Morgunblaðið - 14.09.1929, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.09.1929, Qupperneq 6
«A" $4- 6 M 0 R G U N B LAÖIö cfært úti á annesjum. Veðurat- liuganastöðvar vegna flugferða verða að liggja á annesjum í fram- tíðinni. Þokan er vesti óvinur flug- ferða, því að vegna liins mikla kraða er ávalt kætta á í þoku, að flugvjel geti rekist á, og þá er dauðinn vís. Þá er enn eitt atriði, sem mönn- um er ekki nógu ljóst. Gera verð- ur ráð fyrir, að svo kunni að fara, að flugvjel þurfi að lenda skyndi- fega vegna vjelarkilunar eða af •öðrum ástæðum, og getur sjór þá verið svo úfínn, að eríitt sje fyr- ir flugvjel að atkafna sig og kætta jvvi á ferðum, þótt veður sje ann- ars gott. Veðurfregnir vegna flug- ferða skýra ])ví einnig frá ýmsu, sem ekki er tekið fram í venjuleg- um veðurskeytum, t. d. um öldu- gang, sem er tilgreindur í stiguin, um skýjakæð, kversu mikið af kiminkvoifinu sje skýjað, kversu kátt skýin ná, kve iangt skygni sje áætlað i kílómetrum o. fl. Á kverjum morgni fáuin við ná- kvæmt veðurkort af öllu landinu, ■er skýra frá öllum atriðum, veð- urfræðingur og flugstjóri ráðgast um veðrið, og ákvörðun er tekin um, að flogið verði, þegar gengið er úr skugga um, að flugfært sje. Ef nolrkur vafi leikur á um veðr- ið, eða snögg veðrabrigði eru væntanleg, er flugferð frestað. Svo mikillar varkárni er gætt, því að veðurfræði og flugferðir eru óað- skiljanlegir klutir. Flogið í misjöfnu veðri. f sumar kefir oft legið kafís- þioka á Húnaflóa og fyrir öllu Norðurlandi, og þó köfum við get- •a? kaldið uppi reglubundnum flug ferðum alt sumarið og spáir það góðu um framtíðina. Við höfum oft flogið í sumar, þótt skýin hafi náð upp yfir fjallatinda, ef him- ininn hefir verið heiður fyrir of- un og hefir þá verið flogið í 5— 6000 feta hæð, og altaf gengið vel. Um vindhraðann má segja, að hægt sje að fljúga í hvaða vindi sem er, en áreynsla er það mikil fyrir flugmanninn og einkum dreg nr hann mjög úr hraða flugvjel- arinnar, ef flogið er beint á móti vindi, en bensíneyðslan vex að sama skapi. Flugvjelar þær, er við höfum notað í sumar, taka jafn- nðarlega ekki meira bensín en til fjögurra flugtíma og er þá ein- sýnt, að ef flogið er frá Reykja- vík til Siglufjarðar eða Akureyr- ar gegn stinnum norðanvindi, get- ur hætta verið á, að flugvjelin verði uppiskroppa af bensíni og verði að lenda af þeim ástæðum. Þessu má ráða bót á með því að bafa bensín á öllum eða flestum viðkomustöðum. Flugvjelarnar í sumar hafa stundum flogið í veðri með vindhraða 7 og má af þvi sjá, .íð vindhraðinn þarf ekki að tálma Hugferðum að ráði, en vindur að baki eykur flughraðnn, enda hefir ein flugferð milli Akureyrar og Reykjavíkur verið farin á einum tíma og 50 mínútum, og önnur milli Vestmannaeyja og Reykja- víkur á 40 mínútum. Ýmiskonar gerð flugvjela. Þá kem jeg að smíði flugvjel- -anna. Tvent má ekki bila á flug- vjel, stýri og vængir. Ef vængir brotna, dettur flugvjel til jarðar og verður þá ekki við neitt ráðið, en svo rammbvggilega er gengið frá þessum hlutum, að nú má teljast óhugsanlegt, að þessar bil- anir geti orðið. Hver hlutur flug- vjelar er nákvæmlega rannsakað- ur, er smíði fer fram, og eru sjer- stök rannsóknaráhöld notuð til þess að sannreyna styrkleika þess- ara hluta. T. d. eru vængirnir gerðir þannig, að þeir hafa átt- faldan styrkleika við það, sem nauðsynlegt er, til þess að þeir geti haldist uppi á flugi, og hver flugvjel er tekin öll í sundur og iannsökuð nákvæmlega og bætt í nýjum hlutum, ef þurfa þykir, að r.floknum hverjum 500 