Morgunblaðið - 31.12.1927, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.12.1927, Blaðsíða 7
MORGTTNBLAÐIÐ 7 GLEÐILEGT NÝÁE! pökk fyrir viðskiftin á liðna árinii. Auglýsingaskrifstofa íslands. GLEÐILEGS NÝÁRS óskar öllurn viðskiftavinuin sínuin Jes Zimsen. -• ■• GLEÐILEGS NÝÁRS óskar öllum viöskiftavinum sínum Jón Sigurðsson, raffræðingur. GLEÐILEGT NÝÁR! pökk fyrir viðskiftin á liðna árinu. Sláturfjelag Suðurlands. GLEÐILEGT NÝÁR! pökk fvrir viðskiftin á liðna, árinu. ■ Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. , • sÚ lc, 7i^k | = GLEÐILEGS NÝÁRS ==E óskar ölliim viðskiftavinum sínum = Versl Edinborg. ;== (Ásgeir Sigurðsson). ■lllilllllllllllilllllllllllllllllllIllllÉ GLEÐILEGT NÝÁR! pökk fyriv viðskiftin á liðna árinu. Ölgerðin Egill Skallagrímsson og er því einskonar spegill nú- tímalífs íslendinga í þjóðfjelags og atvinnumálum. „Gömul saga“, eftir Kristínu Sigfíísdóttur, er ekki fullskapað verk enn, aðeins lrominn út fyrri tiluti bókarinnar. En eftir honum að dæma, má ætla að Kristín skrifi þar góða bók, tnía að sveita- lífslýsingum og sönnum mannlýs- ingum. „Dropar“, bók sú, er kvenþjóð- in ein stendiy: að, er að ýmsu leyti merkileg, þó ekki geti liún talist gnæfa hátt í bókmentum þjóðar- innar. En hún sýnir einkar glögt, hvað framarlega íslenskar konur standa í skáldskap okkar, hvað þær hugsa og hve þroski þeirra er mikill. Vitaskuld er þetta, sem hjer er minst á, ekki nema lítill hluti þess, sem út hefir komið á árinu. Og má vera, að hjer sje eitthvað eftir skilið, sem ástæða hefði verið til að geta um. Vitanlega er hjer ekki minst á þær bækur, sem nú eins og fyrri, eru látnar fljóta uppi á sviknum úmmælum og auglýsingum og skrumi góð- gjamra kunningja, sem ekki hafa hreinlyndi í sjer eða manndáð til þess annaðhvort að þegja eða segja satt. Jeg skal, til þess, að menn álíti ekki, að jeg sje að höggva út í loftið, nefna eína slíka bók, „Ljósálfa" Sigurjóns Jóns- sonar. Þegar minst er á bókmentir þjóðarinnar síðasta ár, kemst mað- ur ekki hjá því að leggja þá spumingu fyrir sig, hvar þeim sje komið, hvernig vegur þeirra standi, og hvort um afturför eða framför sje að ræða, livort unnin hafi verið ný lönd, eða livort enn sje lifað á auði þeirra gömlu. Jeg býst ekki við, að neinum blandist hugur um, að‘ljóðagerð þjóðarinnar hefir mjög farið fram síðustu árin að fórini og smekk- legum frágangi. Nú yrkja ef til vill fleiri en nokkru sinni áðúr. En það er undantekning, ef nú sjest verulega illa ort ltvæði. — Smekkurinn er að þroskast. ''g verða næmari, meðferð þeirra, sem ljóðagerð stunda, að verða fegurri og listrænni, orðsins list að ná tökum á fleíri en áðúr. Gömiu þjöðskáldin, sem við sitjum nú í Ijóma. af, ortu stundum á þann veg, að mesti liðljettingur ljóða- gerðarinnar nú mundi blygðast sín fyrir. Málsmekk og formi ljóða hefir farið gífurlega fram. En hitt er annað mál, hvort ekki hefði verið happasælla fyrir bók- mentir landsins, að formið hefði verið dálítið hrufóttara, en hugs- animar stærri og meiri. Nú er mikið af ljóðagerð þjóðarinnar sviplítil flatneskja, þar sem maður steytir ekki fót sinn við steini. Gömlu guðirnir gátu einnig verið nokkuð sviplausir og óvandvirkn- ir. Matthías gat stundum verið lágfleygur og hnoðað leir. En hann reis þó oftar upp í sinni tignu hæð flugs og mælsku, spá- mannlegs andríkis og spaklegra hugsana. En nii eigum við