Morgunblaðið - 05.10.1929, Qupperneq 2
1
IÍORG UN BLAÐIÐ
)) teimiHi i Olseh (Ci
Eins og undanfarin ár munum við með „Esju“ í
þessum mánuði, fá eitthvað af,
hinu fræga Vopnafjarðar spaðsaltaða dilkakjöti.
Bestu meðmælin með þessu sjerstaklega góða kjöti,
virðast vera þau að hingað til höfum við aldrei getað
fullnægt eftirspuminni.
Frestið því ekki að panta.
Tilkynning.
Hjer með tilkynnist, að aðalumboð það, fyrir ísland,
sem fyrverandíi bankastjóri jústisráð Sighvatur Bjarna-
son hafði á hendi, er nú falið á hendur frá Ágústu Bjarna-
son, í fjelagi við hr. Sigfús Sighvatsson.
Vátryggiagarfjelagið
Nye Danske.
Vetrarsjölin
e r u k o m i n.
Verslnnin Bjðrn Kristjánsson.
Jðn Bjðrnsson & Go.
snriinorðin
komin.
Húsgagnaverslnnin
við Dómkirkjuna.
a t s a 1 a.
Jeg undirrituð hefi opnað matsölu og veitingasölu
í K. R.-húsinu við Vonarstræti. Hefi þar á boð-
stólum auk fæðis, alskonar veitingar allan dag-
inn. Einnig húsnæði fyrir smærri samkvæmi og
dansleiki. — Góðar veitingar, vistleg húsakynni,
lipur afgreiðsla.
Steinunn Valdimarsdóttir.
Sími 2130.
Gustav Stresemann
utanríkisráðherra Þjóðverja
ljest i fyrradag úr hjartaslagi. -
Hafði hann verið heilsuve'ill um
alllangt skeið, en varð að leggja
á sig mikið erfiði, og mun það
sennilega hafa flýtt fyrir dauða
hans.
Stresemann var fæddur 10. maí
1878 og því rúmlega fimtugur. —
Hann las stjórnfræði við háskóla
og varð dr. phil. árið 1901. En að
því loknu rjeðist hann í þjónustu
stóriðjunnar <og vann sjer þar
brátt álit log árið 1907 var hann
kosinn á þing og sat á flestum
þingum eftir það. Kvað brátt mik-
ið að honum og varð hann fyrst
foringi nationalliberala og síðar
foringi þýska þjóðflokksins. —
Stresemann.
Kanslari í samsteypuráðuneyti var
hann frá því í ágúst og þangað
tií í nóve'mber 1923, en þá tók
hann við utanríkisráðherrastarf-
inu og gegndi því æ siðan. Þegar
hann tók við því starfi var það
hið vandasamasta embætti í Þýska
landi og hefir verið það síðan, en
Stresemann gegndi því með slíkri
snild, að aðdáun hefir vakið um
allan heim. Einurð, gætni og lip-
urð hafa einkent alla framkomu
hans í hinu „vopnlausa stríði“ við
bandamenn, og hefir honum orðið
meira ágengt en nokkur hafði
búist við, enda ávann hann sjer
traust og virðingu þeirra, sem
hann átti í höggi við. Hefir það
margsinnis verið sagt að ósýnt
væri um framtíð Þýskalands og
samlyndi þjóðanna ef Stresemanns
misti við. Er því stórt skarð fyrir
skildi, þar sem hann er fallinn,
og verður Þjóðverjnm vandfund-
inn maður í hans stað. En sagan
mun telja hann meðal stórmenna
og fremstu stjórnmálamanna á
þessari öld.
Allir
nýjustu
hanstlitir
nýkomnir.
Kaupið bestu og ódýrustu
silkisokkana. Verð kr. 2.75
og 3.76.
Stefðn Gunnarsson,
Austurstræti 12.
Fást einnig í heildsölu til verslana.
Bækor Bókmentafjelagsins eru
nú komnar út. Er það Skírnir,
Annálar, Fornbrjefasafn og Safn
til sögu íslands. Skírnir er 242 -f-
XXX bls., og er. í honum margt
fróðlegt, eins og fyr. Grein er þar
um handritamálið, eftir Halldór
prófessor Hermannsson; fyrirlest-
ur Guðmundar Kambans um Daða
og Ragnheiði; Lífsskoðun Háva-
mála og Aristótele's eftir Guðm.