flugtímum. Margir eru þeirrar skoðunar, að öruggara sje að hafa flugvjelar með fleiri hreyfla. Smíði hreyfla í flugvjelar hefir tekið miklum end- urbótum á síðustu árum, enda er afaráríðandi, að ]ieir sjeu galla- lausir og vel liirtir. Mjög fáar flug vjelar hafa tvo hreyfla, en margar þrjá og þaðari af fleiri. Flugvjel, sem tekur 8—15 farþega, hefir að jafnaði þrjá hreyfla og stærstu fJugvjelar heimsins þafa 12 hreyfla eins og hin nýja 100 farþegavjel ,,Do. X“, en litlar flugvjelar, eins og þær, er lijer liafa verið notað- ar, hafa venjulega 1 hreyfil. t hverri flugferð flýgur vjela- maður með, sjerfræðingur í sinni grein, er þekkir nákvæmlega alla samsetningu og gætir þess, að alt sje í lagi, og í hvert sinn, er flug- ferð lýkur, tekur annar vjelamað- ur við, sem athugar hreyfilinn ná- kvæmlega og býr f'lugvjelina und- ir næstu flugferð. Auk þessa er hreyfillinn nákvæmlega athugaður á hverri viku og tekinn allur í sundur eftir vissan fjölda flug- tíma, sumar hreyflategundir eftir 130—150 flugtíma, og annar hreyf- ili settur í staðinn uns hinn gamli hefir verið endurbættur. Stórfeldar endurbætur á hreyfl- um verða nú á hverju ári; sem sjest best á því, að á síðasta ári hefir verið margsinnis flogið á sömu vjel látlaust í marga sólar- hringa í einu, en bensín tekið i lofti úr annari flugvjel til þess að geta haldið fluginu áfram. Við verðum þó að gera ráð fyrir, að hreyfill geti bilað, meðan á flug- ferð stendur, og verður þá flug- vjelin að setjast og fara niður á renniflugi, sem hver flugmaður lærir vandlega á flugskóla. Þó hreyfill bili í lofti — Hjer á íslandi má telja mjög hættulítið að lenda, þótt hreyfil- bilun verði í lofti, því alstaðar get- ur flugmaður valið sjer þann stað, þar sem hann kemst upp að strönd, nema sjór sje úfinn. Flugmaður í 1000 metra hæð getur valið sjer hvaða stað sem hann vill til lend- mgar á 10 kílómetra svæði, ef hann neyðist til að lenda; flug- maður í 2000 metra hæð hvaða stað, sem hann vill, á 20 kílómetra svæði, o. s. frv. En ef sjór er all- úfinn, er hætta á, að vængir flug- vjelarinnar sláist við öldurnar og þess vegna, er flugmönnum ekki vel við að fljúga á þá staði, þar' sem undiralda er tíð eins og við Vestmannaeyjar, sem eru einn af erfiðustu flugstöðum íslands. Flughafnir og geymsluskálar. Þá er og nauðsynlegt, að vara- lilutir sjeu nægilegir til þess að altaf sje hægt að skifta um, svo að engin töf verði á flugferðum. Og loks er eitt atriði, sem enn hefir ekki verið minst á, en nauðsyn- legt er, ef flugferðir eiga að kom- ast á hjer á landi, og það eru fiughafnir. Reykjavík verður að eignast flughöfn, þar sem hægt er að draga hverja flugvjel á land að af- loknu flugi, því að reynslan hefir sýnt, að sjávarseltan skemmir alu- minium flugvjelanna, einkum flot- holtanna, og þarf því nauðsynlega að þvo alla flugvjelina við og við úr ósöltu vatni. Geymsluskála þarf að reisa til þess að geyma flugvjelar í að vetrarlagi, áhaldaskúr og viðgerða og verður þessi útbúnaður að vera svo úr garði gerður, að hann megi nota fyrii* stórflugvjelar, er fara yfir höfin og vafalaust. koma við í Reykjavík. Sá tími nálgast óð- um og það er aðeins fjárhagslegt atriði, eins og áður hefir verið bent á, hvenær verður komið á flugferðum milli íslands og annara landa. Fjárhagshliðin. Verð flugvjela'. Jeg kem þá að .mikilsverðasta atriðinu í þessu má'li, fjárhagshlið- inni. Allar flugvjelar eru mjög dýr ar, enda er mjög til þeirra vandað. Hver flugvjel er smíðuð út af fyrir sig, og hver einstakur hlutur sannprófaður, uns full trygging