Morgunblaðið - 20.01.1929, Page 3
IORGUNBLAÐIÐ
s
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Otgefandi: Fjelag 1 Reykjavlk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Siml nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.50 - ---
I lausasölu 10 aura eintaklB.
Bæjarstiúrnarkosningín
á Akureyri.
Pylgi íhaldsmaima fer vaxandi í
kaupstöðunum.
Hún fór þannig, að A-listinn
(Pramsóknarmenn) fjekk 303 at-
kvæði og kom að einum manni,
Brynleifi Tobiassyni, kennara. B-
listinn (jafnaðarmenn) fjekk 456
atkvæði og kom að tveimur mönn-
um, Erlingi Priðjónssyni alþm. og
Einari Olgeirssyni frkvstj. síldar-
■einkasölunnar. C-listinn (stjórnar-
andst.) fjekk 563 atkvæði og kom
að tveimur mönnum, Olafi Jóns-
syni framkvæmdarstj. og Tómasi
Bjömssyni kaupmanni.
Ef kosning þessi ér borin saman
við bæjarstjórnarkosninguna 1927,
þá sjest það, að með lista stjórn-
arandst. eru greidd 169 atkv. um-
fram atkvæðatöluna 1927, jafnað-
armenn hafa fengið 40 atkvæðum
fleira en þá, en Pramsókn 3 at-
kvæðum færra. En sje atkvæða-
magn hvers lista miðað við það
hvemig kosningarnar voru sóttar,
'þá verður niðurstaðan þesai:
1927 3929
Jafnaðarmenn 37.3% 34%
Framsókn 27.4% 23%
^►tjórnarandst. 35.3% 43%
Má sjá á þessu, að lík stefnu-
Lreyting er að verða á Akureyri
«tns ®g S Yestmannaeyjum, að
íhaldsmönnum eykst þar drjúgum
fyigi. Þótt fylgifiskum jafnaðar-
manna hafi fjölgað ofurlítið að
tolunni til, þá hefir fylgi þeirra
þorrið, miðað við fólksfjölda og
^ins hefir fylgi Pramsóknarmanna
þnrrið.
Við kosningarnar 1927 í Vest-
thannaeyjum, ísafirði, Siglufirði
'•g Akureyri fengu jafnaðarmenn
^amtals 1474 atkvæði, en núna
fengu þeir samtals 1535 atkvæði á
*Ömu stöðum eða 61 atkvæði fleira.
íhaldsmenn fengu 1403 atkvæði
1927, en núna fengu þeir' 1659
ktkvæði, eða 256 atkvæðum fleira
nn 1927. Ánð 1927 höfðu þeir sam-
fals í þessum kaupstöðum 71 at-
kvæði færra en jafnaðarmenn, en
Mna hafa þeir 124 atkvæðum
Öeira. Sjest best á þessu að menn
‘^fu farnir að átta sig.
Innflutningurinn.
PB. 19. jan.
^jármálaráðuneytið tilkynnir:
Innfluttar vörur í desember-
?ánuði f. á,: kr. 3976868.00. Þar af
1 Heykjavík kr. 2810992.00.
Ms. Dronning Alexandrine fór
Vestmannaeyjum kl. 1 í gær.
^pmst alt fólkið í land og öllum
öi“um var skipað npp.
Skólahneyksli
á Akureyri.
Skólastjóri bamaskólans kærður
fyrir að misþyrma bömum.
Búist við að skólanefnd grípi í
taumana.
Á miðvikudaginn var, skeði sá
atburður í sögu bamaskólans á
Akureyri, sem lengi mun í minnum
hafður.
Skólastjórinn, Steinþór Guð-
mundsson, var þá við kenslu í
reikningi _ í efsta bekk skólans.
Hafði hann látið öll börnin í
bekknum fá dæmi til reiknings.
Sátu þau við það hvert á sínum
stað, nema einn drengur, sem
reikna átti dæmið á töfluna hjá
skólastjóranum.
Einn nemandinn, Guðhrandnr
Hlíðar, sonur Sigurðar dýralæknis,
12 ára piltur, liom til skólastjóra
með dæmi sitt, og fjekk þann úr-
skurð hjá honum, að dæmið væri
rjett reiknað. Drengurinn sem við
töfluna var lauk og við sinn reikn
ing í sama mund. Fjellu einhver
orð milli þeirra, drengjanna, er
þeir mættust á gólfinu.
En í því fýkur í skólastjórann,
og geta bömin sem í bekknum
voru ekki gert sjer grein fyrir
ástæðunni. En afleiðingamar voru
mun ljósari.
Þrífur skólastjórinn Guðbrand,
loðrungar hann fyrst, tekur síðan
höfuð hans milli hnjáa sjer og
heldur honum þannig föstum, með
an hann lætur höggin dynja á
drengnnm og sparkar síðan í bak
hans.
Börnin, sem sáu aðfarimar, urðu
yfir sig sárreið. Og sýndu þau
gremju sína með því að koma ekki
í skólann næsta dag.
Aðstandendur drengsins kærðu
framferði skólastjóra tafarlaust
fyrir skólanefnd. Er talið fullvíst,
eftir því sem tíðindamaður Morg-
unblaðsins sagði frá, að skóla-
nefnd myndi taka málið fyrir
Myndi liún ef til vill gefa skóla-
stjóra kost á að vera við skólann
til vors, ef eigi verður heimtað
að hann yfirgefi skólann tafar-
laust.
Mun það relra mjög á eftir skóla
nefnd, að síðan kæra þessi kom á
hendur skólastjóra, hafa aðrir kom
ið sem hafa líka sögu að segja um
misþyrmingar skólastjóra á skóla-
böfnunum.
