Morgunblaðið - 14.09.1929, Page 8

Morgunblaðið - 14.09.1929, Page 8
8 * GV NBL AÐl f» &&& Rlfinnur dlfqkóngur. &&& FEfintýri með 120 mynðum eftir G. TH. ROTfTlRH. 97. Allt í einu heyrðu þeir byrsta rödd: „Þetta skuluð þið fá borgað!“ Þeir litu við og sáu kolsvartan álf með grátt skegg og glitti í hvít augun. „Þið hafið brotið egg strútsins,“ hélt hann áfram, „og þar sem ég átti að gæta þeirra, fæ ég auðvitað skellinn.“ „Nei, við verðum hér kyrrir og segjum hon- um, að það vorum við, sem brutum eggið,“ sagði Alfinnur, og reyndi að bera sig borginmannlega. 98. Að nokkrum mínútum liðnum kom strúturinn. Hann flýtti sér að gæta að því, hve mörg egg hans hefðu brotn- að, en til allrar hamingj var það ekki nema eitt. Jæja, það varð úr, að hann fyrirgaf þeim, af því að þetta var óviljaverk. „En hvað eruð við eigin- lega að gera hér suður 1 Afríku ?“ spurði hann. — Feðgarnir sögðu honum nú frá ferðum sínum og að þeir væru nú að leita að storknum. 99. „Ha-ha-ha!“ hló storkurinn. — „Eruð þið, litlu þumalingarnir að leita að einum stork um alla Afríku? Nei, hann finnið þið aldrei. Það er betra, að ég fari með ykkur niður að Nílar- bökkum, því að þar finnið þið án efa einhvern fugl, sem vill flytja ykkur heim.“ Þetta þótti þeim þjóðráð og strúturinn setti þá á bak sér og inn- an stundar var hann kominn á harða- sprett með þá norður á bóginn. 100. En ekki voru þeir úr allri hættu enn, því að ekki var strúturinn, fyr kominn út á eyðimörkina, en fíla- pabbi kom fram undan tré ásamt syni sínum. Þeir gripu álfana með rönunum og ráku strútinn burtu. „Þið skuluð ekki sleppa í annað sinn,“ sagði fíll- inn. „Nú veit ég um miklu betri stað til að geyma ykkur á.“ Hann labbaði síðan með þá í rananum niður á fljóts- bakkann. 101. Þar setti hann þá í stóra vatns- fötu og hengdi hana upp í grein, sem slútti út yfir ána. Þarna voru þeir nú í fötunni og sáu ekkert nema upp í heiðan himininn! Brátt fór að skyggja og niðdimm nóttin lagðist yfir. Þeir voru að hugsa um storkinn; hvort hann myndi finna þá þarna í fötunni eða hvort hann á annað borð kærði sig nokkuð um þá. Út frá þessum hugleið- ingum sofnuðu þeir. 102.Morguninn eftir vöknuðu þeir eldsnemma. Alfinnur lyfti Trítli upp, svo hann gæti séð yfir fötubarminn. „Þarna er sægur af fuglum,“ sagði hann, „en hvernig eigum við að Iáta þá taka eftir okkur?“ „Ég veit ráð til þess,“ sagði Alfinnur. „Við skulum hoppa til þess að láta fötuna sveiflast til og frá.“ Árangurinn af þessu varð sá, að fatan smámjaka^iist fram af greininni og — datt loks ofan í ána! 103. Þegar vatnahestarnir heyrðu hávaðann, ráku þeir upp stór augu, en urðu skjótt rólegir, þegar þeir sáu, að engin hætta var á ferðum. En svona skrítinn bát höfðu þeir aldrei séð! — Feðgana rak nú niður eftir ánni með geysi-hraða, og þeir höfðu ekki hug- mynd um, hvert þá myndi bera. En svo mikið var víst, að þá rak niður-eftir ánni, og þeir vonuðu að hjálpin kæmi þegar mest á lægi. 104. Allt í einu rakst fatan á fæt- ur storks, sem stóð út í ánni og var að- gæða sér þar á ýmsu góðgæti. „Getið þig ekki stýrt kænunni ykkar?“ sagði hann afundinn og leit ofan í fötuna. „Bíðum við ég þekki ykkur líklega, því að ég mætti vini mínum, er sagði mér frá ykkur. Hana, komið þið nú upp úr fötunni!“ ,Svo tók hann fötuna upp með nefinu og bar hana á land. Ástin sigrar, vatnsfletinum fjell á þau, svo þau fengu ofbirtu í augun. Þau gengu nokkurn spöl þegjandi, uns Row- land tók til máls. — Vegna þessa hugboðs míns, gat jeg ekki farið, án þess að tala við yður, án þess að segja nokkuð við yður, sem jeg ef til vill ann- ars aldrei hefði sagt. Hann rendi augunum til hennar um leið og hann sagði þetta, og hann sá ekki betur en að snöggir drættir í andliti hennar bæru vott um geðbrigði. Hann sá, að brjóst hennar bifaðist óvenjulega, og að hún fiktaði ókyrlátlega við kögrið á sjalinu sínu. En nálega undir eins náði hún fullkomnu