Morgunblaðið - 29.09.1929, Page 5
Smmudaginn 29. sept. 1929.
5
Stofnandl: Vllh. Fln«en.
Ct*»fandl: FJelag 1 Reykjayfk.
SltjitJörar: J6n KJartan»son.
Valtýr Stefánsson.
kuciyslngastjðrl: E. Hafberg.
flkrlfstofa Austurstrœtl *.
•Issi nr. 600.
AUKlýslngaskrlfstofa nr. 700.
aslmaslnar:
J6n KJartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 12*C.
E. Hafberg nr. 770.
vakrlftasJald:
Innanlands kr. 2.00 á ssánuBl.
~ nlands kr. 2.50 - ----
sölu 10 aura elntaklB.
Erlendar símfregnir.
FB. 28. sept.
Stefna nýju stjómarinnar í
Austurríki.
Frá Yínarborg er simað: Scho-
ber, forseti hinnar nýju stjórnar
í Austurríki, hjelt stefnuskrárræðu
sína í þinginu í gær. Kvað hann
óttann um byltingaáform í Aust-
urriki ástæðulausan, því Heim-
'vvehrsmenn áformi ekki að gera
byltingu eða borgarastríð. Kvað
hann stjórnina ætla að hafa sam-
band við Ileinnvehrsmenn í þeim
tilgangi að beina hreyfingunni
inn á rjetta braut, sem geri mögu-
legt að 'fnllnægja á löglegan hátt
kröfum Heimwehrsmanna að svo
miklu leyti sem þær sjeu fram-
kvæmanlegar og rjettmætar. Kvað
hann stjórnina ætla að vinna að
víðtækum breytingum á stjórnar-
skránni, einkanlega í því skyni að
auka vald ríkisforsetans.
Vesturför MacDonalds.
Frá London er símað: Ramsay
MacDonald, foraætisráðh., lagði af
3tað til Bandaríkjanna í dag. Tók
hann sjer far á skipinu Beran-
geria.
Stanley Baldwin, fyrverandi for
sætisráðherra, heimsótti MacDon-
ald í gær, til þess að óska honum
fararheilla. Bretlandskonungur hef
ir einnig sent MacDonald óskir
um góðan árangur af vesturför-
inni.
Breskir sjórnmálamenn og raun-
ar allur almenningur hefir' mikrnn
áhuga fyrir ferðalagi MacDonalds
og vænta þess sjerstaklega, að ár-
angurinn af ferðinni verði mikill
og góður og verði til þess, að
nvtt tímabil hefjist í sambúð
Bretlands og Bandaríkjanna, sem
hafi heillavænlegar afleiðingar,
ekki aðeins á meðal enskumælandi
þjóðanna heldur og um allan heim.
Leitin að pólförunum árangurs-
laus.
Frá Oslo er símað: ítölsku leið-
angursmennirnir, sem voru að
leita að loftskipsflokknum úr No-
bileleiðangrinum, á Spitzbergen-
svæðinu og Novaja Semlja, erá
komnir til Tromsö. Leitin varð ár-
angurslaus.
Harður dómur.
Frá Rómaborg er símað: Cesare
Rossi hefir verið dæmdur í þrjá-
tíu ára fangelsi fyrir þátttöku í
byltingasamsæri.
(Rossi er fyrverandi samverka-
maður Mussolini, en snerist á móti
honum, þá er Matteotti var myrt-
ur. Rossi var í fyrra lokkaður frá
Sviss til ítalíu og handtekinn þar).
Kveinstafir
Haraldar G-uðmundssonar og ótví-
ræð hræðsla hans við starfsemi
Varðarfjelagsins.
Sósíalistabroddar þessa bæjar
eru menn vanstiltir. Þeir þurfa
ekki mikið til þess að komast út
úr jafnvægi. Br þeir fá vitneskju
um að andstæðingar þeirra hafi í
hyggju að koma skipulagi á
flokksstarfsemi sína, þá er þeim
öllum lokið.
Haraldur Guðmundsson rýkur
til og nær í brjef og skjöl, sem
koma Sjálfstæðisflokknum við og
starfsemi Varðarfjelagsins hjer í
bænum. Svo mikið þykir honum
við þurfa, að hami klófestir brjef
þessi með þeim hætti, að hann
getur eigi treyst sjer til þess að
skýra frá því hvernig þau sjeu
komin í lians hendur.
