaldeyrisins og að við gætum aldrei hugsað til að hafa svo fjesterkan seðlabanka, að geta ráðið neinu verulegu þar um, er í óefni er komið. pessvegna hefi jeg ekki einu sinni minst á þá hlið í umtali mínu um stofnun seðlastofnunar eða seðlabanka, að hann gæti skaðast þarna á verði. Hinsvegar vissi jeg, að alt annað gátu þessarar stofnanir uppfylt, svo sem að hafa seðla sína vel gulltrygða, að vera hemill á of öra framtakssemi o. s. frv., það finst mjer vera það eina, sem hægt er að ráða við. Hitt er meira bókvit (theoria), að hugsa sjer að ráða nokkru um gengið aðeins með sparisjóðsfje. pað er ekki með bönkum eða peningum einum, sem hægt er að ráða genginu, heldur ipeð nægri framleiðslu. Mál þetta hefir nú mjög skýrst við umræðurnar, og væri mjög æskilegt að það yrði ekki gert að neinu flokksmáli. Höfum við meiri hl. nefndarinnar lagt grundvöll- inn undir það, að svo verði ekki, þar s^pi meiri hl. er úr þremur stj órnmálaflokkum. Jeg vænti því að ekkert Ikapp komi fram frá hæstv. stjórn eða flokkufram um málið. Málið er stórmál og þarí því skynsemin að geta til fulls notið sín. En hætt er við, að hún geti það tæplega, ef kapp kemst inn í málið. Það er mín fqst trú og ven, að aliir flokkar geti unnið saman úm málið í ein- drægni, því þá verður niðurstaðan væntanlega best. Ef dagskráin verður feld, og brtt. hv. þm. Vestm. koma undir atkv., þá greiði jeg atkvæði á móti tveim fyrstu brtt., en með þeirri síðustu. Jeg veit sem gje ekki dæmi til þess, að opinberum sjóðum hafi verið leyft annar- staðar að kaupa hluti í hlutafje- lagi með takmarkaðri ábyrgð. Jeg veit þess hvergi dæmi nema á ís* landi, »g þaa dæmi eru ekki fög- ur. Opinberir sjóðir mega ekki kaupa önnur brjef en ríkisskulda- brjef, eða veðdeildarbrjef, (obli* gationir.) Svo vildi jeg víkja að einu at- riði ennþa, sem hæstv. fjrh. tal- aði um. Hann lagði mikla áherslu á, að það væri ótækt, að ríkið hefði fleiri banka en einn, og þess vegna væri það ótækt að stofna sjerstakan seðlabanka, þar sem landsbankinn væri ríkisins eign. Jeg get bent hæstv. fjrh. á einfalda ráðningu á þessu. pað er ekki annað en að breyta nafni Landsbankans og kalla hann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.