Morgunblaðið - 07.04.1929, Síða 2
2
M OR-GUN BL AÐ I Ð
Herved bringer jeg min hjertiligste Tak til de is-
landske Folk, som har vist mig Imödekommenhed og Del-
tagelse i min store Sorg. Naar man som jeg; bliver staa-
^nde alene i et fremmed Land, vil det nok forstaas, at
jeg har fölt den Godhed der er bleven mig til Del dob-
belt. Islænderne har ikke alene vist, at de har et godt
Hjerte, men tillige er forstaaelsesfulde og höjsindede. —
En specielt Tak til D’herrer dn danske Minister, Höjeste-
retssagförer Lárus Fjeldsted og Köbmand Ludvig Lárus-
.son. Atter min hjerteligste Tak.
Vilhelmine Christensen.
Konan mín, Sigurlaug Sigurgeirsclóttir, andaðist í morgun.
Reykjavík, 6. apríl 1929.
Guðmundur Bergsson.
Jarðarför Andrjesar Jónssonar, káupm. frá Eyrarbakka, fer franv
frá Príkirkjunni þriðjudaginn 9. þ.m. og liefst með bæn kl. 1V> e. h. á
heimili mínu} Laufásveg 59 . ,
Reykjavík, 5. apríl 1929.
f. h. ekkju hans og bama:
. Jón Pálsson.
„Eternit“-þakhella er endingarbesta og ódýrasta
þakefnið.
„Eternit“ er búið til úr „Asbest“ og sementi, og verður
því sterkara og seigara með aldrinum.
„Eternit“ þolir best allra þakefna umhleypingasama
veðráttu. Ferðamannaskýli á hæsta fjalli í Sví-
þjóð „Kebnekaise“ var klætt með „Eternit“
árið 1908 og sjer ekki áþví enn þann dag í dag.
„Eternit“ hefir þann stóra kost að vera ljett í sjer, þak-
viðir þurfa því ekki að vera sterkari en undir
bárujárn.
„Eternit“ má leggja á „lektur“ eingöngu eða borðasúð,
án þess að lista þurfi undir. Vinnan við að
leggjá „Eternit“ er lítið meiri en við bárujárn.
.„Etemit“-þakhellur fást í brúnum, rauðum, bláum og
gráum lit, og með ýmsri gerð og stærðum.
Aðalumboðsmaður fjnrir Island
Jón S. Loftsson.
Aðalstræti 18. — Sími 1291.
Hðfnm fyrirliggjandi
Sement
Mjölkurfjelag Reykjavíkur.
!
Landsfundurinn.
Nokkrar ályktanir fnndarins.
Tíma-Jónas skrækir.
í gærmorgun byrjaði fundur
í Varðarhúsinu kl. 10. Fyrstur
tók Jiar til máls Árni Jónsson
ritstjóri. Umræðuefni hans var
afskifti stjórnmálaflokkanna af
landbúnaðarmálum. Lýsti ræðu-
maður því í skörulegri ræðu,
hvernig íhaldsmenn hefðu átt
upptökin að flestöllum fram-
faramálum landbúnaðarins á
undanförnum árum, svo sem
Ræktunarsjóð hinum nýja, Jarð
ræktarlögunum, fitvinnurekstr-
arlánum og nú síðast raforku-
málinu.
Næstur talaði Jón Þorláksson.
Ræða hans fjallaði aðallega um
skattamálin í sambandi við at-
vinnurekstur þjóðarinnar. 1
ræðu sinni kom hann inn á sam
vinnustefnuna og frjálsa sam-
kepni, og sýndi fram á, hve
.mikið af því sem Tímamenn
segja um þessi mál eru ýmist
blekkingar eða sagt af skilnings
og greindarleysi. Umræður um
erindi 'þessi stóðu til hádegis.
Því næst var fundarhlje til
kl. 4i/2.
Á fundinum seinnipartinn í
gær voru bornar fram eftirfar-
andi ályktanir, er allar voru
samþyktar í einu hljóði.
Landsmálafundurinn ályktar
að lýsa því yfir, að hann tel-
ur að af hálfu ríkisins, beri að
jfeggja hina mestu áherslu á
samgöngubætur á landi, og telur
jafnframt rjett að styðja að því,
að Eimskipafjelag Islands um-
bæti sem best samgöngur á sjó
með ströndum fram og milli
íslands- og útlanda.
Landsmálafundurinn færir
þingm. flokksins þakkir fyrir
rekstrarlánafrumvarp það, sem
þeir fluttu á þingi 1928, og
óskar eftir að löggjöf um þetta
verði afgreidd í sem líkastri
mynd á yfirstandandi þingi.
Landsmálafundurinn lætur í
ljós eindregna ánægju sína yfir
frv. því um raforkuveitur, sem
nú er fyrir þinginu, og telur
samþykt þess stórt spor í áttina
til þess að halda fólkinu í sveit-
únum, gera vistina þar þæg-
ilegri og flýta fyrir ræktun
landsins.