jafnvægi, og bjó sig til þess að taka á móti þeirri árás, sem hún átt.i von á. — Jeg er viss um, að þjer eruð að ýkja, sagði hún, og hugboð yðar er ástæðulaust. Þjer munuð komá heill og óskaddaður frá verki því, sem. þjer eigið nú fyrir höndum; það vona jeg að minsta kosti. Þarna náði hann í hálmstrá. — Þjer vonið það? hrópaði liann og staðnæmdist um leið og greip um vinstri hönd hennar. — Vonið þjer það? Ef svo er, þá er jeg viss um, að jeg kem aftur. En ef svo væri, að yður væri sama, þá er jeg ekki viss um nema það færi best á því að hugboð mitt væri ekki eins ástæðulaust eins og þjer segið að það sje. Segið mjer, Ruth ....“ En nú greip hún fram í fyrir honum; hún áleit nú tíma til þess kominn. Hún var kafrjóð í kinnum og augnatillitið var kuldalegt. Hægt og rólega dró hún höndina að sjer, sem hann hafði haldið í. — Hvað eigið þjer við? sagði hún, talið skýrt og greinilega, svo jeg geti gefið yður greið svör. í þessari baráttu mundi engum öðrum en Sir Rowland hafa dul- ist, hve aðstaða hans var vonlaus og mundi þá hafa dregið sig í hlje á meðan leikurinn var góður. En hjegómagirnd hans varnaði honum þess algerlega og hann hjelt því áfratn, enda þótt hann hefði margoft átt að verða þess var, að Ruth kærði sig ekki hið rninsta um hann sem elskhuga, enda kom hann henni hálfaum- ingjalega fyrir sjónir, vegna hinna ótal mishepnuðu t.ilrauna hans til að afla sjer auðs og gengis. — Úr því þjer spyrjið mig á 'þessum grundvelli, þá skal jeg svara yður hreinskilnislega, svar- aði liann. Það sem jeg á við .... Hann næstum kveinkaði sjer und- an hinu rólega augnaráði hennar. — Sjáið þjer ekki, hvað jeg á við, Ruth ? — Jeg trúi ekki því, sem jeg sje, sagði hún, og þar sem jeg vil ekki gera yður rangt til með því að trúa neinni vitlej-.su um yður, þá vil jeg, að þjer segið mjer það hreinskilnislega. Ennþá hjelt hann áfram: — Hví skylduð þjer ekki trúa skiln- ingarvitum yðar ? spurði hann hana hálfreiður og hálfbiðjandi. — Er J>að nokkuð ótrúlegt, að jeg elski yður ? Er það .... ? — Hættið Jijer! sagði hún og gekk frá honum. Þau þögðu bæði andartak, hún hálfhissa og reið, en hann skömmustulegur og hjelt sig líkt og hundur, sem bíður eftir refsingu. Það leit líka helst .út fyrir, að hún ætlaði að setja ofan í við hann, en svo mun hún hafa hætt við það, því að Jiað næsta, sem hún sagði, var kærulaus en ckld óvingjamleg beiðni til hanw um að hvpja sig burtu. Híín sneri sjer síðan við og gekk nokkur skref á leið til hiissins og hagaði sjer að öllu leyti líkt því sem Sir Rowland hefði aldrei verið til. — Þetta var nóg til þess að hann gleymdi alveg hinni fyrri fram- komu sinni, og því með, að hún vildi auðsjáanlega hvorki heyra hann nje sjá. Hann varð reiðilegur á svipinn, hleypti brúnum og lyfti efri vörinni svo að skeim í hvítar tcnnurnar. eins og á rándýri. í einu stökki var hann kominn að hlið henni. — Hatið þjer mig, Ruth? spurði hann hásri röddu. — Hví skyldi jeg hata yður? spurði hún aftur. Jeg hefi ekki einu sinni ándúð á yður. Og svo bætti hún við eins og til að út- skýra þetta fyrirbrigði: — Þjer eruð vinur bróður míns og mjer þykir vonbrigðum sæta, að ]>jer hafið sýnt mjer óvirðingu, hið ó- líklegasta. sem jeg bjóst við af yður. — Að hverju leyti hefi jeg sýnt yður óvirðingú? spurði hann. — Þjer vissuð, að jeg er öðr- um ..,. 0, svei, greip hann fram í; þjer takið ekki frekar en jeg mark & þessu nauðungarhjónabandi. — Þjer nej-ðið mig til að særa yður, sagði hún, og geklc al- veg fram lijá Jiví, sem hann liafði \erið að segja. En jeg særi yður á sama liátt og skurðlæknir, til Jæss að lækna yður. — Þakka >rður fyrir, sagði liann hissa og móðgaður, en áttaði sig ]>egar í stað og greip aftur til hetjulegrar framkomu sinnar. — Jeg fer leiðar minnar, frú, sagði hann sorgmæddur, og fari svo að jeg eigi að týna lífinu í kvöld eða niorgun, Jiá....

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.