Morgunblaðið - 06.04.1930, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Begóníur í pottum í Hellusundi
6. Sent heim ef óskað er. Sími 230.
bkautbúningskassár úr zinki
fást smíðaðir eftir pöntun í Blikk-
aönðjunni á Laufásveg 4. Sími 492.
Mótorhjól, nýtt, til sölu með
(Öðkifærisverði, nú þegar. Upplýs-
iíhgar í Versl. Gunnars Gunnars-
aOnar, Hafnarstræti. Sími 434.
Sumar-
kðournar
eru komnar í
Sofffubúð
S. .Jótaannesdóttir.
Fjallkonu
n skó-
skó-
svertan
er
r best.
W. Efnagerð Reyhjavthur.
Stðfesmnii
er stðra orðið
kr. l.;25
borðið.
Gassuðuvjelar.
Búsáhöld úr b!ikki,
aluminium og
emaileruð
fást hjá
Vald. Ponlsen
Klapparstíg 29. Sími 24.
því hvað hjer er annars pokalega
tilbreytingar snautt, gleyma um
stund norðangúlpnum og göturyk-
inu, rukkurum og pólitík og
finst sem þeir sje komnir í annað
land, komnir þangað sem sólin
vermir hörundið og blóðið streym-
ir ört og hlýlega.
En húsbóndinn Jóhannes Jósefs-
son getagur um á meðal gestanna
og sjer um, að allir fái sitt, og
allir fari ánægðari en þeir komu.
En gestimir taka í hönd honum
og þakka honnm fyrir í hjarta
sínu, að hann skyldi reisa þennan
srðræna sælulnnd, x eyðimörk hins
reykvíkska tilbreytingarleysis.
Pp.
Dagbðk.
I. O. O. F. 3 == 111478.
□ Edda 5930487—1. Atkvgr.
Mannamót. Margt verður hjer í
bænum til skemtunar í dag, jafn-
vel með mestá móti:
Kl. 10 f. hád. hefst skólahlaupið.
Kl. 3 syngur Karlakór Reykja-
víkur í Nýja Bíó undir stjórn Sig-
urðar Þórðarsonar. Á sama tíma
flytur Gísli Sigurðsson fyrirlestur
í Gamla Bíó um Þingvöll og Al-
])ingishátíðina. Á sama tíma hefst
1 flokkaglíma Ármanns í Iðnó.
Kl. 5 hefst hin stóra hlutavelta
K. R. í íþróttahúsinu.
Kl. 8y2 syngur Einar E. Markan
í Fríkirkjunni.
Kl. 5 byrja sýningar í báðum
kvikmyndahúsunuhi. Gamla Bíó
sýnir mynd, sem heitir Lautinant
hennar hátignar, og Nýja Bíó sýnir
mynd, sem he'itir Kapplilaup um
gæfuna.
Kl. 9 hefst dansleikur templara
í Iðnó.
Kl. 8flytur Guðjón Guðjóns-
son kennari erindi fyrir Alþýðu-
fræðslu Guðspekifjelagsins í Guð-
spekifjelagshúsinu: Engin trúar-
brögð eru æðri en sannleiknrinn.
Kl. 8 hefst sýning Leikfjelags-
ins á „Hreysikettinum14.
Og svo má náttúrlega telja dans-
inn í Hótel Borg.
Frá Vestmannaeyjum. Uppgripa
afli er enn á línu í Vestmannaeyj-
nm, en lítið er orðið um góða beitu
— hefir síldin skemst. Eru mehn
því að byrja að leggja þorskanet.
Fyrstu netin lágu niðri þrjár næt-
ur og fengust í þau um 5000 þorsk
ar. Margir Iögðu net sín í fyrsta
skifti á föstudaginn.