engan Matthías. Ljóðagerðin okkar ein- kennir sig nú með sljettu fáguðu formi, en litlum, hversdagslegum hugsurnnn og kræklulegri list. Skáldsagnagerð okltar hefir aft- ur ótvírætt hrakað frá því, sem var fyrir tug ára eða svo. Kvaran , er hættur, Jón Trausti og Þor- gils gjallandi dauðir, Guðmundur GLEÐILEGS NÝÁRS óskar öllum viðskiftavinum sínum Tóbaksverslun íslands H/f. Friðjónsson búinn, að því er sjeð verður, að leggja sitt besta fram. Gunnar Gunnarssonar er ekki hægt að telja hjer með. Hann er ekki ís- lenskur ritliöfundur lengur. Og hverjir hafa hlaupið í skörðin? Engir þeir, sem enn komast til jafns við þá, sem áður voru nefndir. Það yrði of langt mál að fara hjer út í þá sálma, að skýra hvernig á því stendur, að skáld- sagnagerðinni hefir hnignað svo. Það er ekki að öllu leyti af því, að -þeir sem skrifa skáldsögur, sjeu minni sagnaskáld en hin, sem áður er minst á. Það hefir aðrar og dýpri orsakir. f einni grein skáldskaparins er þó þjóðinni að þoka fram. Það er í leikritagerðinni. Þó ekkert þeirra leikrita, sem minst er á hjer að framan, sje stórfelt skáldverk, þá er þó auðsjeð, að þar er verið að vinna nýtt land. Og það er ekki ólíklegt, að einmitt þaðan komi bestu og eftirtektarverðustu verk- in næstu árin. Skáldskapur okkar er, þegar á alt er litið, fjölbreyttari en áður, á sumum sviðum fegurri. En — þar rísa ekki neinir tindar. Ef við eigum að líta hátt, þurfnm við að beina sjónum okkar að þeim gömlu. J. B. Dagbðk. I. O. O. F. 3 — 109128 — Veðrið (í gærkveldi kl. 5). — Hvass SV í Eyjum, en annars fremur kyrt veður um land alt. SA 3 og þurt veður á „Halan- um“. Loftvog er ört fallandi hjer sunnan lands og um Bretlands- eyjai'. Er ný Tægð sennilega að nálgast suðvestan úr hafinu. — Veðurútlit: Sunnan stinnings- kaldi. Skúraveður. Áramótamessur í Landakots- kirkju. Gamlárskvöld þakkarguðs- þjónusta kl. 6 e. h. Nýársdagur: Hámessa kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. guðsþjónusta með prjedikun. f Spítalakirkjunni í Hafnar- firði, gamlárskvöld, þakkarguðs- þjónusta .kl. 6 e. h. Nýársdagmr: Hámessa kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. guðsþjónusta með prjedikun. Messað verður í Aðventkirkj- unni á nýársdág kl. 8 síðd. (sjá augh á öðrum stað). O. J. Olsen. Sjómannastofan. Guðsþjónusta á nýársdag kl. 4. Allir velkomn- ir. — Stúkan Dröfn heldur hátíðar- fund á nýársdag kl. 4 síðdegis. Sjá nánar auglýsingu í blaðinu í dag. Til fátæku stúlkunnar frá G. B. 10 kr. K. H. 10 kr. oooooooooooooooooo > , G > Óska öltum mínum viðskiftavinuM< > GLEÐILEGS NÝÁRS ! >og þakka viðskiftin á liðna árinn, Stefán Gunnarsson Skóverslun. ' |' < i oooooooooooooooooo GLEÐILEGS NÝÁRS <5skar öthini viðskiftavinum 1 smnm. ® Kaupfjelag Borgfirðinga. jg 1 i GLEÐILEGT NÝÁR! : pökk fyrir vi'öskiftin á liðna 2 árinn. J MatarbiiÖ Sláturfjelagsins. * GLEÐILEGS NÝÁRS S :• m áskar öllum viðskiftavinnm V !• * BÍnum. J Verslunin Klöpp. * Kærar þakkir vottum við starfs- mönnum Morgunblaðsin og öllum þeim, er með fjegjöfum eða á annan hátt hafa sýnt okknr og litla drengnum okkar Óskari, hlut- tekningu og vináttu í veikindum hans á liðnu ári. Með bestu óskum um gott og farsælt nýár. Guðrún Ólafsdóttir og Lárus Einarsson, Vatnsstíg 8. Reykjavík. Sunnudagaskóli K. F. U. M. Kl. 10 árdegis á nýársdag. —- Jólatrje. öll börn velkomin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.