er fengin, að hann geti ekki bilað. Það er ekki eins og um bifreiðar, að hver hlutur er smíðaður í þús- nndatali og bifreiðin síðan sett saman. Einkarjettur á smíði hverr- ar flugvjelategundar mun og valda nokkru um hinn mikla kostnað. Flugvjelar eins og þær, er hjer hafa verið notaðar síðastliðin sum- ur, kosta alt að 100,000 kr. hver, þriggja hreyfla flugvjelar fyrir 9 manns kosta um 300,000 krónur, en vitanlega eru til ódýrar flug- vjelar, alt niður í 6—8000 krón- ur. — Bestar þykja flugvjelar þær, sem eru úr málmi, því að meiri hætta er á skemdum, ef úr viði eru. Málmflugvjelar (aluminium- flugvjelar) hafa þann kost, að þær geta staðið úti í hvaða veðri sem er, þótt vitanlega sje æskilegt, að þær standi í flugskála að vetr- arlagi. Ókunnugir geta ekki gert sjer í hugarlund, í hverju hinn mikli kostnaður liggur, en verðið er rnjög svipað um allan heim um svipaðar stærðir. Flugvjelar þær, er Junkerverksmiðjan í Þýskalandi smíðar, hafa reynst afar vel, enda munu fáar flugvjelar eins mikið notaðar eins og tegund sú, er hjer hefir verið síðastliðin tvö sumur. ^ msar þjóðir nota flugvjelar með tvísettum vængjum og hefir liver flugvjelategund nokkuð til síns ágætis. Flugvjelar þær, er hafa vængi ofan við farþegaklefa, hafa þann kost, að þær eru oft fljótari að hefja sig til flugs, af því að altaf er flugvjel lyft gegn vindi og lyftir hann því betur undir, en sú hætta er á, að þegar flugvjelar þessar eru lentar, einkum land- flugvjelar, að vindur geti feykt þeim um þar rsem þær standa. Hin gerðin þykir því öllu betri, sem Junkersvjelarnar hafa, að láta vængina vera neðan á skrokknum, fyrir neðan farþegaklefann. Hún hefir þó þann ókost, ef um sæflug- vjelar er að ræða, að vængirnir geta Megist niður á öldurnar, ef veruleg undiralda er. Hjer er því margs að gæta, enda hefir hver verksmiðja nokkuð til síns ágæt.is. Reksturskostnaður fyrir fimm mánaða árlegt flug. Athugum þessu næst allan kostn að við rekstur flugvjela. Fyrst er að borga af flugvjel. Tíðkast nú að miða við 5 ára tímabil, þar sem flogið er alt árið. Þá er vátrygg- ing afardýr, yfir 1/5 hluta and- virðis. Þá kemur benzíneyðsla og er hún 70—75 lítrar á klukkustund á vjelum þeim, er hjer hafa verið notaðar. Þá eru laun flugmann^, sem eru miðuð við hvern kílómeter er hann flýgnr og tíðkast í Þýska- landi, að hann fái 7 pf. fyrir hveru kílómeter og auk þess mánaðar- laun, 4—500 krónur, sem hækka noltkuð eftir þjónustualdri. Þá eru laun vjelamanna, laun flugstjóra, skrifstofukostnaður o. fl. Jeg liefi gert áætlun um kostn- að við að lialda iiti tveim flug- vjelum alt árið og telst til, að aílur kostnaður, þar í innifalin afborg- un, muni nema um 150.000 kr. Við gerum ráð fyrir að kaupa tvær flugvjelar, og hafa fastar áætlun- arferðir 5 mánuði ársins til að byrja með, frá maíbyrjun til septemberloka. Auk þess gerum við ráð fyrir að fljúga allan ársins hring, meira og minna eftir því sem veður og ástæður leyfa. — Hyggjum við, að sjerstakt gagn rnegi verða að ffugferðunum að vetrarlagi, einkum til postflutn- inga, því að þó að veður kunni að liamla nokkra daga í einu, kemur góðviðrisdagui' á milli, og þá ,er flogið með póst og farþega. Suma vetrarmánuði er stundum hægt að fljúga dag eftir dag, engu síður en á sumrin. Ótal atvik geta komið fyrir á vetrum, að hentugt sje að ná í flugvjel, þegar lítið er um skipagöngur og má öllum ljóst vera, að ])ó að ekki verði hægt fyrst um sinn áð halda uppi reglu- bundnum flugferðum á vetrum, getur ómetanlegt gagn orðið að þeim. Við liöfum hugsað okkur