Mjólkurfjelag Reykjavíkur er
þegar orðið meðal stærstu verslun-
arfyrirtækja þessa lands. Á árinu
1929 var umsetning fjelagsins á er
lendum vörum yfir 2 milj. króna
og á mjólk 0g mjólkurafurðum
nokkuð á aðra miljón kr. Re'ksturs
hagnaður varð á árinu rúmar 126
þús. kr. — Tvær stórar byggingar
hefir fjelagið í smíðum hjer í bæn-
um. Er annað verslunarhús, stórt
og vandað og er það langt komið,
en hitt mjólkurstöð, sem verður
útbúin öllum nýjnstn tækjum.
Mjólkurstöðin er að verða full-
gerð. Framkvæmdarstjóri Mjólkur
fjelagsins er Eyjólfur Jóhannsson
frá Brautarholti.
Hlutavelta. K. R. hefir fengið
leyfi til þess að halda hlutaveítu
til ágóða fyrir íþróttahús sitt. Hef-
ir fjelagið lagt gríðarmikið í kostn
að við endurbætur 0g viðgerð á
húsinu og er að sjálfsögðu í fjár-
þröng þess vegna. Mnnu nú bæjar-
búar eflaust sýna það í verkinu ð
þeir virða framtakssemi fjelagsins
og styðja gott málefni með því að
draga í e'inum svip hvem einasta
miða á hlutaveltnnni. Hún hefst í
dag kl. 5 í íþróttahúsinu. Meðal
happdrátta má þar nefna farseðíl
til Gautaborgar (yfir Kaitpmanna
höfn), lifandi kálf, lamb, mikið af
inatvælum, vefnaðarvöru, búsáhöld
um og kolum. — Ennfremur verða
þarna 1000 munir af nýjum varn-
ingi, sem keyptur var í Þýska-
landi til þess að setjast á hlnta-
veltuna. Er því hjer um alveg
óvenjulega hlutave'ltn að ræða.
Mjólkurbúið að Reykjum í Öl-
fusi tók til starfa um síðustu mán-
aðamót. Þar er mjólk pasteurhit-
uð með jarðgufuhita. Er mælt að
það reynist veL.
Austanfjalls er tíðarfar nú oi-ðið
svo gott, að bændur eru farnir að
sleppa hrossum og geldfje. Hey-
birgðir víða litlar, en heyleysi ekki
stórbagalegt enn. Feikna mikil
hey skemdust eftir vatnaganginn
um daginn. Eyðilagðist mest af
heyi því er var í hlöðnm er vatn
hljóp í. Hitnaði svo mikið í hlöð-
unum, að það hey sem uppúr stóð
vatninu skemdist alt e'ins og það
se’m blotnaði í vatnságanginum.
„Alt er betra en bolsivisminn“.
Það orðtak er nú mjög á vörum
þeirra manna, sem liafa náin kynni
af Síldareinkasölunni, og tapað
hafa fje og atvinnu vegna óstjórn-
ar þeirrar er nú rílcir í síldarmál-
unum.
Sjómannastofan. — Samkoma í
kvöld kl. 6 í Varðarhúsinu; allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn. (Samkomur í
dag). Helgunarsamkoma kl. 11 ád.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 8 síðd. Lautinant
Hilmar Andresen stjórnar. Horna-
flokkurinn og strengjasveitin að-
stoða. Allir velkomnir! Heímila-
sambandið heldur fund mánudag-
inn 7. apríl kl. 4 síðd.
Brauðverð lækkar. Bakarameist-
arafjelag Reykjavikur hefir ákveð-
ið að íækka verð á brauðum frá
de'ginum á morgun. Heil rúgbrauð
lækka um 10 aura (úr kr. 1.20 í
kr. 1.10) og heil Franskbrauð
lækka um 5 aura (úr 60 aurum
í 55 aura). Verð á öðrum brauðum,
hörðu brauði og kaffibrauði helst
óbreytt.
Gísli Sigurðsson kennari heldur
fyrirlestur í dag um Þingvöll og
umhverfi hans. Sýnir hann jafn-
hliða fjölda ágætra skuggamynda
t. d. af sjálfum staðnum og fjalla-
hringnum umhverfis Þingvöll. —
Ein myndin er sögnkort sem ný-
lega er gert, þar sem sýnt er Lög-
berg, lögrjetta, búðarrústir og ýms
ar aðrar fornleifar. Mun Gísli lýsa
öllu þessu vel og rækilega, enda
er hann orðinn allra manna kunn-
ugastur austur þar, eftir að hafa
dvalið á Þingvöllnm í mörg sumur.