En hvað þykist hann svo vinna
með því, að birta brjef þessi? Af
brjefunum er það sýnilegt, að
landsmálafjelagið Vörður hjer í
bænum hefir tekið sjer fyrir liend-
ur, það alveg sjálfsagða verk, að
vita um kjörfylgi Sjálfstæðis-
flokksins,’ fá um það sem nákvæm-
í.sta vitneskju. Fjelagið hefir enn-
fremur ákveðið, að fá nokkra
inenn til þess að talca að sjer ýms
störf hjer innajnbæjar í þágu
flokksins.
í alveg starblindri flónsku sinni
heldur Haraldur Cfuðmundsson, að
'hann geti talið fóllci trú um, að
Sjálfstæðismönnum, og þó einkum
stjórn Varðarfjelagsins, sje það til
minkunar að hafa komið þessu
skipulagi á flokksstarfsemina hjer
í bæinnm, sem nú er komin á, og
brjef þau sem birt eru í Alþýðu-
blaðinu gefa nokkra hugmynd
um. Bn hver heilvita maður sjer,
að slíkt er hin mesta fjarstæða.
Það er ekki nema alveg eðlilegt
og sjálfsagt, að hver stjórnmála-
fiokkur hafi sem best yfirlit yfir
fylgi sitt, og noti sjer af því, að
ménn vilja fyrir hann vinna.
Það er með afbrigðum hlægilegt,
er sósíalistar rísa upp og þybjast
hafa fundið það út, að skipulags-
bundin flokksstarfsemi sje for-
göngumönnunum til minkunar. —
Því það mega þeir eiga sósíalistar,
að þeir hafa sjeð það mörgum
öðrum fremur, hve slík starfsemi
er eðlileg og nauðsynleg. Þeir hafa
s’n ^ÍMög og fulltrúaráð, og hafa
góðar gætur á fylgi sínu, fjær og
nær. Hafa margir litið svo á, að
emmitt þessu fyrst og fremst. geti
sósíalistar þakkað það fylgi 0g
áhrif, sem þeir nú hafa á landi
hjer, en síður því, að menn hafi
einlæga trú á stefnu þeirra.
En þegar sósíalistar heyra, að
andstæðingar þeirra taka upp hjá
sjer skipulagsbundnara starf, en
þeir hafa áður haft, þá ætla brodd
arnir alveg að rifna. Þeir byrja
ineð því að æpa um það, að hið
sama fyrirkomulag, sem þeir sjálf-
ir hafa haft árum saman — sje
andstæðingunum til minkunar.
Vanstillingin og hræðslan, er lýs-
ir sjer í framkomu þeirra, er skilj-
anleg á þann eina Iiátt, að þeir
sjeu alveg dauðhræddir um sig og
f.vlgi sitt. Þeir líti sjálfir svo á,
að þegar andstæðingarnir taka.
föstum tökum á flokksstarfsem-
mni, þá sje vonlaust fyrir þá að
vinna hjer á. Það er ákaflega
skemtilegt fyrir Sjálfstæðismenn
að sjáhve sósíalistabroddarnir háfa
litla og veika trú á fylgi sínu hjer
i bænum.
En það er jafnframt eðlilegt,
að þeir sjái sem er, að fylgi þeirra
og velgengni er á völtum fótum.
Með ári hverju kynnist almenn-
ingur betur öllu þeirra innræti og
liáttalagi. Með ári hverju verður
það sýnilegra, að menn þeir, sem
mestu ráða innan sósíalistaflokks-
ins, eru ekki annað en valdagír-
ugar, sjerhlífnar aurasálir, sem
potað hafa sjer í mjúkinn hjá
kjósendum, til þess eins að afla
sjer metorða, valda, fjár og þægi-
legrar atvinnu. Umhyggja þeirra
fyrir velgengni verkafólksins, er
fals eitt. Hvað eftir annað hafa
þessar síngjörnu smásálir í valda-
sætum sósíalistaflokksins sýnt, að
þeim gildir einu, hvernig hagur
verkamanna er. Eru dæmin nærri.
