Morgunblaðið - 23.03.1930, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
flðlu-Hiðlmars sapa
eftir Brynjúlf Jónsson
frá Minna-Núpi,
örfá eintök eitir og kosta að eins kr. 1.50 eintakið.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Erindi um trú kvekara flytur
Klemens Guðmundsson í dag kl.
5 í Kaupþingssalnum. (Sjá nánar
í augl. í blaðinu).
Trúlofun sína hafa opinberað 9.
þ. m. Stefanía Guðmundsdóttir,
Hverfisgötu 87, og Valdimar Dan-
íelsson, Urðarstíg 15.
Hjónaefni. Helga Markúsdóttir
og Kristján Bergmann Jónasson,
þæði frá Hafnarfirði, hafa nýlega
opinberað trúlofun sína.
Alþýðufræðsla Guðspekifjelags-
ins. í kvöld kl. 8yz flytur frú Val-
,gerður Jensdóttir kennari í Hafn-
arfirði, erindi um englana, í húsi
fjelagsins við Ingólfsstræti. — Að-
gangur ókeypis.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag, kl. 11 árd. og kl. 8 síðdegis.
Nemendur foringjaskólans stjórna.
Hornaflokkurinn og strengjasveit-
in aðstoða. Sunnudagaskólinn kl.
2 síðd,
Sjómannastofan: Guðsþjónusta í
Varðarhúsínu í dag kl. 6. Síra
Arni Sigurðssön talar. Allir vel-
komnir.
Landskjörstjóm. Dómsmálaráðu-
neytið hefir skipað í landskjör-
stjórn þá Magnús Sigurðsson
bankastjóra, Ólaf Lárusson pró-
fessor, Hermann Jónasson lögre'glu
stj. og til vara þá St. J. Stefánsson
hrm., og Helga Briem skattstjóra.
Framboðslistar skulu afhentir odd-
vita kjörstjómar, Magnúsi Sig-
urðssyni 8 vikum fyrir kjördag, í
seinasta lagi laugardaginn 19.
apríl.
Vitavarðarstaðan á Reykjanesi
hefir nú verið auglýst laus til um-
sóknar 1. júní „laun samkvæmt
launalögunum, auk húsnæðis, ljóss
og hita og afnota túnbletts, er
fylgir vitanum.“ Þessi „túnblettur,
sem fyigir vitanum“, er eingöngu
handaverk Ólafs Sveinssonar, se'm
nú á að hrekja frá Reykjanesi.
Tvær bækur eru auglýstar í
blaðinu í dag, sem fæsta hefir
líklega grunað að til væru í bóka-
verslun, enda e'ru aðeins örfá ein-
tök eftir af hvorri þeirra. Þetta
eru Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar
og Bólu-Hjálmars saga eftir Brynj-
ólf Jónsson frá Minna-Núpi.
400 ára afmæli prentlistarinnar
á íslandi. Fjelag íslenskra prent-
smi'ðjueigenda og Hið íslenska
prentarafjelag gangast fyrir því,
að fjögur hundruð ára afmæíis
prentlistarinnar á íslandi verði
minst og verður það ge»t með
tvennu móti. Fjelögin efna til sam-
sætis þ. 5 n. m. og verða þátt-
takendur í því án efa mjög margir.
Auk þess gefa fjelögin út vandað
rit til minningar um afmælið. —
Heitir það „Fjögur hundruð ára
saga prentlistarinnar á íslandi“,
skráð af Klemens Jónssyni fyrv.
ráðherra. Er á allan hátt vandað
til útgáfu þessarar merku bókar,
se'm líklega verður um 15—20
arkir að stærð í stóru broti. FB.
Þingvallakóriim. Samæfing ann-
að kvöld (mánudag) kl. 8V2.
Ríkisútgerð. Samkvæmt auglýs-
ingu frá skipaútgerð ríkisins var
burtför Esju hjeðan suður og
austur um land, ákveðin kl. 10
í gærkvöldi og hafði þá burtför
verið frestað dag frá degi. Á
tilsettum tíma komu farþegar um
borð að venju, fjöldi manns. En
nokkrum mínútum áður en skipið
átti að leggja á stað kom Ólafur
Friðriksson með „makt og miklu
veldi“ og bannaði, að póstur, sem
var á bíl við skipshliðina, og
nokkrar olíutunnur, sem lágu á
bakkanum, væri látið um borð.
Eftir andartak var svo slegið upp
auglýsingu við landbryggju og
tilkynt að burtför skipsins væri
frestað til kl. 10 í dag. Farþegar
máttu þá allir hypja sig í land.
Höfðu þeir haft það eitt upp úr
förinni að brjótast í ge'gnum mann
þvögu mikla, bæði um borð og í
land aftur. Ekki er annað hægt
að segja, en að vel fari á stað með
ríkisútgerðina og væri ekki ósann-
gjarnt að gera ráð fyrir því, að
ferstjórinn, sem hefir skriðið í
þetta sæti fyrir náð Jónasar frá
Hriflu og „afgreiðslumaðurinn“
Sigurjón Ólafsson, 4. þingmaður
Reykvíkinga, væri svo kunnugir
fyrirætlunum Ólafs Friðrikssonar,
að þeir þyrfti ekki að leika sjer
að því, að narra saklausa ferða-
menn. Veit afgreiðslan ekki hvað
hún má bjóða sjer gagnvart Ólafi
Friðrikssyni ? Eða á það að vera
einkenni ríkisútgerðarinnar, að
relta farþega í land um leið og
burtför skips er ákveðin. Geta má
þess, að skipverjar lýstu yfir því
xvið farþega að þeir hefði boðist
til að taka sjálfir olíuna og póst-
inn um borð, en Ólafur bannaði
það og Pálmi og Sigiirjón -beygðu
sig í auðmýkt. — Til hamingju
með ríkisútgerðina!