Verkfall á togurunum, sem
nýlega er lokið hefir fært Is-
lendingum skýrar og ótvíræðar
sannanir fyrir því, að þeir fái
ekki frekar en nágrannaþjóð-
irnar umflúið verkfallsbölið
nema því aðeins, að sjerstakar
varnarráðstafanir verði gerðar.
Landsfundurinn skorar því á
Alþingi að hefjast handa um
slíkar ráðstafanir, og telur
þessu máli vel borgið ef frv, er
gengur í sömu átt og frv. um
vinnudóm, verður lögfest.
Fundurinn lýsir þeirri skoð-
un, að framfarir 1 landinu hljóti
að byggjast á traustum og heil-
brigðum atvinnurekstri í hönd-
um einstaklinga, og því best að
forðast að skerða atvinnufrelsi
manna eða íþyngja atvinnuveg-
ranum með of þungum sköttum.
Fundurinn telur ]>á stefnu
mjög skaðlega að ala á ríg milli
stjetta í þjóðfjelaginu. Góð sam
vinna allra landsmanna er nauð
,synleg til sannra framfara og
hagsældar þjóðarinnar.
Þá var og til umræðu álit
nefndar þeirrar er fjallaði um
starfsemi flokksins út um öll
hjeruð landsins. Var gerður góð
ur rómur að tillögum nefndar-
innar.
Ennfremur kom til umræðu
álit nefndarinnar er skipuð var
til þess að athuga hvort nafn
flokksins væri í samræmi við
stefnu hans og starf. En eigi
vanst tíxni til þess að gera á-
lyktun í því efni áður en hlje
þurfti að gera á fundinum kl. 7,
vegna brottfarar Esju, en með
henni fóru allmargir fundar-
menn heimleiðis.
í gærkvöldi efndi miðstjórn
/lokksins til samsætis í veitinga
laúsi Rósenbergs fyrir fundarmenn.
Sátu menn þar í góðum fagnaði
fram eftir kvöldi.
Þessi friðsami fundur manna
úr flestum kjördæmum landsins
hefir haft alveg einkennilega
mikil áhrif á ritstjóra Tímans.
Að fundur þessi gæti haft nokk
ur áhrif á stjórnmálastarfsem-
ina í landinu, gátu fundarboð-
endur búist við. En eins og að-
sóknin var meiri en menn bjugg
ust við, eins ætla áhrifin af
fundi þessum sýnilega að verða
meiri en menn gat grunað.
Ritstjóri Tímans er nú fyrst
og fremst genginn af göflun-
um. Hann mátti þó lítið missa.
Að flokksmenn andstæðinga-
flokksins mæti á fundi hjer í
Reykjavík hefir sýnilega orðið
sálarstillingu hans ofraun.
Hann bölsótast yfir fundi
þessum í þriggja dálka grein.
Hann þrífur hið meinlausa skop
blað, Spegilinn, sjer til varnar.
Hann hellir sjer yfir foringja
flokksins, og telur þá verri Jú-
dasi ískariot. Hann sem sagt
skortir bæði dómgreind og vel-
sæmi.
Og þegar ]cess er gætt, að
tilefnið er ekki annað en þessi
]>riggja daga fundur, þá er auð-
sjeð að TímaJónas eða Undir-
Jónas öðru nafni veit sem er,
að um leið og andstæðingar nú-'
verandi stjórnar vinna með j
skipulagi og festu að flokks-
starfsemi sinni, þá er brátt úti
um það hrófatildur iýgi og
blekkinga er notað hefir verið í
einskonar skjaldborg um Hriflu-
manninn.
Fylgistmeð
Bollapör, 100 tegundir.
Diskar, ótal teg. Kaffi-
Matar- og Þvottastell nýj-
ar gerðir. Reykborð, Gler-
skálar og Bátar. Handtösk-
ur frá 2,35. Handsnyrti.
[ Blóm-apot.tar, Kaffikömmr,
Katlar og Pottar. Borð-
hnífar, Skeiðar', Gafflar,
Teskeiðar.
Hvergi betri kaup.
Edinborg.
|í herbergið vðar|
liöfum fengið stórt úrval
af ljómandi fallegum
Körfustólum og
Borðum, einnig Barna-
stóla og Barnavöggur.
Edinborg.
Fylgisl með.
Nýjasta Uska.
Vor- og Sumarhattar.
Sumarkápu- og
Kjólatau.
Skinnbúar,
úr miklu að velja.
Edinborg.
Nvkomnar vðrur
tíl síldorútgerðar:
net,
netaslðngur
netakaöall,
netabelgir.
Einnig notað reknet og
reknetakaðall, sem selst
mjðg ódýrt.
0. Ellingsen.
Harmonlun
nýkomin.
Ágætir greiðslnskilmálar.
1 ” ' IHljóðfæraverslnn.
Lækjargötu 2.