Ein af „kensluaðferðum“ skóla-
stjórans er sú, að sagt er, að taka
í' hár drengja og reigja höfuð
þeirra aftur á bak. Einn af drengj-
uin þéim sem- sætt befir þeirri með
ferð undanfarúa daga, hefir ekki
getað notið svefns undanfamar
nætur sakir höfuðverkja. Paðir
drengsins hefir nú kært skólastjór
ann. Þá hefir það nú komið á dag-
inn, að maðnr einn á Akureyri,
sem átti stálpaðan dreng í barna-
skólanum í fyrra varð að borga
75 krónur í læknishjálp handa
barni sínu, eftir misþyrmingar
skólastjórans.
Hafði hann beitt þar þeirri að-
ferð, að snúa upp á eyru drengs-
ins. Er mælt. að skólastjóri hafi
slíkt að leik, en framkvæmi eigi
þessa eyrnasnúninga í bræði sinni,
eða hefndarskyni.
En þessi „atlot“ skólastjórans
Dnglepan skipstjðra
og skipshðfn
vantar á ca. 40 smálesta vjelbát, sem
á að stnnda linnveiðar á þessn ári við
Faxaflóa og víðar. Nánari npp-
lýsingar hjá
]ðni Slgarðssvnl, Hiemsgiiu 7s.
í Slæmu veðri getið þjer verið úti og æft íþróttir
eftir vild ef að þjer aðeins á hverju kvöldi núið hend-
ur yðar og andlit vel inn með
NIVEA-CBEME
(Pepeco-Coldcream)
Litaraft yðar verður þá laðandi fagurt, og hvar
sem þjer komið munu menn dáðst að hinu unglega
og blómlega útliti yðar.
Vetrarkðpnr
ern nn seldar
með 30°|0 aislætti.
Verslun Egill Jacobsen.
Hringurinn
heídur afmælisfagnað sinn á Hótel ísland laugardagim
26. þessa mánaðar með borðhaldi klukkan 7y2 stundyj»
lega. — Listi liggur til áskriftar í hattabúð frá M. Leví
og eru konur beðnar að skrifa sig og gesti sína fyrii
fimtudagskvöld.
Neindin.
Siðmenn og fbrúttir.
höfðu þær verkanir á dreng þenna,
að eyrun bólgnuðu. Þegar læknis
var vitjað kom það í ljós, að
eyrnabrjóskið var alt brotið. Tók
það langann tíma að græða meiðsli
þessi.
Eftir að hafa fengið þessai*
fregnir frá Akureyri, um hinn
miður heppilega barnaskóla-
stjóra.snjeri Mgbl. sjer til Sig-
urðar E. Hlíðar á! Akureyri, til
þess að fá frekari fullvissu um
hvort rjett væri hermt. Reyndist
ofanrituð frásögn rjett að vera.
Sagði Sigurður að reynt hefði
verið að varpa pólitískum blæ á
kæruna á herídur skólastjóra,
og hefði Sigurður því orðið að
gefa út yfirlýsingu í fyrradag
um málið.
Yfirlýsing hans er svo hljóð-
andi:
Skólastjóra hneykslið.
Vegna þess að „Verkamaður-
inn“ í dag hefir gersts svo ó-
skammfeilinn að draga fram at-
hæfi skólastjórans gagnvart
drengnum mínum í 1. kenslu-
stund skólans í fyrradag í alger-
lega röngu Ijósi, er jeg knúðurtil
andsvara. Allur bærinn veit nú
að skólastjórinn misþyrmdi
drengnum, lúbarði hann á herfi-
legasta hátt svo að á sá og það á
þann hátt, að ósamboðið var sið-
uðum manni, hvað þá heldur
skólastjóra. Kæru út af þessu
máli hefi jeg sent skólanefnd
með kröfu um að rannsaka þetta
mál og láta það sæta tilhlýði-
legri meðferð. Síðan hefir og
komið í ljós, að ^kólastjórinn
hefir hvað eftir annað komið
fram í skólanum á ósæmilegan
hátt gagnvart börnum á svipað-
an hátt og drengnum mínum. Er
hjer á ferðinni alvarlegra mál
öllum foreldrum í bænum en
svo, að fjöður sje yfir það dregin
Akureyri, 18. janúar 1929.
Sig. Ein. Hlíðar.
Síðustu fregnír.
Akureyri laugardagskv.
Var mál þetta fyrir skóla-
nefnd í dag, ásamt skriflegri
kæru frá Sigurgeir Jónssyni
organista og munnlegri kæru
frá Páli Sigurgeirssyni út af
svipuðum málum. Stóð fundur
skólanefndar 4 tíma, án fastr-
ar niðurstöðu og var málinu frest
að til mánudags.
SEngið.
Sterlingspund .. 22.15
Danskar kr .. 121.84
Sænskar kr .. 122.23
Norskar kr .. 121.84
Dollar . .. 4.57
Frankar .. 17.97
Gyllini . .. 183.49
mörk .. 108.65
í fyrirlestri, sem Steingrímwi
læknir Matthíasson flutti á skemli-
samkomu skipstjórafjelagsins d
Akureyri hinn 27. desember n.l,
komst hann meðal annars svo a4
orði:
Jeg er ekki í vafa nm, að sjð-
mannastjett vorri eins og annartl
þjóða er í framtíðinni hætta búin
af öllum hinum svonefndu þæg-
indum. Og þjóðin er öll í hættu
ef hún ekki yfirleitt sjer við hásk-
anum sem fylgir í fari vjelamenn-
ingarinnar', þó feikna fjölda al
gæðum hafi hún einnig innant-
borðs.
Besta ráðið til varnaðar eru
íþróttir. Þetta hafa vitrir menn I
öllnm löndnm sjeð fyrir löngu og