Ennfremur mun hann segja frá
undirbúningi þeim, sem gerður hef
ir verið vegna Alþingishátíðarinn-
ar og sýna hvar helstu þættir há-
tíðahaldanna fara fram. Ættu
me’rin að fjölsækja fyrirlestur
þenna, því að þar verður áreiðan-
lega um góða skemtun að ræða.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Gamla Bíó og hefst kl. 3 síðd.
Þingvallakórinn. Samæfing ann-
að kvöld (mánudag) kl. 8y2.
Kirkjuhljómleikar Einars E.
Markan og Pí,ls ísólfssonar eru kl.
834 í kvöld. Einar ætlar að syngja
þrjú lög eftir Sigfús Einarsson (Ó,
guð þjer hrós og heiður ber. Kvöld
bæn. Faðir andanna), Sálm eftir
Pál Isólfsson, Tröst, eftir sjálfan
sig, tvö lög eftir Árna Thorsteins-
son (Eum Schluss, Friður á jörðu),
Cara mio ben eftir Giuseppe Gior-
dani, tvö iög eftir Schubert (Lit-
anei, Du bist die Ruh), Hymne,
eftir Nils Larsen, Die Ehre Gottes
aus der Natur, eftir Beethoven.
Farsóttir og manndauði í Reykja
vík. Vikan 23.—29. mars (í svig-
um tölur næstu viku á undan).
Hálsbólga 79 (77). Kvefsótt 112
(106). Kveflungnabólga 6 (7).
Gigtsótt 1 (2). Iðrakvef 3 (5).
Influenza 3 (3). Hettusótt 3 (8).
Taksótt 1 (2). Umferðargula 3(2).
Heimakoma 0 (1). He'ilasótt 1 (0).
Kikhósti 0 (0). Mannslát 6 (9).
4. apríl 19i30.
G. B.
Ný bók. Árangur reynslu minn
ar í dulrænum efnum, ritað hef-
ir ósjálfrátt Theodóra Þórðar-
dóttir. Þetta er önnur bókin,
sem kona þessi hefir ritað ó-
sjálfrátt, og eru stjórnendur
ýmsir: Þorsteinn Erlingsson, Jón
Sigurðsson, Páll Sigurðsson, Ste-
phan G. Stephansson, Kristján Jóns
son, Matthías Jochumsson, Hall-
grímur Pjetursson. Er ritað ým-
ist í bundnu máli eða óbundnu.
1 tveimur greinunum er drepið
á mál, sem nú eru ofarlega á
baugi, bálfarir og jafnaðarstefn-
una. Er þar alveg lagst á móti
því, að lík sjeu brend. Jón Sig-
urðsson skrifar um jafnaðarstefn
una og segir þar meðal annars:
„Jafnaðarstefnan kemst aldrei
á fyr en það er eitt af hennar að-
alboðum að enginn megi vera
óvinur annars, fyr en allir líta
augum trúar og bjartsýnis fram
á veginn. — Rótgróið hatur til
þeirra stjetta, sem menn ekki
teljast til, færir hvern og einn
langt frá vegi bræðralagsins. —
Þið jafnaðarmenn, hyggið fyrst
og fremst að „því, hvers Kristur
krafðist af sínum lærisveinum,
þess, að þeir fórnuðu sjer fyrir
aðra .... að þeir vektu yfir að
ekkert slæmt kæmist að hugsun
þeirra, sem freistuðu þeirra til
vellíðunar holdsins.....Það er
ekki nóg að segja að allir þurfi
að hafa jafngóð húsakynni, en
gera sjálfir svo háar kröfur í
þá átt, að það skaði aðra. Það er
ekki reglan, vinir mínir, ef sýna
þarf eitthvað, sem lífið þarf að
hafa til bóta, að byrja á því af
þeim, sem beita sjer fyrir mál-
inu, að heimta það fyrst og
fremst handa sjálfum sjer. Nei,
það sýnir bara .... eigingirn-
ina biksvarta, sem hvergi má
finnast í bræðralagshugsuninni".
