Morgunblaðið - 14.07.1929, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.07.1929, Qupperneq 2
■s MORGUNBLAÐIÐ 99 Kodak ii Ijósmyndavðrur eru bað sem við er miðað um allan heim. 99 Velox << 99 Koðak** filma Fyrsti gasljósapappírinn. Fyrsta spólufilman. Aftan á hverju blaði er nafn- ið „Velox“. Hver einasta örk er reynd til hlítar í Kodak-verk- smiðjunum. í þremur gerðum, eftir því sem á við um gagnsæi frum- plötunnar (negatívplötunnar). Um hverja einustu spólu er þannig búið í lokuðum umbúð- um, að hún þoli loftslag hita- beltisins. Biðjið um Kodakfilmu, í gulri pappaöskju. Það er filman, sem þjer getið treyst á. Þjer getið reitt yður á Kódakvörur. Orðstírinn, reynslan og bestu efnasmiðjur heims- ins, þær er búa til ljósmyndavörur, eru trygging fyr- ir því. Miljónasægurinn, sem notað hefir þær, ber vitni um gæðS þeirra. Kodak Limited, Kingsway, London England. Heyhlaða í Flóannm. . ,Hlaðir“. Ferðamönnum, er liafa átt leið austur í Flóa, liefir orðið starsýnt á stórhýsi eitt mikið og voldugt, sem verið hefir í smíðum skamt austan við Ölfusárbrú, sunnan við þjóðveginn, móts við bankaútbúið. Stórhýsi þetta hefir'Gunnar alþm. frá Selalæk reist þarna og ætlar að nota fyrir heyhlöðu. Á mánudaginn var, bauð Gunn- ar blaðamönnum og nokkrum fleiri austur að skoða lieyhlöðu þessa. Aðalbyggingin er um 31 stika á lengd og 7—8 á breidd. Ut frá henni ganga tvær álmur til norð- urs log er hvor þeirra 24 stikur á lengd, og 7 á breidd. Álmur þess- ar verða notaðar fyrir heyhlöður og er áætlað, að hvor þeirra taki um 1500 kapla af þurkuðu star- gresi. Aðalbyggingin verður notuð til vörugeymslu, en nokkur hluti hennar er þiljaður sundur í smá- herbergi, skrifstofur o. þ. h. Aka má bílum hvort heklur er inn í heyhlöðurnar eða vörugeymsluna. Stærðar port er milli bygginganna, sem nota má einnig til heygeymslu vfir styttri tíma. Þá hugsar Gunn- ar sjer að láta grafa, gryfjur í vörugeymsluhúsið, og nota þær til pess að geyma í jarðepli. Hugmynd Gunnars með bygg- ingu heyhlöðu þessarar er sú, að kaupa hey af bændum á áveitu- svæðinu, flytja það síðan hingað til Reykjavíkur og selja hjer iog ti’ kaupstaða úti um land. Muu hann hafa í hyggju, að koma upp annari heyhJöðu hjer vestan fjalls, eða í nágrenni Reykjavíkur, og hafa forða á báðum stöðunum. Er ekki minsti vafi á, að þetta fyrirtæki Gunnars á framtíð fyrir höndum. Heyfengur bænda eystra eykst stórkostlega vegna áveitunn- ar, en alment hafa bændur ekki tök á að auka bústofn sinn jafn- harðan. Á meðan svó er, er til- valið fyrir þá að selja nokkuð af heyinu, og nota andvirðið til að auka við bústofninn. Gunnar Sigurðsson á þalilcir skil ið fyrir að Iiafa ráðist í þetta fyr- irtæki, því það er sannfæring vor, að þetta verði bændum eystra til verulegs ga^is, ank þess sem það ætti að verða til að tryggja Reyk- víkingum (og öðrum kaupstöðum) gott hey í framtíðhmi. Gunnar nefnir skála sinn Hlaðir. Undanfarin ár hefir verið flutt til landsfns ógrvnni af heyi frá út- löndum. Vonandi hverfur þessi heyinnflutningur með öllu, enda er innlenda heyið miklu kjarnmeira og betra til fóðurs en hið erlenda. En þegar innlenda heyverslunin vex, er nauðsynlegt, að lögskipað verði mat á heyi, það flokkað eftir gæðum, eins og tíðkast með aðra markaðsvöru. Þá ætti það að vera tilvalið fyr- ir sjávarbændur hjer suður með sjó, að ná samningum við Gunnar um kaup á heyi að austan. Þeir búa margir á ágætum beitarjörð- um, en vantar slægjur. — Gætu bændur syðra náð haglcvæmum kaupum á heyi af ávéitusvæðinu austan