Morgunblaðið - 08.01.1928, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.01.1928, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Ljósalfurinn li Barnasaga meö 112 mynöum eftir 6 Th. Rotman. 85. Þegar storkurinn nú var far- iftn, hóf froskakóngurinn sitt konung- lega höfuð upp úr vatninu. „Er hann farinn? Er hann áreiðanlega farinn?“ mælti hann í hálfum hljóðum. Síð- skeggur konungur kinkaði kolli. Og þá skaut öllum hinum froskunum upp og stukku þeir á land í einu hendings- kasti. Nú var hátíðahöldunum haldið áfram og var byrjað með því að kór- ið söng nokkur hvataljóð til þess að telja hug í fólkið. 86. Um kvöldið var skrautelda- sýning og hljómleikar niður hjá vatn- inu. Froskakonungurinn hafði fengið þangað sex hundruð ljósorma og röð- uðu þeir sjer þannig, að þeir mynd- uðu allskonar skrautblóm, sem spegl- uðust í vatninu. En á meðan var hljómleikaflokkurinn um borð í kon- ungsskipinu og Ijek hvert dillandi lagið á eftir öðru, en konungarnir og Dísa sátu á vatnsbakkanum og hlustuðu á. 87. Svo kom seinasta atriði sýn- ingarinnar, þegar ljósálfarnir röðuðu sjer þannig, áð þeir mynduðu staf- ina „H“ og „L“, upphafsstafi kon- unganna Hork-a-Bork og Langskeggs, sem vjer köllum Síðskegg. Og um leið hóf hljóðfærasveitin að leika hina fögru óperu froskanna „Cavaleria Froggiana“. Hljómöldurnar bárust út yfir vatnið í kvöldkyrðinni og allir hlustuðu hugfangnir á. 89. Síðskeggur konungur steig nú á bak dúfunni sinni og setti Dísu fyrir framan sig. Flugu þau síðan á stað og hátt í loft upp. Hú — það var kalt þarna uppi og Dísa fór að skjálfa. En kóngur fór þá úr kápu sinni og vafði um hana. — Út við sjónarrönd var sólin að hníga til við- ar og sló gullnum og rauðum bjarma á skýin og jörðina. 90. Alt í einu heyrði Dísa ein- hvern þyt fyrir aftan sig.------Þar kom konungur loftsins þeysandi á hvíta gæðingnum sínum. Álfarnir höfðu sagt honum frá' því, hvernig fór um storkinn og var hann nú kominn til þess að vera við, þegar mál hans væri tekið fyrir. Hann slóst því í för- ina með þeim Dísu. Og áður en sól var sest, höfðu þau náð skógarjaðr- inum. 91. Þegar þau komu heim til Síð- skeggs konungs, var alt tilbúið að taka upp mál storksins. Konungurinn og ráðgjafar hans settust undir stóra eik og var nú storkurinn leiddur fram. Skógaruglan, sem gat sjeð í myrkri eins og um hábjartan dag, var rann- sóknardómari og hafði hún dökkálf fyrir skrifara. „Herra storkur!“ hróp- aði uglan, „þú ert ákærður fyrir það að gera tilraun til að eta þegna í vina- landi voru! Hverju svarar þú?“ 93. Uglan varð sótrauð af bræði, en það sá enginn vegna þess að fjaðrirnar skýldu því. Konungurinn mælti: „Þetta getur alt verið satt, en storkurinn vissi, að hann mátti ekki fara inn Lland vinar míns, Hork-a- Bork. Og nú skal jeg segja ykkur, hvernig á því stendur. Fyrir mörgum árum kaus jeg mjer drotningu úr fjarlægu landi. Tíu vitrustu og göfug- ’ustu dvergarnir í ríki mínu fóru að «ækja hana. Á heimleiðinni henti það, 94. þegar þeir sigldu fram hjá ríki vinar míns, Hork-a-Bork, að stór gedda kom og hvolfdi skipinu. Vin- ur minn, konungurinn, og þegnar hans fleygðu sjer þá til sunds, án þess að skeyta um hættu þá, sem hann stofn- aði sjer í vegna hins illa fiskjar, syntu út að skipinu og björguðu allri skipshöfninni, og gátu rjett bátinn við aftur og komið honum á rjettan kjöl. 95. En tíu af hinum hugdjörfu froskum höfðu orðið geddunni að bráð. Þá strengdi jeg þess heit, að ríki Hork-a-Bork skyldi framvegis vera undir vernd dvergaríkisins. Og þetta alt var storkinum vel kunnugt". — Konungurinn reis nú á fætur og var sýnilega reiður. Hann hrópaði hátt: „Vegna alís þessa krefst jeg þess, að storkurinn verði dæmdur til þess að vera hengdur upp á löppunum á hæsta trje skógarins!" 88. Það var seint næsta kvöld, að þau Dísa litla og dvergakóngurinn kvöddu froskana vini sína. Dísa gat ^kki tára bundist á skilnaðarstund- inni, því að henni var farið að þykja innilega vænt um froskana. Kóngs- synirnir föðmuðu hana að sjer og tóku hátíðlegt loforð af henni um það- að hún skyldi koma aftur og segja sjer frá því, hvort hún hefði fundið' mömmu sína. 92. Nú kom röðin að refnum, sem var verjandi storksins.,„Yðar hátign!‘t mælti hann og hneigði sig fyrir kon- ungi. „Að mínu áliti hefir þessi vesl- ingur mikla afsökun. Hann veröur að» •etá froska svo hann deyi ekki úr hungri. En í hvert sinn og hann etur frosk, tárast hann út af því að þurfa að gera það. En það er annar hjer,“’ bætti rebbi við og glotti, „sem etur froska að gamni sínu, og á jeg þar við sjálfan dómarann“. 96. Það sló grafarþögn á alla, sem heyrðu þessi hræðilegu orð, og; það var sem öllum færi kalt vatn milli skinns og hörunds. Storkurinm var nú færður að hæsta trjenu, sem: stóð í skógarjaðrinum. Var nú bund- ið löngu snæri um lappir hans, en spætunni var fenginn hinn endi snær- isins og henni skipað að fljúga með» hann upp í trjeð og bregða honum yfir grein. Síðan var rádýrinu skipaði að draga storkinn á loft..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.