Finnbogason; Nibelungenlied og
hetjukvæðin í Eddu eftir Pjetur
meistara Sigurðsson; athugasemd-
ir um Haraldskvæði eftir Sigfús
Blöndal; Nýskólar og nýskólahug-
myndir eftir Sigurð prest Einars-
son, Úlfljótur eftir E. próf, Amórs
son; „Cement“, ritgerð um bók
með sama nafni eftir rú9sneska
skáldið Gladkow, eftir Einar meist
ara Sveinsson, og ritgerð um Vil-
hjálm keisara annan eftir ritstjór-
ann, Arna Pálsson. Ritfregnir eru
eftir Tryggva ráðherra Þórhalls-
son, Einar Arnórsson, Boga ad-
junkt Ólafsson og Pál Eggert Ól-
afsson. Loks eru skýrslur og reikn-
iugar Bókmentafjelagsins. Hefti
það af Fornbrjefasafnitnu, sem
fylgir bókum fjelagsins, nær yfií
árin 1552 og 1553. Heftið af Safni
til sögu íslands hefir inni áð halda
exidirinn á ritgerð Guðbrands Jóns-
I *
sonar um dómkirkjuna á Hólum.
EimreiÖin, júlí—desember-heft-
ið, er nýkomin út. Fyrsta greinin
er eftir Guðm. Híinnesson um nýtt
.stjórnskipulag; þá er fyrirlestur
Kambans unx Reykjavíkurstxxlk-
una. Grein er það eftir ritstjór-
ann, Svein Sigurðsson, „Hvað skil-
ur?“ og önnur um sálrænar rann-
sóknir. Enn er grein um Raspútín
eftir Eið Kvaran, stúdent í Miin-
ehen. Nokkrar sögur eru í heftinu
eftir Jóhannes Friðlaugsson frá
Fjalli og Soffíu Ingvarsdóttur.
Grein eftir síra Ragnar Kvaran:j
„Guðfræðingarnir og þjóðin" er í
heftinu, og „Á fjöllum" eftir Guð-;
mund Einarsson. Grein er og um 1
sænska skáldið Victor RydbeTg'
eftir Rurik Holm. Loks eru nokk-
ur kvæði eftir Böðvar frá Hnífs-
dal, Þorstein Jónsson og Margrjeti
Jónsdóttur.
Sendiherrann frá Júpíter hefir
nokkrum sinnum verið sýndur á
Betty Nausen-lerkhúsinu í Kaup-
mannahöfn. Eftir að hætt var að
sýna leikinn, gerði frú Nansen til-
raun með að sýna leikinn ókeypis.
Voru aðgöngumiðar afhentir þeim,
sem gáfu sig fram og hurfu þeir
í skjótri svipan. — Seinni hluta
sunnudags, þegar sýningin var, var
húsið troðfult. Var leiknum tekið
með miklum fögnuði og klappað
aftur og aftur. Loks frá frú Nan-
sen kölluð fram og með henni höf-
undurinn. Voru þau hylt hlýlega.
(Sendiherr af rj ett).
Hjálpræðisherinn (samkomm* á
morgun) : Helgunarsamkoma kl.
11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
(Börn, sem óska að vera í skólan-
um í vetur komi á þessa sam-
komu). Hjálpræðissamkoma kl. 8
síðd. Allir velkonmir.
Ú t s a 1 a.
Ondnla
hefir útsölu á nokkrum ágætisvör-
um: Fallegum silkisokkum, 6-
venjusterkum, nærfatnaði kvenna,
mjög smekklegum, alskonar snyrt-
ingarvörum og áhöldum, bæði fyr-
ii' hendur hár og andlit, ilmvötn-
xim, sápxxm o. fl.
Komið, skoðið, kaupið, reynið.
Til vetrarins: Ullarsokkar og
hlýjir vetrarhanskar.
Ondula
er í Miðbænxim, í húsi Jóns Þor-
lákssonar, Austurstræti 14.
Gengið inn frá Pósthússtræti.
Við höfum ávalt úr lang-
stærstu birgðum að velja.
100 föt, fyrir haustið,
voru tekin upp í gær, þar
á meðal ágæt föt fyrir
kr. 65.00.
Brauns-Verslun
Barna- og unglingabækur:
Anna Fla
Anna Ffa I höfuösfaönum
Alfinnur álfakóngur.
Litla örottningin
Herra-
Ulsterar
nýjasta snið.
móðinslitir
nýuppteknir.
Lítið í gluggana!
hjá
S. lóhannesdóttur,
Soffínbúð.
beint á móti Landsbankanum
Austitpaleatl 14.