að nota aðra flugvjelategund nokkru stau'ri en þessar, er við höfum kaft í sumar, með 5—6 sætum, og láta búa þær þannig út, að minsta kosti aðra, að hægt sje að taka tvö sætin úr og setja sjúkrabörur í staðinn, þegar á þarf að halda. Flugvjelar þessar ættu að geta flutt 4 farþega í langflugi auk póstflutnings og 5—6 farþega í skemra flugi eins og milli Vest- mannaeyja og Rvíkur, Reykja- víkur og Stykkishólms o. s. frv. Framtíðartakmarkið ætti síðan að verða, að hver landsfjórðungur hefði sína eigin flugvjel og hefði þær bækistöð á ísafirði, Akur- eyri og Seyðisfirði, en sú fjórða í Reykjavík. Myndi.þá vera hægt að annast mestallan farþegáflutning og póstflutning í landinu. Til þess að standast kostnað af úthaldi tveggja. flugvjela í byrj- un, gerum við ráð fyrir eftir þeirri reynslu, er við höfum fengið í sum- ar að tekjur af farþegaflutningi yrði 50.000 krónur á ári. Því sem ávantar, teljum við sanngjarnt að jafna þannig niður: Fyrir póstflutninga .. 30.000 kr. Styrkur úr ríkissjóði.. 50.000 kr. Framlag frá 6 bæjum 20.000 kr. Eins og áður hefir verið getið, ieggja bæði ríkissjóður og bæjar- síjórnir í Evrópu fram styrk til fiugferða og ])ykir sanngjarnt, að bæir þeir, er að jafnaði verður flogið til, ef áframhald verður, eins ðg ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri, Seyðisf jörður, Norð- fjörður og Vestmannaeyjar leggi ö—SOOO^kr. fram árlega í styrk til flugferða, en Reykjavíkurbær ætti að leggja til flughöfn með nægilegum útbúnaði. Aætlun sú, er hjer hefir verið gerð, sýnir, að tiltölulega verður ódýrara að fljúga lijer á fslandi en annarsstaðar í Evrópu, vegna þess að hjer verða fyrst um siun eingöngu notaðar sæflugvjelar og komist verður hjá ýmsum kostn- aði, er landflugvjelar hafa í för með sjer eins og neyðarlendingar- sraðir, vitar og fleira. En við gerum ráð fyrir að flogið verði fyrsta árið um 100.000 kílómetra og lætur' þá nærri, að hinn raun- verulegi kostnaður verði um kr. 1,50 á flugkílómetra. Framtíð flugmálanna veltur á undirtektum almennings nú. — Framtíð þjóðarinnar fer eftir þeim undirtektum. Jeg legg nii þetta mál fram fvrir þjóðina. fslendingar hafa á síðustu árum varið möi'gum milj- ónum til vegagerða, mörgum milj- ónum til vita, mörgum miljónum (ij skipaferða. Á hverju ári borg- ar ríkissjóður um 200,000 krónur fyrir sfrandferðaskipið Esju og ver mörgum hundruðum þúsunda. til vegalagningar. Framtíðarfarar- tæki íslands hljóta að verða flug- vjelar. Sú þjóð, sem í mörg ár hefir verið að hugsa um að taka á «ig þær byrðar að leggja járn- brautarspotta sem kosta myndi ríkið vafalaust nokkur hundruð þúsund krónur árlega, um svæði, sem flugvjel er hálftíma að fara yfir, lilýtur að sjá, að bestu sam- göngutæki framtíðarinnar verða flugvjelar. Flugferðirnar munu koma því til leiðar að þjappa þjóð- inni saman, og örva blóðrás þjóð- líkamans. Hraðinn er andstaða kyrðarinnar, aukinn hraði táknar framsókn, táknar sterkari vilja, táknar ríkari þjóðarvitund. Við trum nú að komast inn í hringiðu alþjóðaviðskifta. Hver þjóð sækir fram, og ef við eigum eklti að dragast aftur úr, en ná því tak- inarki, sem hvern góðan íslend- ing dreymir um, að verða frjáls maður í frjálsu landi, verðum við að liraða framsóknarbaráttunni. — Flugferðir verða lífsskilyrði fyrir íslensku þjóðina. Sonurinn: — Hæ, mamma, sjáðu sótarann þarna. Móðiriii: — Þetta er Negri. Hann er ekki einungis svartur í andliti, hann er svartur yfir allan skrokkinn. Sonurinn: — Hvemig veist þú það, mamma?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.