Einar Markan söng í Nýja Bíó
í fyrrakvöld. Á söngskránni voru
eingöngu lög eftir íslensk tónskáld.
Flest af lögum þessum munu hafa
verið áheyrendum kunn. En þó
voru þarna tvö lög, sem fáir munu
hafa heyrt áður^ Wiegenlied, eftir
Emil Thoroddsen og ísland eftir
frú Elísabetu Waage. Aukreitis
söng Markan meðal annars hið al-
kunna lag „For you alone“, og
„Elegie“ eftir Massenett, bæði við
íslenska texta. Undirtektirnar báru
jess ljósan vott að áheyrendur
voru stórhrifnir af söng Markans.
Dr. Mixa ljek undir.
Sæsíminn. Skemdir urðu fyrir
skemstu á sæsímanum milli ís-
lands og Færeyja og var lelci á
honum alla vikuna, en samt var
hægt að koma skeytum milli landa.
1 gær kom símaviðgerðaskip á stað
inn og slæddi upp símann. Var
sambandslaust sæsímaleiðina til
"'tlanda í gær, og voru því öll
skeyti send loftleiðina. Búist er
við því að sæsíminn verði kominn
í lag í dag.
Morgunblaðið er 12 síður í dag
og Lesbók.
Slökkviliðið var í gær kvatt inn
að húsinu nr. 79 við Laugaveg,
Hafði kviknað þar lítilsháttar eld-
Allar síðustu umbætur og
framfarir í bifreiða-smíði
eru sameinaðir í hinum nýj-
ustu gerðum af NASH bif-
reiðum.
Hvarvetna vekja NASH bif-
reiðarnar stórkostlega at-
hygli sakir hinna fjölmörgu
kosta sinna og yfirburða.
Lengri undirvagnar. Kraftmeiri vjelar. Ný gerð af vatnskössum með
sjálfvirkum lolcara. Fullkomið hömlukerfi (hávaðalaust og fljót-
virkt. (Stáltaugar í stað teina). Færanlegt framsæti. Tvöföld raf-
kveikja samfara hámarks- samþjöppun) í mótornum. Vökvaþrýsti-
hömlur á öllum fjöðrum. 7 sveifáslegur (9 í 8 cylindra vögnum).
Allur undirvagninn smurður með einu handtaki.
Nú er kominn tími til að panta'þær bifreiðar, sem
eiga að koma með vorinu. Látið ekki hjá líða að afla yður
allra upplýsinga um NASH, áðiur en þjer ákveðið yður.
Aðalumboðsmaður á íslandi fyrir Nash Motors.
Signrþór Jónsson,
Austurstræti 3, Reykjavík.
ur í kjallara,.en varð brátt slökt-
ur. —
Messað í Fríkirkjunni í dag kl.
2, síra Árni Sigurðsson.
Brúarfoss strandar. Klukkan 4
í fyrrinótt strandaði Brúarfoss í
Önundarfirði norðanvert, skamt
frá Flateyri. Var á leið inn fjörð-
inn og fór of nærri norðurland-
inu. Kom til mála að senda „Óð-
inn“ þangað vestur og var hann
kallaður hingað, en er hann kom
hafði Brúarfoss losnað sjálfkrafa.
Það var á flóðinu, um hádegisbil.
Skipið sigldi síðan tft Flateyrar
og þaðan til ísafjarðar í gær-
kvöldi og heldur áfram áætlun-
arferðinni eins og ekkert hafi
í skorist. Ekki verður um það
sagt hvort botninn í skipinu hefir
skemst eða ekki. Varð vart við,
ofurlítinn le'lca í botn-„tank“, en
lestir eru alveg þurar.
Eldhúsumræður hófust í þinginu
í gær. Fyrstur talaði Magnús Guð-
mundsson og kom víða við; birt-
ist fyrri hluti ræðu hans hjer í
blaðinu í dag. Þegar Magnús hafði
Aðalfunður
Fjelags lóðialeigjenda verður haldinn í dag, sunnudaginii
23. mars kl. 2 e. h. í Varðarhúsinu.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
STJÓRNIN.
Bernburgs
hiiómsveit
í kvfild á
Hótel Heklu.
lokið ræðu sinni stóðu ráðherrarnir
upp til andsvara, én lítið varð úr
vörn af þeirra hálfu. Þá fór Magn-
ús JóiissolV í eldhfisið ög flutti
skörulega ræðu í rúma 2 tíma;
sneri sjer aðallega að spillingu
stjórnarinnar í embættaveitingum.
Verður nánar sagt frá ræðu hans:
hje'r í blaðinu síðar. Eldlnisumræð-
ur halda áfrarn á morgun.