Hver er afstaða Alþýðublaðsins til
síldareinkasöltuinar, sem gert hef-
ir atvinnu ótal manna rýra og stop
ula um hábjargræðistímann? Sýnir
ekki umhyggja blaðsins fyrir
einkasölufarganinu það fyrst og
fremst, að mest er hugsað um
feitu stöðurnar og bitlingana, sem
forkólfarnir fá ?
Þannig mætti lengi telja. Hvar
sem litið er í verkahring sósíal-
istabroddanna, kemur það sama
upp á teningnum. Umhyggjan fyr-
ir hag broddanna situr i fyrir-
rúmi. Skraf þeirra um liækkun
kaupgjalds, bætt húsakynni, trygg
iagar o. fl., er ekkert annað en
tálbeita og blekkingar. Atvinnu-
leysi, óstjórn, örbyrgð, er vatn á
þeirra myllu. ÖIlu slíku fylgir
hatur og heift, en í þeim akri upp
skera sósíalistaforkólfarnir mest
iyigi-
Þegar ofan á þetta bætist, að
þessir menn þykjast eigi fá nægi-
ieg lilunnindi og fjárframlög frá
alþýðu manna, og núverandi bó-
síalista stjórn, þá leita þeir til
danskra sósíalista og snýkja hjá
þeim gull í ofan á lag. — Sem
þóknun handa danskinum fyrir
þessa „uppbót“, ætla þeir á sínum
tíma að sjá um að íslenskar auðs-
uppsprettur gangi eigi að fullu
úr greipum „bræðraþjóðarinnar“.
Þegar alt þetta og meira til,
sem of langt væri Upp að telja er
vitanlegt um aðferðir, innræti og
framferði sósíalista, þá er von þeir
æpi og veini, er þeir sjá, að and-
stæðingar þeirra taka á því með
festu og af heilum hug að skipa
sjer í þjetta fylkingu gegn sósíal-
istastjórn þeirri, sem hjer er við
völd og öllu farginu, sem henni
fylgú'.
Farsóttir og manndauði í Rvík.
^ ikan 15.—21. sept. (I svigum töl-
ar næstu viku á undan). Háls-
bólga 66 (89), kvefsótt 64 (80),
kveflungnabólga 3 (2), gigtsótt 2
(4), iðrakvef 45 (58), hettusótt 2
(6), taksótt 3 (0), kikhósti 0 (1),
Impetigo 0 (3), hlaupabóla 2 (0),
umferðargula 1 (3), heilasótt 1
(0), munnbólga 0 (1). _ Manns-
lát 6 (10). Meðal hinna dánu var
einn utanbæjarmaður. G. B.
Trúiofun. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína Guido Bemhöft stór-
kaupmaður og yngismær Maja
MöIIer.
Hbdulla Gigarettur
ern toestar
m.NEWMMSnnta
CIOAREITE 5PEC1AL1STS
jABÖuuA * Ino
Tyrkneskar,
Virgiuia,
Egypskar.
Heildsölubirgðir|hjá
O. Johnson &|Kaaber.
NB.: m fe
Sainið íslensku ljósmyniJ-
nnnm sem fylja með
ABDULLA No. 70/20 stk.
Fallegustu
cigarettu
myndirnar.
"“"iNVlV,,
jSHí,
10
VIRGINIA
Með hverrl sMgsterð
fánm við fallegar
Ijósakrónur, borðlampa,
vegglampa, hljóðfærislampa,
silkiskerma o. m. fl.
svo allir geta iengið lampa við sitt hæii.
Raftækjaverslunin ]ón Sigurðsson.
Anstnrstræti 7.
Benkelaer’s
branð, fjðlOi tegnnda,
Töggnr (karamellnr)
og ileira nýkomið í
Heildverslun Garðars Gíslasonar.
i Iðnskðlannm
verða haldin námsskeið í vetur, annað í teikningu fyrir
málara, sveina og lærlinga, og hitt í efnisfræði, bókfærslu
o. fl. fyrir bakara, sveina og lærlinga. Þeir, sem vilja
taka þátt í námsskeiðum þessum, gefi sig fram til inn-
ritunar við undirritaðánn í skrifstofu skólans miðviku-
dag 2. og fimtudag 3. október klukkan 8y2—9y2 síðdegis.
Kennarar skólans eru beðnir að koma á fund í skól-
anum þriðjudaginn 1. október kl. 6 síðdegis.
Helgi Hermanu Eiriksson.