fjalls, ættu þeir að geta komið upp sauðfjárbúum í stórum stíl. I Honráð H. Honráðsson læknir. í fyrradag barst hingað fregn frá Bremen í Þýskalandi um það, að Konráð læknir Konráðsson hefði orðið fyrir slyái og væri tví- sýnt um líf hans, og í gær kom svo skeyti um, að hann væri lát- inn. Ofrjett er ennþá, með hverj- um hætti slysið liefir 'að Iiöndum borið. Konráð læknir hjet fullu nafni Konráð Ragnar og Ragnar var hann altaf kallaður heima hjá sjer, en í Latínuskólanum festist Kon- ráðsnafnið við hann og varð hans aðalnafn. Hann er faftldur hjer í Reykjavík 17. okt. 1884. Faðir hans var Konráð Maurer Ólafsson bókhaldari (dáinn 1897) og frú Ragnheiður Símonardóttir, sem bú- ið hefir til þessa hjá Konráði syni sínum. Hann varð stúdent 1906 með I. eink., vár' síðan 1 ár við læknisfræðisnám í Kaupmanna- höfn en hvarf síðan heim til Rvík- ur og las hjer, og tók próf í lækn- isfræði við háskólann 1912 með I. einkunn. Eftir próf var hann á spítölum í Kaupmannahöfn en í október 1913 fór hann til Eyrarbakka, vegna veikinda Ásgeirs læknis Blöndals, sem þar var þá hjeraðslæknir. Þar var hann svo settur hjeraðslæknir frá 1. apríl til 1. okt. 1914 en starf- aði þar svo áfram sem praktiser- andi læknir þangað til árið 1917, að hann fluttist hingað til Reykja- víkur og síðan hefir hann verið hjer. Árið 1914 kvæn'tist hann eftir- lifandi konu sinni, Sigríði Jóns- dóttur, Sveinssonar jirófasts á Altranesi. Þau eignuðust einn son. sem dó rjett eftir fæðingu, en kjörson tóku þau síðar, sem Bjarni lieitir. Konráð heitinn var meðalmaður á hæð; dökkhærðui' og fríður sýn- Konráð R. Konráðsson. læknir. um. Snemma kom í ljós dugnaður hans, ekki eingöngu við nám, held- ur líka til annara starfa, enda þurfti hann þess með á námsárum sínum. Seinni sltólaárin og líklega flest náínsárin í læknadeildinni, var hann á sumrin fylgdarmaður og túlkur útlendra ferðamanna. Yar varla hægt að fá betri fylgd- arinann, enda varð Konráð mjög ástsæll af þeim, sem hann ferðaðist með, og með honum og sumum þeirra hjelst vinátta til dauða- dags. Læknir var Konráð góður, og mun Árnesingum hafa þott að hon- um mikil eftirsjá, en hann vildi heldur vera í Reykjavík, og var þó á báðum áttum um það, hvort hann mundi geta lifað hjer sem læknir. Sá ótti var þó ástæðulaus, hann fjekk fljótt mjög mikið að gera hjer sem læknir. Kýkomið: Stórt úrval af allskonar fatnaðarvöru, svo sem: Regnfrakkar í stóru úrvali, Ferðajakkar, Sportbuxur, Sportsokkar, Ferðapeysur, Enskar húfur, Bindislifsi, Sokkabönd, Ermabönd, Axlabönd, Karlmannasokkar, fleiri lmndruð tegundir, Manchettskyrtur, Kahakiskyrtur, Skátabelti (egta), Rakvjelablöð, Rakvjelar, Raksápa, Treflar, Vasaklútar og ótal margt fleira í úrvali hjá Guðm. B. Ilikar, Laugav. 21. Sími 65S. 1930 er nafn á nýjum vindli, sem búinn er til af P. Wulff, — Kaupmannahöfn, bestu vindlagerð Danmerkur. 19 3 0 fæst alstaðar með þessu verði: 1 stk. 50 aura. 25 stk. kassi 10 kr. 50 stk. kassi 19.50. Fyrirliggjandi í heildsölu í i>að, sem einkendi Konráð lieit- inu mest, var dugnaður hans og ötulleiki, að hverju sem hann geklc, altaf glaðlegur og í góðu skai>i og mjög tryggur vinur og li.jáljifús. Fm það Jiykist jeg þora að dæma, sem hefi þekt liann frá því við gengum saman inn í Lat- ínuskólann. Seinustu árin var Konráð lieilsu- lítill, oft við rúmið, og fyrir rúm- um mánuði fóru þau hjónin utan, til ]iess að hann gæti fengið hvíld og heilsubót, en þessi varð þá lausn in. Guðm. Thoroddsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.