Bókin fæst á afgreiðslu Álafoss,
Laugaveg 44, en ekki hjá bók-
sölum.
Kvenfjel. Keðjan heldur fund á
morgun kl. 3 e. h. í K.R.-húsinu.
Goðafoss kom í gærmorgun. Með
al farþega var Magnús Gíslason
sýslum. á Eskifirði.
Höggmyndasýning Ásmundar
Sveinssonar í Arnarhváli er o|>jn
í dag, en líklega er það seinasti
dagurinn, svo að þeim, sem ekki
hafa sje'ð hana áður, er ráðið fast
lega til þess að skoða hana í dag.
Edison fær einkaleyfi fyrir nýrri
gúnmiívinslu.
í byrjun fyrra mánaðar fekk
Edison einkaleyfi fyrir gúmmíteg-
Erlendar sfmfregnir.
r xzj 1 1
•ai * / •
Andlát Svíadrotningar.
London (UP) 5. apríl FB.
Frá Rómaborg er símað
Drotningin fekk hægt and-
lát. Ástvinir hennar voru hjá henni
í gær og þekti hún þá, en kl. 4
misti hún meðvitund og fekk hana
ekki aftur. Andlátið var hægt.
ítalskir hermenn standa á verði
við líkbörur drotningar í herbergi
því, sem hún andaðist í.
Lík drotningarinnar verður flutt
til Stokkhólms í einkalest og fer
konungur Svía og fylgdarlið hans.
heim á sömu lest.
Stórslys í Bandaríkjunum.
London (UP) FB. 3. apríl.
Frá Philadelphia er símað: Túe
rnenn biðu bana, þar af tvær kon-
ur, en áttatíu meiddust, þegar hver
spre’ngingin á fætur annari kom í
vöruskemmum Pennsylvania Fire-
works Company, nálægt Devon.
Sprenginganna varð vart í mörg
hundruð mílna fjarlægð. Gluggar
brotnuðu víða í liúsum og járn-
brautarlestum og komu truflanir á
allar samgöngur á sprenginga-
svæðinu og þar í kring. Búist er
við, að síðar komi í ljós, að flciri
liafi farist. Frekari leit ógerleg
sem stendur, þvi eldur logar glatt
um allar byggingarnar, sem/ tíru
að falli komnar.
und þeirri»er hann hefir um lang-
an tíma fengist við að rannsaka
iQg gera tilraunir með. Gúmmí
þetta er unnið úr plöntu, og var
mesti erfiðleikinn við að framleiða
það sá, að mest gúmmí er í mergí
plötunnar og berki, en þar á milli
e'r lítið gúmmí, en trefjar þær, er á
milli liggja eyðileggja vjelar, sem
notaðar eru til framleiðsiunnar. —
Uppfinning Edisons byggist því á
abferð til að aðskilja þe'ssa hluta
plötunnar. Aðferðin er þessi í
stuttu máli: Plönturnar eru þurk-
aðar, síðan raðað á plötu og muld-
ar með hjólum. Þannig er mergur-
inn flattur út. Síðan eru þær lagð-
ar í vatn og helt í hrærivjel. í þe'ss-
ari vjel eru plöturnar muldar enn
betur, og slriljast þá viðarhlutar
þlöntunnar frá hinum. Þeir hlutar
plöntunnar, sem innihalda gúmmí-
efni eru látnir í vatn. Gúmmíið er
ljettara en vatnið og flýtur því
ofan á. — Edison fullyrðir, að
hann hafi þarna fundið aðferð,
sem geri Ameríkumönnum það
mögulegt að framleiða alt gúmmí-
hráefni sjálfir, og það ódýrar en